DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15510.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Parker

Prjónuð peysa fyrir herra með sjalkraga úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stærð S til XXXL.

DROPS 135-45
DROPS Design: Mynstur nr Z-585
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Efni: DROPS ALPACA frá Garnstudio
Litur nr 9020, ljós perlugrár:
350-350-400-450-500-550 gr.
Og einnig: DROPS KID-SILK frá Garnstudio
Litur nr 01, natur:
150-150-175-200-225-250 gr.

DROPS PRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 l og 24 umf af mynstri með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15510.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 – mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.
----------------------------------------------------------

FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 94-105-115-126-136-147 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 5,5 með 1 þræði af Alpaca + 1 þræði af Kid-Silk. Prjónið frá réttu) þannig: * Prjónið 3 l sl, 2 l sl saman, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 3-0-3-0-3-0 l, prjónið þær slétt = 81-90-99-108-117-126 l.
Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni * 1 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, prjónið 1 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið M.1 yfir allar l, prjónið 1 kantlykkju í hvorri hlið sem prjónuð er í garðaprjóni í öllum umf (M.1 byrjar og endar með 1 l sl, séð frá réttu, á undan kantlykkju í hvorri hlið). Þegar stykkið mælist ca 47-48-49-50-51-52 cm er prjónuð næsta umferð frá réttu þannig: Fellið af 4 l fyrir handveg, prjónið 26-30-34-38-42-46 l í M.1 eins og áður (= vinstra framstykki), fellið af 21-22-23-24-25-26 l fyrir hálsmáli, prjónið umf út með M.1 eins og áður (= 30-34-38-42-46-50 l). Snúið og fellið af 4 fyrstu l fyrir handveg, prjónið út umf = 26-30-34-38-42-46 l eftir á hægra framstykki. Setjið l af vinstra framstykki á þráð.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið M.1 yfir allar l á prjóni, jafnframt er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf frá hlið: 3 l 0-0-1-1-2-2 sinnum, 2 l 0-1-1-2-2-3 sinnum og 1 l 2-3-3-4-4-5 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 54-55-56-57-58-59 cm er felld af 1 l við hálsmál, endurtakið úrtöku þar til stykkið mælist 60-61-62-63-64-65 cm. Eftir úrtöku eru 22-23-24-25-26-27 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið eins og hægra framstykki, nema spegilmynd.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og framstykki þar til stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm. Fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 4 l 1 sinni, 3 l 0-0-1-1-2-2 sinnum, 2 l 0-1-1-2-2-3 sinnum og 1 l 2-3-3-4-4-5 sinnum = 69-72-75-78-81-84 l. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, er fellt af miðju 25-26-27-28-29-30 l fyrir hálsmáli. Prjónið hvora öxl (= 22-23-24-25-26-27 l) fyrir sig þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm, fellið af.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka.
Fitjið upp 57-57-60-60-63-66 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 5,5 með 1 þræði af Alpaca + 1 þræði af Kid-Silk. Prjónið 1 umf slétt frá réttu jafnframt er fækkað um 6 l jafnt yfir = 51-51-54-54-57-60 l. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni * 1 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, endið með 1 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið M.1 yfir allar l, með 1 kantlykkju sem prjónuð er í garðaprjóni í öllum umf. (M.1 byrjar og endar með 1 l sl, séð frá réttu, á undan kantlykkju í hvorri hlið). Þegar stykkið mælist 12 cm, er aukið út um 1 l í hvorri hlið innan við kantlykkju. Endurtakið útaukningu með 4½-4½-4½-3-3-3 cm millibili alls 9-9-9-12-12-12 sinnum = 69-69-72-78-81-84 l – útauknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í M.1. Þegar stykkið mælist 52-51-50-49-48-47 cm (styttri mæling í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) er fellt af í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 4 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum og 1 l 2-4-5-6-8-9 sinnum. Fellið af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 59 cm, að lokum eru felldar af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af, stykkið mælist ca 60 cm í öllum stærðum.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma.

SJALKRAGI:
Byrjið við miðju að framan á vinstri hlið við l sem felld var af fyrir hálsmáli. Prjónið upp á hringprjóna nr 5,5 með 1 þræði af hvorri tegund þannig: Prjónið 38 til 45 l upp að öxl, síðan eru prjónaðar upp 26 til 32 l aftan við hnakka, að lokum 38 til 45 l niður meðfram vinstri hlið við úrtöku fyrir háls = 102 til 122 l (ekki eru l teknar upp þar sem fellt var af framan á hálsmáli).
Prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn aukinn í 128-134-140-146-152-158 l. Prjónið stroff frá réttu) þannig: Prjónið 2 l slétt í öllum umf, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 1 l sl og 2 l sem prjónaðar eru slétt í öllum umf. Haldið áfram þar til kraginn mælist ca 5 cm. Aukið út um 1 l í hverja og eina af miðju 12 br einingum, séð frá réttu (= aftan við hnakka) = 140-146-152-158-164-170 l. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br þar til kraginn mælist ca 11-11-12-12-13-13 cm – passið upp á að næsta umf sé prjónuð frá réttu. Prjónið 4 umf í sléttprjóni yfir allar l, fellið nú af með sl frá réttu. Ytri brúnin á að rúllast upp. Leggið kragann tvöfaldan (hægri hlið yfir vinstri hlið) neðst við opið við háls og saumið fastan við hálshálsmálið í gegnum bæði stykkin.

