DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 141-16
DROPS Design: Mynstur nr z-618
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
200-250-250-300-300-350 gr litur nr 7815, grænn/turkos:
200-250-250-300-300-350 gr litur nr 7895, hermannagrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) nr 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með 2 þráðum úr Alpaca.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) nr 4,5 – fyrir stroff.
DROPS TALA ekki með gati 531: 7-7-7-7-8-8 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þangað til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, (prjónamerki), prjónið næstu 2 l sl saman.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

SNÚRA:
Snúra er prjónuð í hring með 4 l á sokkaprjóna þannig:
Prjónið upp 1 l, snúið við og prjónið sl aftan og framan í lykkjubogann á lykkjunni = 2 l, snúið við og prjónið sl aftan og framan í lykkjubogann á þessum 2 l = 4 l. Prjónið nú þannig: * Færið allar l hægra megin á sokkaprjóninn án þess að snúa við, herðið á þræði og prjónið sl yfir þær 4 l *, endurtakið frá *-*. Þegar snúran hefur verið prjónuð, fellið ekki af en klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum allar l og festið vel.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 165-177-197-217-241-265 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) með 1 þræði af hvorum lit úr Alpaca á hringprjóna nr 4,5. Prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, endið með 1 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 4 cm. Í síðustu umf frá röngu er prjónað brugðið – JAFNFRAMT er fækkað um 29-29-33-37-41-45 l jafnt yfir í umf = 136-148-164-180-200-220 l. Í næstu umf frá réttu er skipt yfir á hringprjóna nr 5 og prjónað áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Setjið 1 prjónamerki 34-37-41-45-50-55 l inn frá hvorri hlið (= 68-74-82-90-100-110 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki í næstu umferð frá rétt – LESIÐ ÚRTAKA = 4 l færri í hverri umf. Endurtakið úrtöku með 3½-4-4-4½-4½-5 cm millibili 2 sinnum til viðbótar (alls 3 sinnum)= 124-136-152-168-188-208 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING = 4 l fleiri í umf. Endurtakið útaukningu með 7 cm millibili alls 3 sinnum = 136-148-164-180-200-220 l. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm er stykkinu skipt við prjónamerki og hvor hluti er prjónaður til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 68-74-82-90-100-110 l. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 0-1-1-1-2-3 sinnum, 2 l 1-1-1-2-2-3 sinnum og 1 l 3-1-4-4-4-3 sinnum = 58-62-64-68-72-74 l eftir á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm fellið af miðju 20-22-22-24-24-26 l af fyrir hálsmáli. Prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. Fellið nú af 2 l í næstu umf frá hálsmáli = 17-18-19-20-22-22 l eftir á öxl. Fellið nú af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 34-37-41-45-50-55 l. Fellið af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 44-46-47-49-50-52 cm, fellið af fyrir hálsmáli frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 5 l á prjóni. Fellið nú af þannig í byrjun hverrar umf frá réttu: 3 l 0-1-1-1-1-1 sinni, 2 l 1 sinni og 1 l 5-3-3-4-4-5 sinnum. Þegar allri úrtöku er lokið verða 17-18-19-20-22-22 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 44-46-48-50-52-52 l á sokkaprjóna nr 4,5. Prjónið 1. umf þannig: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 4 cm. Í næstu umf er prjónað sl – JAFNFRAMT er fækkað um 8 l jafnt yfir í umf = 36-38-40-42-44-44 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki við miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu með 6-7-8-9-10-11 sinnum til viðbótar (= alls 7-8-9-10-11-12 sinnum) með 6-5-4½-3½-3-3 cm millibili = 50-54-58-62-66-68 l. Þegar stykkið mælist 48-47-46-45-44-43 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs) fellið af 3 l hvoru megin við prjónamerki (= 6 l færri við miðju undir ermi). Prjónið nú fram og til baka til loka – JAFNFRAMT er fellt af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: 2 l 1-1-1-2-2-2 sinnum og 1 l 3-3-3-4-4-4 sinnum. Fellið nú af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 56 cm, fellið nú af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 57 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma og saumið ermar í.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Prjónið upp frá réttu á hringprjóna nr 4,5 innan við 1 kantlykkju meðfram hægra framstykki þannig: Byrjið frá neðsta kanti, prjónið upp ca 90 til 110 l. Prjónið nú umf brugðið frá röngu – JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 93-99-99-105-109-109 l. Prjónið nú stroff þannig: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 1 l sl. Prjónið 1 umf stroff frá röngu. Í næstu umf frá réttu er fellt af fyrir hnappagötum þannig: Prjónið 4 l, * prjónið næstu 2 l saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 13-14-14-15-13-13 l *, endurtakið frá *-* alls 5-5-5-5-6-6 sinnum, prjónið næstu 2 l saman og sláið uppá prjóninn, prjónið þær 12-13-13-14-13-13 l sem eftir eru = 6-6-6-6-7-7 hnappagöt. Haldið áfram með stroff þar til kantur að framan mælist ca 2½ cm, fellið laust af allar l með sl yfir sl og br yfir br.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið á sama hátt og hægri kantur að framan, nema án hnappagata.

