DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS BabyAlpaca Silk yarn
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
DROPS Super Sale
Velja stærð:
DROPS 145-7

#whitesandsweater

DROPS Design: Mynstur nr bs-036
Garnflokkur A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
300-300-350-400-400-450 gr litur nr 1101, hvítur
Og einnig:
DROPS Kid Silk frá Garnstudio
150-150-150-150-200-200 gr litur nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNN NR 5 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 17 l með garðaprjóni verði 10 cm á breidd með 1 þræði af hvorri tegund.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5 (40 og 80 cm) – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN:
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til þess að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 91-101-109-119-129-139 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af hvorri tegund.
Prjónið stroff í 1. umf frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 1 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff í 4 cm. Í næstu umf frá réttu er skipt yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið sl yfir allar l – JAFNFRAMT er fækkað um 15-17-19-21-21-21 l jafnt yfir = 76-84-90-98-108-118 l. Prjónið garðaprjón til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8-8-8-9-9-9 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (hér byrjar op/klauf). Þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm er fellt af fyrir handveg þannig: Fellið af 3-4-4-5-6-7 l í byrjun á næstu 2 umf = 70-76-82-88-96-104 l.
Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið nú af miðju 20-20-22-24-26-28 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 2 l í næstu umf frá hálsi = 23-26-28-30-33-36 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm.

FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og bakstykki – en framstykkið er prjónað 4 cm styttra á hæðina.
Fitjið upp og prjónið fyrst stroff og síðan garðaprjón á sama hátt og á bakstykki (ATH: Ekki setja prjónamerki). Þegar framstykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm er fellt af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki.
Haldið áfram í garðaprjóni þar til framstykkið mælist 44-46-47-49-50-52 cm. Fellið nú af miðju 14-14-16-16-18-18 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuðu til loka fyrir sig. Fellið nú af í hveri umf frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 l 1-1-1-2-2-2 sinnum, 1 l 3-3-3-2-2-3 sinnum = 23-26-28-30-33-36 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar framstykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 44-46-50-52-54-56 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið stroff 1. umf frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff í 4 cm. Í næstu umf frá réttu er skipt yfir á hringprjóna nr 5 og prjónað sl yfir allar l JAFNFRAMT er fækkað um 6-6-8-8-8-8 l jafnt yfir = 38-40-42-44-46-48 l. Prjónið nú garðaprjón til loka.
Þegar stykkið mælist 8-8-8-7-7-7 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 6½-5½-5-4-3½-3½ cm millibili 6-7-8-9-10-10 sinnum til viðbótar (alls 7-8-9-10-11-11 útaukningar) = 52-56-60-64-68-70 l. Þegar stykkið mælist 50-49-49-47-45-43 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi (fyrir frágang). Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 52-51-51-50-49-47 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í, saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju – ATH: Sú eining sem prjónuð var á eftir prjónamerki efst á ermi á að passa inn í úrtöku fyrir handveg. Saumið hliðarsaum frá handveg niður að prjónamerki á bakstykki (op/klauf = 8-8-8-9-9-9 cm mælt á bakstykki).

HÁLSMÁL:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Prjónið upp frá réttu ca 90-110 l meðfram hálsmáli á hringprjóna nr 4,5 (40 cm). Í næstu umf er prjónað sl – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður að 90-94-98-102-106-110 l. Prjónið nú stroff (= 1 l sl, 1 l br) þar til hálsmálið mælist ca 2½ cm, fellið laust af allar l með sl yfir sl og br yfir br.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 145-7
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 145-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (67)

country flag Camilla skrifaði:

Synes det med kantm var mangelfullt forklart. Kan dere utdype? Også veldig upraktisk at det er så begrenset hvor mye man kan skrive i spm.feltet uten at man får beskjed om det. Fikk ikke forklart hele problemstillingen og måtte gå tilbake og redigere flere ganger etter gjentatte "robot-tester".

04.02.2017 - 10:00

DROPS Design svaraði:

Hej Camilla. 1 kantmaske er 1 rille? Altsaa du strikker kantmasken r paa alle pinde.

06.02.2017 - 13:43

country flag Camilla skrifaði:

Jeg strikker genseren i str s. Hva menes "på beg av neste 2 pinne? Jeg har i utgangspunktet 91 m og skal felle til jeg har 70 m. På str s, skal det da felles 3 m på begynnelsen av hver pinne, i hver side? Da går jo ikke m.antallet som skal felles opp med hvor mange m som skal bli igjen. Det skal felles totalt 21 m. Hvis det da skal felles 3 m i hver side, så blir det 7 fellinger totalt. Men da vil det jo bli 3 fellinger på den ene siden og fire på den andre?

04.02.2017 - 09:56

DROPS Design svaraði:

Hej Camilla. Nej, du springer noget over. Du har 91 m og feller 15 m jaevnt fordelt (dvs, du strikker 2 m r sammen over hele pinden med en jaevn afstand), du lukker ikke af i siden her (se den her lektion med öke/felle jaevnt fordelt). Og du skal have 76 m bagefter. Du lukker af i siden (begyndelsen af hver p) til ermhul: 3 i hver side = 70 m tilbage.

