Love At First Sight#loveatfirstsightcardigan |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Bomull-Lin eða DROPS Paris með öldumynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 153-33 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 – A.3. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR 1: Ef fitjaðar eru upp nýjar l í umf 3 í mynstri á hægra framstykki verður að fitja upp nýjar l í umf 4 í mynstri á vinstra framstykki. Ef fitjaðar eru upp nýjar l í umf 7 í mynstri á hægra framstykki verður að fitja upp nýjar l í umf 8 í mynstri á vinstra framstykki. LEIÐBEININGAR 2: Ef enda í umf 3 í mynstri á hægra framstykki, þá verður síðasta umf á vinstra framstykki einnig að vera umf 3 í mynstri. Ef enda á umf 7 í mynstri á hægra framstykki, þá verður síðasta umf á vinstra framstykki einnig að vera umf 7 í mynstri. LEIÐBEININGAR: Bomull-Lin verður jafnara og fallegra eftir þvott. Þegar stykkið hefur verið prjónað, er það skolað, teygt út í rétta stærð – sjá teikningu og þurrkað flatt. Stykkið kemur til með að teygjast 6-7 cm á lengdina eftir þvott. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Framstykki og bakstykki eru prjónuð í eitt yfir öxl. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 57-57-65-65-73-73 l á hringprjóna nr 6 með Bomull-Lin. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er fækkað um 7-7-8-8-9-9 l jafnt yfir í síðustu umf í garðaprjóni þannig: Prjónið 1 l sl, * 2 l slétt saman, 6 l sl *, endurtakið frá *-* 6-6-7-7-8-8 sinnum til viðbótar = 50-50-57-57-64-64 l. Prjónið síðan frá réttu þannig: S-M: A.1 (= 8 l), A.2 alls 3 sinnum. L-XL: 1 l sl, A.2 alls 4 sinnum. XXL-XXXL: A.1 (= 8 l), A.2 alls 4 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram fram og til baka á sama hátt þar til stykkið mælist 42-44-46-42-44-46 cm. Fitjið síðan laust upp 28 nýjar l fyrir ermi í lok næstu umf frá réttu = 78-78-85-85-92-92 l. Stillið af eftir mynstri þannig að nýjar l eru fitjaðar upp í lok umf 3 eð 7 í mynstri – LESIÐ LEIÐBEININGAR 1 - Haldið síðan áfram eins og áður, en prjónið 2 auka mynstureiningar af A.2 yfir nýjar l á ermi. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm og passið að næsta umf sé frá réttu sé umf 3 eða 7 í mynstri – LESIÐ LEIÐBEININGAR 2! Í næstu umf frá réttu eru fyrstu 27-27-28-28-29-29 l prjónaðar áður en þær eru settar á þráð. Setjið þær 51-51-57-57-63-63 l sem eftir eru á þráð án þess að prjóna þær fyrst. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 58-58-65-65-74-74 l á hringprjóna nr 6 með Bomull-Lin. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er fækkað um 7-7-8-8-9-9 l jafnt yfir í síðustu umf í garðaprjóni þannig: 2-2-1-1-2-2 l sl, * 2 l slétt saman, 6 l sl *, endurtakið frá *-* 6-6-7-7-8-8 sinnum til viðbótar = 51-51-57-57-65-65 l. Prjónið síðan frá réttu í 1. umf þannig: S-M: 1 l sl, A.2 alls 3 sinnum, A.3 (= 8 l). L-XL: 1 l sl, A.2 alls 4 sinnum. XXL-XXXL: 1 l sl, A.2 alls 4 sinnum, A.3 (= 8 l). Haldið áfram fram og til baka á sama hátt þar til stykkið mælist 42-44-46-42-44-46 cm. Fitjið síðan laust upp 28 nýjar l fyrir ermi í lok næstu umf frá réttu = 79-79-85-85-93-93 l. Stillið af eftir hægra framstykki og mynstri þannig að nýjar l eru fitjaðar upp í umf 4 eða 8 í mynstri – LESIÐ LEIÐBEININGAR 1 S-M: 1 l sl, A.2 þar til 8 l eru eftir, A.3 (= 8 l). L-XL: 1 l sl, A.2 yfir þær l sem eftir eru á prjóni. XXL-XXXL: 1 l sl, A.2 þar til 8 l eru eftir, A.3 (= 8 l). Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm. Stillið af eftir hægra framstykki og passið að næsta umf sé frá réttu sé umf 3 eða 7 í mynstri – LESIÐ LEIÐBEININGAR 2! Í næstu umf frá réttu eru fyrstu 51-51-57-57-63-63 l prjónaðar eins og áður, setjið þær 28-28-28-28-30-30 l sem eftir eru á þráð. BAKSTYKKI: Fitjið nú upp 25-25-27-27-29-29 nýjar l í lok umf (aftan við hnakka), prjónið l frá hægra framstykki = 127-127-141-141-155-155 l. SETJIÐ EITT PRJÓNAMERKI HÉR! STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Haldið áfram með mynstur frá framstykki yfir allar l frá réttu þannig: 1 l sl, A.2 alls 9-9-10-10-11-11 sinnum. Þegar stykkið mælist 24-24-24-30-30-30 cm frá prjónamerki við miðju uppi á öxl, fellið af 28 l í byrjun á 2 næstu umf fyrir ermar (stillið af að úrtakan sé í umf 3 og 4 eða 7 og 8) = 71-71-85-85-99-99 l. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 65-67-69-71-73-75 cm – stillið af eftir framstykki þannig að endað sé eftir umf 3 eða 7 í mynstri. Prjónið nú 2 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í 1. umf í garðaprjóni er aukið út um 14 l jafnt yfir þannig: 1 l sl, * 2 l í eina l, 4-4-5-5-6-6 l sl *, endurtakið frá *-* 13 sinnum til viðbótar = 85-85-99-99-113-113 l. Stykkið mælist nú ca 66-68-70-72-74-76 cm. Fellið laust af. HÁLSMÁL: Prjónið l af hægra framstykki, prjónið upp 25-25-27-27-29-29 l aftan við hnakka og prjónið l af vinstra framstykki = 80-80-83-83-88-88 l. Prjónið 6 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í 1. umf í garðaprjóni er aukið út um 10 l jafnt yfir þannig: 0-0-3-3-8-8 l sl, * 2 l í eina l, 7 l sl *, endurtakið frá *-* 9 sinnum til viðbótar = 90-90-93-93-98-98 l. Fellið laust af. FRÁGANGUR: Brjótið stykkið saman tvöfalt við öxl. Saumið hliðar- og ermasauma í eitt. Saumið yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Þegar stykkið er tilbúið, er það skolað, strekkt út í rétta stærð – sjá mynsturteikningu og látið þorna flatt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #loveatfirstsightcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.