HÁLSMÁL:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Prjónið upp frá réttu á hringprjóna nr 4,5 þannig: Prjónið upp ca 110 til 130 l innan við 1 kantlykkju meðfram öllu hálsmálinu (meðtaldar eru l í kanti að framan). Prjónið 1 umf brugðið frá röngu JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 107-111-115-121-125-129 l. Prjónið nú stroff þannig: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 1 l sl. Prjónið 1 umf stroff frá röngu. Í næstu umf frá réttu er fellt af fyrir síðasta hnappagatinu þannig: Prjónið 4 l, prjónið næstu 2 l saman og sláið uppá prjóninn, prjónið út umf. Haldið áfram með stroff þar til kanturinn mælist ca 2½ cm, fellið laust af allar l með sl yfir sl og br yfir br.

FLÉTTA:
Prjónið upp 1 l við miðju l á ermakúpu efst á ermi, prjónið SNÚRA – sjá útskýringu að ofan – í ca 13-14-14-15-16-16 cm. Prjónið upp 1 l alveg eins hvoru megin við miðju l og prjónið 2 snúrur til viðbótar = 3 snúrur. Fléttið snúrurnar saman og búið til fléttu (ca 10-11-11-12-13-13 cm), saumið saman enda og saumið fléttuna niður á öxlum þar sem hálsmálið var prjónað upp.
Prjónið 3 snúrur alveg eins og fléttið, saumið í hina öxlina.

VASI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 21-21-23-23-25-25 l á sokkaprjóna nr 4,5. Prjónið stroff = 1 l sl, 1 l br. Fellið laust af allar l þegar vasinn mælist 8-8-8-9-9-9 cm.
Prjónið annan vasa á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið vasana á framstykkið, ca 7-7-8-8-9-9 cm frá kanti við miðju að framan og ca 2 cm ofan við stroff neðst niðri.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 141-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (46)

country flag Anneke Janssen wrote:

Ik heb het patroon Drops 141-16 voor iemand gebreid, daarvoor kreeg ik het tijdschrift waar het patroon in stond. Nu blijkt dat de dame in kwestie het tijdschrift geleend had, en, ai ai, ik ben het kwijt. Kunt u me nog een dat tijdschrift helpen? Tegen betaling? Ik hoop het.

26.04.2022 - 19:31

DROPS Design answered:

Dag Anneke,

De tijdschriften worden via de verkooppunten verdeeld, dus je zou het beste even bij een van onze verkooppunten kunnen vragen of ze daar toevallig nog eentje hebben liggen.

28.04.2022 - 10:17

country flag Mary wrote:

I can't figure out how many stitches to knit before each decrease in the last row of rib which requires decreasing 37 stitches evenly over 217 sts to give 180stitches left. Would you be able to let me know how many stitches I should knit between each decrease?

20.12.2021 - 23:32

DROPS Design answered:

Dear Mary, this lesson explains how to decrease/increase evenly and will help you to calculate how many stitches you will have to work between each decrease. Happy knitting!

21.12.2021 - 07:27

country flag Mary wrote:

Thank you for your answer. Please confirm that I understand your answer correctly. The size on the pattern is the person's size. This implies that the knitted garment will be bigger when finished. So, for example, bust size 34 5/8" on the pattern means that the knitted garment will be bigger when completed. How much bigger will the garment be?

