DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 150-18
DROPS Design: Mynstur nr li-030
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: 22 - 24 - 27 cm

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
100-150-150 gr litur nr 9015, grár
50-50-50 gr litur nr 0100, natur
50-50-50 gr litur nr 4088, bleikvínrauður
50-50-50 gr litur nr 5820, rúbínrauður

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l og 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR 2,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sl þar til 7-7-8 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br þar til 7-7-8 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sl þar til 6-6-7 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eina og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið br þar til 6-6-7 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 12-14-14 l eru eftir á prjóni.

ÚRTAKA:
Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman og síðan 2 l snúnar slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað i hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 64-64-68 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum rúbínrauður. Prjónið stroffprjón (= 2 l sl, 2 l br) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5, prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-8 l jafnt yfir = 60-60-60 l. Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
ATH: Mynsturbekkur merktur með svartri stjörnu í A.1 byrjar og endar með gráum krossi í mynstri, þ.e.a.s. það koma 2 gráir krossar mitt aftan á sokknum.
JAFNFRAMT í umferð merktri með ör A í mynstri er fækkað um 3 l jafnt yfir = 57 l. Haldið áfram með mynstur.
Í umferð merktri með ör B í mynstri er fækkað um 1 l = 56 l.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 22 cm. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni með litnum grár JAFNFRAMT í 1 umferð er fækkað um 8-4-0 l jafnt yfir = 48-52-56 l.
Þegar stykkið mælist 23-24-25 cm, haldið eftir fyrstu 12-13-14 l á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 24-26-28 l á þráð (= mitt ofan á fæti – ATH: Lykkjurnar eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn) og haldið eftir síðustu 12-13-14 l á prjóni fyrir hæl. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka yfir 24-26-28 hællykkjur í 5-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki í miðja umferð – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið nú HÆLÚRTAKA – lesið útskýringu að ofan.
Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 11-12-13 l hvoru megin við hæl og 24-26-28 l af þræði eru settar aftur á prjóninn = 58-64-68 l. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 24-26-28 l ofan á fæti. Prjónið nú sléttprjón hringinn JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu l Á UNDAN fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og þær 2 fyrstu l Á EFTIR seinna prjónamerki ofan á fæti eru prjónaðar snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umf 6-7-7 sinnum til viðbótar (= alls 7-8-8 sinnum) = 44-48-52 l. Takið nú frá bæði prjónamerkin. Prjónið þar til stykkið mælist 18-20-22 cm frá prjónamerki á hæl (= 4-4-5 cm að loka máli). Nú er sett 1 prjónamerki í hvora hlið svo að það verða 22-24-26 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram með litnum grár JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin. LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð, 3-3-4 sinnum til viðbótar (= alls 4-4-5 sinnum) og síðan í hverri umf alls 5-6-6 sinnum = 8 l eftir á prjóni.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.01.2023
Leiðrétting í mynsturteikningu A.1.
Yfirfarið á vefsvæði: 07.11.2023
SOKKUR:..ATH: Mynsturbekkur merktur með svartri stjörnu í A.1 byrjar og endar með gráum krossi í mynstri, þ.e.a.s. það koma 2 gráir krossar mitt aftan á sokknum.

Mynstur

symbols = rúbínrauður
symbols = bleikvínrauður
symbols = natur
symbols = grár
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Monique wrote:

Hallo, Ik plak: “en minder TEGELIJKERTIJD aan elke kant als volgt: brei de 2 laatste st voor de markeerder op de bovenkant van de voet samen en brei de eerste 2 st na de markeerder op de bovenkant van de voet gedraaid r samen. Herhaal dit minderen om de nld nog 6-7-7 keer (= 7-8-8 keer in totaal) = 44-48-52 st. Verwijder de 2 markeerders.”het zou beter zijn als er stond: brei de eerste 2 steken na de TWEEDE markeerder. Dus dat “2e” voorkomt een verwarring. Dank.

