DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Sweet Violette

Sett með prjónuðum kjól fyrir börn með mynstri og hekluð húfa með blómum úr DROPS BabyAlpaca Silk

DROPS Baby 21-6
DROPS Design: Mynstur nr BS-007-bya
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

KJÓLL:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
100-100-100 (150-150) g litur nr 3250, ljós bleikfjólublár
50-50-50 (50-50) g litur nr 4088, fjólublár
50-50-50 (50-50) g litur nr 1760, ljós gráfjólublár

DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5 (60 cm í allar stærðir + 40 cm í 2 minnstu stærðirnar) – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HEKLUNÁL NR 2,5 – fyrir kant og blóm.

DROPS PERLUTALA NR 521 (15 mm): 1 st í allar stærðir.
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Höfuðmál í cm: 40/42-42/44-44/46 (48/50-50/52)
Hæð: 15-16-17 (18-19) cm
Ummál: 44-44-46 (46-48) cm þar sem húfan er breiðust

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
50-50-50-(50-50) g litur nr 4088, fjólublár
50-50-50-(50-50) g litur nr 3250, ljós bleikfjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 stuðlar á breidd verði 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1-M.4.

ÚRTAKA-1 (á við um fram- og bakstykki):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, (prjónamerki), prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um handveg):
Fækkið um 1 lykkju á hvorri hlið þannig: Prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (slétt saman ef næsta lykkja er brugðin, brugðnar saman ef næsta lykkja er slétt), prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (slétt saman ef fyrri lykkjur eru brugðnar, brugðnar saman ef fyrri lykkjur eru sléttar), 4 lykkjur garðaprjón.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

PERLUPRJÓN (fram og til baka):
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í vinstra bakstykki með því að prjóna 3. og 4. lykkju frá miðju að aftan saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 144-164-180 (200-216) lykkjur með litnum ljós bleikfjólublár á hringprjóna 2,5.
Prjónið slétt í ca 2,5 cm, prjónið síðan 1 umferð brugðið = uppábrot, stykkið er nú mælt héðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið að auki 2 umferðir slétt og setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (= 72-82-90 (100-108) lykkjur á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki). Prjónið síðan M.1 1 sinni á hæðina – Fækkið um 0-2-0 (2-0) lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð (umferð 5 í M.1) = 144-162-180 (198-216) lykkjur. Prjónið nú M.2 1 sinni á hæðina – Fækkið um 0-2-4 (2-4) lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð (umferð 15 í M.2)= 144-160-176 (196-212) lykkjur. Prjónið síðan M.3 1 sinni á hæðina. Haldið áfram með litnum ljós bleikfjólublár í sléttprjóni þar til stykkið mælist 9-9-10 (10-11) cm. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – lesið ÚRTAKA-1 að ofan = 4 lykkjur færri í umferð.
Endurtakið úrtöku með 4-4-6(6-6) umferða millibili alls 6-6-6 (7-7) sinnum = 120-136-152 (168-184) lykkjur.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM
Þegar stykkið mælist 17-19-21 (23-25) cm (öll úrtaka á að vera lokið) prjónið M.1, M.4 og síðan M.3 1 sinni á hæðina. Prjónið nú brugðið með litnum ljós bleikfjólublár þar til stykkið mælist 24-26-28 (30-32) cm. Fellið nú af 4 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 2 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki), nú skiptist stykkið upp og hvort stykki er nú prjónaður til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 56-64-72 (80-88) lykkjur. Næsta umferð (= rétta) er prjónuð þannig: Prjónið 4 lykkjur garðaprjón (= kantlykkja), fækkið um 1 lykkju – Lesið ÚRTAKA-2 að ofan, prjónið PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – þar til 6 lykkjur eru eftir, fækkið um 1 lykkju – Lesið ÚRTAKA-2 að ofan, endið með 4 lykkjur garðaprjón. Endurtakið úrtöku innan við 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið frá réttu alls 3-3-3 (5-6) sinnum = 50-58-66 (70-76) lykkjur.
Haldið áfram í perluprjóni (með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið til loka) þar til stykkið mælist 27-29-31 (34-37) cm. Setjið nú eitt prjónamerki á milli 2 miðjulykkja og bakstykki er skipt í 2 stykki frá réttu þannig: Setjið lykkjur fram að 2 lykkjum á undan prjónamerki við miðju að aftan á þráð.

