DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 150-16
DROPS Design: Mynstur nr li-029
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: Ein stærð

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
50 gr litur nr 0100, natur
50 gr litur nr 4088, orkidé
50 gr litur nr 5820 vínrauður
50 gr litur nr 9015, grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 48 lykkjur á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum orkidé Lima. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.1 (= 4 mynstureiningar í umferð) – JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í 2. lykkju í umferð (= þumallykkjur).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerki er aukið út fyrir opi fyrir þumal þannig: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan).
Endurtakið útaukningu utan með útauknu lykkjum í annarri hverri umferð, 5 sinnum til viðbótar (= alls 6 sinnum – allar útauknar lykkjur eru prjónaðar með litnum grár – þegar það gengur ekki lengur er prjónað í þeim lit sem mest er af í umferð) = 13 þumallykkjur og 60 lykkjur alls.
Þegar stykkið mælist 8 cm eru 13 þumallykkjur settar á þráð. Í næstu umferð er fitjuð upp 1 ný lykkja fyrir aftan þumallykkjur = 48 lykkjur alls.
Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er A.2 endurtekið þar til stykkið mælist 17 cm frá prjónamerki (allur vettlingurinn mælist ca 23 cm og það eru eftir ca 4 cm til loka máls – mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd).
Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (= 24 lykkjur á milli prjónamerkja). Prjónið nú með litnum grár. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð, 4 sinnum til viðbótar (= alls 5 sinnum) og síðan í hverri umferð alls 4 sinnum = 12 lykkjur eftir á prjóni.
Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eru eftir, herðið að og festið vel. Allur vettlingurinn mælist ca 27 cm.

ÞUMALL:
Setjið 13 lykkjur yfir opi fyrir þumal á sokkaprjóna nr 3 og takið upp að auki 3 lykkjur í kanti á bakhlið við þumallykkjur með litnum grár = 16 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum grár í ca 5 cm (nú er eftir ca 1 cm til loka máls). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (= 8 lykkjur á milli prjónamerkja – mátið vettlinginn svo að prjónmerkin séu rétt staðsett). Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin alveg eins og efst á vettlingnum. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð, 1 sinni til viðbótar (= alls 2 sinnum) = 8 lykkjur eftir á prjóni. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eru eftir, herðið að og festið vel.

VINSTRI VETTLINGUR:
Prjónið eins og hægri vettlingur, nema spegilmynd, þ.e.a.s. byrjið mynstur frá gangstæðri hlið og aukið út fyrir opi fyrir þumal hvoru megin við næst síðustu lykkju í umferð.

Mynstur

symbols = vínrauður
symbols = orkidé
symbols = natur
symbols = grár
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Minna wrote:

Hello, the thumb is knitted around the second stitch leaving 11 stitches for the pattern on this needle. This means that now the stitch number doesn’t match with the pattern stitches? How can I make the pattern to match?

20.09.2020 - 22:12

DROPS Design answered:

Dear Minna, in this pattern the stitches for thumb are worked either with grey of with the main colour of the round, they are not worked in pattern. Happy knitting!

21.09.2020 - 15:45

country flag Estelle Johansson wrote:

Underbart vacker vantar

12.12.2019 - 09:17

country flag Estelle Johansson wrote:

Hejsan Jag undrar om jag ska sticka 4 cm innan jag ökar för tumkilen, förstår inte varför jag efter stickad mudd ska sätta en markör på 2 maskan på sticka 1. Läser som jag ska sticka 4cm diagram 1 sedan öka för tumkilen. Hoppas på hjälp från er Tack på förhand Mvh Estelle Johansson

12.12.2019 - 09:16

DROPS Design answered:

Hej Estelle, Ja du öker till tumkilen vid markören efter 4 cm med diagram. Lycka till :)

16.12.2019 - 15:29

Me1ian wrote:

The size is quite small! I knitted the pattern starting with 60 stiches (21 for the thu).

11.05.2015 - 12:06

country flag Melli wrote:

Hallo, ich hoffe sie beantworten mir noch meine letzte Frage. Liebe Grüße Melli

23.02.2015 - 21:20

country flag Melli wrote:

Ich stricke den Daumen so: Nachdem der Handschuh sonst fertig ist beginne ich am Daumen , ich stricke die erste Masche verschränkt aus dem Querfaden, dann aus den Stegmaschen je eine normal und nach dem Steg auch verschränkt aus dem Querfaden ( in beiden Fällen nach links gerichtet ). Inder nächsten Runde stricke ich die 2 Maschen vor dem Steg rechts verschränkt zusammen und die danach rechts zusammen . Ist das so in Ordnung ? Liebe Grüße Melli. Dann hab ich auch alles verstanden.

