DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 21-29
DROPS Design: Mynstur nr LI-002-by
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
200-200-200 (250-250) g litur nr 5610, brúnn
50-50-50 (50-50) g litur nr 5310, ljós brúnn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.

DROPS TRÉTALA LJÓS NR 503: 3 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

STROFF:
* 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.

RENDUR:
2 umferðir í litnum ljós brúnn
3 umferðir í litnum brúnn
3 umferðir í litnum ljós brúnn
2 umferðir í litnum brúnn
1 umferð í litnum ljós brúnn
3 umferðir í litnum brúnn
4 umferðir í litnum brúnn
1 umferð í litnum brúnn
2 umferðir í litnum ljós brúnn

ÚRTAKA (fyrir berustykki án kants):
Prjónið 2 lykkjur slétt saman. * Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* við næstu 2 prjónamerkin, prjónið síðan þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt.

ÚRTAKA (fyrir berustykki með kanti):
FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÉTTU ÞANNIG: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt saman. * Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* við næstu 2 prjónamerki, prjónið síðan þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÖNGU ÞANNIG: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið saman. * Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, 2 lykkjur snúnar brugðið saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogana í stað fremri), 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur brugðið saman *, endurtakið frá *-* við 2 næstu prjónamerki, prjónið síðan þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur snúnar brugðið saman, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
ATH: Passið uppá að lykkjurnar snúi í rétta átt frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í kanti að framan með laskalínu sem er staðsett á ermi – athugið hvort þess þurfi í stærri stærðum. Fellið af þannig: 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Fellið af fyrir hnappagötum þegar kantur að framan mælist:
Stærð 1/3 mán: 2, 5 og 8 cm.
Stærð 6/9 mán: 3, 6 og 9 cm.
Stærð 12/18 mán: 3, 7 og 10 cm.
Stærð 2 ára: 3, 7 og 11 cm.
Stærð 3/4 ára: 4, 8 og 12 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 102-114-126 (138-150) lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum brúnn Lima. Prjónið 1 umferð slétt, haldið síðan áfram með STROFF – sjá útskýringu að ofan – í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð sléttprjón. Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið eitt prjónamerki í 1. lykkju (= byrjun á umferð), 50-56-62 (68-74) lykkjur sléttprjón, setjið eitt prjónamerki (= mitt í hlið) í næstu lykkju, 50-56-62 (68-74) lykkjur sléttprjón.
Þegar stykkið mælist 14-15-18 (21-23) cm prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-17-20 (23-25) cm fellið af 5 lykkjur í hvorri hlið fyrir handvegi (= lykkja með prjónamerki + 2 lykkjur hvoru megin við hana) = 92-104-116 (128-140) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 30-30-36 (36-36) lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með litnum brúnn. Prjónið 1 umferð sléttprjón, haldið áfram með stroff í 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og haldið áfram í sléttprjóni. Setjið eitt prjónamerki í 1. lykkju í umferð, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi hvoru megin við prjónamerki með 3-2-3(2,5-2,5) cm millibili alls 4-6-5 (7-9) sinnum = 38-42-46 (50-54) lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-17-18 (23-27) cm prjónið nú RENDUR. Þegar stykkið mælist 17-19-20 (25-29) cm (passið uppá að það verði jafn margar renndur og á fram- og bakstykki) fellið af 5 lykkjur mitt undir ermi = 33-37-41 (45-49) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 158-178-198 (218-238) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma.
Hægt er að prjóna stykkið með eða án ops með tölum – sjá útskýringu að neðan.

BERUSTYKKI MEÐ KANTI:
Prjónið nú fram og til baka frá hægri með laskalínu að framan. Fitjið upp 4 auka lykkjur á framstykkinu (= kantur fyrir tölur) = 162-182-202 (222-242) lykkjur.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Haldið áfram í garðaprjóni og röndum ásamt 4 lykkjum GARÐAPRJÓN í byrjun og lok umferðar (fyrir kant með tölum). JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir laskalínu – sjá ÚRTAKA- fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 11-11-12 (12-13) sinnum og síðan í hverri umferð 1-3-4 (6-7) sinnum. ATH: Fellið einnig af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23-25-29 (32-35) cm setjið miðju 13-13-13 (15-15) lykkjur að framan á þráð og hvor hlið er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af við hálsmál í annarri hverri umferð þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2-2-2 (3-3) sinnum. Eftir allar úrtöku/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli eru alls 45-49-53 (53-57) lykkjur á prjóni.