MEIRI FRÁGANGUR:
Saumið ermar í, saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-45

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (100)

country flag Beate Schuck wrote:

Vielen Dank für die tolle Anleitung. Ich habe sie umgerechnet auf Nadelstärke 2,5 für meine Größe. Diese Anleitung funktioniert reibungslos, auch für den Kragen. Seit gestern Abend trage ich diesen Pullover in dunklem Blaugrün stolz als Damenpullover. Die Anleitung ist auch für ungeübte StrickerInnen geeignet, die etwas Geduld haben.

18.01.2024 - 15:19

country flag Gabriele McMeans wrote:

I’ve never knitted anything before, I don’t plan on making this until a project or two in. Is the pattern worded simple enough where I could do it? Or is it a more intermediate/ advanced pattern?

18.12.2023 - 16:37

DROPS Design answered:

Dear Mrs McMeans, you can first read thoroughly the pattern and use this section to ask any question. You will find basic patterns here browse these patterns if you feel unsure with this one, maybe another one can inspire you better. Happy knitting!

19.12.2023 - 07:37

country flag David wrote:

Bonjour Je parle des diminutions à l’emmanchure mais aussi pour l’encolure. Après avoir rabattu les mailles au début du rang, faut-il faire une maille lisière en point mousse avant de continuer le diagramme M.1?

27.11.2023 - 10:44

DROPS Design answered:

Bonjour David, pour l'emmanchure, on va rabattre les mailles, pas les diminuer, on va les rabattre en début de rang à partir de l'emmanchure (sur l'endroit pour le côté droit, devant et sur l'envers pour le côté gauche du devant); quand toutes les mailles sont rabattues vous pouvez effectivement continuer avec 1 maille lisière au point mousse côté emmanchure mais aussi côté encolure (cf réponse précédente). Bon tricot!

27.11.2023 - 15:50

country flag David wrote:

Bonjour Tout d’abord merci pour le modèle. Sur le devant, lors des diminutions sur les côtés faut-il garder un maille lisière ou directement enchaîner le diagramme M.1?

26.11.2023 - 12:18

DROPS Design answered:

Bonjour David, vous parlez des diminutions de l'encolure? Je diminuerai à 1 maille lisière du bord côté encolure pour que le motif soit plus net quand on va ensuite faire le col. Bon tricot!

27.11.2023 - 09:35

country flag Aurelia Talbotec wrote:

Bonjour je voulais le tricoter en rond es ce possible si oui es ce que vous vou pouvez me dire combien de mailles monter pour une taille XL et comment faire après pour le col v merci d\\\'avance aurelia

02.10.2023 - 15:37

country flag Christina Nanneson wrote:

Hej! Jag skrev en fråga igår. Jag har löst det så inget svar behövs.

11.03.2022 - 07:15

country flag Christina Nanneson wrote:

Hej! Jag har kommit till kragen och förstår inte hur jag skall tolka detta. Hur gör jag på varv2? Sedan stickas det resår så här (från rätsidan): 2 m som stickas räta på alla v, * 1 rm, 2 am *, upprepa *-* och avsluta med 1 rm och 2 m som stickas räta på alla v. Fortsätt så tills kragen mäter ca 5 cm.

10.03.2022 - 16:41

DROPS Design answered:

Hej Christina. Så bra att det löste sig. Mvh DROPS Design

11.03.2022 - 10:17

country flag Christina Nanneson wrote:

Hej, jag lyckas inte få ihop mönster M1 med mönstret på bilden. Kan jag få en förklaring? Med vänlig hälsning Christina

06.01.2022 - 16:38

DROPS Design answered:

Hei Christina. Diagrammet går over 3 masker som gjentar seg. Tenk deg diagrammet i høyden der det 3 striper som går oppover. 1. stripe (blank firkant), denne stripen strikkes kun som rett masker, 2. stripe (sort prikk), denne stripen strikkes kun som vrang masker, mens 3. stripe strikkes rett både fra retten og fra vrangen (blir som perlestrikk). Da får du det mønstret du ser på bildet. mvh DROPS Design

14.01.2022 - 13:41

country flag Lise Girard wrote:

Bonjour ! Je fais la grandeur Small et je suis sur le devant côté droit . Rabattre pour emmanchure au début de ch rang à partir du côté : 0-0-1-1-2-2 fois 3 m , 0-1-1-2-2-3 fois 2 m , 2-3-3-4-4-5 fois 1 m. Combien faut-il que je tricote de rangs avant de rabattre 2 fois 1 m ? Merci pour votre précieuse aide .

12.10.2021 - 00:55

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Girard, en taille S, vous rabattez dès le premier rang tricoté sur le côté à partir de l'emmanchure 1 maille, tricotez 1 rang retour et rabattez 1 maille au début du rang suivant à partir de l'emmanchure. Bon tricot!

12.10.2021 - 08:58

country flag Kathi wrote:

I don’t understand how you can knit 2 together on RS row and never increase and magically maintain a constant stitch count. Each row is getting progressively smaller. What am I missing?

01.10.2021 - 18:32

DROPS Design answered:

Dear Kathi, please let us know exactly which part of the pattern your question is referencing? We would be able to give you better answer then. Thank you, Happy Stitching!

03.10.2021 - 12:12