Anne skrifaði:
Hei, Lahkeen ohjeen lopussa kerrotaan näin: Luo kumpaankin reunaan 1 reunas = 52-58-64 (70-76) s. Kun työn pituus on 18-22-25 (29-34) cm, päätä kummankin reunan reunas. Siis mitä tarkoittaa "reunaan 1 reunas" ja päätä kummankin "reunan reunas"?
01.10.2013 - 21:16DROPS Design svaraði:
Reunasilmukka on työn ulkoreunassa oleva silmukka, josta sauma myöhemmin ommellaan. Voit neuloa reunasilmukoilla ainaoikeaa tai sileää neuletta, mielesi mukaan.
02.10.2013 - 12:07
Veronika skrifaði:
Jeg strikket denne, men med hette. Den ble utrolig fin, og garnet er helt fantastisk å strikke med!
02.01.2013 - 19:31
Hilkka skrifaði:
Ohjeen viimeistelyssä puhutaan hupun kiinnittämisestä. Tässä mallissa ei ole huppua. Ohje on: --Happy Days. Neulottu DROPS housupuku Merino Extra fine-langasta
18.11.2012 - 16:41
Happy Days#happydaysjumpsuit |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður galli fyrir börn með laskalínu úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS Baby 21-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru skálmarnar prjónaðar í hring á sokkaprjóna, síðan eru skálmarnar settar á sama hringprjón og stykkið er prjónað fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. SKÁLM: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 48-54-60 (66-72) lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = innan á skálm. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið. Prjónið stroff í 4-4-4 (5-5) cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir = 42-48-54 (60-66) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið, prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 6-6-6 (7-7) cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu með 3-4-5 (5-7) cm millibili alls 4 sinnum = 50-56-62 (68-74) lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-20-23 (25-32) cm skiptist stykkið að innanverðu á skálm og stykkið er prjónað til loka fram og til baka (þetta er gert til að það verði auðveldara að setja skálmarnar á sama hringprjón í lokin). Fitjið upp 1 kantlykkju í hvorri hlið = 52-58-64 (70-76) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-22-25 (29-34) cm fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið. Geymið stykkið og prjónið aðra skálm á sama hátt. GALLI: Setjið skálmarnar á sama hringprjón 4,5 = 100-112-124 (136-148) lykkjur. Prjónið síðan fram og til baka frá miðju að framan þannig (umferð 1 = rétta): Fellið af 4 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Snúið stykkinu, fellið af 4 lykkjur og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina = 92-104-116 (128-140) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 27-35-43 (43-50) cm prjónið nú til loka í garðaprjóni – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 37-45-53 (58-65) cm prjónið næstu umferð (frá réttu) þannig: 17-20-23 (26-29) lykkjur sléttprjón (= hægra framstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handvegi, prjónið 42-48-54 (60-66) lykkjur sléttprjón (= bakstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handvegi, prjónið 17-20-23 (26-29) lykkjur sléttprjón (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 36-42-42 (48-48) lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt, haldið áfram með stroff = 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 6-10-8 (12-10) lykkjur jafnt yfir = 30-32-34 (36-38) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið 1 umferð brugðið. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið síðan sléttprjón. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi, endurtakið útaukningu með 5-5-6(6-6) umferða millibili alls 6-6-7 (8-9) sinnum = 42-44-48 (52-56) lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-28) cm fellið af 8 lykkjur mitt undir ermi (4 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 34-36-40 (44-48) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 144-160-180 (200-220) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT í 3. umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við öll prjónamerkin fyrir laskalínu – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð (= hver umferð frá réttu) alls 10-11-12 (13-15) sinnum. JAFNFRAMT þegar lykkjum hefur verið fækkað fyrir laskalínu 7-6-6 (6-7) sinnum er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 2 lykkjur 3-3-4 (5-5) sinnum og síðan 1 lykkja 0-2-2 (2-3) sinnum. Eftir allar úrtöku/affellingu og hálsmáli eru 52-56-64 (72-74) lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 45-53-62 (68-77) cm upp að öxl. Fellið af allar lykkjur. KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp 63-75-91 (95-103) lykkjur meðfram hægra framstykki neðan frá og upp að hálsmáli á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið síðan stroff (frá röngu) þannig: 1 lykkja garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur brugðið. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt af fyrir hnappagati meðfram næstu umferð frá réttu þannig: Stroff yfir fyrstu 10-10-2 (6-2) lykkjur, * 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10 lykkjur stroff *, endurtakið frá *-* alls 4-5-7 (7-8) sinnum, endið með 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja garðaprjón. Haldið áfram með stroff þar til kantur að framan mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið kant í vinstra framstykki á sama hátt, ekki fellt af fyrir hnappagötum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 80 til 120 lykkjur (deilanlegt með 4 lykkjum) í kringum hálsmál á sokkaprjón 3,5. Prjónið þannig: 1 lykkja garðaprjón, prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið saman þar til 1 lykkja er eftir á prjóni – prjónið 1 lykkju garðaprjón. Endurtakið í 3 cm. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum og saumið saum innan á skálmum innan við 1 kantlykkju. Saumið niður vinstri kant að framan þar sem felldar voru af 8 lykkju við miðju að framan. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #happydaysjumpsuit eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.