BERUSTYKKI ÁN KANTS:
Prjónið nú í hring. Haldið áfram í sléttprjóni og renndur. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir laskalínu – sjá ÚRTAKA – fækkið lykkjum í annarri hverri umferð: 11-11-12 (12-13) sinnum og síðan í hverri umferð: 1-3-4 (6-7) sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23-25-29 (32-35) cm setjið miðju 13-13-13 (15-15) lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og prjónað er til loka fram og til baka. Fellið síðan af við hálsmál í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2-2-2 (3-3) sinnum. Eftir allar úrtöku/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli eru 41-45-49 (49-53) lykkjur á prjóni.

HÁLSMÁL:
Prjónað er í hring á berustykki án talna og fram og til baka á berustykki með tölum.
Takið upp ca 23 til 27 lykkjur framan í hálsmáli (meðtaldar lykkjur af þræði) með litnum brúnn = 68 til 84 lykkjur. Setjið allar lykkjur á sokkaprjón 3,5 – prjónið 1 umferð sléttprjón jafnframt sem lykkjum er fækkað/aukið út jafnt yfir til 64-76 lykkjur. Prjónið 4 cm stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið. Fellið laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Ef þú hefur prjónað kant fyrir tölur: Leggið kantinn fyrir tölur yfir kant með hnappagötum efst og saumið niður í neðri kanti frá röngu. Saumið tölur í.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Janna wrote:

Hallo, danke für die tolle Anleitung! Ich bin am Hals angekommen, verstehe aber nicht, wie ich die 23-27 Maschen aus den stillgelegten und den abgeketteten Maschen am vorderen Halsausschnitt aufnehme. Es sind ja viel mehr Maschen stillgelegt und auf dem Hilfsfaden und ich weiß nicht, wo ich einstechen muss. Das Video unter der Anleitung hilft mir hier leider auch nicht weiter. Danke für die Hilfe! :)

27.01.2024 - 21:55

DROPS Design answered:

Liebe Janna, diese 23-27 Maschen werden beim Vorderteil aufgefassen: es wurden 13-15 Maschen für den Halsauschnitt, Vorderteil stilgelegt + 2 Maschen 1 x + 1 Masche 2-3 Mal beidseitig abgekettet, dazu kommen die restlichen Maschen der Passe, so haben Sie ca 68 bis 84 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

29.01.2024 - 12:01

country flag Bertha wrote:

Ik brei kindertrui William, LI 002 by op een rondbreinaald. Voor de raglan moet je eerst om de naald minderen, en dan nog een paar keer elke naald. Als de steken voor de hals op een hulpdraad staan, moet je daardoor heen en weer op de naald, maar tevens elke naald minderen. Betekent dat dat je ook op de averechte naald moet minderen? Hoe dan? Als ik dezelfde mindermethode toepas op de averechte toer, staan de V tjes niet meer mooi de goede kant op.

05.02.2023 - 16:10

DROPS Design answered:

Dag Bertha,

In een van de bijgevoegde video's wordt uitgelegd hoe je de raglanminderingen aan de goede en de verkeerde kant maakt.

08.02.2023 - 11:36

country flag Manon wrote:

Je ne comprends la reprise des mailles encolure (sans bouton). Il faut relever de 23 à 27 sur le devant, mais dans la même phrase vous parler de 68 à 84, de quelles mailles s'agit-il ? et que signifie "dans le même tour répartir des diminutions/augmentations pour ajuster. Pour ajuster quoi ? puisque qu'on connait le nombre de mailles après les diminutions du raglan et du col. Merci de préciser s'il vous plait.

21.10.2022 - 11:48

DROPS Design answered:

Bonjour Manon, vous devez rabattre pour l'encolure les 13-15 m + de chaque côté: 1 x 2 m + 2 ou 3 x 1 m - pour le col, vous reprenez les 41 à 53 mailles qui restaient à la fin de l'empiècement et vous relevez en plus 23 à 27 mailles le long de l'encolure devant (les mailles en attente + les mailles rabattues) - vous devriez avoir 68 à 84 mailles; tricotez ensuite 1 tour jersey en ajustant le nombre de mailles à 64-76 (il doit être divisible par 4 = diminuez ou augmenter des mailles en fonction de celui que vous avez relevé). Bon tricot!

21.10.2022 - 16:09

country flag Johanna Smit wrote:

Ik wil een baby truitje breien met patentst op 2 naalden 4,5 voor 9 mnd maar kan gaan patroonvinden

16.10.2021 - 12:49

DROPS Design answered:

Dag Johanna,

Misschien dat dit patroon wat is? Deze wordt echter wel op de rondbreinaald gebreid van boven naar beneden.

Mocht je nog een ander patroon vinden die verder aan je wensen voldoet, maar op de rondbreinaald wordt gebreid dan kun je deze instructie raadplegen om het patroon aan te passen om met rechte naalden te breien. Helaas is dit niet voor ieder patroon geschikt.

