Durand skrifaði:
Beau pull.
15.06.2013 - 19:27
Madeleine skrifaði:
Måste sticka den.
10.06.2013 - 21:23
Christine skrifaði:
Les deux versions (pull et cardigan) sont superbes et indémodables. Le gris clair change du foncé traditionnel.
31.05.2013 - 21:39
Ervena skrifaði:
..Zawze urocza i modna Skandynawia , piękny ...
31.05.2013 - 14:50
Maria Svensson skrifaði:
Denna gillar jag verkligen!!!! :-)
31.05.2013 - 08:50
Lene Holm Kleist skrifaði:
Ser udfordrende ud, alligevel ser nem ud.
31.05.2013 - 02:19
Pipa skrifaði:
I agree with you
30.05.2013 - 21:09
Tim skrifaði:
This … is really, really beautiful!
30.05.2013 - 14:28
September Sweater#septembersweater |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima með norrænu mynstri. Stærð S - XXXL
DROPS 150-15 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA-1 (á við um fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku á berustykki): Til þess að reikna út hversu oft þarf að fækka í umf, er heildarfjöldi l í umf talinn (t.d. 296 l) og deilt með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 24) = 12,3. Þ.e.a.s. með þessu dæmi eru prjónaðar 11. og 12. hver l slétt saman. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að taka upp l frá fyrri umf, prjónið l slétt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 212-228-248-280-308-336 l á hringprjóna nr 3 með litnum grár. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 44-48-50-58-62-66 l jafnt yfir = 168-180-198-222-246-270. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 84-90-99-111-123-135 l (= í hlið). Prjónið nú mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 l færri – ATH: Þær l sem ekki ganga upp í mynstri þegar l er fækkað eru prjónaðar með litnum grár). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 16 cm = 160-172-190-214-238-262 l. Þegar stykkið mælist 22 cm aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri – ATH: Þær l sem ekki ganga upp í mynstri við útaukningu eru prjónaðar með litnum grár). Endurtakið útaukningu með 3-3-3-3½-3½-4 cm millibili, 3-4-4-4-4-4 sinnum til viðbótar (= alls 4-5-5-5-5-5 útaukningar) = 176-192-210-234-258-282 l. Þegar stykkið mælist ca 36-37-38-39-40-41 cm – stillið af að næsta umf sé umf með "doppum", fellið af miðju 12 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 6 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 76-84-93-105-117-129 l eftir á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 64-64-68-68-76-76 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum rúbínrauður. Prjónið 1 umf slétt. Prjóni nú stroff 2 l sl, 2 l br í 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt með litnum rúbínrauður JAFNFRAMT er fækkað um 16-16-16-16-20-20 l jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi) og prjónið mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.2. Eftir A.2 er haldið áfram í sléttprjóni og litnum grár. Þegar stykkið mælist 8-8-10-10-12-10 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 3-2½-2½-2-2-2 cm millibili, 12-14-13-15-14-16 sinnum til viðbótar (= alls 13-15-14-16-15-17 útaukningar) = 74-78-80-84-86-90 l. Þegar stykkið mælist 45-45-45-44-44-44 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af 12 l fyrir miðju undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 6 l hvoru megin við prjónamerki) = 62-66-68-72-74-78 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón eins og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir ermar = 276-300-322-354-382-414 l. Prjónið 1 umf með litnum grár JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-6-6-6-6 l jafnt yfir LESIÐ ÚRTAKA-2 = 272-296-316-348-376-408 l Prjónið 0-1-2-0-1-2 cm sléttprjón með litnum grár. Prjónið nú mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.3 (veldu mynstur fyrir þína stærð). JAFNFRAMT í umf merktri með ör A í mynstri er fækkað um 16-24-28-28-40-40 l jafnt yfir frá réttu = 256-272-288-320-336-368 l. Haldið áfram með mynstur. Í umf merktri með ör B í mynstri er fækkað um 22-23-24-32-33-35 l jafnt yfir = 234-249-264-288-303-333 l. Haldið áfram með mynstur. Í umf merktri með ör C í mynstri er fækkað um 30-33-36-36-39-45 l jafnt yfir = 204-216-228-252-264-288. Haldið áfram með mynstur. Í umf merktri með ör D í mynstri er fækkað um 28-32-36-44-40-48 l jafnt yfir = 176-184-192-208-224-240 l. Haldið áfram með mynstur. Í umf merktri með ör E í mynstri er fækkað um 36-40-44-52-64-64 l jafnt yfir = 140-144-148-156-160-176 l. Haldið áfram með mynstur. Í umf merktri með ör F í mynstri (= síðasta umf), fækkið um 36-36-36-40-40-48 l jafnt yfir = 104-108-112-116-120-128 l. Klippið frá. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og rúbínrautt, byrjið við miðju að aftan og prjónið stroff hringinn (= 2 l sl, 2 l br, en passið uppá að það verða annað hvort 2 l sl eða 2 l br fyrir miðju að framan. Setjið 1 prjónamerki við miðju að framan á milli 2 miðju-l. JAFNFRAMT eftir 2 umf með stroff er prjónuð upphækkun í hnakka með stuttum umferðum þannig: Byrjið fyrir miðju að aftan og prjónið stroff eins og áður þar til 19-19-21-21-23-23 l eru eftir á undan prjónamerki, snúið við og prjóni stroff til baka þar til 19-19-21-21-23-23 l eru eftir á annarri hliðinni. Snúið við og prjónið stroff þar til 27-27-29-29-31-31 l eru eftir á undan prjónamerki, snúið við og prjónið stroff til baka þar til 27-27-29-29-31-31 l eru eftir í hinni hliðinni á undan prjónamerki. Snúið við og prjónið stroff þar til 35-35-37-37-39-39 l eru eftir, snúið við og prjónið stroff til baka þar til 35-35-37-37-39-39 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið stroff fram að byrjun umf (miðja að aftan). Haldið nú áfram með stroff hringinn yfir allar l eins og áður þar til stroffið mælist ca 3 cm við miðju að framan. Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. Berustykkið mælist ca 20-21-22-23-24-25 cm og öll peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #septembersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.