VINSTRA BAKSTYKKI:
= 27-31-35 (37-40) lykkjur á prjóni (lykkjur á vinstri hlið + 2 lykkjur hægra megin við prjónamerki við miðju að aftan séð frá réttu). Haldið áfram í perluprjóni og 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið yfir þessar lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-33-36 (39-42) cm fellið af fyrir hnappagötum – Lesið HNAPPAGAT að ofan.
Þegar stykkið mælist 31-34-37 (40-43) cm fellið af fyrstu 12-12-13 (14-15) lykkjur frá réttu fyrir hálsmáli. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á næstu umferð frá réttu þannig: 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 0-1-1 (1-1) sinni = 13-16-19 (20-22) lykkjur eftir á öxl. Fellið af með sléttu yfir brugðið og brugðið yfir slétt þegar stykkið mælist 33-36-39 (42-45) cm.

HÆGRA BAKSTYKKI:
Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið upp 4 lykkjur á bakhlið á fyrstu 4 lykkjum við miðju aftan á vinstra bakstykki = 27-31-35 (37-40) lykkjur. Prjónið síðan perluprjón með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið eins og á vinstra bakstykki, en fellið ekki af fyrir hnappagötum. Fellið af þegar stykkið mælist 33-36-39 (42-45) cm.

FRAMSTYKKI:
= 56-64-72 (80-88) lykkjur. Prjónið nú áfram í perluprjóni og fellið af fyrir handvegi eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 27-30-33 (35-38) cm fellið af miðju 12-12-14 (14-16) lykkjur fyrir hálsmáli og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum í næstu umferð frá hálsmáli þannig: Fækkið um 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 4-5-5 (6-6) sinnum = 13-16-19 (20-22) lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 33-36-39 (42-45) cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma og saumið tölur í vinstra bakstykki. Brjótið inn neðsta kantinn við brugðnu umferðina og saumið niður á röngu.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið meðfram hálsmáli með litnum fjólublár með heklunál 2,5 þannig:
UMFERÐ 1: * 1 fastalykkja, hoppið yfir ca 0,5 cm *, endurtakið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju.
UMFERÐ 2: * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, 3 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju. Klippið frá og festið enda.

BLÓM:
Heklið 4 loftlykkjur með litnum fjólublár og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. * Heklið 1 fastalykkju og 5 stuðla um hringinn *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju = 3 blöð.
Heklið 1 blóm til viðbótar á sama hátt = 2 blóm með 3 blöðum. Heklið að auki 1 blóm til viðbótar á sama hátt nema endurtakið frá *-* 1 alls 5 sinnum í stað 3 sinnum = 5 blöð. Saumið blómin niður á framstykkið.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HÚFA:

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umferðir byrja með 2 loftlykkjum (ATH: Ekki taldar sem fyrsti stuðull), haldið áfram með 1 stuðul í hverja lykkju, endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. stuðul í byrjun á umferð.

LITASKIPTI:
Skiptið um lit í lok umferðar þannig: Heklið 1 keðjulykkju með nýja litnum í 1. stuðul í umferð. Haldið áfram næstu umferð með nýja litnum.

ÚRTAKA:
Heklið 1 stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 lykkju.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring með byrjun efst á húfunni.

HÚFA:
Heklið 4 loftlykkjur með litnum fjólublár með heklunál 2,5 og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 2 loftlykkjur, síðan 12 stuðla um hringinn. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR að ofan.
UMFERÐ 2: 2 stuðlar í hvern stuðul = 24 stuðlar.
UMFERÐ 3: * 1 stuðull í næsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 stuðlar.
UMFERÐ 4: * 1 stuðull í næstu 2 stuðla, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 stuðlar.
UMFERÐ 5: * 1 stuðull í næstu 3 stuðla, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 60 stuðlar.
Haldið áfram að auka út 12 nýja stuðla í umferð með því að hekla 2 stuðla í næstu lykkju eftir 4., 5., 6. lykkju o.s.frv. þar til 108-108-120 (120-132) lykkjur hafa verið heklaðar í umferð.
Haldið áfram með 1 stuðul í hverja lykkju þar til stykkið mælist 11-12-13 (14-15) cm (eða að óskaðri lengd). Fækkið síðan um 12 lykkjur jafnt yfir í umferð – Lesið ÚRTAKA að ofan = 96-96-108 (108-120) lykkjur og skiptið nú yfir í litinn ljós bleikfjólublár – Lesið LITASKIPTI að ofan. Haldið áfram með 1 stuðul í hverja lykkju þar til stykkið mælist 15-16-17 (18-19) cm og skiptið yfir í litinn fjólublár eftir síðustu umferð. Heklið síðan 1 umferð með 1 fastalykkju í hvern stuðul. Næsta umferð er hekluð þannig: * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, 3 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju. Klippið frá og festið enda.

