DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 21-23
DROPS Design: Mynstur nr ME-056-by
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
300-300-350-400-400 g litur nr 07, ljós brúnn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 3,5 – fyrir stroff
DROPS TALA, NR 526: 5-6-8 (8-9) st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru skálmarnar prjónaðar í hring á sokkaprjóna, síðan eru skálmarnar settar á sama hringprjón og stykkið er prjónað fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

SKÁLM:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 48-54-60 (66-72) lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = innan á skálm. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið. Prjónið stroff í 4-4-4 (5-5) cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir = 42-48-54 (60-66) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið, prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 6-6-6 (7-7) cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu með 3-4-5 (5-7) cm millibili alls 4 sinnum = 50-56-62 (68-74) lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-20-23 (25-32) cm skiptist stykkið að innanverðu á skálm og stykkið er prjónað til loka fram og til baka (þetta er gert til að það verði auðveldara að setja skálmarnar á sama hringprjón í lokin). Fitjið upp 1 kantlykkju í hvorri hlið = 52-58-64 (70-76) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-22-25 (29-34) cm fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið. Geymið stykkið og prjónið aðra skálm á sama hátt.

GALLI:
Setjið skálmarnar á sama hringprjón 4,5 = 100-112-124 (136-148) lykkjur. Prjónið síðan fram og til baka frá miðju að framan þannig (umferð 1 = rétta): Fellið af 4 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Snúið stykkinu, fellið af 4 lykkjur og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina = 92-104-116 (128-140) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka yfir allar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 27-35-43 (43-50) cm prjónið nú til loka í garðaprjóni – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 37-45-53 (58-65) cm prjónið næstu umferð (frá réttu) þannig: 17-20-23 (26-29) lykkjur sléttprjón (= hægra framstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handvegi, prjónið 42-48-54 (60-66) lykkjur sléttprjón (= bakstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handvegi, prjónið 17-20-23 (26-29) lykkjur sléttprjón (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 36-42-42 (48-48) lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt, haldið áfram með stroff = 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 6-10-8 (12-10) lykkjur jafnt yfir = 30-32-34 (36-38) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið 1 umferð brugðið. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið síðan sléttprjón. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi, endurtakið útaukningu með 5-5-6(6-6) umferða millibili alls 6-6-7 (8-9) sinnum = 42-44-48 (52-56) lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-28) cm fellið af 8 lykkjur mitt undir ermi (4 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 34-36-40 (44-48) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 144-160-180 (200-220) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT í 3. umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við öll prjónamerkin fyrir laskalínu – sjá ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð (= hver umferð frá réttu) alls 10-11-12 (13-15) sinnum. JAFNFRAMT þegar lykkjum hefur verið fækkað fyrir laskalínu 7-6-6 (6-7) sinnum er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 2 lykkjur 3-3-4 (5-5) sinnum og síðan 1 lykkja 0-2-2 (2-3) sinnum. Eftir allar úrtöku/affellingu og hálsmáli eru 52-56-64 (72-74) lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 45-53-62 (68-77) cm upp að öxl. Fellið af allar lykkjur.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp 63-75-91 (95-103) lykkjur meðfram hægra framstykki neðan frá og upp að hálsmáli á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið síðan stroff (frá röngu) þannig: 1 lykkja garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur brugðið. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt af fyrir hnappagati meðfram næstu umferð frá réttu þannig: Stroff yfir fyrstu 10-10-2 (6-2) lykkjur, * 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10 lykkjur stroff *, endurtakið frá *-* alls 4-5-7 (7-8) sinnum, endið með 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja garðaprjón. Haldið áfram með stroff þar til kantur að framan mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið kant í vinstra framstykki á sama hátt, ekki fellt af fyrir hnappagötum.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp ca 80 til 120 lykkjur (deilanlegt með 4 lykkjum) í kringum hálsmál á sokkaprjón 3,5. Prjónið þannig: 1 lykkja garðaprjón, prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið saman þar til 1 lykkja er eftir á prjóni – prjónið 1 lykkju garðaprjón. Endurtakið í 3 cm. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum og saumið saum innan á skálmum innan við 1 kantlykkju. Saumið niður vinstri kant að framan þar sem felldar voru af 8 lykkju við miðju að framan. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Erin wrote:

When doing the increases on the leg of the 'Happy Days Suit' what kind of increase do you suggest? I started with yarn over but two yarn overs in a row leaves a large hole. This brings me to my next question, do the increases go directly before and after the marker? This means they should be right beside each other right? Thanks so much for your help!

06.10.2014 - 19:05

DROPS Design answered:

Dear Erin, when you inc 1 st each side of marker you can use the increase shown in video below, so that you won't have any hole. Happy knitting!

