DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Karisma yarn
DROPS Karisma
100% Ull
frá 660.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
DROPS 135-43

#ivalosweater

DROPS Design: Mynstur nr U-622
Garnflokku B
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
500-550-600-650-750-800 gr litur 01, natur
100-100-100-150-150-150 gr litur 56, dökk brúnn
50-50-50-50-50-50 gr litur 55, ljós brúnn

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) nr 4 – eða þá prjónastærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm. ATH: Til að lengdin á berustykkinu verði rétt, er mikilvægt að prjónfestan passi á hæðina.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) nr 3 – fyrir stroff

-------------------------------------------------------
Samsetning lita í sýnishorni:
A) DROPS Karisma 01, 79, 52. B) DROPS Karisma 01, 60, 68. C) DROPS Karisma 01, 55, 45.
D) DROPS Karisma 72, 11, 16. E) DROPS Karisma 55, 79, 54. F) DROPS Karisma 79, 16, 01.
G) DROPS Karisma 48, 01, 16. H) DROPS Karisma 16, 78, 44.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 660.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 til M.3. Mynsturteikning M.2 og M.3 er prjónað í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað á hringprjóna neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 480-520-570-650-700-780 lykkjur á hringprjóna nr 3 með litnum natur DROPS Karisma.
Prjónið M.1. Eftir M.1 eru 192-208-228-260-280-312 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið áfram með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 4 cm.
Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umferð slétt jafnframt er fækkað um 24-24-28-28-32-32 lykkjur jafnt yfir = 168-184-200-232-248-280 lykkjur. Setjið prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 84-92-100-116-124-140 lykkjur (prjónamerkin merkja hliðar). Haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 10-10-11-11-12-12 cm, er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin. Endurtakið úrtöku með 3 cm millibili alls 4 sinnum = 152-168-184-216-232-264 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 24-24-25-25-26-26 cm, er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin. Endurtakið útaukningu með 3 cm millibili alls 4 sinnum = 168-184-200-232-248-280 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, eru felldar af 8-8-8-10-10-10 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 4-4-4-5-5-5 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 152-168-184-212-228-260 lykkjur eftir á prjóni.
Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 56-56-60-60-64-68 lykkjur á sokkaprjóna nr 3 með litnum natur Karisma.
Prjónið stroff = 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 10 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið 1 umferð slétt jafnframt er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-64 lykkjur. Setjið prjónamerki fyrir miðju undir ermi. Prjónið M.2, haldið áfram í sléttprjóni og í litnum natur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi. Endurtakið útaukningu með 7-6-6-5-5-5 umferða millibili alls 12-14-14-16-16-16 sinnum = 76-80-84-88-92-96 lykkjur. Þegar stykkið mælist 45 cm í öllum stærðum, fellið af 8-8-8-10-10-10 lykkjur fyrir miðju undir ermi (þ.e.a.s. 4-4-4-5-5-5 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 68-72-76-78-82-86 lykkjur eftir á prjóni. Geymið ermi og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á saman hringprjón og fram- og bakstyki þar sem fellt var af fyrir handveg = 288-312-336-368-392-432 lykkjur.
Setjið prjónamerki fyrir miðju að aftan, prjónið að prjónamerki, hér byrjar umferðin núna!
Prjónið 1 umferð sléttprjón með litnum natur jafnframt er fækkað um 0-6-12-8-14-18 lykkjur jafnt yfir = 288-306-324-360-378-414 lykkjur.
Prjónið 0-2-4-7-10-13 umferðir sléttprjón með litnum natur. Prjónið M.3 (= 16-17-18-20-21-23 mynstureiningar hringinn). Þegar M.3 hefur verið prjónað eru 112-119-126-140-147-161 lykkjur á prjóni. Stykkið er prjónað til loka með litnum natur.
Prjónið 1 umferð slétt jafnframt sem lykkjum fækkað jafnt yfir til 88-92-96-104-108-112 lykkjum.
Prjónið nú upphækkun að aftan þannig:
Prjónið 7 lykkjur slétt framhjá prjónamerki.
Snúið við, herðið á þræði og prjónið 14 lykkjur brugðið til baka.
Snúið við, herðið á þræði og prjónið 21 lykkju slétt.
Haldið áfram að prjóna 7 lykkjur slétt fleiri, í hvert skipti áður en snúið er við, þar til prjónað hefur verið yfir alls 70-70-70-84-84-84 lykkjur frá síðasta snúningi.
Snúið við,herðið á þræði og prjónið 1 umferð sétt hringinn yfir allar lykkjur, fram að miðju að aftan.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 1 umferð slétt jafnframt sem aukið er út um 16-16-16-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 104-108-112-116-120-124 lykkjur. Haldið áfram með stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 10 cm, fellið nú af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

