DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 135-24
DROPS Design: Mynstur nr Z-577
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
300-350-350-400-450-500 gr litur nr 9020, ljós perlugrár
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
125-150-150-175-200-225 gr litur nr 01, natur

DROPS PRJÓNAR NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 l og 24 umf af mynstri með 1 þræði hvorri tegund verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 – allar umf í mynsturteikningu sýna mynstur séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 94-105-115-126-136-147 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 5,5 með 1 þræði af Alpaca + 1 þræði af Kid-Silk. Prjónið frá réttu) þannig: * Prjónið 3 l sl, 2 l sl saman, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 3-0-3-0-3-0 l, prjónið þær sl = 81-90-99-108-117-126 l.
Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni * 1 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, prjónið 1 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið M.1 yfir allar l, prjónið 1 kantlykkju í hvorri hlið sem prjónuð er í garðaprjóni í öllum umf (M.1 byrjar og endar með 1 l sl, séð frá réttu, á undan kantlykkju í hvorri hlið). Þegar stykkið mælist ca 48-49-50-51-52-53 cm er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Fellið af 4 l fyrir handveg, prjónið 26-30-34-38-42-46 l í M.1 eins og áður (= vinstra framstykki), fellið af 21-22-23-24-25-26 l fyrir hálsmáli, prjónið umf út með M.1 eins og áður (= 30-34-38-42-46-50 l). Snúið og fellið af 4 fyrstu l fyrir handveg, prjónið út umf = 26-30-34-38-42-46 l eftir á hægra framstykki. Setjið lykkjur frá vinstra framstykki á þráð.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið M.1 yfir allar l á prjóni, jafnframt er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf frá hlið: 3 l 0-0-1-1-2-2 sinnum, 2 l 0-1-1-2-2-3 sinnum og 1 l 2-3-3-4-4-5 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 54-55-56-57-58-59 cm er fellt af 1 l við hálsmál, endurtakið úrtöku þar til stykkið mælist 60-61-62-63-64-65 cm. Eftir úrtöku eru 22-23-24-25-26-27 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka l af þræði á prjóninn og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og framstykki þar til stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm. Fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 4 l 1 sinni, 3 l 0-0-1-1-2-2 sinnum, 2 l 0-1-1-2-2-3 sinnum og 1 l 2-3-3-4-4-5 sinnum = 69-72-75-78-81-84 l. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, er fellt af miðju 25-26-27-28-29-30 l fyrir hálsmáli. Prjónið hvora öxl (= 22-23-24-25-26-27 l) fyrir sig þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm, fellið af.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka.
Fitjið upp 57-57-60-60-63-66 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 5,5 með 1 þræði af Alpaca + 1 þræði af Kid-Silk. Prjónið eina umf slétt frá réttu jafnframt er fækkað um 6 l jafnt yfir = 51-51-54-54-57-60 l. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni * 1 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, endið með 1 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið M.1 yfir allar l, með 1 kantlykkju sem prjónuð er í garðaprjóni í öllum umf. (M.1 byrjar og endar með 1 l sl, séð frá réttu, á undan kantlykkju í hvorri hlið). Þegar stykkið mælist 11-11-11-13-13-13 cm, er aukið út um 1 l í hvorri hlið innan við kantlykkju. Endurtakið útaukningu með 4-4-4-2½-2½-2½ cm millibili alls 9-9-9-12-12-12 sinnum = 69-69-72-78-81-84 l – útauknnar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í M.1. Þegar stykkið mælist 47-46-45-44-43-42 cm (styttri mæling í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) er fellt af í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 4 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum og 1 l 2-4-5-6-8-9 sinnum. Fellið af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54 cm, að lokum er fellt af 3 l 1 sinni á hvorri hlið. Fellið af, stykkið mælist ca 55 cm í öllum stærðum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma.

SJALKRAGI:
Byrjið við miðju að framan á vinstri hlið við lykkjur sem felldar voru af fyrir hálsmáli. Prjónið upp á hringprjóna nr 5,5 með 1 þræði af hvorri tegund þannig: Prjónið upp 38 til 45 l upp að öxl, síðan eru prjónaðar upp 26 til 32 l aftan við hnakka, að lokum 38 til 45 l niður meðfram vinstri hlið við úrtöku fyrir hálsmál = 102 til 122 l (ekki eru l teknar upp þar sem fellt var af framan á hálsmáli).
Prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn aukinn í 128-134-140-146-152-158 l. Prjónið stroff frá réttu) þannig: Prjónið 2 l slétt í öllum umf, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 1 l sl og 2 l sem prjónaðar eru slétt í öllum umf. Haldið áfram þar til kraginn mælist ca 5 cm. Aukið út um 1 l í hverja og eina af miðju 12 br einingunum, séð frá réttu (= aftan við hnakka) = 140-146-152-158-164-170 l. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br þar til kraginn mælist ca 11-11-12-12-13-13 cm – passið upp á að næsta umf sé prjónuð frá réttu. Prjónið 4 umf í sléttprjóni yfir allar l, fellið nú af með sl frá réttu. Ytri brúnin á að rúllast upp. Leggið kragann tvöfaldan (hægri hlið yfir vinstri hlið) neðst við opið við hálsmál og saumið niður við hálshálsmál í gegnum bæði stykkin.

