Lena Bindocci skrifaði:
Buona sera, ho ripreso a lavorare il modello in questione e sono arrivata allo sprone, esattamente ad eseguire il diagramma A1. Non ho assolutamente capito come eseguirlo, come faccio a ripeterlo, nel mio caso 19 volte? E partendo dal basso quando ho eseguito le 14 maglie a diritto sul rovescio, come proseguo con le altre? Sono totalmente in confusione mi potreste dare maggiori chiarimenti? Grazie infinite
13.06.2021 - 19:50DROPS Design svaraði:
Buonasera Lena, per quanto riguarda il diagramma A.1, deve ripeterlo più volte sullo stesso giro: se ha 276 maglie sul giro, con 10 maglie di vivagno avrà 276 - 10 = 266/14 (maglie con cui comincia A.1) = 19 ripetizioni sul giro. Buon lavoro!
14.06.2021 - 21:01
Lena Bindocci skrifaði:
Cosa vuol dire \"lavorare 2 creste\" ?.. Poi non avendo i ferri circolari del n 3 ...e non li posso acquistare in questo periodo di covid-19 , potete aiutarmi a realizzare il modello con i ferri normali con semplici spiegazioni, perché sono alle prime armi. Grazie Lena
23.04.2020 - 23:59DROPS Design svaraði:
Buongiorno Lena. 1 cresta sono 2 ferri a diritto (quindi 2 creste, 4 ferri a diritto). Per lavorare con i ferri dritti dovrebbe lavorare in parti separate; lo sprone sarebbe più comodo lavorarlo come indicato. Potrebbe individuare le maglie per il dietro (p.es taglia S: 108m) e per i davanti (taglia S: 59 per ogni davanti). Può provare a contattare via mail il suo rivenditore Drops di fiducia per ulteriori aiuti personalizzati. Buon lavoro!
24.04.2020 - 10:46
Paola skrifaði:
Non capisco questo passaggio…...lavorare un’alzata sul dietro del collo a f. accorciati come segue (iniziare dal diritto del lavoro e continuare a coste e con le m. per il bordo come prima): me lo potreste spiegare meglio grazie
19.03.2019 - 21:34DROPS Design svaraði:
Buongiorno Paola. Lavora un’alzata sul dietro per rendere lo scollo più alto sul dietro rispetto al davanti. Deve iniziare su un ferro lavorato sul diritto del lavoro, lavora le maglie del bordo davanti a legaccio, lavora le altre maglie a coste come prima. Buon lavoro!
19.03.2019 - 23:16
Maartje skrifaði:
Wat betekenen de open vakjes bij telpatroon?
01.02.2019 - 13:35
Helle Iversen skrifaði:
Har netop strikket denne model i Karisma-garn - er blevet utrolig lækker og flot
22.01.2014 - 12:27
Christine Friedrich skrifaði:
Ich möchte die kommentare lesen
29.06.2013 - 10:50DROPS Design svaraði:
Sie müssen nur nach unten scrollen und können dann alle Kommentare lesen.
01.07.2013 - 08:58
E V Geest skrifaði:
Waarom wordt er zoveel patronen met een rond breinaald gebreid.??Vermeld ook de patronen heen en weer op 2 rechte naalden .Dat is wel wat gemakkelijker. rondbreinaal
26.01.2013 - 11:45Mirta skrifaði:
El nombre ALEGRO
22.01.2013 - 18:31Mirta skrifaði:
Es tan ponible para toda ocasión y tan juvenil, muy lindo
22.01.2013 - 18:08
Beate skrifaði:
Das ist mein nächstes Projekt, sobald die Anleitung geschaltet ist.