slétt lykkja = slétt lykkja
brugðin lykkja = brugðin lykkja
2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur slétt saman
lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
sléttprjón með litnum natur = sléttprjón með litnum natur
sléttprjón með litnum dökk brúnn = sléttprjón með litnum dökk brúnn
sléttprjón með litnum ljós brúnn = sléttprjón með litnum ljós brúnn
Diagram for DROPS 135-43
Diagram for DROPS 135-43
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-43

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (123)

country flag Christa Lachmann skrifaði:

Hallo, Nachtrag zu meiner Frage von gestern Abend. Wieviel Reihen hat die Passe in der Höhe? Und wie kann ich die fehlenden Reihen in der Höhe ausgleichen? Bei der Maschenprobe vergaß ich zu erwähnen, dass ich in der Breite bei Nd stärke 4,5 nur 19 M habe. Wenn ich mit Nds 4 stricke müsste ich nur die Höhe von der Pässe ausgleichen. Also die fehlenden Reihen in der Höhe mehr stricken. Ich habe auf meinem Vorderteil 21 cm ausgezählt und bin auf 65 Reihen gekommen. Christa Lachmann

10.11.2024 - 09:47

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Lachmann, die Passe in M ist 3 Runden vor M.3. das ganze Diagram M.3 + 1 Runde + die verkürzten Reihen (nicht vorne gemessen). Am besten ziehen Sie den Pullover nach M.3 an und so können Sie noch die Höhe anpassen, so wissen Sie genau wieviel Sie noch dazu stricken sollen. Viel Spaß beim Stricken!

11.11.2024 - 09:14

country flag Christa Lachmann skrifaði:

Hallo, ich habe die Maschenprobe gewaschen und jetzt sind es 21 M auf 10 cm Breite. Leider habe ich aber 31 Reihen anstelle von 28 Reihen in der Höhe auf 10 cm. Bei einer Maschenprobe mit Nd 4,5 sind es nur 25 Reihen in d. Höhe. Mit welcher Nd soll ich nun die Passe stricken ? Bei Fair Isle stricke ich immer etwas fester. Wie komme ich jetzt auf die 21 cm Höhe von der Passe bei Größe M LG Christa Lachmann

10.11.2024 - 00:09

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Lachmann, am besten benutzen Sie die Nadeln mit der richtigen Maschenprobe, aber dann wird die Passe etwas zu kurz sein, dann sollen Sie vielleicht einpaar Runden extra stricken um den Unterschied zu kompensieren (vielleicht brauchen Sie auch dafür mehr Wolle). Viel Spaß beim Stricken!

11.11.2024 - 08:57

country flag Christa Lachmann skrifaði:

Hallo ich stricke gerade den Ärmel. Da heißt es nach dem Bündchen in der ersten Runde rechts 4Maschen abnehmen. Damit habe ich jetzt 52 Maschen und soll M2 stricken. Der Rapord hat aber 8 Maschen und somit bleiben 4 Maschen übrig. Was mache ich nun mit den 4 Maschen? LG Christa Lachmann

30.10.2024 - 18:03

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Lachmann, M.2 wird über 8 Maschen gezeichnet aber das Rapport wird über 4 Maschen wiederholt, so am Ende der Runde stricken Sie noch die 4 ersten Maschen der Runde. Viel Spaß bem Stricken!

31.10.2024 - 09:10

country flag Christa Lachmann skrifaði:

Hallo, ich habe gerade den Pullover mal anprobiert und bemerkt, dass er um den Bauch etwas zu eng ist. Ich habe die Maschenprobe noch mal nachgezählt und festgestellt, dass ich anstelle von 21 Maschen 22 Maschen habe. Macht diese eine Masche soviel aus? Also nur am Bauch könnte er etwas lockerer sein. Ich stricke mit Lima Wolle. Kann ich den Pullover, nach Fertigstellung etwas dehnen? Damit er um den Bauch herum weiter wird? Sonst passt er. Aufribbeln möchte ich nicht.