07.01.2024 - 22:06

country flag Caroline R wrote:

Bonjour, J'ai un soucis au niveau du diagramme où vous avez mis une petite étoile noir à côté. J'ai 60 mailles, j'ai fait le rang écru mais je ne sais pas pourquoi au rang au dessus je ne fini pas le motif par 3mailles grises... Alors que le motif avant tombait juste. La petite étoile noire signifie telle quelque chose? Est ce une erreur de ma part? Vous remerciant,

20.09.2023 - 22:09

DROPS Design answered:

Bonjour, La flèche indique une diminution "Au tour du diagramme marqué par la flèche B, diminuer 1 m = 56 m." Il faut diminuer 1 maille à chaque repétition du motif au rang signalé par la flèche. Bon tricot!

28.09.2023 - 15:02

country flag Hetty wrote:

Why have you not corrected the mistake in the pattern yet? Corinne noticed this and told you about it on the 31.10.2017 which was five years ago.

08.01.2023 - 23:49

DROPS Design answered:

Dear Hetty, the diagram has now been edited, thanks for reminding. Happy knitting!

27.01.2023 - 15:09

country flag Marit Leonore wrote:

A.1 går ikke opp med 16m på diagrammet og 60m på pinnene;)

16.06.2022 - 21:05

country flag Nicole wrote:

Wanneer je de blokjes in wit gaat breien loopt het figuur niet door. Het figuur bevat hier 16 steken. Volgens het patroon staan er 60 steken op de naald. Dit komt niet uit?

21.08.2021 - 05:20

country flag Guðrún Sigríður Þorsteinsdóttir wrote:

Mynstrið gengur ekki upp í 13. umferð, þar er mynstrið 8 lykkjur og 8 gengur ekki upp í 60. Ég er ekki komin lengra en ég vona að ekki séu fleiri villur.

28.01.2021 - 16:41

country flag Le Meute wrote:

Bonsoir, je réalise le Modèle chaussettes DROPS 150-18 soucis pour le talon, l'explication n'est pas très claire pour moi concernant les diminutions. Je vois diminutions talon puis diminutions? est-ce qu'il faut continuer à diminuer après les 14m restantes (taille 41/43). Les diminutions doivent elles se faire comme sur la vidéo? Merci

22.09.2020 - 20:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Le Meute, après avoir tricoté les 4 rangs des DIMINUTIONS TALON, continuez à diminuer de chaque côté, à la fin de chaque rang jusqu'à ce qu'il vous reste 14 m sur l'aiguille - comme le montre la vidéo, quand il vous reste ces 14 m, vous continuez le pied en relevant les mailles de chaque côté du talon (cf cette vidéo à partir de 05:43 enviorn); Bon tricot!

23.09.2020 - 08:18

country flag Carlota wrote:

Bonjour, Est-il possible de tricoter ces chaussettes avec des aiguilles circulaires ? Merci par avance C

03.03.2020 - 02:22

DROPS Design answered:

Bonjour Carlotta, tout à fait, comme tout petit ouvrage d'une circonférence inférieure à celui d'une circulaire de 40 cm, vous pouvez tricoter sur une circulaire de 80 cm en utilisant la technique dite du magic loop. Bon tricot!

03.03.2020 - 10:47

country flag MEUNIER Léone wrote:

Bonjour, je voudrais tricoter ces chaussettes avec la laine LIMA mais sans le jacquard. Les côtes sont indiquées sur 4 cm mais ensuite les diminutions ou augmentations sont données en fonction du schéma de jacquard. Pourriez-vous m'indiquer à quelle hauteur en cm ou à combien de rangs je dois faire ces changements.

31.10.2019 - 15:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Meunier, pour les tricoter en uni, suivez les indications des explications, et diminuez aux rangs indiqués dans le diagramme (comptez les rangs jusqu'aux flèches). Bon tricot!

04.11.2019 - 14:14

country flag Gitte wrote:

Et HELT UMULIGT mønster at både forstå - og følge. Ærgerligt

31.05.2019 - 02:21