Felicia skrifaði:
Hej! Är helt ny på stickning därav kanske min fråga är något som är allmänt känt för en stickare: "Sticka 1 rät i m under, 2 am *, upprepa *-* totalt 6 ggr, sticka 1 rät i m under." Vad betyde "1 rät i m under"?
11.11.2020 - 22:31DROPS Design svaraði:
Hej Felicia. I denna video kan du se hur du stickar en rät maska i maskan under. (I videon stickar vi 4 rätmaskor mellan varje "1 m rät i m under rätmaskan", du ska där istället sticka enligt mönstret till halsduken.) Mvh DROPS Design
12.11.2020 - 08:40
Caroline skrifaði:
Hej! Ang mönstret på halsduken så får jag det till 19 m totalt när jag läser mönstret varv 1, men det står att man ska lägga upp 21 m, jag förstår inte? Kan ni förklara :)
18.02.2019 - 12:02DROPS Design svaraði:
Hej, det ska stickas 1 kantmaska i varje sida, så då blir det totalt 21 maskor.
18.02.2019 - 17:43
Petra Diender skrifaði:
Er staat een fout in het patroon voor de shawl. Er staat in dat de 1e en 2e naald herhaald moet worden. Volgens mij moet dit de 2e en de 3e naald zijn. Ik heb nl. de Engelse en de Duitse vertaling bekeken.
19.10.2013 - 17:06DROPS Design svaraði:
Het patroon is aangepast, bedankt voor het doorgeven
21.10.2013 - 15:50
DROPS Extra 0-953 |
|
|
|
Prjónaður hálsklútur og vettlingar úr DROPS Snow eða DROPS Andes með kögri og hálfu klukkuprjóns - afbrigði.
DROPS Extra 0-953 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. HÁLFT KLUKKUPRJÓN (HÁLSKLÚTUR): UMFERÐ 1: * Prjónið 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, 1 l sl. UMFERÐ 2: * Prjónið 1 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, 1 l br. UMFERÐ 3: Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan. Endurtakið umf 2 og 3. RENDUR: * Prjónið 12 cm í litnum ljós grár, 12 cm í litnum milligrár *, endurtakið frá *-*til loka, passið uppá að enda á 12 cm í litnum ljós grár. HÁLFT KLUKKUPRJÓN (VETTLINGAR): UMFERÐ 1: * Prjónið 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: * Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan, 2 l br *, endurtakið frá * - *. Endurtakið umf 1 og 2. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að taka upp þráðinn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l á undan prjónamerki í hvorri hlið: Setjið 1 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, takið 1 l óprjónaða, setjið til baka l af hjálparprjóni á vinstri prjón, prjónið 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir = 2 l færri. Fækkið lykkjum 1 sinni í hvorri hlið = 4 l færri í hverri umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fitjið upp 21 l á prjóna nr 8 með litnum ljós grár Snow eða Andes. Prjónið RENDUR með HÁLFT KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir 19 l, JAFNFRAMT er prjónuð 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið. Haldið áfram með hálsklútinn þar til prjónaðar hafa verið 15 rendur og klúturinn mælist ca 180 cm (stillið eftir heila rönd). Fellið laust af. KÖGUR: Klippið 3 þræði af hvorum lit 32 cm. Leggið þá saman tvöfalda og þræðið lykkjunni í gegnum klukkuprjóns-lykkjurnar á uppfitjunarkanti og affellingarkanti og þræðið endana í gegnum lykkjuna og herðið að. Gerið 1 kögur í hverja klukkuprjóns-lykkju = 7 kögur í hvorum enda á klútnum. Svo að kögrið hangi fallega á klútnum þarf að bleyta það aðeins og gera kögrið rakt, hrista það aðeins til og þurrka áður en það er hnýtt á hálsklútinn. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 21-24 l á sokkaprjóna nr 6 með Snow eða Andes. Prjónið 1 umf slétt, síðan er prjónað HÁLFT KLUKKUPRJÓN - útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8 cm er skipt yfir á sokkprjóna nr 7 og prjónað er áfram þannig: Prjónið 3 l sl, hálft klukkuprjón yfir 7 næstu l (þ.e.a.s. * 1 lykkja slétt í lykkjuna fyrir neðan, 2 l br *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (þ.e.a.s. alls 2 sinnum) endið á 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan). Prjónið nú 1-2 l sléttprjón, fækkið um 1-0 l með því að prjóna 2 l slétt saman. Haldið nú áfram í sléttprjóni yfir þær l sem eftir eru JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í 1. – 24. l (= þumall). Haldið nú áfram í sléttprjóni og hálft klukkuprjón. Þegar stykkið mælist 13-14 cm aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki fyrir þumal – lesið ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hvorri hlið við þær útauknu l í næstu umf = 5 l fyrir þumal. Prjónið 2 umf eins og áður án útaukninga. Setjið nú 5 þumallykkjur á þráð. Fitjið upp 1 nýja fyrir aftan l á þræði = 20-24 l hringinn. Haldið áfram í sléttprjóni og hálft klukkuprjón (prjónið til loka). Þegar stykkið mælist 22-24 cm setjið 1 prjónamerki í 2. – 1. l í umf og prjónamerki í 12.-13. l, þannig að það verði eitt prjónamerki í hvorri hlið á vettlingi. Í næstu umf er lykkjum fækkað hvoru megin við l með prjónamerki – lesið ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hverri umf alls 4-5 sinnum = 4 l eftir. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að. ÞUMALL: Setjið til baka 5 þumallykkjur á sokkaprjóna nr 7. Prjónið upp 5 l fyrir aftan þumal = 10 l. Setjið 1 prjónamerki í 1. l og í 6. l í umf. Haldið áfram í sléttprjóni hringinn þar til þumallinn mælist 5-6 cm. Í næstu umf er fækkað hvoru megin við l með prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í næstu umf = 2 l eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstri vettlingur, nema spegilmynd. Þegar prjónamerki er sett í fyrir þumal, setjið það í gangstæða hlið, þ.e.a.s. í 13.- 14. l í umf. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-953
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.