Antonia skrifaði:
Ich habe an einem Männerpullover mit der Größe L (Deutschland) die Maße verglichen und komme nun bei Größe XXXL raus? Kann das sein?
20.11.2013 - 10:54DROPS Design svaraði:
Liebe Antonie, dies ist gut möglich - dieses Modell ist nicht sehr weit geschnitten. Je nach Schnitt kann dies sehr variieren. Wenn Sie das Modell gerne leger hätten, stören Sie sich nicht an der Grössenbenennung und stricken Sie es so!
21.11.2013 - 08:06
Ellen skrifaði:
Skjønner ikke fellingene på bakstykket til ermhullet? Hvordan skal det gjøres. Ser rart ut med de tallene.
15.11.2013 - 18:11DROPS Design svaraði:
= 84-92-100-112-124-136 m (1.p = retten). Det fortsettes med striper og dobbel perlestrikk - SAMTIDIG som det felles til ermhull i hver side på hver 2.p slik: Fell av 3 m 1 gang, 2 m 0-1-2-4-6-8 ganger og 1 m 1-2-3-4-5-6 ganger = 76-78-80-82-84-86 m. Minsta storleken 84 - 3+3m - 1+1 = 76 m
20.11.2013 - 09:16
Eline skrifaði:
Trui is klaar, mijn zoon van 15 is helemaal blij met zijn warme trui! Duidelijk patroon!
20.10.2013 - 15:56
Brenda B. skrifaði:
I am trying to decide what size to make for my husband so that it fits like the model in the picture. Maybe you could help me out. His chest measures 39", he's 5'6" tall. He is a small, but muscular man. I know his waist measures 30". Here in Canada he wears size small most often. What do you think?
18.09.2013 - 23:31DROPS Design svaraði:
Dear Brenda, look at the measurement chart at the very bottom of the page, and compare these measurements (in cm) with a jumper your husband loves and wears. This will then help you to choose the right size. Happy knitting!
19.09.2013 - 09:20
Peter skrifaði:
Axelpartiet och kragen drar väl mycket av den mörkare färgen?
29.05.2013 - 16:48
Marianne Bæk skrifaði:
Rigtigt som Astrid siger, der er byttet om på forbruget af de 2 farver...
28.05.2013 - 22:41
Moniek skrifaði:
Ik heb een probleem met de kraag . Wat word er bedoeld met; brie tegelijke verkorte toeren al volgt : brie 2 nld over alle st, brie 2 nld over de buitenste 20 st middenvoor
28.05.2013 - 16:12DROPS Design svaraði:
Je hebt bijvoorbeeld 26 st voor de kraag (maat S). Brei dan eerst 2 nld over alle st (26 st) en vervolgens 2 nld over de buitenste 20 st. Op deze manier wordt de kraag breder aan de buitenkant. Zie ook hier hoe je verkorte toeren moet breien:
29.05.2013 - 12:29
Marianne Gine Bæk skrifaði:
Hej. er der andre som har haft problemer med garnmængden til denne trøje. Jeg er gået i gang med trøjen, men først efterflgn. observeret denne kommentar...
11.05.2013 - 22:01
Connie skrifaði:
Hej Astrid, vil det sige at du har brugt mere af det lyse end det mørkegrå garn?
26.04.2013 - 15:58
Astrid skrifaði:
Der er byttet om på farverne, så det oplyste garnforbrug passer ikke. Øv, for det var meget svært at skaffe den rigtige farve efterfølgende.
19.04.2013 - 16:36
Limestone#limestonesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir herra með sjalkraga úr DROPS Karisma eða DROPS Merino Extra Fine. Stærð S-XXXL
DROPS 135-1 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- TVÖFALT PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir sl og br yfir br. UMFERÐ 3: * Prjónið 1 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 4: Prjónið br yfir br og sl yfir sl. Endurtakið umf: 1-4. RENDUR: Prjónið til skiptis með litnum milligrár og litnum ljós grár með 11-11-11½-12-12-12½ cm millibili. ATH: Fyrsta röndin er mæld frá uppfitjunarkanti. Prjónið með litnum milligrár síðustu röndina í fram- og bakstykki sem og ermi til loka. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúin (þ.e.a.s. aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. MYNSTUR 1: UMFERÐ 1: (= frá réttu): Prjónið slétt. UMFERÐ 2: (= frá röngu): *Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. Endurtakið umf 1 og 2. GARÐAPRJÓN: (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í hverri umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 213-234-255-288-318-351 l á hringprjóna nr. 3,5 með litnum ljós grár Karisma eða Merino Extra Fine. Prjónið stroff þannig: * Prjónið 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 53-58-63-72-78-87 l jafnt yfir (lykkjum er fækkað með því að prjóna 3. og 4. hverja l saman) = 160-176-192-216-240-264 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið TVÖFALT PERLUPRJÓN og RENDUR- sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15-15-16-16-17-17 cm eru sett tvö prjónamerki í stykkið, 1 prjónamerki í byrjun á umf og 1 prjónamerki eftir 80-88-96-108-120-132 l (merkir hliðar). Í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki – Lesið ÚTAUKNING að ofan = 4 nýjar l í umf. ATH: Nýju l eru prjónaðar inn í tvöfalt perluprjón. Endurtakið útaukningu 1 sinni til viðbótar þegar stykkið mælist 30-30-32-32-34-34 cm = 168-184-200-224-248-272 l. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm og er stykkinu skipt við prjónamerki. Bakstykki og framstykki er prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 84-92-100-112-124-136 l (umf 1 = rétta). Haldið áfram að prjóna RENDUR og TVÖFALT PERLUPRJÓN – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-1-2-4-6-8 sinnum og 1 lykkju 1-2-3-4-5-6 sinnum = 76-78-80-82-84-86 l. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm eru felldar af miðju 24-26-28-30-32-34 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð fyrir sig. Fellið af 1 l í næstu umf frá hálsmáli, fellt er af með því að prjóna 2 síðustu l við hálsmál saman) = 25 l eftir á öxl í öllum stærðum. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. FRAMSTYKKI: = 84-92-100-112-124-136 l. Haldið áfram að prjóna RENUDUR og TVÖFALT PERLUPRJÓN. Byrjið að fella af fyrir handvegi á sama hátt og á bakstykki í umf 1 (= rétta) – JAFNFRAMT eru miðju 26-28-30-32-34-36 l settar á þráð fyrir hálsmáli að framan, nú er hvort stykki prjónað fyrir sig. Fellið af fyrir handvegi í hvorri hlið eins og á bakstykki. Þegar úrtöku er lokið eru 25 l á hvorri öxl. Haldið áfram með tvöfalt perluprjón og rendur. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm er fellt laust af allar l. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 63-66-69-72-75-78 l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum ljós grár Karisma eða Merino Extra Fine. Prjónið stroff: *Prjónið 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt –JAFNFRAMT er fækkað um 15-16-17-18-19-20 l jafnt yfir (lykkjum er fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja l slétt saman)= 48-50-52-54-56-58 l. Skiptið yfir í sokkaprjóna nr 4 og setjið prjónamerki í byrjun umf. Prjónið nú í hring með TVÖFALT PERLUPRJÓN og RENDUR. Þegar stykkið mælist 8-8-7-7-7-6 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki = 2 nýjar l. Endurtakið útaukningu með 5-4½-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 10-11-13-15-17-18 sinnum = 68-72-78-84-90-94 l. Þegar stykkið mælist 57-57-56-56-54-53 cm (styttri mæling í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) fellið af 3 l hvoru megin við prjónamerki (= 6 l fyrir miðju undir ermi). Prjónið fram og til baka á hringprjón. Haldið áfram að fella af fyrir handvegi í hvorri hlið í annarri hverri umf þannig: Fellið af 2 l 2-2-3-3-5-5 sinnum og síðan 1 l 3-4-4-5-5-6 sinnum. Fellið af 2 l í hvorri hlið þar til stikkið mælist 64-65-65-66-66-67 cm, fellið af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið laust af allar l. Stykkið mælist ca 65-66-66-67-67-68 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma með lykkjuspori. Saumið ermar í. HÆGRI KRAGI: Kraginn er prjónaður fram og til baka á hringprjóna nr 4 með litnum milligrár Karisma eða Merino Extra Fine þannig: Prjónið upp l af þræðii við miðju að framan (látið þráðinn vera áfram í) = 26-28-30-32-34-36 l, prjónið 1 umf brugðið frá röngu. Prjónið nú MYNSTUR 1 frá réttu – Sjá útskýringu að ofan. Þegar kraginn mælist 19-20-21-22-23-24 cm (síðasta umf = umf 2 í MYNSTUR 1 = ranga), setjið prjónamerki í lok umf séð frá réttu. Haldið áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – til loka – Jafnframt eru prjónaðar stuttar umferðir þannig: * Prjónið 2 umf yfir allar l, prjónið 2 umf yfir síðsutu 20 l við miðju að framan*, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 8-9-9-10-10-11 cm frá prjónamerki (frá styttri hlið). Fellið af. VINSTRI KRAGI: Prjónið upp miðju l af þræði aftur frá réttu fyrir aftan hægri kraga = vinstri kraginn liggur undir hægri kraga. Prjónið á sama hátt og hægri kragi nema spegilmynd (prjónið styttri umf yfir síðustu 20 l við miðju að framan. FRÁGANGUR: Saumið hægri kraga við hægra framstykki og vinstri kraga við vinstra framstykki í ystu l. Saumið kragann saman við miðju að aftan og saumið að hálsmáli og að bakstykki. LYKKJA FYRIR TÖLU: Gerið 1 lykkju þannig: Snúið 2 þráðum með 40 cm litnum milligrár Karisma eða Merino Extra Fine og leggið þá saman tvöfalda. Gerið 1 lykkju til viðbótar á sama hátt. Festið lykkjurnar ca 4 og 11 cm frá neðri kant á hægri kraga (ca 1 cm frá kanti við miðju að framan). Festið þræðina í gegnum kragann með nál og festið enda á bakhlið. Saumið tölur í vinstri kraga ca 2 og 4 cm innan við saum á vinstra framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #limestonesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.