DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Glitter
DROPS Glitter
60% Cupro, 40% Málmþræðir
frá 572.00 kr /10g
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9988.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Fantasy

Prjónuð peysa með mynstri og hringlaga berustykki úr DROPS Alpaca og DROPS Glitter. Stærð S til XXXL. Prjónaðir háir sokkar úr DROPS Fabel með sama mynstri. Stærð 35-43.

DROPS 116-1
DROPS Design: Mynstur nr Z-449
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Við höfum prjónað sýnishornið með svörtu Glitter saman með svörtu Alpaca. Það sést því miður ekki nógu vel á myndinni en kemur vel úr á flíkinni.

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
300-350-400-400-450-500 gr litur nr 8903, svartur.
50-50-50-50-100-100 gr litur nr 0100, natur
Og einnig:
DROPS GLITTER frá Garnstudio
2 rúllur í allar stærðir litur nr 09, svartur.

SOKKAR:
Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: 22 - 24 - 27 cm
Hæð á sokk: 42 - 44 - 46 cm

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
150-150-150 gr litur nr 400, svartur
50-50-50 gr litur nr 100, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) nr 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm. stroff.
DROPS SKELJATALA nr 525: 10 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Glitter
DROPS Glitter
60% Cupro, 40% Málmþræðir
frá 572.00 kr /10g
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9988.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2– Mynsturteikningin sýnir mynstur frá réttu og sýnir 1 mynstureiningu af mynstri. Sokkarnir eru ekki prjónaðir með Glitter.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 l sl saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Prjónið 2 l snúnar sl saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan).

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 8-9-9 l eru eftir, 2 l snúnar sl saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan), snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 8-9-9 l eru eftir, 2 l br saman, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 7-8-8 l eru eftir, 2 l snúnar sl saman, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 7-8-8 l eru eftir, 2 l br saman, snúið við.
Haldið svona áfram með úrtöku með því að prjóna þar til eftir er 1 l færri í hvert skipti, áður en prjónaðar eru 2 l saman, þar til 14-14-16 l eru eftir á prjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 314-354-394-434-474-514 l á hringprjóna nr 2,5 með 1 þræði í litnum svartur Alpaca + 1 þræði Glitter. Prjónið stroff (umf 1 = rétta): Prjónið 1 kantlykkju með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl / 3 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, þær eru prjónaðar þannig: Prjónið 2 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 2 cm. Fækkið nú öllum 3 l br að 2 l br (séð frá réttu) = 252-284-316-348-380-412 l. Haldið áfram með stroff = 2 l sl / 2 l br með 1 kantlykkju í garðaprjóni á hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 12 cm er fækkað öllum 2 l br að 1 l br (séð frá réttu) = 190-214-238-262-286-310 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm er næsta umf prjónuð þannig frá réttu: Prjónið 41-47-54-59-65-71 l (= framstykki), fellið af 12 l fyrir handveg, 84-96-106-120-132-144 l (= bakstykki), fellið af 12 l fyrir handveg, 41-47-54-59-65-71 l (= framstykki) = 166-190-214-238-262-286 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 80-80-80-88-88-88 l á sokkaprjóna nr 2,5 með 1 þræði í litnum svartur Alpaca + 1 1 þræði Glitter. Prjóni stroff = 2 l sl / 2 l br. Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað öllum 2 l br að 1 l br = 60-60-60-66-66-66 l. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf. Skiptið yfir á sokkaprjón nr 3 og haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 11-11-11-14-14-14 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki við miðju undir ermi, endurtakið útaukningu með 4½-3½-2½-2½-2-2 cm millibili alls 8-11-14-13-15-17 sinnum = 76-82-88-92-96-100 l. Þegar stykkið mælist 48 cm er fellt af 12 l við miðju undir ermi = 64-70-76-80-84-88 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón nr 3 eins og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 294-330-366-398-430-462 l. Prjónið 3-5-9-13-15-17 umf sléttprjón með litnum svartur Alpaca + Glitter – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 5-8-11-10-9-8 l jafnt yfir = 289-322-355-388-421-454 l. Nú er prjónað og lykkjum fækkað eftir M.1 (umf 1 = rétta) með 1 kantlykkju í hvorri hlið, næst síðasta l í umf er prjónuð eins og fyrsta M.1 en ekki fella af í þessari l. Eftir úrtöku eru 107-119-131-143-155-167 l á prjóni og stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm upp að öxl. Prjónið 1 umf í litnum natur ( frá röngu) og fækkið um 15-19-23-27-31-35 l jafnt yfir = 92-100-108-116-124-132 l. Prjónið nú upphækkun að aftan í litnum natur þannig: Prjónið 56-60-64-68-72-76 l, snúið við, prjónið 20 l, snúið við, prjónið 30 l, snúið við, prjónið 40 l, haldið svona áfram að prjóna 10 l fleiri í hvert skipti áður en snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 60-80-80-100-120 l, snúið við og prjónið úr umf, prjónið 1 umf til baka yfir allar l, setjið l á þráð.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp um 180 til 212 l (deilanlegt með 4) innan við 1 kantlykkju meðfram vinstra framstykki með 1 þræði í litnum svartur Alpaca + 1 þræði Glitter á hringprjóna nr 2,5. Prjónið stroff (umf 1 = ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 l br /2 l sl *, endurtakið frá *-* og endið með 2 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br þar til stroffið mælist 3 cm, fellið laust af.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið á sama hátt og vinstri kantur að framan en eftir 1 cm er fellt af fyrir 9 hnappagötum jafnt yfir (hnappagötin eru felld af í brugðnum einingunum séð frá réttu). 1 HNAPPAGAT = prjónið saman 2 l br og sláið 1 sinni uppá prjóninn – neðsta hnappagatið á að vera í annarri brugðnu einingunni frá neðri kanti og efsta ca 6 cm frá efri kanti (það á líka að fella af fyrir 1 hnappagati í hálsmáli).

