Doriku skrifaði:
Hallo, das Strickbild der letzen Reihe sieht, wenn man es so strickt, wie die Anleitung es vorsieht, nicht einheitlich aus und passt nicht zum restlichen Patent. Mache ich vor dem Abketten etwas falsch oder wie kann ich anders stricken? Danke!
01.12.2011 - 19:42
DROPS Design NL skrifaði:
Hoi Gerda. Je moet Afdrukken patroon drukken en niet op Afbeelding. Dan komt het goed. Veel breiplezier.
29.11.2011 - 14:50
Gerda skrifaði:
Bedankt voor het patroon. Ik kan het helaas niet afdrukken.(alleen de afbeelding)
27.11.2011 - 19:36
Gerda skrifaði:
Bedankt voor het patroon. Ik kan het helaas niet afdrukken.(alleen de afbeelding)
27.11.2011 - 19:35
Drops Design France skrifaði:
Bonjour Clairet, avez-vous suivi le point en regardant les vidéos (en rond et en allers retours) ? Bon tricot !
21.11.2011 - 14:42
Clairet skrifaði:
Bonjour, j'ai essayé de réaliser le modèle 134-53, en suivant strictement vos explications mais je n'obtiens pas le motif des côtes de la photo, n'y aurait-il pas une erreur au niveau des mailles conseillées endroit ou envers? Merci de me répondre.
19.11.2011 - 23:02
Jantine De Kok skrifaði:
Oh kom maar op met de winter. wel eerst even deze combo maken ;-)
24.08.2011 - 08:30
Dualchocolate skrifaði:
Suggested name: chocolate chunk winter's delight
01.08.2011 - 04:17
Dotty K. skrifaði:
Wunderschön!
01.07.2011 - 23:01
Jolanda skrifaði:
Prachtig! Ik wacht met smart op het patroon :) ==== Gorgeous! Can't wait for the pattern :)
20.06.2011 - 15:31
Bold and Beautiful#boldandbeautifulset |
|
![]() |
![]() |
Prjónað eyrnaband og hálsskjól í klukkuprjóni úr DROPS Polaris.
DROPS 134-53 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KLUKKUPRJÓN (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1: Prjónið 1 l garðaprjón, * 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, endið með 2 l sl saman og 1 l garðaprjón. UMFERÐ 2: Prjónið 1 l garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, endið með 1 uppslætti, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 l garðaprjón. UMFERÐ 3: Prjónið 1 l garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, 1 l garðaprjón. Endurtakið umf 2 og 3. KLUKKUPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið br, 1 l sl *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 3: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman *, endurtakið frá *-*. Endurtakið umf 2 og 3. BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI: Þegar skipt er um dokku af Polaris þá er endanum skipt í tvo hluta á þræðinum sem er að ljúka ca 15 cm – klippið af annan endann og það sama er gert við nýja þráðinn. Leggið endana saman yfir hvorn annan svo að þykktin verði sú sama og áður og prjónið áfram - með þessu er komið í veg fyrir að samskeytin sjáist. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. EYRNABAND: Fitjið upp 10 l á prjóna nr 12 með Polaris. Prjónið KLUKKUPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Munið eftir BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI! Þegar stykkið mælist ca 55 cm (eða óskaðri lengd) – endið eftir 3. umf í klukkuprjóni – prjónið næstu umf þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, * 1 l br, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, endið með 1 l br og 1 l garðaprjón. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Snúið stykkinu einu sinni og saumið saman við miðju að aftan með lykkjuspori svo að saumurinn sjáist ekki. Setjið nokkur lítil spor við miðju að framan í snúninginn á bakhlið svo að snúningurinn haldist á sama stað. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 38 l á hringprjóna nr 12 með Polaris. Prjónið KLUKKUPRJÓN í hring á hringprjóna – sjá útskýringu að ofan – þar til stykkið mælist ca 30 cm. Endið eftir umf 2 í klukkuprjóni – næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 1 l sl, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið með 1 l sl. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #boldandbeautifulset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 134-53
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.