STÓRT BLÓM:
Stykkið er heklað í hring.
Heklið 4 loftlykkjur með litnum ljós bleikfjólublár og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1: * 1 fastalykkja um hringinn, 3 loftlykkjur, * endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í byrjun á umferð = 3 loftlykkjubogar.
UMFERÐ 2: Heklið í hvern loftlykkjuboga þannig: 1 keðjulykkja, 5 stuðlar og 1 keðjulykkja = 3 blöð. Snúið stykkinu – næsta umferð er hekluð frá bakhlið á blómi.
UMFERÐ 3: 1 loftlykkja, heklið 1 fastalykkju í kringum fyrstu fastalykkju frá umferð 1, * 4 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju mitt í næsta blað frá umferð 2, 4 loftlykkju, 1 fastalykkja í kringum næstu fastalykkju frá umferð 1 *, endurtakið frá *-* þar til 5 loftlykkjubogar hafa verið heklaðir. Endið með 4 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í 1. Fastalykkju í umferð = 6 loftlykkjubogar alls. Snúið stykkinu – næsta umferð er hekluð frá framhlið á blómi.
UMFERÐ 4: Heklið svona í hvern loftlykkjuboga: 1 keðjulykkja, 6 stuðlar og 1 keðjulykkja = 6 blöð. Klippið frá og festið enda.

LÍTIÐ BLÓM:
Stykkið er heklað í hring. Heklið 4 loftlykkjur með litnum fjólublár og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. * Heklið 1 fastalykkju og 5 stuðla um hringinn *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju = 3 blöð. Klippið frá.

FRÁGANGUR:
Saumið blómið niður á húfuna.

Mynstur

symbols = ljós bleikfjólublár
symbols = fjólublár
symbols = ljós gráfjólublár
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Ellie Simo wrote:

I'm knitting this darling dress for 12 mo.-18 mo. and am confused why the diagrams are started again at only 8 1/4" length; that doesn't look like it would be long enough for this age child. Do you have dimensions for the area between the diagrams (old light rose section)?

19.01.2017 - 20:39

DROPS Design answered:

Dear Mrs Simo, you are working diagrams when piece measures 8 1/4" then divide piece for armholes when piece measures 10 1/4" - you can adjust if you wish it longer - see also measurements in chart (in cm). Happy knitting!

20.01.2017 - 09:14

country flag Manuela wrote:

Wenn ich die Anleitung vom Rücken richtig verstehe, sieht der Ausschnitt nachher aus wie ein V-Ausschnitt. Das sieht auf dem Bild mit den Abmessungen aber aus wie ein normaler runder Ausschnitt. Bei einem Rücken-V-Ausschnitt brauche ich ja auch kein Knopfloch. Verstehe ich da etwas falsch?

19.10.2014 - 15:14

DROPS Design answered:

Sie haben am Rückenteil eine kleine Knopfleiste, d.h. zwei Blendenstücke, die zusammengeknöpft werden. Oben wird der Halsausschnitt dann tatsächlich "normal rund", ist aber durch die Knopfleiste zweigeteilt. Dies soll beim Anziehen des Kleidchens helfen.

19.10.2014 - 22:11

country flag Ayse wrote:

Ich habe die Mütze mit Nadelstärke 2,5 gehäkelt und es war viel zu fest und zu klein. Mit Nadelstärke 3,5 (wie für dieses Garn empfohlen) stimmte es. Tippfehler in der Anleitung??

02.11.2012 - 14:38

DROPS Design answered:

Liebe Ayse, die Nadelstärke ist jeweils nur ein Vorschlag, um die entsprechende Maschenprobe zu erhalten.

04.11.2012 - 11:10

country flag Nancy wrote:

Die Frage bezieht sich auf die Mütze!

31.10.2012 - 08:24

DROPS Design answered:

Hallo Nancy, die Mütze wird vom Beginn oben gemessen.

04.11.2012 - 09:53

country flag Nancy wrote:

Hallo! Ab wo wird denn die Arbeit gemessen? Wird sie als ganzes gemessen, oder von der Mitte?

31.10.2012 - 08:23

country flag Drops Design wrote:

De 4 m retstrik står forklaret sammen med indtagningen til ærmegab som vi henviser til både på rygstk og under INDTAGNINGSTIPSET (ærmegab)

02.02.2012 - 14:48

country flag Lise wrote:

Under "forstyk" står der kun: "der strikkes videre i perlestrik..." I har glemt at skrive de 4 m ret (=kantm)

30.01.2012 - 14:08