23.02.2015 - 18:27

DROPS Design answered:

Liebe Melli, ja das geht, aber Sie müssten dann ja 2 M mehr aufgefasst haben, wenn Sie in der 2. Rd je 2 M zusammenstricken? Das können Sie so machen, wenn es bei Ihnen die Löcher vermeidet. Grundsätzlich gilt: Es gibt nicht immer nur eine Lösung - vertrauen Sie einfach ein bisschen mehr auf Ihre Erfahrung und auch aufs Ausprobieren! Viele Techniken sind dadurch erst entstanden. Sie sehen dann ja, wie es aussieht und ob es Ihnen gefällt. Und stöbern Sie einfach auch noch ein bisschen in unseren Videos, dort finden sich auch viele Tipps und Kniffe.

24.02.2015 - 22:38

country flag Melli wrote:

Vielen Dank für die Antworten zu meinen Fragen. Habe noch eine kleine Frage : Ich stricke beim rechten und linken Handschuh immer zuerst die neuen Maschen beim Daumen heraus und dann erst die stillgelegten. Beginne also beim rechten Handschuh an der Innenfläche und beim linken an der äußeren Fläche . wäre es besser woanders zu beginnen , z. b. erst die stillgelegten M zu stricken ? Liebe Grüße Melli

23.02.2015 - 14:08

DROPS Design answered:

Letztendlich ist das egal, denn die Masche, die bei Ihnen am Übergang ein Loch bildet, ist ja schon gestrickt. Ich mache es wie Sie und stricke immer als erstes die neuen M heraus.

23.02.2015 - 15:52

Andreas wrote:

Hier gibt es gute Antworten für die Fragen um den Daumen: Drops 121-23 oder Smådrops 23-39. Beide von 2013!

22.02.2015 - 15:55

DROPS Design answered:

Die dort genannte Möglichkeit, nämlich die M verschränkt herauszustricken, wurden ja hier auch schon mehrfach besprochen. Manchmal bleibt dann trotzdem noch ein kleines Loch, je nach Größe der aufgefassten M, obwohl an sich verschränktes Auffassen eine gute Methode zum Vermeiden von Löchern ist.

22.02.2015 - 23:21

country flag Melli wrote:

Habe mir das Video angesehen, dort wird allerdings die erste masche vor dem Steg,wie auch die Masche nach dem Steg nicht verschränkt aus dem querfaden aufgenommen. Habe selbst in meinen vielen Strickbüchern immer wieder verschiedene Anweisungen gefunden, doch irgendwie war ich nie mit dem ergebnis zufrieden. Wie im Video bildeten sich bei mir noch größere Löcher. Ist wirklich schade, denn eigentlich kann ich ganz gut stricken. Haben Sie sonst noch einen Tipp ? Liebe Grüße Melli

22.02.2015 - 13:50

DROPS Design answered:

Wie gesagt, verschränkt stricken ist schon eine gute Methode, um Löcher zu vermeiden. Das Video habe ich Ihnen empfohlen, damit Sie sehen, an welcher Stelle Sie zum Auffassen einstechen. Wenn bei mir ein Loch beim Daumenansatz zu groß wird, löse ich das Problem mit dem Ansatzfaden, der ja vernäht werden muss - wenn man auf der Rückseite dem Maschenverlauf folgt und den Faden dann leicht anzieht, verschwindet das Loch. Einen weiteren Tipp habe ich Ihrer Frage vom 19.02. hinzugefügt!

22.02.2015 - 14:03

country flag Melli wrote:

Hallo, stricke parallel zur Jacke diese Handschuhe, bin schon am Verzweifeln, denn ich scheitere immer am Daumen. Wäre über einen Tipp sehr dankbar. Liebe Grüße Melli

21.02.2015 - 17:09

DROPS Design answered:

Liebe Melli, schauen Sie sich doch einmal das Video zum Daumen an - unter Videos im Kopf neben dem Foto. Vielleicht hilft Ihnen das weiter, um ein Loch zu vermeiden, hier wird anschaulich gezeigt, wo Sie beim Auffassen in die M einstechen.

21.02.2015 - 22:24