Drops Design France skrifaði:
Bonjour Gwalda, Vous trouverez au tout début des explications comment augmenter, et dans les explications, le nombre de rangs ex: "Répéter ces augmentations 4-5-7 (8-10) fois au total tous les rangs" signifie 4 rangs d'augmentations pour la taille 1/3 mois (empiècement). Bon crochet !
19.12.2011 - 12:22
Gwalda skrifaði:
Bonjour, c'est la première fois que je fais un gilet (réalisation de la taille 1/3 mois), et je n'arrive pas à comprendre les augmentations. sur combien de rangs? comment fait-on pour augmenter de chaque coté des marqueurs? merci de m'aider.
19.12.2011 - 11:46
Melanie skrifaði:
Danke, hatte ich mir schon gedacht und gemacht.
02.10.2011 - 13:12
DROPS Deutsch skrifaði:
Nur an den Knopfleiste und am Halsauschnitt.
27.09.2011 - 08:45
Melanie skrifaði:
Wird die Häkelkante um die Jacke auch um den unteren Abschluss (also die Zacken) oder nur um die Knopfleiste und Halsauschnitt gehäkelt?
24.09.2011 - 15:25Berna skrifaði:
Hallo, die Jacke war ganz leicht zu häkeln, und sieht zuckersüß aus :) empfehle sie für alle kleinen Prinzessinen
08.01.2011 - 09:50
Sweet Buttercup#sweetbuttercupset |
|
![]() |
![]() |
Sett með heklaðri peysu fyrir börn með laskalínu og húfu með sólfjaðramynstri úr DROPS BabyMerino
DROPS Baby 19-8 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR (á við um berustykki og ermar á peysu): Í byrjun á hverri umferð er 1. stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og hver umferð endar með 1 stuðli í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð. HEKLLEIÐBEININGAR (á við um húfu): Í byrjun á umferð með fastalykkjum er 1. fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (á við um laskalínu): Aukið út fyrir laskalínu á 8 stöðum í umferð, þ.e.a.s. hvoru megin við öll 4 prjónamerkin. AUKIÐ ÚT UM 4 STUÐLA VIÐ HVERT PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Byrjið 3. stuðlum á undan prjónamerki og heklið 2 stuðla í þennan stuðul, 2 stuðla í næsta stuðul, 1 stuðul í hvorn af næstu 2 stuðlum (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 stuðla), 2 stuðlar í næsta stuðul og 2 stuðlar í næsta stuðul (= 16 stuðlar fleiri í umferð). AUKIÐ ÚT UM 2 STUÐLA VIÐ HVERT PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Byrjið í 2. stuðli á undan prjónamerki og heklið 2 stuðla í þennan stuðul, 1 stuðul í hvorn af næstu 2 stuðlum (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 stuðla), 2 stuðla í næsta stuðul (= 8 stuðlar fleiri í umferð). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í 1 stuðul. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermi): Í byrjun á umferð er fækkað um 1 stuðul með því að skipta út 1. stuðli með 1 keðjulykkju. Í lok umferð er fækkað um 1 stuðul með því að hekla stuðla eins og áður þar til 1 stuðull er eftir í umferð, snúið stykkinu og heklið síðan eins og áður með 1 stuðli í hvern stuðul. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = skiptið út þriðja stuðli frá miðju að framan með 1 loftlykkju. Í næstu umferð er heklaður 1 stuðull um þessa loftlykkju. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 MÁN: 2, 7, 12, 17 og 22 cm. STÆRÐ 6/9 MÁN: 2, 8, 13, 19 og 24 cm. STÆRÐ 12/18 MÁN: 2, 8, 14, 20 og 26 cm. STÆRÐ 2 ÁRA: 2, 7, 12, 17, 22 og 27 cm. STÆRÐ 3/4 ÁRA: 2, 8, 13, 19, 24 og 30 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað með stuðlum ofan frá og niður þar til stykkið skiptist við ermar og fram- og bakstykki. Síðan eru ermarnar heklaðar ofan frá og niður. Heklið síðan fram- og bakstykki fram og til baka frá miðju að framan með sólfjaðramynstri til loka. BERUSTYKKI: Heklið 66-71-71 (76-76) LAUSAR loftlykkjur með heklunál 3,5 með Baby Merino. UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 2-3-3 (4-4) loftlykkjur, hoppið yfir 1 loftlykkju og heklið 1 stuðul í hverja af 1-2-2 (3-3) síðustu loftlykkjum = 48-52-52 (56-56) stuðlar í umferð (meðtaldir 4 stuðlar í hvorri hlið við miðju að framan fyrir kant að framan), snúið stykkinu. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig (frá réttu): STÆRÐ 1/3 MÁN: Prjónamerki á milli 11. og 12. stuðuls (= prjónamerki A), á milli 17. og 18. stuðuls (= prjónamerki B), á milli 31. og 32. stuðuls (= prjónamerki C) og á milli 37. og 38. stuðuls (= prjónamerki D). STÆRÐ 6/9 MÁN + 12/18 MÁN: Prjónamerki á milli 12. og 13. stuðuls (= prjónamerki A), á milli 18. og 19. stuðuls (= prjónamerki B), á milli 34. og 35. stuðuls (= prjónamerki C) og á milli 40. og 41. stuðuls (= prjónamerki D). STÆRÐ 2 ÁRA + 3/4 ÁRA: Prjónamerki á milli 13. og 14. stuðuls (= prjónamerki A), á milli 19. og 20. stuðuls (= prjónamerki B), á milli 37. og 38. Stuðuls (= prjónamerki C) og á milli 43. og 44. stuðuls (= prjónamerki D). Látið prjónamerkin síðan fylgja með niður í stykkinu. Heklið síðan þannig – sjá HEKLLEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Heklið stuðul með 1 stuðul í hvern stuðul – JAFNFRAMT í umferð 1 er aukið út um 4 stuðla fyrir laskalínu við hvert prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1! Endurtakið útaukningu í hverri umferð alls 4-5-7 (8-10) sinnum – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan. Aukið síðan út um 2 stuðla við hvert prjónamerki í hverri umferð alls 6-6-5 (5-4) sinnum = 160-180-204 (224-248) stuðlar í umferð. Nú hafa verið heklaðar alls 11-12-13 (14-15) umferðir og stykkið mælist ca 11-12-13 (14-15) cm frá öxl og niður (stykkið á nú að mælast ca 9-10-11 (12-13) cm frá hálsmáli og niður). Klippið frá. ERMI: Héðan er ermin mæld! Heklið stuðul með 1 stuðli í hvern stuðul fram og til baka yfir 34-38-44 (48-54) stuðla á milli prjónamerkis A og B. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 stuðul í hvorri hlið – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið með 3-4-2 (2-2) cm millibili alls 3-3-6 (7-10) sinnum = 28-32-32 (34-34) stuðlar. Haldið áfram með 1 stuðli í hvern stuðul. Þegar ermin mælist 12-14-15 (20-24) cm er hekluð blúnda með sólfjöðrum þannig: UMFERÐ 1: * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 til 3 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* þar til það verða 11-11-11 (13-13) loftlykkjubogar. UMFERÐ 2: Heklið keðjulykkju í miðju á fyrsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + Stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 stuðull um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* út umferðina, snúið stykkinu. UMFERÐ 3: 3 loftlykkjur, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar mitt í stuðlahóp (þ.e.a.s. um loftlykkjuboga efst á sólfjöður), 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-*, snúið stykkinu. Endurtakið 3. umferð 1 sinni til viðbótar, klippið frá og heklið hina ermina á sama hátt á milli prjónamerkis C og D. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið nú sólfjaðramynstur fram og til baka frá miðju að framan þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hvern og einn af 25-28-31 (34-37) stuðlum á vinstra framstykki fram að prjónamerki A JAFNFRAMT er aukið út um 4-4-5 (5-6) stuðla jafnt yfir (ekki yfir kant að framan) – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 = 29-32-36 (39-43) stuðlar, heklið 1 stuðul í hvern af 42-48-54 (60-66) stuðlum á bakstykki frá prjónamerki B að prjónamerki C JAFNFRAMT er aukið út um 8-8-10 (10-12) stuðla jafnt yfir = 50-56-64 (70-78) stuðlar og heklið að lokum 1 stuðul í hvern af 25-28-31 (34-37) stuðlum á hægra framstykki frá prjónamerki D JAFNFRAMT er aukið út um 4-4-5 (5-6) stuðla jafnt yfir = 29-32-36 (39-43) stuðlar = 108-120-136 (148-164) stuðlar í umferð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2: 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hvern af næstu 3 stuðlum (= kantur að framan), 3 loftlykkjur, hoppið yfir 2 stuðla, * 1 fastalykkja í næsta stuðul, 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 2 stuðla (á þeim stað sem verður að hoppa yfir 3 stuðla) *, endurtakið frá *-* þannig að það verða 30-34-38 (42-46) loftlykkjubogar og það eru eftir 6 eða 7 stuðlar, heklið 3 loftlykkjur og endið með 1 stuðli í hvern af síðustu 4 stuðlum (= kantur að framan), snúið stykkinu. Nú eru 31-35-39 (43-47) loftlykkjubogar með 4 stuðlum í hvorri hlið við kant að framan, snúið stykkinu. UMFERÐ 3: 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hvern af næstu 3 stuðlum, hoppið yfir fyrsta loftlykkjubogann, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 stuðull um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* þar til 2 loftlykkjubogar eru eftir, heklið 4 stuðla + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar í næsta loftlykkjuboga og endið með 1 stuðli í hvern af 4 stuðlum á kanti að framan = 15-17-19 (21-23) sólfjaðrir með 4 stuðlum í hvorri hlið við miðju að framan fyrir kant að framan, snúið stykkinu. UMFERÐ 4: 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hvern af næstu 3 stuðlum, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar mitt í næsta stuðlahóp (þ.e.a.s. um loftlykkjuboga efst á sólfjöður), 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* þar tl 1 stuðlahópur er eftir, 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar mitt í þessum stuðlahóp og endið með 1 stuðli í hvern af 4 stuðlum á kanti að framan, snúið stykkinu. Endurtakið umferð 4 þar til stykkið mælist ca 21-23-24 (26-28) cm. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG: 4 loftlykkjur, 1 tvíbrugðinn stuðull í hvern af næstu 3 stuðlum, * 4 tvíbrugðnir stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnir stuðlar mitt í næsta stuðlahóp, 1 tvíbrugðinn stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* þar til 1 stuðlahópur er eftir, 4 tvíbrugðnir stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnir stuðlar mitt í þennan stuðlahóp og endið með 1 tvíbrugðnum stuðli í hvern af 4 stuðlum í kanti að framan, snúið við. Endurtakið þessa umferð þar til stykkið mælist ca 26-28-31 (33-36) cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant í lokin með heklunál 3,5 með Baby Merino þannig – byrjið neðst á hægra framstykki, heklið meðfram framstykki, í kringum hálsmál, aftan í hnakka, haldið áfram meðfram hálsmáli og niður meðfram vinstra framstykki: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-*. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma og blúndu á ermum saman kant í kant með smáu fínu spori. Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Húfan er hekluð ofan frá og niður. HÚFA: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Baby Merino og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn - SJÁ HEKLLEIÐBEININGAR. UMFERÐ 2-4: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju = 6 fastalykkjur. UMFERÐ 5: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 6: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 8: * 1 fastalykkja í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 fastalykkjur. UMFERÐ 9: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 3 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 60 fastalykkjur. UMFERÐ 10: 3 loftlykkjur, * hoppið yfir 2 fastalykkjur (með jöfnu millibili er hoppað yfir 1 fastalykkju alls 6-12-18 (24) sinnum), 1 fastalykkja í næstu lykkju, 2 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn þannig að það verða 22-24-26 (28) loftlykkjubogar, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykku í byrjun á umferð. UMFERÐ 11: Heklið keðjulykkju að miðju á fyrsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, * 2 stuðlar + 1 loftlykkja + 2 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 2 stuðlum + 1 loftlykkju + 2 stuðla um síðasta loftlykkjuboga og 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð = 11-12-13 (14) sólfjaðrir. UMFERÐ 12-15: 3 loftlykkjur, * 3 stuðlar + 1 loftlykkja + 3 stuðlar mitt í næsta stuðlahóp (þ.e.a.s. um loftlykkjur efst í sólfjaðrakanti), 1 stuðull í fastalykkju/stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 3 stuðla + 1 loftlykkju + 3 stuðla mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 16: 3 loftlykkjur, * 3 stuðlar + 2 loftlykkjur + 3 stuðlar mitt í næsta stuðlahóp, 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 3 stuðla + 2 loftlykkjur + 3 stuðla mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 17: 3 loftlykkjur, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar mitt næsta stuðlahóp, 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 4 stuðla + 2 loftlykkjur + 4 stuðla mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð. Endurtakið umferð 17 þar til húfan mælist ca 10-11-12 (13) cm frá miðju á höfði. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG: 4 loftlykkjur, * 4 tvíbrugðnir stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnir stuðlar mitt í næsta stuðlahóp, 1 tvíbrugðinn stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 4 tvíbrugðnum stuðlum + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnum stuðlum mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð. Endurtakið þessa umferð þar til húfan mælist ca 14-15-16 (18) cm frá miðju á höfði og niður. Klippið frá og festið enda. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetbuttercupset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.