Sweet Violette |
||||||||||
|
||||||||||
Sett með prjónuðum kjól fyrir börn með mynstri og hekluð húfa með blómum úr DROPS BabyAlpaca Silk eða DROPS Safran.
DROPS Baby 21-7 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KJÓLL: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1-M.4. ÚRTAKA-1 (á við um fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, (prjónamerki), prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um handveg): Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið þannig: Prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (slétt saman ef næsta lykkja er brugðin, brugðnar saman ef næsta lykkja er slétt), prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (slétt saman ef fyrri lykkjur eru brugðnar, brugðnar saman ef fyrri lykkjur eru sléttar), 4 lykkjur garðaprjón. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. PERLUPRJÓN (fram og til baka): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum á vinstra bakstykki með því að prjóna 3. og 4. lykkju frá miðju að aftan saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 144-164-180 (200-216) lykkjur með BabyAlpaca Silk í litnum ljós bleikfjólublár eða Safran í litnum malva á hringprjóna 2,5. Prjónið slétt í ca 2,5 cm, prjónið síðan 1 umferð brugðið = uppábrot, stykkið er nú mælt héðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið að auki 2 umferðir slétt og setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (= 72-82-90 (100-108) lykkjur á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki). Prjónið síðan M.1 1 sinni á hæðina – Fækkið um 0-2-0 (2-0) lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð (umferð 5 í M.1) = 144-162-180 (198-216) lykkjur. Prjónið nú M.2 1 sinni á hæðina – Fækkið um 0-2-4 (2-4) lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð (umferð 15 í M.2)= 144-160-176 (196-212) lykkjur. Prjónið síðan M.3 1 sinni á hæðina. Haldið áfram með ljós bleikfjólublár í sléttprjóni þar til stykkið mælist 9-9-10 (10-11) cm. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – lesið ÚRTAKA-1 að ofan = 4 lykkjur færri í umferð. Endurtakið úrtöku með 4-4-6(6-6) umferða millibili alls 6-6-6 (7-7) sinnum = 120-136-152 (168-184) lykkjur. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM Þegar stykkið mælist 17-19-21 (23-25) cm (öll úrtaka á að vera lokið) prjónið M.1, M.4 og síðan M.3 1 sinni á hæðina. Prjónið nú brugðið með litnum ljós bleikfjólublár þar til stykkið mælist 24-26-28 (30-32) cm. Fellið nú af 4 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 2 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki), nú skiptist stykkið og hvor hluti er nú prjónaður til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 56-64-72 (80-88) lykkjur. Næsta umferð (= rétta) er prjónuð þannig: Prjónið 4 lykkjur garðaprjón (= kantlykkja), fækkið um 1 lykkju – Lesið ÚRTAKA-2 að ofan, prjónið PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – þar til 6 lykkjur eru eftir, fækkið um 1 lykkju – Lesið ÚRTAKA-2 að ofan, endið með 4 lykkjur garðaprjón. Endurtakið úrtöku innan við 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið frá réttu alls 3-3-3 (5-6) sinnum = 50-58-66 (70-76) lykkjur. Haldið áfram í perluprjóni (með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið til loka) þar til stykkið mælist 27-29-31 (34-37) cm. Setjið nú eitt prjónamerki á milli 2 miðju lykkja og bakstykki er skipt í 2 hluta frá réttu þannig: Setjið lykkjur fram að 2 lykkjum á undan prjónamerki við miðju að aftan á þráð. VINSTRA BAKSTYKKI: = 27-31-35 (37-40) lykkjur á prjóni (lykkjur í vinstri hlið + 2 lykkjur hægra megin við prjónamerki við miðju að aftan séð frá réttu). Haldið áfram í perluprjóni og 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið yfir þessar lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-33-36 (39-42) cm fellið af fyrir hnappagötum – Lesið HNAPPAGAT að ofan. Þegar stykkið mælist 31-34-37 (40-43) cm fellið af fyrstu 12-12-13 (14-15) lykkjur frá réttu fyrir hálsmáli. Fellið síðan af í byrjun á næstu umferð