28.10.2024 - 23:08

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Lachmann, 1 Masche für 10 cm kann z.B. 4 cm Unterschied für Grösse S hier (dh 38 cm anstatt 40 cm flach gemessen). Beim Spannen kann das schon helfen, vielleicht am besten mit einer Maschenprobe zuerst versuchen? Sicher hat Ihr DROPS Händler auch noch Tipps für Sie.

29.10.2024 - 10:08

country flag Christa Lachmann skrifaði:

Hallo, ich möchte gerne diesen Pullover von oben nach unten stricken. Ist das möglich und wie mache ich das mit den Ärmeln? Ich habe Angst, dass die Ärmel wieder zu lang werden, wenn ich den Pullover so wie in der Anleitung beschrieben, von unten nach oben stricke.

02.10.2024 - 21:05

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Lachmann, prüfen Sie mal alle Maßen in der Maßskizze mit der Hilfen einen ähnlichen Pullover den Sie gerne haben, so können Sie die Ärmellänge leicht anpassen. Mehr lesen Sie hier. Viel Spaß beim Stricken!

03.10.2024 - 09:40

country flag Annie skrifaði:

Bonjour, sur le graphique M3, comment faire les diminutions du 15ème rang, en sachant qu'on commence par une diminution, comment se fait la suite, En vous remerciant pour votre réponse, Cordialement, Annie

08.04.2024 - 20:13

DROPS Design svaraði:

Bonjour Annie, suivez les symboles du diagramme comme indiqué, autrement dit, la diagonale sur 2 mailles correspond à 2 mailles ensemble à l'endroit. Répétez le diagramme de la même façon tout le tour, ainsi vous diminuez à chaque fois 1 (ou 2, selon les rangs) mailles, au début/à la fin de chaque M.3 (et 1 seule fois au début età la fin de chaque M.3). Bon tricot!

09.04.2024 - 08:37

country flag Ann-Elise skrifaði:

Hvordan øke under armene?

14.02.2024 - 20:27

DROPS Design svaraði:

Hei Ann-Elise, Du øker ved å lage en kast på hver side av merket under ermet. De nye maskene er strikket vridd rett på neste omgang for å unngå hull. God fornøyelse!

15.02.2024 - 06:38

country flag Jeker skrifaði:

Ich möchte den Pulli 135-43 stricken. Da ich schon einen Pulli mit dem angegebenen Garn gestrickt habe möchte ich nun den nächsten Pulli mit etwas dünnerem Garn stricken. Frage: Geht das und welches Garn würden Sie empfehlen. Vielen dank für Ihre Antwort. Freundliche Grüsse Annagret Jeker

21.12.2023 - 14:22

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Jeker, mit einer dünneren Wolle wird die Maschenprobe verschieden sein, hier finden Sie Pullover mit Nordische Muster, die mit einer Wolle der Garngruppe A gestrickt werden. Viel Spaßb eim stricken!

21.12.2023 - 15:51

country flag Lene Rasmussen skrifaði:

Hvordan undgår jeg der kommer hak / hop i omgangen, når mønstret strikkes, på 135-43 - på mønster M3

31.10.2023 - 09:51

country flag Julia skrifaði:

Hallo, ich habe einige Kommentare gelesen, aber nichts gefunden. Trotz dünner Nadel und dem Versuch, drei verschiedene Größen (unter anderem die kleinste) zu testen, erscheint mir die Maschenzahl zum Anschlagen viel zu viel (>480), auch nach den ganzen Abnahmen in M1 ist der Bund viel zu weit …. wo könnte das Problem liegen? versuche es nun erneut mit Maschenprobe und sehr viel weniger angeschlagenen Maschen.

26.11.2022 - 17:20

DROPS Design svaraði:

Liebe Julia, vertrauen Sie die Anleitung, wurde schon mehrmals und erfolgreich gestrickt - siehe z.B. in Ravelry. Solange daß Ihre Maschenprobe stimmt, dann bekommen Sie die richtigen Maßen wie bei der Skizze, z.B. in S nach Bündchen 168 M = 80 cm herum = 40 cm in der Breite (nach M.1, wenn Sie dann glatt stricken). Viel Spaß beim stricken!

28.11.2022 - 10:51