MEIRI FRÁGANGUR:
Saumið ermar í, saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (45)

country flag Marie-Thérèse O'Carroll wrote:

Many, many thanks! My knitting is progressing very nicely, now I have my answers.

26.12.2022 - 10:58

country flag Marie-Thérèse O'Carroll wrote:

Just a quick question! Is the jumper to be blocked? Shaped when wet to measurements before being assembled? I have not worked with mohair in anything other than cowls, and I always block jumpers and shawls.

23.12.2022 - 12:20

DROPS Design answered:

Dear Marie-Thérèse, you may block the garment if you'd like, but it's not required for this pattern. The measurements are obtained directly when working the garment. Happy knitting!

25.12.2022 - 23:45

country flag Marie-Thérèse O'Carroll wrote:

Thank you for your help, but I was actually asking about the repeats of the M1 pattern on Row 1. The P1, K2 is Row 2, and adds in an extra P1 before the edge stitch at the end. Am I correct then in assuming the Row 1 adds in an extra K1 before the edge stitch at the end - effectively the last 3 stitches on Row 1 (and every odd Row) are K3? It works with the pattern.

23.12.2022 - 12:14

DROPS Design answered:

Dear Marie-Thérèse, at the end of the first row, after the last repeat of M.1, you will work once again the first stitch of M.1 and then the edge stitch, so you will have K3 at the end of the first row. Happy knitting!

25.12.2022 - 23:49

country flag Marie-Thérèse O'Carroll wrote:

Hi, If I cast on 147 sts (size XXXL), then decrease down to 126 sts in 1st row, the 3-stitch pattern of M1 doesn't repeat wholly because of the edge stitch at each end: 126-2=124÷3=41.3! Should I in fact cast on 149 stitches, reduce to 128, have an edge stitch at each end and work the 3-stitch repeat M1 pattern 42 times on the remaining 126 stitches?

22.12.2022 - 17:42

DROPS Design answered:

Dear Mrs O'Carroll, work the 126 sts as follows: 1 edge stitch, repeat (p1, K2) a total of 41 times (over the next 123 sts), finish with P1, 1 edge stich = 1+123+1+1=126 sts. Happy knitting!

23.12.2022 - 08:28

country flag Veronica wrote:

Hej Håller på med kragen och undrar hur ökningen bak efter 5 cm ska se ut? Ska det ökas så det blir en rm och tre avig efter ökning? Från rätsidan sett.

01.05.2022 - 12:45

DROPS Design answered:

Hei Veronica. Ja, det kan du fint gjøre. 1 rett - 3 vrang osv. sett fra retten. mvh DROPS Design

02.05.2022 - 14:21

country flag Djuna wrote:

Försöker igen. Från framstycket: (M.1 börjas och avslutas med 1 rm, sett från rätsidan, före kantm i varje sida) Börjar inte varje varv med kantmaska? Hur kan något komma före? Det är inte logiskt, snälla förklara.

15.05.2021 - 13:25

DROPS Design answered:

Hej Djuna, innanför kantmaskan :)

17.05.2021 - 11:09

country flag Silvia wrote:

Grazie mille x la risposta

22.09.2019 - 13:13

country flag Silvia wrote:

Non capisco un passaggio del colletto a scialle....ora aum.1 m. Ai lati delle 12 sezioni centrali a rov. ,Viste dal diritto del lav., Non capisco quali sono le 12 sezioni centrali a rov.....grazie per la spiegazione

22.09.2019 - 12:23

DROPS Design answered:

Buongiorno Silvia. Le coste sono 2 m rov, 1 m dir. Deve individuare i 12 gruppi di 2 m lavorate a rovescio, al centro sul dietro del collo e in questi gruppi aumenta una maglia. In questo punto, le coste diventano 3 m rov , 1 m dir. Buon lavoro!

22.09.2019 - 13:04

Karen Jarrett wrote:

I am at the SHAWL COLLAR and am having trouble. I understand what to do until the final “38-45 sts". I do not understand “do not knit up where sts were dec in front of neck". What does 12 P-sections mean?

23.04.2018 - 03:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jarret, when picking up sts for shawl collar, you will not pick up sts in the 21-22-23-24-25-26 sts cast off for neck on mid front, just start picking up sts on mid front on left side of these cast off sts to the left front piece before these cast off sts. When working rib you will work K1/P2, you will then inc in the middle 12 sections worked with P2 ('=there will be P3 a total of 12 times and P2 before/after as before). Happy knitting!

23.04.2018 - 10:05

country flag Karen Jarrett wrote:

So sorry about my previous question. After looking the pattern up online I noticed the DIAGRAM M.1 next to the lay out of the pattern.

10.03.2018 - 01:08