18.12.2021 - 23:57

DROPS Design answered:

Dear Mary, no, the measurements are that of the garnment. Not of the bust to fit. So the garnment' bust will measure 34 5/8", which means the bust to fit should be smaller. Happy knitting!

19.12.2021 - 18:21

country flag Mary wrote:

Hi, I have a question about size. Is the size quoted at Bust size the actual size of the finished garment? Or is it to fit the bust size and the actual finished size is bigger? e.g. Bust: 80-88-96-106-118-130 cm. Does this mean that the actual size of finished garment is 80-88-96-106-118-130 cm ? Thank you.

18.12.2021 - 20:38

DROPS Design answered:

Dear Mary, the cm in the sketch of the garnment are the measurements of the garnment. In this case, it would be the actual bust size and not the size to fit. Happy knitting!

18.12.2021 - 23:03

country flag LEONOR SKEWES wrote:

Hi I have a question: ¿what does it means "tube knitting" ? which part of the sweater is? Thanks Leonor

08.09.2021 - 02:50

DROPS Design answered:

Dear Leonor, We always suggest that before starting a pattern read though it carefully. Tube knitting is basically an Icord, that is braided into a cable pattern. Happy Stitching!

08.09.2021 - 03:00

country flag Diane Dahl wrote:

Jag förstår inte hur jag ska göra nu. ”När arb mäter 38cm delad arb vid markörerna och varje del stickas färdig för sig =74m. Osv hela det stycket och ner till HÖGER FRAMST.

02.03.2021 - 09:13

DROPS Design answered:

Hei Diane. Du har tidligere satt 2 merketråder i arbeidet (i sidene), du skal nå dele arbeidet og strikke hvert forstykke og bakstykke for seg selv. Sett f.eks maskene til venstre forstykket på høyre pinne eller bruke en annen pinne. Start ved bakstykket (ny tråd) og fell på begynnelsen av pinnen 3 masker (til ermhull), strikk 71 masker, du er nå ved det andre merket (siden), snu og fell 3 masker. Følg oppskriften på hvor mange masker og hvor mange ganger det skal felles til ermhull. Fortsett i glattstrikk med 1 kantmaske i rille i hver side. mvh DROPS design

10.03.2021 - 12:54

country flag Xenia wrote:

Ich habe diese Jacke in Größe S gestrickt und die angegebene Menge an Garn bestellt. Leider reichte diese Menge nur um die Jacke gerade so fertig zu stellen. Jetzt fehlt mir noch Garn für die Kordeln und die Taschen. Vielleicht lieber ein Knäuel pro Farbe mehr bestellen.

20.02.2015 - 12:44

country flag Anja wrote:

Ist es auch bei der linken Blende notwendig, die Maschenaufnahmen von unten zu beginnen? Das macht sich nämlich wirklich schlecht, weil ich das Strickstück nicht so gut greifen kann. LG Anja

19.01.2015 - 13:38

DROPS Design answered:

Nein, die linke Blende arbeiten Sie von oben nach unten, sonst geht das wirklich schlecht. Sie müssen die M auf jeden Fall in der Hi-R auffassen und das geht nur, wenn Sie oben am Halsrand beginnen. Gutes Gelingen beim Beenden dieser schönen Jacke und viel Spaß beim Tragen!

19.01.2015 - 14:46

country flag Pauline wrote:

Hello, I'm casting off the back pieces now. Do I cast off on the right side? It says cast of 3 stitches one time at the start of each row? Do I do this first on the right side and then on the wrong side? Or should I cast off 3 stitches at the start and then 3 stitches at the end of the row? Thanks

15.01.2015 - 10:05

DROPS Design answered:

Dear Pauline, you will dec at the beg of the next 2 rows, ie cast off 3 sts at the beg of the next RS row, then cast off 3 sts at the beg of the next WS row (= you have cast off 3 sts each side). Happy knitting!

15.01.2015 - 14:25

country flag Chiti wrote:

¿Dónde puedo encontrar las agujas circulares cortas que me indicas?

10.10.2014 - 11:56

DROPS Design answered:

Hola Chiti, puedes encontrarlas en las tiendas DROPS. Están indicadas en la pagina principal, pestaña: "Tiendas DROPS".

13.10.2014 - 13:16