13.01.2013 - 07:52
Liv#livcardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð ermalaus peysa úr DROPS Cotton Light með berustykki og vösum. Stærð S - XXXL
DROPS 147-3 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna): *1 umf slétt og 1 umf brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 3, 11, 19, 27, 35, 43, 51, 59 og 67 cm STÆRÐ M: 5, 13, 21, 29, 37, 45, 53, 61 og 69 cm STÆRÐ L: 5, 13, 21, 29, 37, 45, 54, 62 og 71 cm STÆRÐ XL: 5, 13, 22, 30, 39, 47, 56, 64 og 73 cm STÆRÐ XXL: 3, 12, 21, 30, 39, 48, 57, 66 og 75 cm STÆRÐ XXXL: 5, 14, 23, 32, 41, 50, 59, 68 og 77 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 226-246-270-294-318-346 l (meðtaldar eru 5 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með Cotton Light. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og haldið áfram í sléttprjóni, en 5 síðustu l í hvorri hlið eru prjónaðar áfram í garðaprjóni til loka (= kantur að framan). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGATI í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 6-7-8-8-8-8 cm er sett 1 prjónamerki 59-64-70-76-82-89 l frá hvorri hlið (= 108-118-130-142-154-168 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Nú er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 4½-4-3½-3½-3-3 cm millibili, 9-10-11-12-13-14 sinnum til viðbótar (= alls 10-11-12-13-14-15 úrtökur) = 186-202-222-242-262-286 l. Þegar stykkið mælist ca 49-50-51-52-53-54 cm – passið uppá að næsta umf er prjónuð frá röngu, prjónið 4 umf garðaprjón yfir miðju 14 l í hvorri hlið (þ.e.a.s. 7 l garðaprjón hvoru megin við bæði prjónamerki – aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Í næstu umf frá röngu er prjónað br (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni eins og áður) JAFNFRAMT eru felldar af 10 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 5 l hvoru megin við bæði prjónamerki) = 78-86-96-106-116-128 l eftir á bakstykki og 44-48-53-63-69 l eftir á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið kant á ermum. KANTUR Á ERMUM: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 56-58-60-66-70-74 l á sokkaprjóna nr 4 með Cotton Light. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umf er prjónað sl JAFNFRAMT eru felldar af 10 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. 5 l í byrjun og 5 l í lok umf) = 46-48-50-56-60-64 l. Geymið stykkið og prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn kant á ermum á sama hringprjón nr 4 á sama hátt og á fram- og bakstykki (án þess að prjóna inn l) = 258-278-302-334-362-394 l. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 10-2-12-2-2-6 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 248-276-290-332-360-388 l. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan, prjónið mynstur eftir A.1 þar til 5 l eru eftir (= 17-19-20-23-25-27 mynstureiningar) og endið á 5 kantlykkjum að framan. Þegar A.1 hefur verið prjónað eru 146-162-170-194-210-226 l í umf. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan, * 1 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 7 l eru eftir, prjónið 2 l br saman og endið á 5 kantlykkjum að framan = 145-161-169-193-209-225 l. Prjónið nú stroff með sl yfir sl og br yfir br. JAFNFRAMT þegar stroffið mælist 1-2-3-4-5-6 cm, passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu, prjónið nú upphækkun að aftan við hnakka með styttri umf (byrjið frá réttu og haldið áfram með stroff og kant að framan eins og áður) þannig: Prjónið þar til eftir eru 25-27-29-31-33-35 l, snúið við og prjónið frá röngu þar til eftir eru 25-27-29-31-33-35 l í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið þar til eftir eru 31-33-35-37-39-41 l, snúið við og prjónið til baka þar til eftir eru 31-33-35-37-39-41 l í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið þar til eftir eru 37-39-41-43-45-47 l, snúið við og prjónið til baka þar til eftir eru 37-39-41-43-45-47 l í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið þar til eftir eru 43-45-47-49-51-53 l, snúið við og prjónið til baka þar til eftir eru 43-45-47-49-51-53 l í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið út umf. Prjónið nú 3 umf stroff yfir allar l (kantur að framan prjónaður í garðaprjóni eins og áður). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan, prjónið mynstur eftir A.2 þar til 5 l eru eftir (veldur rétta mynsturteikningu fyrir þína stærð). JANFRAMT er fækkað um 7 l jafnt yfir og endið á 5 kantlykkjum að framan = 138-154-162-186-202-218 l í umf eftir 1. umf í A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað á hæðina eru 122-136-143-142-154-166 l eftir á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 28-38-41-36-44-50 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 94-98-102-106-110-116 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu, áður en fellt er laust af með sl frá röngu. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir höndum. Saumið tölur í. VASI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 36-36-36-40-40-40 l á hringprjóna nr 4 með Cotton Light og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar vasinn mælist 13-13-13-15-15-15 cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá rétt, skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið nú A.3 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Eftir A.3 er fellt laust af með sl frá réttu. Prjónið annan vasa á sama hátt. Saumið vasann á hvort framstykki með lykkjuspori, vasinn er staðsettur beint fyrir ofan kant í garðaprjóni neðst niðri á peysunni og ca 8-8-9-9-10-10 cm frá kanti að framan (mátið flíkina til þess að fá rétta staðsetningu á vösum). |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #livcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.