17.10.2021 - 18:32

country flag Tina Hald wrote:

Hej Jeg strikker sweateren uden knap kan . Der står man skal sætte 15 masker på en tråd , så vidt så godt . Men hvordan kommer man så videre ? Ret naturligt ville jeg så begynde at stikke frem og tilbage ( man kan jo ikke bare hoppe over 15 masker ? ) . Men det står der kun i opskriften med knap man skal gøre . Så synes det er lidt misvisende . Men jeg har altså strikket frem og tilbage idet jeg ikke kunne se andre løsninger

12.12.2020 - 17:19

DROPS Design answered:

Hei Tine. Om man har valgt å strikke med knapp må man strikke frem og tilbake når man begynner på bærestykket, Men skal man strikke uten knapp strikker man rundt til der man setter masker på en tråd til hals og deretter må man strikke frem og tilbake et lite stykke. Så du har gjort det riktig. God Fornøyelse!

16.12.2020 - 14:38

country flag Vera Myhrman wrote:

Hej vilket annat garn kan jag ersätta Lima med? Konvertera hänvisar mig att skriva till er. Tacksam för hjälp Mvh Vera

15.08.2020 - 16:49

DROPS Design answered:

Hej Vera. Du kan ersätta Lima med ett annat garn ur garngrupp B. Du hittar en översikt över vilka garn som tillhör vilken garngrupp här. Tänk som vanligt bara på att få den stickfasthet som uppges i mönstret och att beräkna riktig garnåtgång med det alternativa garnet. Mvh DROPS Design

17.08.2020 - 10:52

country flag Johanna wrote:

Hej! Jag stickar tröjan utan knappar i strl 12/18 mån. Jag blir förvirrad när det ska maskas av mot halsen. I beskrivningen står ”sedan maskas av mot halsen....” vilket jag tolkar som att det görs EFTER minskningar till raglan (eftersom det annars står ”samtidigt”). Men i svar på frågor skriver ni att det ska göras samtidigt med minskningar för raglan? Vad stämmer? Undrar också om det är sammanlagt 8 maskor som ska avmaskas till halsen? Tack!

12.12.2019 - 10:02

DROPS Design answered:

Hej Johanna, du minskar till raglan och samtidigt när arb mäter 29 cm sätts de mittersta 13 m fram på 1 tråd till hals, nu minskar du även till halsen i början på varje varv enligt beskrivningen. Lycka till :)

16.12.2019 - 15:32

country flag Winnie Normann wrote:

Jeg strikker den største str. uden knapper og er kommet dertil hvor jeg skal sætte masker til hals på en snor, jeg kan ikke rigtig hitte ud af om hvorvidt, jeg så efterfølgende, skal strikke frem og tilbage på rundpinden, for at kunne lave indt. til hals og så også lave raglan indt. på vrang pinden,eller kan det gøres fra retsiden, i givet fald hvordan? ;-)

18.02.2019 - 16:18

DROPS Design answered:

Hei Winnie. Når du har satt maskene på en snor strikker du frem og tilbake fra den ene siden av halsen til den andre siden av halsen, snu og strikk tilbake fra vrangsiden. Du feller av de ytterste maskene (altså nærmest halsen) på begynnelsen av hver 2 pinne som forklart. Dette gjøres samtidig som fellingen til raglan pågår, og du må felle til raglan fra vrangsiden når det skal felles på hver pinne. Før merke: ta 1 maske løst av som om den skulle strikkes vrang, 1 vrang, løft den løse masken over. Etter merke: strikk 2 vrang sammen. God fornøyelse

21.02.2019 - 14:12

country flag Malika wrote:

Ich habe die Arbeit genau nach Anleitung gestrickt in der Größe 2 Jahre. Eigentlich stricke ich eher eng. Trotzdem ist der Pullover relativ breit/weit geworden. Das ist bei Wollsachen, die ja sowieso die Tendenz haben, mit der Zeit noch etwas weiter zu werden, schade. Außerdem fand ich die Erklärungen für die Passe mit Knöpfen sehr unpräzise.

16.01.2019 - 15:10

country flag Malika wrote:

Und ergänzend dazu: wie viele Reihen (hin und rück) der Passe habe ich noch zu stricken, wenn ich die Maschen auf den Hilfsfaden lege (also bis die Passe beendet ist und das Halsbündchen anfängt)?

13.01.2019 - 18:43

DROPS Design answered:

Liebe Malika, Sie stricken noch die Abnahmen für Halsausschnitt und gleichzeitig die Raglanabnahmen stricken Sie noch weiter, also je nach der Grösse müssen 41-57 M je nach Grösse und Passe bleiben. Viel Spaß beim stricken!

14.01.2019 - 12:03