06.02.2017 - 13:52

Enna skrifaði:

I would like to knit in alpaca but thecwool is in two strands will it be OK to knit this pattern or should I do a test piece. If so can you tell me the gusge. Thanks. (uk)

18.12.2016 - 17:56

DROPS Design svaraði:

Dear Emma, BabyAlpaca Silk and Kid-Silk are both Yarn group A as Alpaca does too, so that you can use 2 strands Alpaca instead of 1 strand BabyAlpaca Silk and Kid-Silk, due to the content difference, you will have a different texture too - read more here. Happy knitting!

19.12.2016 - 09:55

country flag Rebecca skrifaði:

Hei! Kan jeg bruke bare DROPS Alpaca garn i denne oppskriften? Så at Alpaca garn også er i garngruppe A. Betyr det at jeg kan bruke det sitedenfor BabyAlpaca Silk og Kid-Silk?

04.12.2016 - 17:31

DROPS Design svaraði:

Hej Rebecca. Denne tröje er strikket i to traader - begge i gruppe A, saa du kan erstatte med 2 traader Alpaca eller du kan strikke med 1 traad Alpaca + 1 traad Kid-Silk. Laes her hvordan du beregner hvor meget du skal bruge og glem ikke at strikke en pröve saa din fasthed stemmer :) God fornöjelse.

05.12.2016 - 12:32

country flag Elie skrifaði:

Bonjour, Les mesures en hauteur s'effectuent-elles trictot à plat ou suspendu? Cordialement

15.11.2015 - 20:09

DROPS Design svaraði:

Bonjour Elie, les mesures doivent être prises à plat. BabyAlpaca Silk et Kid-Silk ne sont pas si lourdes, même tricotées ensemble. Bon tricot!

16.11.2015 - 14:36

country flag Elena skrifaði:

Hi, How many rows should be done for the swatch to get a 10x10cm piece? I am having difficulties figuring the right needle size as it seems as though my knitting is abnormally tight. Thank you! :)

04.03.2015 - 22:23

DROPS Design svaraði:

Dear Elena, check you get the correct amount of sts in width to be sure to get the correct measurements, tension in height can be easily adjusted then with measurements. You can also wash your swatch to check measurements before starting. Your DROPS store will give you any tips and advices. Happy knitting!

05.03.2015 - 10:54

country flag Jerina skrifaði:

Hallo, Als ik deze trui met Alpaca Bouclé brei, klopt het dan dat ik voor maat M 400 gr nodig heb? Met Babyalpaca silk gebruik je namelijk 1002 meter voor maat M. Als je ook 1002 meter van Alpaca Bouclé gebruik, kom ik uit op 400 gr. (stekenverhouding is hetzelfde) Alvast bedankt!

02.02.2015 - 12:19

DROPS Design svaraði:

Hoi Jerina. Ja, dat is correct. Vergeet niet om een proeflapje te breien om de stekenverhouding voor het patroon goed te hebben. Veel breiplezier.

02.02.2015 - 16:47

Kathy skrifaði:

There are a couple yarns listed. Do I knit them together

28.01.2015 - 21:04

DROPS Design svaraði:

Dear Kathy, this jumper is worked with 1 strand of each yarn (= 1 strand BabyAlpacaSilk + 1 strand Kid-Silk) held together as there was just 1 - you should get 17 sts in garter st = 10 cm in width. Happy knitting!

29.01.2015 - 09:08

country flag Corinna Wacker skrifaði:

Hallo, kann ich für dieses Modell anstatt mit der Drops Kid Silk auch mit Brushed Alpaka Silk kombinieren. Viele Grüsse Corinna

29.12.2014 - 12:07

DROPS Design svaraði:

Das geht nicht so gut, da Brushed Alpaca Silk in eine andere Garngruppe gehört und etwas dicker ist als Kid-Silk. Sie sollten daher als Flauschgarn Kid-Silk bei dieser Anleitung verwenden.

30.12.2014 - 17:04

country flag Alexandra skrifaði:

Hallo, wenn ich kein e Kids silk Wolle nehmen möchte, welche (weiche) Alternative würden Sie empfehlen? Oder kann ich den Pullover auch nur mit Babyalpaka Silk stricken. Muss ich dann mehr Wolle nehmen oder für große L insgesamt 350g? Danke und viele Grüße

26.11.2014 - 20:23

DROPS Design svaraði:

Sie können statt Kid-Silk ein anderes Garn der Garngruppe A verwenden. Z.B. auch einfach noch mal BabyAlpaca Silk (die Wolle ist sehr weich und angenehm zu tragen), dann benötigen Sie genau die doppelte Menge wie für BabyAlpaca Silk angegeben, also 750g. Der Pulli wird dann aber etwas dichter und schwerer als mit Kid-Silk.

26.11.2014 - 22:56