HÁLSMÁL:
Hálsmálið er prjónað með 1 þræð í litnum svartur Alpaca + 1 þræði Glitter á hringprjóna nr 2,5 þannig: Prjónið upp 8 l yfir hægri kant að framan (innan við 1 kantlykkju), prjónið inn þær 92-100-108-116-124-132 l af þræði í kringum hálsmál og prjónið upp 8 l yfir vinstri kant að framan = 108-116-124-132-140-148 l. Prjónið 1 umf br frá röngu jafnframt er aukið út um 20 l jafnt yfir = 128-136-144-152-160-168 l. Prjónið nú stroff (frá réttu) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, *2 l sl /2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br. Þegar hálsmálið mælist 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati fyrir ofan hin sem eru í kanti að framan. Þegar hálsmálið mælist 3 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í. Saumið saman op undir ermum.

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 108-108-116 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum natur.
Prjónið stroff = 2 l sl / 2 l br í 8 cm.
Prjónið nú 1 umf sléttprjón – JAFNFRAMT sem fækkað er um 20 l jafnt yfir = 88-88-96 l. Haldið áfram með M.2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar M.2 hefur verið prjónað mælist stykkið ca 21 cm. Setjið eitt prjónamerki í stykkið í byrjun umf. Haldið áfram í sléttprjóni og litinn svartur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – SJÁ ÚRTAKA, endurtakið úrtöku í 4.- 5.- 5. hverri umf alls 16-14-16 sinnum = 56-60-64 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 42-44-46 cm, haldið eftir fyrstu 28-30-32 l á prjóni fyrir hæl og síðustu 28-30-32 l eru settar á þráð (= ofan á fæti).
Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Þegar hælúrtöku er lokið eru prjónaðar upp 13-14-16 l hvoru megin við hæl og 28-30-32 l af þræði eru settar aftur á prjóninn = 68-72-80 l. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 28-30-32 l ofan á fæti. Prjónið nú sléttprjón hringinn JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið síðustu 2 l Á UNDAN fyrra prjónamerki snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) og prjónið saman 2 fyrstu l Á EFTIR seinna prjónamerki á fæti slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 8-8-10 sinnum = 52-56-60 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-19-22 cm frá prjónamerki á hæl (= ca 4-5-5 cm að loka máli). Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið svo að það verða 26-28-30 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig: Á UNDAN prjónamerki: Prjónið 2 l slétt saman. Á EFTIR prjónamerki: Prjónið 2 l snúnar slétt saman (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 4-5-5 sinnum og síðan í hverri umf alls 7-7-8 sinnum = 8 l eftir á prjóni.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 10.09.2009
SOKKUR:..= 88-88-96 l. Haldið áfram með M.2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar M.2 hefur verið prjónað mælist stykkið ca 21 cm.

Mynstur

symbols = sléttprjón natur
symbols = sléttprjón svartur
symbols = 2 lykkjur slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Winter Fantasy

Maria, Switzerland

Winter Fantasy

Debydor, Hungary

Winter Fantasy

lasdcm, United States

Winter Fantasy

Aistė, Lithuania

Snow in the Woods

kniterian, United States

In Beige and Pink

Aga, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 116-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (128)

country flag Theresa Fedoriw wrote:

When knitting the L Winter Fantasy cardigan M.1, I understand that the chart pattern repeats 33 times with 3 stitches remaining in the first row. Garter stitch at beginning and end of the 1st row use 2 of the remaining stitches. Is the 3rd stitch to be knit at either end before the garter stitch?

06.04.2024 - 23:56

DROPS Design answered:

Dear Theresa, when starting M.1, for size M, you should have 322 stitches. Start and end the row with 1-1 garter stitch = 320 stitches. One pattern repeat is 11 stitch, you should knit 29 repeat = 319 stitch, and the last stitch (before the garter stitch edge stitch) should be knitted as the first stitch of teh M.1 pattern (without decreases). Happy Knitting!

