DROPS Design skrifaði:
Ja hele genseren er strikked me 2 tråder.
29.10.2009 - 08:17
Anonym skrifaði:
Hei:) Jeg bare lurte på om hele genseren skal strikkes med dobbel tråd?
28.10.2009 - 22:28
DROPS Design NL skrifaði:
Hoi Elly. U mindert bij een totale hoogte van 13 cm. Gr. Tine
22.10.2009 - 11:12
Elly Van De Straat skrifaði:
Goedendag,Bij het breien van deze trui(romp)vraag ik me af of ik na totaal 13 cm moet beginnen met verminderen of na 8cm(boord)+ 13 cm(tricot+patroon)= 21 cm. Uit de tekening kan ik dit niet opmaken. Alvast bedankt voor de moeite. Elly
18.10.2009 - 18:55
Irene T. skrifaði:
Strikker på den nå, ser ut til å bli meget bra
28.09.2009 - 21:42
Tony Norén skrifaði:
Underbar tröja!!!! vackert mönster och härlig längd!! Den kommer jag att sticka så fort mönstret är ute!
17.08.2009 - 17:39
DROPS Design skrifaði:
Nei, bare 2 farger: mørk grå og natur.
17.08.2009 - 16:12
Katla skrifaði:
Hei! Flott genser. Er det ikke tre farger i den på bildet? Syns jeg ser en lysegrå farge i mønsteret også!
17.08.2009 - 14:19
Elisabeth skrifaði:
Meget flot model
02.07.2009 - 20:44
Ann-Sofie skrifaði:
Denna måste jag bara sticka!!! Skynda med mönstre så jag får den klar innan vintern!
02.07.2009 - 08:41
Midnight Rose |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa með berustykki og 2 þráðum úr DROPS Alpaca. Stærð S - XXXL
DROPS 116-12 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað með sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna með tvöföldum þræði. PEYSA: Fitjið upp 204-222-240-264-288-312 l á hringprjóna nr 4 með 2 þráðum í litnum dökk grár. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú stroff 3 l sl, 3 l br. Þegar stykkið mælist 8 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 36-42-36-48-48-60 l jafnt yfir = 168-180-204-216-240-252 l. Prjónið M.1. Þegar M.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er prjónuð 1 umf með litnum dökk grár og fækkað um 4-0-8-4-10-0 l jafnt yfir = 164-180-196-212-230-252 l. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf og eitt prjónamerki eftir 82-90-98-106-115-126 l (= miðja á hlið). Prjónið nú hringinn í sléttprjóni og litnum dökk grár. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 13 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerki (= 4 l færri), endurtakið með 2½ cm millibili alls 11 sinnum = 120-136-152-168-186-208 l. Þegar stykkið mælist 44 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin, endurtakið með 4-4-4-5-5-5 cm millibili alls 3 sinnum = 132-148-164-180-198-220 l. Haldið síðan áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 55-56-57-58-59-60 cm. Fellið af 8 l á hvorri hlið (= 4 l hvoru megin við hvort prjónamerki) = 116-132-148-164-182-204 l. Geymið stykkið. ERMI: Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 48-54-54-54-60-60 l á sokkaprjóna nr 4 með 2 þráðum í litnum dökk grár. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú stroff 3 l sl, 3 l br. Þegar stykkið mælist 8 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 5. Prjónið 1 umf slétt og fækkið um 0-6-6-6-12-12 l jafnt yfir = 48-48-48-48-48-48 l. Prjónið M.1. Þegar M.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er fækkað um 8-6-6-4-3-2 l jafnt yfir 40-42-42-44-45-46 l. Setjið prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið með 3½-3-2½-2-2-2 cm millibili alls 9-10-12-13-14-14 sinnum = 58-62-66-70-73-74 l. Haldið áfram þar til ermin mælist 43-43-42-42-41-41 cm (ATH! Styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið nú af 4 l hvoru megin við prjónamerki = 50-54-58-62-65-66 m. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 216-240-264-288-312-336 l. Prjónið 3-4-5-5-6-6 umf með litnum dökk grár, prjónið síðan M.1. Þegar M.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 4-4-4-5-5-6 umf með litnum dökk grár, JAFNFRAMT í síðustu umf er fækkað um 41-40-39-63-62-86 l jafnt yfir = 175-200-225-225-250-250 l. Prjónið og fækkið eftir M.2. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 161-184-207-207-230-230 l. Prjónið 4-4-4-5-5-6 umf með litnum dökk grár, JAFNFRAMT í síðustu umf er fækkað um 29-28-39-39-50-50 l jafnt yfir = 132-156-168-168-180-180 l. Prjónið M.1. Þegar M.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 3-4-4-5-5-6 umf með litnum dökk grár, JAFNFRAMT í síðustu umf er fækkað um 56-76-84-80-88-84 l jafnt yfir = 76-80-84-88-92-96 l. HÁLSMÁL: Prjónið nú upphækkun fram og til baka aftan við hálsmál í litnum dökk grár. Prjónið að miðju að framan, setjið prjónamerki. Prjónið 47-50-52-55-57-60 l sl frá miðju að framan, snúið við og prjónið 18-20-20-22-22-24 l br til baka. Snúið við, prjónið 27-30-30-33-33-36 l sl, snúið við og prjónið 36-40-40-44-44-48 l br til baka. Snúið við, prjónið 45-50-50-55-55-60 l sl, snúið við og prjónið 54-60-60-66-66-72 l br til baka. Snúið við, prjónið slétt til baka yfir allar l að prjónamerki. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið nú hringinn. Prjónið 1 umf slétt og aukið út um 26-22-24-20-22-18 l jafnt yfir = 102-102-108-108-114-114 l. Prjónið stroff 3 l sl, 3 l br yfir allar l. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar hálsmálið mælist 14-14-15-15-16-16 cm, mælt við miðju að framan. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 116-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.