07.10.2014 - 09:18

country flag Dana wrote:

Nach 16-20-23 (25-32) cm die Hallo, können sie mir bitte an dieser Stelle weiterhelfen? Ich verstehe den folgenden Satz nicht richtig. "Arbeit bei der Markierung teilen und hin und zurück weiterstricken (damit das Zusammensetzen der Beine leichter ist)" Nehme ich die Maschen auf eine Rundnadel und stricke dann hin und zurück, so dass ich quasi eine "Öffnung" habe? Vielen Dank im Voraus für eine Antwort auf meine erste Frage zu diesem Strampler...

26.08.2014 - 00:37

DROPS Design answered:

Ja genau, Sie stricken die Rd bis zur Markierung, dann wenden Sie und stricken eine Rück-R, dann weiter hin- und zurück. Damit ergibt sich quasi ein "Schlitz", der später zusammengenäht wird. Dies erfolgt, damit die Maschen später nicht zur sehr spannen, wenn der Rumpf gestrickt wird, was passieren würde, wenn man die Beine bis zum Ende rund stricken würde.

30.08.2014 - 13:23

country flag Ludmila wrote:

Bonjour, dans l'explication française - "jambes" : est-ce qu'il faut répéter les augmentations tous les (...) cm ou les rangs? Si ce sont les cm, ça veut dire qu'on augmente même après la division? Merci

11.06.2014 - 21:24

DROPS Design answered:

Bonjour Ludmila, les augmentations des jambes commencent à 6 cm de hauteur totale et se répètent 4 fois au total tous les 3-7 cm (cf taille), toutes les augmentations sont terminées quand on divise l'ouvrage, ex dans la 1ère taille on augmente à 6, 9, 12 et 15 cm et on divise l'ouvrage à 16 cm. Bon tricot!

12.06.2014 - 08:48

country flag Maryse wrote:

Peut on remplacer les aiguilles doubles pointes par je aiguilles circulaires? Merci

06.05.2014 - 08:42

DROPS Design answered:

Bonjour Maryse, tout à fait, vous pouvez tricotez avec la technique du magic loop si nécessaire (cf vidéo ci-dessous). Bon tricot!

06.05.2014 - 09:17

Elika wrote:

Väike viga kehaosa kudumise lõpupoole. Ripskoes tuleb kududa viimaste mõõtudeni mitte 5.5cm. Loe ing k tõlget until finished measurements

07.03.2014 - 19:17

country flag Anna wrote:

Hej igen, ingen af grunde nævnte passer. Nu har jeg tørretumblet den i 1,5 timer og den har den rigtige størrelse. Det står for resten intet om anbefalinger til vask på garnets nøgle. Hvor kan jeg ser dem? Hilsner

28.12.2013 - 18:49

DROPS Design answered:

Hej Anna. Det hjælper absolut ikke at smide i tørretumbler! Vaskeanvisninger står på indersiden af banderolen til garnet. Læs også det link jeg postede i mit sidste svar til dig vedr. vaskeanvisninger generelt. Ellers må du kontakte din DROPS butik for videre hjælp og vurdering, ved klager og eventuelle ombytninger kan de hjælpe dig videre.

29.12.2013 - 10:01

country flag Anna wrote:

Jeg har lige vasket den dragt i hånden, den blev kæmpe stor, passer til det 6-årige barn. Hvad er det galt med garnet? Er utrolig ked af det:(

28.12.2013 - 15:53

DROPS Design answered:

Hej Anne. Det er meget ærgeligt. Der kan være flere grunde til at din dragt er blevet større: strikkefasthed (er den blevet strikket for løst), har den ligget for længe i blød eller indeholdt dit vaskemiddel blødgørende ingredienter (skyllemiddel). Du kan også se mere her vedrørende vaskeanvisninger på garn generelt.

28.12.2013 - 17:48

country flag Anne wrote:

Hei, Lahkeen ohjeen lopussa kerrotaan näin: Luo kumpaankin reunaan 1 reunas = 52-58-64 (70-76) s. Kun työn pituus on 18-22-25 (29-34) cm, päätä kummankin reunan reunas. Siis mitä tarkoittaa "reunaan 1 reunas" ja päätä kummankin "reunan reunas"?

01.10.2013 - 21:16

DROPS Design answered:

Reunasilmukka on työn ulkoreunassa oleva silmukka, josta sauma myöhemmin ommellaan. Voit neuloa reunasilmukoilla ainaoikeaa tai sileää neuletta, mielesi mukaan.

02.10.2013 - 12:07

country flag Veronika wrote:

Jeg strikket denne, men med hette. Den ble utrolig fin, og garnet er helt fantastisk å strikke med!

02.01.2013 - 19:31

country flag Hilkka wrote:

Ohjeen viimeistelyssä puhutaan hupun kiinnittämisestä. Tässä mallissa ei ole huppua. Ohje on: --Happy Days. Neulottu DROPS housupuku Merino Extra fine-langasta

18.11.2012 - 16:41