Esme Barnard skrifaði:
Baie mooi!!! Chic
21.06.2012 - 08:44
Annedore skrifaði:
Sehr hübsche Jacke. Ich mag die halben Ärmel. Ideal für's Büro.
20.06.2012 - 18:31
Elisabeth skrifaði:
Très joli modèle qui se marie bien avec la mode Automnale
19.06.2012 - 20:51
Beatkasek skrifaði:
Eleganckie< nadaje sie na wiele okazji
12.06.2012 - 12:29
LOUCHART skrifaði:
J'adore classe féminin
08.06.2012 - 18:32
Marie skrifaði:
Very chic, but would prefer a more fitted sleeve cuff
06.06.2012 - 18:21
Chris skrifaði:
Beaucoup d'élégance dans ce petit gilet court !
06.06.2012 - 17:19Gladys Parra skrifaði:
Me parecen espectaculares, pero a´´un no he podido conseguir esas lanas acá en Colombia.Por favor ayúdeme a encontrarlas. Gracias
05.06.2012 - 00:06Sandra skrifaði:
Me gustarìa que me pasaràn el molde con tecnica tejida a dos agujas... Gracias!!!
04.06.2012 - 19:38
Doucette skrifaði:
Joli, élégant, et j'aime le fil utilisé.
02.06.2012 - 22:04
Paris weekend#parisweekendcardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa DROPS Alpaca Bouclé með laskalínu og ¾ ermum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL
DROPS 142-26 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagati í hægri kanti. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti sl saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist (mælt frá hálsmáli og niður): STÆRÐ S: 2, 11, 21, 30 og 40 cm STÆRÐ M: 2, 12, 22, 32 og 42 cm STÆRÐ L: 2, 12, 23, 33 og 44 cm STÆRÐ XL: 2, 10, 19, 28, 37 og 46 cm STÆRÐ XXL: 2, 12, 21, 30, 39 og 48 cm STÆRÐ XXXL: 2, 12, 21, 31, 40 og 50 cm MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Byrjið 6 l á undan prjónamerki: Sláið 2 sinnum uppá prjóninn, prjónið mynstur A.1/A.2 (prjónamerki er staðsett í miðri mynstureiningu), sláið 2 sinnum uppá prjóninn. Í næstu umf er örðum uppslættinum af þessum 2 sleppt niður á undan og á eftir A.1/A.2, af prjóni og sá seinni er prjónaður í sléttprjóni (þ.e.a.s. br frá röngu). ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki): Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá hálsmáli og niður. BERUSTYKKI: Fitjið LAUST upp 72-72-76-76-83-83 l (meðtaldar eru 6 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 4,5 með Alpaca Bouclé. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta). Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið sléttprjón JAFNFRAMT er prjónuð upphækkun að aftan við hnakka (1. umf = rétta) þannig: Prjónið þar til 16-16-18-18-19-19 l eru eftir, snúið, herðið á þræði og prjónið þar til 16-16-18-18-19-19 l eru eftir í hinni hliðinni, snúið, herðið á þræði, prjónið þar til 22-22-24-24-26-26 l eru eftir, snúið, herðið á þræði og prjónið þar til 22-22-24-24-26-26 l eru eftir í hinni hliðinni, snúið, herðið á þræði og prjónið þar til 28-28-30-30-33-33 l eru eftir snúið, herðið á þræði og prjónið þar til 28-28-30-30-33-33 l eru eftir í hinni hliðinni, snúið, herðið á þræði og prjónið út umf. Setjið 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu (setjið prjónamerki í stykkið án þess að prjóna) þannig: Setjið 1. prjónamerki eftir 16-16-17-17-19-19 l (= framstykki), setjið 2. prjónamerki eftir 10-10-10-10-10-10 l (= ermi), setjið 3. prjónamerki eftir 20-20-22-22-25-25 l (= bakstykki) og setjið 4. prjónamerki eftir 10-10-10-10-10-10 l (=ermi). Nú eru 16-16-17-17-19-19 l eftir síðasta prjónamerki á framstykki. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið 1 umf brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni), JAFNFRAMT er aukið út um 2 l hvoru megin við 4 prjónamerki með því að prjóna 2 l í hverja og eina af þeim 2 l hvoru megin við öll 4 prjónamerkin (= 16 l fleiri) = 88-88-92-92-99-99 l. Prjónið nú sléttprjón með 6 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan (1. umf = rétta) – JAFNFRAMT er prjónaðir kaðlar eftir mynstri A.1 yfir 1. og 3. prjónamerki og kaðlar eftir mynstri A.2 yfir 2. og 4. prjónamerki (prjónamerki er staðsett fyrir miðju í köðlum) – Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í fyrstu umf frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATH: Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! AUKIÐ ÚT FYRIR ERMUM ÞANNIG: Byrjið á 1. umf frá réttu og aukið út í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), alls 31-33-34-36-37-38 sinnum. AUKIÐ ÚT FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI ÞANNIG: Byrjið á 1. umf frá réttu og aukið út í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), alls 13-17-22-28-33-38 sinnum og síðan í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 9-8-6-4-2-0 sinnum = 300-320-340-364-387-403 l. Útaukning fyrir laskalínu er nú lokið. Prjónið 1 umf frá röngu eins og áður. Prjónið nú 1 umf frá réttu eins og áður JAFNFRAMT l í kaðli í mynstri A.1, prjónið sl saman 2 og 2 og l í kaðli í mynstri A.2 eru prjónaðar snúnar sl saman 2 og 2 (= 4 l færri í hverjum kaðli) = 284-304-324-348-371-387 l eftir á prjóni. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fram að 1. prjónamerki, setjið þær 72-76-78-82-84-86 l á milli 1. og 2. prjónamerkis á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar l yfir þráðinn, prjónið fram að 3. prjónamerki, setjið þær 72-76-78-82-84-86 l á milli 3. og 4. prjónamerkis á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar l yfir þráðinn og prjónið út umf = 156-168-184-204-223-235 l á prjóni. FRAM- OG BAKSTYKKI: HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 6 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki fyrir miðju í þær 8-8-8-10-10-10 nýju l í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-5-6 cm, aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 8-8-10-10-11-12 cm = 164-176-192-212-231-243 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 9-9-11-11-12-13 cm (stykkið mælist nú ca 40-42-44-46-48-50 cm frá öxl og niður). Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið garðaprjón fram og til baka í 6 cm, fellið síðan LAUST af. Stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið l af öðrum þræðinum á stutta hringprjóna nr 5 og fitjið að auki upp 8-8-8-10-10-10 nýjar l undir ermi = 80-84-86-92-94-96 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 9-8-8-7-6-6 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og víðari handvegs). Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið garðaprjón hringinn í 6 cm, fellið síðan LAUST af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir höndum. Saumið tölur í. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #parisweekendcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.