frá réttu þannig: 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 0-1-1 (1-1) sinni = 13-16-19 (20-22) lykkjur eftir á öxl. Fellið af með sléttu yfir brugðið og brugðið yfir slétt þegar stykkið mælist 33-36-39 (42-45) cm. HÆGRA BAKSTYKKI: Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið upp 4 lykkjur á bakhlið á fyrstu 4 lykkjum við miðju aftan á vinstra bakstykki = 27-31-35 (37-40) lykkjur. Prjónið síðan perluprjón með 4 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið eins og á vinstra bakstykki, en fellið ekki af fyrir hnappagötum. Fellið af þegar stykkið mælist 33-36-39 (42-45) cm. FRAMSTYKKI: = 56-64-72 (80-88) lykkjur. Prjónið nú áfram í perluprjóni og fellið af fyrir handvegi eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 27-30-33 (35-38) cm fellið af miðju 12-12-14 (14-16) lykkjur fyrir hálsmáli og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Fellið síðan af í næstu umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 4-5-5 (6-6) sinnum = 13-16-19 (20-22) lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 33-36-39 (42-45) cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma og saumið tölur í vinstra bakstykki. Brjótið inn neðsta kantinn við brugðnu umferðina og saumið niður á röngu. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið meðfram hálsmáli með BabyAlpaca Silk í litnum bleikfjólublár eða Safran í litnum bleikfjólublár með heklunál 2,5 þannig: UMFERÐ 1: * 1 fastalykkja, hoppið yfir ca 0,5 cm *, endurtakið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju. UMFERÐ 2: * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, 3 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju. Klippið frá og festið enda. BLÓM: Heklið 4 loftlykkjur með BabyAlpaca Silk í litnum bleikfjólublár eða Safran í litnum bleikfjólublár og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. * Heklið 1 fastalykkju og 5 stuðla um hringinn *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju = 3 blöð. Heklið 1 blóm til viðbótar á sama hátt = 2 blóm með 3 blöðum. Heklið að auki 1 blóm til viðbótar á sama hátt nema endurtakið frá *-* 1 alls 5 sinnum í stað 3 sinnum = 5 blöð. Saumið blómin niður á framstykkið. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÚFA: HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umferðir byrja með 2 loftlykkjum (ATH: Ekki talið sem fyrstu stuðull), haldið áfram með 1 stuðul í hverja lykkju, endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. stuðul í byrjun á umferð. LITASKIPTI: Skiptið um lit í lok umferðar þannig: Heklið 1 keðjulykkju með nýja litnum í 1. stuðul í umferð. Haldið áfram næstu umferð með nýja litnum. ÚRTAKA: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring með byrjun efst á húfunni. HÚFA: Heklið 4 loftlykkjur með BabyAlpaca Silk í litnum bleikfjólublár eða Safran í litnum bleikfjólublár með heklunál 2,5 og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 2 loftlykkjur, síðan 12 stuðla um hringinn. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR að ofan. UMFERÐ 2: 2 stuðlar í hvern stuðul = 24 stuðlar. UMFERÐ 3: * 1 stuðull í næsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 stuðlar. UMFERÐ 4: * 1 stuðull í næstu 2 stuðla, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 stuðlar. UMFERÐ 5: * 1 stuðull í næstu 3 stuðla, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 60 stuðlar. Haldið áfram að auka út 12 nýja stuðla í umferð með því að hekla 2 stuðla í næstu lykkju eftir 4., 5., 6. lykkju o.s.frv. þar til 108-108-120 (120-132) lykkjur hafa verið heklaðar í umferð. Haldið áfram með 1 stuðul í hverja lykkju þar til stykkið mælist 11-12-13 (14-15) cm (eða að óskaðri lengd). Fækkið síðan um 12 lykkjur jafnt yfir í umferð – Lesið ÚRTAKA að ofan = 96-96-108 (108-120) lykkjur og skiptið nú yfir í ljós bleikfjólublár/malva – Lesið LITASKIPTI að ofan. Haldið áfram með 1 stuðul í hverja lykkju þar til stykkið mælist 15-16-17 (18-19) cm og skiptið yfir í fjólublár eftir síðustu umferð. Heklið síðan 1 umferð með 1 fastalykkju