DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS BabyAlpaca Silk yarn
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS Baby 21-33

#viggovest

DROPS Design: Mynstur nr BS-001-by
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Særð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
50-50-100 (100-100) gr litur nr 7402, ljós sægrænn
50-50-50 (50-100) gr litur nr 7219, ljós grænn

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5 (40 eða 60 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 26 l x 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2 (40 eða 60 cm) – fyrir stroff.
DROPS TRÉTALA LJÓS, nr 503: 4 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

STROFF:
* 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*.

RENDUR:
* 2 umf litur ljós grænn, 2 umf litur ljós sægrænn *, endurtakið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 152-172-192 (212-232) l á hringprjóna nr 2 með litnum ljós sægrænn Baby Alpaca Silk.
Prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan – í 3-3-3 (4-4) cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið sléttprjón og RENDUR – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT er fækkað um 38-42-46 (50-56) l jafnt yfir í 1. umf = 114-130-146 (162-176) l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 57-65-73 (81-88) l = miðja á hlið. MUNIÐ EFTIR PRJÓNFESTUNNI! Þegar stykkið mælist 15-16-17 (18-19) cm fellið af 8-8-8 (10-12) l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 4-4-4 (5-6) l hvoru megin við bæði prjónamerkin). Prjónið síðan fram- og til baka til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 49-57-65 (71-76) l. Fellið síðan af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: 2 l 3 sinnum og 1 l 2-3-3 (5-4) sinnum = 33-39-47 (49-56) l. Þegar stykkið mælist 23-25-27 (29-31) cm fellið af miðju 19-21-25 (27-30) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 2 l í næstu umf frá hálsmáli = 5-7-9 (9-11) l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 24-26-28 (29½-31½) cm.

FRAMSTYKKI:
= 49-57-65 (71-76) l. Fellið síðan af fyrir handveg í byrjun á hverri umf í hvorri hlið eins og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20-22-23 (25-26) cm setjið miðju 9-11-15 (17-20) l á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá hálsmáli þannig: 2 l 2 sinnum og 1 l 3 sinnum. Eftir alla úrtöku eru 5-7-9 (9-11) l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 24-26-28 (29½-31½) cm.

HÁLSMÁL AÐ FRAMAN:
Prjónið upp ca 48-60-68 (72-80) l frá réttu, meðtaldar l af þræði (deilanlegt með 4) meðfram hálsmáli á framstykki á hringprjóna nr 2 með litnum ljós sægrænn. Prjónið stroff fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni og 2 l sl í hvorri hlið (séð frá réttu). Þegar kantur í hálsmáli mælist 2-2-2 (3-3) cm fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br.

HÁLSMÁL AÐ AFTAN:
Prjónið upp ca 36-40-44 (48-52) l frá réttu (deilanlegt með 4) meðfram hálsmáli á bakstykki og prjónið stroff eins og á framstykki.

KANTUR Í HANDVEGI:
Prjónið upp ca 76-84-88 (96-104) l frá réttu (deilanlegt með 4) meðfram öðrum handvegi á hringprjóna nr 2 með litnum ljós sægrænn. Prjónið stroff fram og til baka eins og í hálsmáli.
Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt.

KANTUR Á ÖXL Á FRAMSTYKKI:
Prjónið upp frá réttu meðfram annarri öxlinni að framan (einnig yfir kant í handvegi og í hálsmáli) ca 20-24-28 (32-36) l (deilanlegt með 4) á hringprjóna nr 2 með litnum ljós sægrænn. Prjónið stroff fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni og 2 l sl í hvorri hlið (séð frá réttu). Þegar kanturinn mælist ca 1-1,5 cm af fyrir 2 hnappagötum. 1 hnappagat = fellið af 2 l og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf. Hvort hnappagat á að sitja minnst 3 cm frá kanti í hvorri hlið. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar kanturinn mælist 2-2-2 (3-3) cm.
Endurtakið á hinni öxlinni á framstykki.

KANTUR Á ÖXL Á BAKSTYKKI:
Prjónið upp meðfram hinni öxlinni alveg eins og á framstykki og prjónið stroff á sama hátt og á framstykki nema ekki er fellt af fyrir hnappagötum. Endurtakið á hinni öxlinni á bakstykki.
Saumið tölur í.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS Baby 21-33
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (78)

country flag Angela Kirk skrifaði:

I am doing second size size 68 to 74 mcs After reducing stitches after rib I have 130 stitches. Tension is 26 sets to 10 cms which leaves a finished size of 50 mcs very disappointing and waste of time and money

25.05.2015 - 20:42

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Kirk, that's correct, you have 50 cm in the round, ie 25 cm flat as in measurement chart. Happy knitting!

26.05.2015 - 11:05

country flag Tiiu Karotam skrifaði:

Kui on kootud 15-16-17 (18-19) cm, koo maha mõlemal küljel 8-8-8 (10-12) s käeaugu jaoks (s.t 4-4-4 (5-6) s mõlemal pool mõlemat SM-i). Lõpeta esi- ja seljaosa eraldi. Kuidas tuleb teha see maha kudumine vasakult paremale? Ehk siis kui ma koon esiosa, esimeselt vardalt paremalt minnes koon 4 silma maha ja kui teise varda koos ja tahaks varda lõpust 4 silmust maha kududa, kuidas seda teen?

16.05.2015 - 20:23

DROPS Design svaraði:

Soovitan maha kududa 8 s ühel küljel ja siis 8 s teisel küljel, siis jääb lõngajooks kenasti kas esi- või seljaosa jätkamiseks valmis.

