Popile skrifaði:
Ganz einfach aber sehr schön!
09.06.2012 - 19:15
Corinne skrifaði:
Un classique tout simple, vivement les explications !
09.06.2012 - 14:13
Susanne skrifaði:
Dejlig enkel og sikkert anvendelig til næsten alt tøj
08.06.2012 - 04:51
Siv Jansson skrifaði:
Klassisk och fin modell. Passar till det mesta.
07.06.2012 - 21:16
VIRGINIE skrifaði:
Un bon classique !!
07.06.2012 - 19:18
Anja skrifaði:
Er zouden veel meer raglanmodellen moeten komen wat mij betreft! Maakt de schouders minder breed: mooie pasvorm. Nog meer raglan? Graag!
06.06.2012 - 19:43Marie skrifaði:
Simple and classic. I want to knit this.
06.06.2012 - 18:17
THERESE skrifaði:
Joli modèle tout simple, facile à faire et à porter.
06.06.2012 - 17:53
Paola skrifaði:
Semplice e graziosissimo
06.06.2012 - 16:22
Anke skrifaði:
Ich mag die schlichten Modelle besonders.
06.06.2012 - 15:58
Winter Morning#wintermorningcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Alaska með laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 141-9 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf slétt og 1 umf brugðið *, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum frá RÉTTU þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l sl saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum frá RÖNGU þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l snúnar brugðið saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan), 2 l br (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), 2 l br saman. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir 3 hnappagötum frá réttu í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af 5. og 6. l frá miðju að framan, fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 24, 32, 40 cm. STÆRÐ M: 25, 33, 41 cm. STÆRÐ L: 24, 33, 42 cm. STÆRÐ XL: 25, 34, 43 cm. STÆRÐ XXL: 24, 34, 44 cm. STÆRÐ XXXL: 24, 34, 44 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 140-156-172-192-212-232 l með Alaska á hringprjóna nr 4,5. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan - i 8-8-8-9-9-9 cm. Í næstu umf frá réttu er skipt yfir á hringprjóna nr 5, prjónið sléttprjón – en síðustu 6-6-6-8-8-8 l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur við miðju að framan). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið áfram í sléttprjóni með 6-6-6-8-8-8 l með garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 9-9-9-10-10-10 cm. Setjið 1 prjónamerki 38-42-46-52-57-62 l inn frá hvorri hlið (= 64-72-80-88-98-108 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Aukið nú út um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING = 4 útauknar l í umf. Endurtakið útaukningu með 4-4-4½-4½-4½-4½ cm millibili 4 sinnum til viðbótar (alls 5 sinnum) = 160-176-192-212-232-252 l (= 74-82-90-98-108-118 l á milli prjónamerkja á bakstykki) – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-25-24-25-24-24 cm er fellt af fyrir 1. HNAPPPAGAT í hægri kanti að framan - sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm. Fellið nú af 3 l hvoru megin við prjónamerki fyrir handveg (þ.e.a.s. 6 l færri í hvorri hlið) = 148-164-180-200-220-240 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 36-38-40-42-44-44 l á sokkaprjóna nr 4,5 með Alaska. Prjónið garðaprjón í 8 cm. Skiptið nú yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið áfram í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu 10-11-12-12-13-15 sinnum til viðbótar með 3½-3-3-3-2½-2 cm millibili (alls 11-12-13-13-14-16 sinnum) = 58-62-66-68-72-76 l. Þegar stykkið mælist 48-48-47-47-46-46 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs) fellið af 3 l hvoru megin við prjónamerkið (þ.e.a.s. 6 l færri við miðju undir ermi) = 52-56-60-62-66-70 l eftir á prjóni. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 252-276-300-324-352-380 l. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki), látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Prjónið nú sléttprjón með 6-6-6-8-8-8 l í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu byrjar LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan! Fækkið lykkjum í annarri hverri umf alls 18-18-18-20-20-20 sinnum, síðan í hverri umf 2-4-6-4-6-8 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-45 cm eru fyrstu l í byrjun hverrar umf frá hálsi settar á þráð þannig: 8-8-10-10-12-12 l 1 sinni, 3 l 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 l 2 sinnum, síðan 1 l þar til úrtaka fyrir laskalínu lokið. KRAGI: Eftir úrtöku fyrir laskalínu er skipt yfir á hringprjóna nr 4,5, prjónið upp l af þræði = ca 80 til 120 l meðfram kanti við háls. Prjónið 1 umf slétt – JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 84-88-92-96-100-108 l. Prjónið nú garðaprjón þar til kraginn mælist 8-8-8-9-9-9 cm. Fellið laust af allar l. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintermorningcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 141-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.