í hvern stuðul. Næsta umferð er hekluð þannig: * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, 3 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju. Klippið frá og festið enda. STÓRT BLÓM: Stykkið er heklað í hring. Heklið 4 loftlykkjur með BabyAlpaca Silk í litnum ljós bleikfjólublár eða Safran í litnum malva og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: * 1 fastalykkja um hringinn, 3 loftlykkjur, * endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í byrjun á umferð = 3 loftlykkjubogar. UMFERÐ 2: Heklið í hvern loftlykkjuboga þannig: 1 keðjulykkja, 5 stuðlar og 1 keðjulykkja = 3 blöð. Snúið stykkinu – næsta umferð er hekluð frá bakhlið á blómi. UMFERÐ 3: 1 loftlykkja, heklið 1 fastalykkju í kringum fyrstu fastalykkju frá umferð 1, * 4 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju mitt í næsta blað frá umferð 2, 4 loftlykkju, 1 fastalykkja í kringum næstu fastalykkju frá umferð 1 *, endurtakið frá *-* þar til 5 loftlykkjubogar hafa verið heklaðir. Endið með 4 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í 1. Fastalykkju í umferð = 6 loftlykkjubogar alls. Snúið stykkinu – næsta umferð er hekluð frá framhlið á blómi. UMFERÐ 4: Heklið svona í hvern loftlykkjuboga: 1 keðjulykkja, 6 stuðlar og 1 keðjulykkja = 6 blöð. Klippið frá og festið enda. LÍTIÐ BLÓM: Stykkið er heklað í hring. Heklið 4 loftlykkjur með BabyAlpaca Silk í litnum bleikfjólublár eða Safran í litnum bleikfjólublár og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. * Heklið 1 fastalykkju og 5 stuðla um hringinn *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju = 3 blöð. Klippið frá. FRÁGANGUR: Saumið blómið niður á húfuna. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (18)
Frida wrote:
Bij de afwerking staat dat je de knoop op het rechterachterpand moet naaien, terwijl je op het linkerachterpand een knoopsgat maakt. Dat begrijp ik niet helemaal. Kunt u uitleggen hoe ik de naden dan vast moet maken?
18.09.2014 - 23:21DROPS Design answered:
Hoi Frida. Je hebt een opening gemaakt op het achterpand, die je moet sluiten met een knoopje, je sluit hier geen naden. Je sluit alleen de schoudernaden.
19.09.2014 - 17:03Sari wrote:
Mallipiiroksissa (esim. M1)ei näy/kerrottu mistä reunasta sitä lähdetään tekemään ja kuvaa ei saa niin isoksi, että erottaisi.
29.10.2013 - 09:30DROPS Design answered:
Hei! Aloitat aina piirroksen oikeasta alakulmasta.
31.10.2013 - 17:09Tone wrote:
Skal det ikke være felling til hals på høyre bakstykke?
17.03.2013 - 12:39DROPS Design answered:
Kaere Tone. Jo, du har helt ret. Vi har rettet i mönstret. Tak.
08.04.2013 - 11:38Gabriele Rink wrote:
Es wird bei diesem Modell die Nadelstärke 2,5 empfohlen, obwohl bei der Beschreibung der Wolle die Nadelstärke 3,5 angegeben ist. Was ist richtig?
12.01.2013 - 00:05DROPS Design answered:
Liebe Gabriela, bitte benutzen Sie die Nadelstärke, die in der Anleitung angegeben ist - bzw. mit der Sie die angegebene Maschenprobe erreichen.
14.01.2013 - 12:05Tanja Stolt-Saarela wrote:
Jotenki toi ainaoikein 2,5 cm alussa,1 krs nurin ja vielä 2 krs ainaoikeaa ei näytä eikä kuulosta hyvältä. Luin ruotsinkielisen ohjeen ja mun mielestä siinä sanotaan, että kudo 2,5 cm oikeaa, 1krs nurjaa ja sitten vielä 2krs oikeaa Vai onko se ihan oikein, niinku te olette suomentaneet?
13.11.2012 - 23:50DROPS Design answered:
Hei! Kiitos yhteydenotosta. Ohjeen käännökseen oli kyllä vahingossa tullut virhe. Etu- ja takakappaleen alareunassa neulotaan sileää oikeaa neuletta, eikä ainaoikein -neuletta.
15.11.2012 - 14:14|Esther wrote:
Als ik de jurk heb gebreid, houd ik dan genoeg garen over voor de muts of moet ik die apart erbij kopen?
16.08.2012 - 13:43DROPS Design answered:
De hoeveelheid voor de muts moet je apart hebben - staat onderaan de hoeveelheden voor de jurk.
20.08.2012 - 15:52DROPS Deutsch wrote:
Die Farbnummern sind jetzt ergänzt.
01.12.2011 - 09:46Katja Kruse-Michailidis wrote:
Bei der Materialangabe fehlen zwei Farbnummern (hell altrosa und hell graulila) Danke!
30.11.2011 - 21:29