28.07.2015 - 17:25

country flag Alice skrifaði:

Hi, I would like to knit the Viggo Vest as shown in the picture and would like to buy the wool and the buttons. Where could I get both? I have no problems finding a shop to get the wool from, but no where to get the buttons from. And I would like to get it all at the same time. Many thanks and kind regards Alice

22.04.2015 - 17:52

DROPS Design svaraði:

Dear Alice, please click here to get the list of all retailers (stores and online shops) in U.K. - you will see also the ones who are selling our buttons. Happy knitting!

22.04.2015 - 18:46

country flag Deschatelets Andrée skrifaði:

Bonjour! J'aimerais faire ce modèle en gris et olive taille 6-9 mois. Est-ce que je peux utiliser Drops Alpaca 517 et 7233 sans changer le patron? Je ne suis pas une experte. Merci!

28.01.2015 - 00:13

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Deschatelets, BabyAlpaca Silk et Alpaca sont toutes 2 du groupe A, vous pouvez donc utiliser ici Alpaca, dans les mêmes quantités (elles ont toutes les 2 le même métrage pour 50 g). Bon tricot!

28.01.2015 - 10:59

country flag Ina skrifaði:

Hallo! wenn ich nicht die Nadelstärke ändern, sondern alles in der gleichen Nadelstärke (z.B. 2,5) stricken möchte, muss ich dann gleich weniger Maschen für das Bündchen aufnehmen oder kann ich mich an die Anleitung halten und im Bündchen mehr, danach weniger Maschen verwenden? Vielen Dank!

23.01.2015 - 17:04

DROPS Design svaraði:

Ich bin nicht ganz sicher, ob ich Sie richtig verstehe, passt Ihre Maschenprobe nicht und Sie möchten trotzdem mit Nadel 2,5 stricken? Umrechnen ist immer heikel, da sich dann der Schnitt ändert, Halsausschnitt und Armausschnitte stehen dann möglicherweise nicht mehr im richtigen Verhältnis. Oder möchten Sie einfach das Bündchen in derselben Nadelstärke wie den Rest stricken?

28.01.2015 - 10:33

country flag Laura skrifaði:

Hallo, ich bin jetzt soweit, dass ich nur noch das Bündchen ringsherum stricken muss. Wie bekomm ich dass denn jetzt so hin, dass es nicht komplett unordentlich aussieht? Beim Abketten sind ja schon kleinere Stufen entstanden. Gibt es da einen Trick, damit keine Löcher entstehen? Vielen Dank schonmal im voraus.

11.01.2015 - 11:59

DROPS Design svaraði:

Wo man generell einsticht, um M aufzufassen, ist in den Videos ganz anschaulich dargestellt, die Sie neben dem Foto oben im Kopf unter "Videos" finden. Damit sollte sich auch das Problem der Lochbildung lösen, Sie können damit die Stufen auf der Rückseite des Pullis verschwinden lassen. Hilfreich ist auch, schon beim Abketten der M die Stufen zu verringern, indem man die abzukettende M am Ende der letzten R nicht strickt, sondern auf der Nadel liegen lässt und vorher wendet. Nach dem Wenden die 1. M der linken Nadel nur abheben und die 1. M der rechten Nadel überziehen.

11.01.2015 - 15:26

country flag Turi skrifaði:

Hej, først, tak for opskriften og hjemmesiden generelt. Godt til en nybegynder som mig. Mit spørgsmål drejer sig om det første man skal gøre efter at have strikket rib. Der står "...SAMTIDIG som der lukkes 38-42-46 (50-56) m af jævnt fordelt på 1.omg = 114-130-146 (162-176) m." Hvad betyder dette? Betyder det at jeg 'indsnævrer' bærestykket?

10.01.2015 - 23:41

DROPS Design svaraði:

Hej Turi. Ribben traekker sig altid mere sammen en almindelig glatstrik, saa naar du er faerdig med den skal du tage ind jaevnt fordelt - dvs, du mindsker antallet af masker paa pinden. Det kan du f.eks. göre ved at strikke 2 m ret sammen. Det gentager du saa f.eks. i alt 38 gange paa den mindste str med en jaevn afstand (du har 152 m og skal tage 38 m ind = ca 3-4 m imellem hver indtagning). God fornöjelse.

12.01.2015 - 16:34

country flag Regina skrifaði:

Hallo, wie wird das Bündchen am Halsausschnitt mit den Schulterteilen und dem Rückenteil zusammengestrickt? Bei mir sind Schulterteil und Bündchen separat, hab ich etwas falsch gemacht?

04.03.2014 - 16:48

DROPS Design svaraði:

Liebe Regina, Sie fassen alle M für die Bündchen immer aus den Rändern der einzelnen Teile auf (in der angegebenen Reihenfolge, d.h. die M für das Schulterbündchen werden zuletzt aufgefasst) und stricken kein Bündchen separat.

04.03.2014 - 19:55

country flag Lene Iversen skrifaði:

Jeg kan ikke få jeres målskema til at passe med, at jeg allerede skal lukke af til ærmer, når arbejdet måler 15 cm.

01.02.2014 - 20:35

DROPS Design svaraði:

Hej Lene. Maalskema passer. Den totale höjde for str 1/3 mdr er 25 cm. Aermegabet er 10 cm = 15 cm til at lukke af for aermer.

04.02.2014 - 14:54

country flag Nina skrifaði:

Hejsa. Denne vest er bare lækker, særligt fordi den er relativt enkel. Jeg har strikket den i brun og grå, hvilket kan ses på min blog.

07.01.2014 - 20:56