07.04.2024 - 01:27

country flag Anna Marie Fedel wrote:

In this pattern there are different versions. I can't seem to find the one with the turtle neck top. Every time I click on the link to the turtleneck version , they bring me to the same pattern with the buttons. Can you help me with a link to the turtleneck pattern. Thanks Anna

25.10.2023 - 18:00

DROPS Design answered:

Dear Mrs Fedel, we only provide the pattern for the jacket, and we are unfortunately unable to adjust every pattern to every single request; the version with turtleneck is a project from one of our customer - read more on her project there or contact your yarn store / any knitting forum for further individual assistance. Thanks for your comprehension. Happy knitting!

26.10.2023 - 06:42

country flag Catherine Speedie wrote:

Hello all, In the Ravelry page for this pattern, are images of the pattern done as a sweater rather than as a cardigan, and this is what I would like to make. I see that Lucia from ITaly has also asked this question - how did those images arise if you don't offer the sweater version? Did the people who made up the pattern do the necessary conversion themselves? Could you not offer it easily enough:)? It's so pretty, but I'd far rather do it as a sweater than as a cardigan...thank you!

15.05.2023 - 19:22

DROPS Design answered:

Dear Catherine, we don't have a sweater pattern and we don't make custom patterns. Those who wanted it as a sweater may have done the modifications themselves. You can modify the pattern by removing one edge and working everything in the round in a single piece, starting the pattern in the middle of the back so that the pattern will be well centered. Happy knitting!

21.05.2023 - 18:31

country flag Fiona wrote:

Hi, I am knitting the jacket size L, and have reached the yoke part, where I start M1. The chart has 11 stitches, but I have 355 stitches. This means there are 3 stitches overlapping chart. Since the first row to introduce colour in WS, I am very confused. Do I k1. Then purl 3 in mc, and then 1 in cc? If do, I have 9 mc stitches at the end of the row, and that isn’t symmetrical. Help!;)

01.03.2023 - 21:47

DROPS Design answered:

Dear Fiona, work the diagram M.1 as follows: 1 edge stitch in garter stitch, repeat the 11 sts in M.1 a total of 32 times (over the next 352 sts), work the first stitch in M.1 and finish with 1 edge stitch in garter stitch. When working the first row with colours you will work: 1 edge st with mc, P1 with mc (first st M.1), then (p4 with mc, p1 with cc, p6 with mc) and repeat from (-) all the row ending with 1 st in garter stitch. Happy knititng!

02.03.2023 - 10:53

country flag Gudrun Engman wrote:

Var hittar jag garnet Glitter 09 svart till den här tröjan

01.03.2023 - 16:13

DROPS Design answered:

Hej Gudrun, vi har guld och silver :)

02.03.2023 - 09:25

country flag Lucia wrote:

Buonasera, vorrei fare questa maglia ma senza l'apertura davanti, come devo fare? Esiste un modello chiuso? Grazie

28.12.2022 - 23:44

DROPS Design answered:

Buonasera Lucia, di questo modello non è presente al momento la versione chiusa, ma ci sono tanti altri modelli con sproni lavorati tra cui scegliere. Buon lavoro!

29.12.2022 - 19:03

country flag Mia wrote:

Hi. For the body piece, you wrote "3 sts remain, K2, 1 edge st in GARTER ST". Is the edge stitch here just a knit stitch? Then why didn't you write "K3"?

27.12.2022 - 16:35

DROPS Design answered:

Hi Mia, We write garter stitch because the edge stitches are knitted both from the right and wrong sides (definition of garter stitch) whereas the knitted stitches in the rib are purled from the wrong side. Happy festive season!

28.12.2022 - 11:58

country flag Lida wrote:

Hello, I am from Canada, I would like to ask where can I find the price please? And do you have shipment to Canada? If yes how much would it be? Best wishes Lida

19.12.2022 - 18:53

DROPS Design answered:

Hi Lida, If you search online, you will find stores which supply Drops yarns in Canada. They will give you the price and how much shipment costs if you do not have a store near you. Happy crafting!

20.12.2022 - 06:49

country flag Marina wrote:

Hallo, ik heb 3 maal dit patroon gechecked maar vind nergens de stekenverhouding (swatch of gauge). Kan iemand mij de stekenverhouding zeggen aub? Alvast bedankt!

06.12.2022 - 08:31

DROPS Design answered:

Dag Marina,

Onderaan de materialenlijst staat de stekenverhouding: DROPS BREINLD ZONDER KNOP 2.5 mm – of de maat die u nodig heeft voor een stekenverhouding van 26 st x 34 nld in tricotst = 10 x 10 cm.

07.12.2022 - 20:33

country flag Carole wrote:

Bonjour, Je ne sais pas quelles aiguilles choisir. Mon échantillon mesure 9x9cm avec des n3 et 10,5x10,5cm en n3,5. Je préfère le résultat obtenu avec les n3 et j’ai lu dans les commentaires que le modèle taillait petit. Faut-il que je conserve mes aiguilles n3 , mais que je tricote une taille au-dessus ? Belle journée à vous

01.12.2022 - 07:44

DROPS Design answered:

Bonjour Carole, pour trouver votre taille dans un premier temps, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la taille, puis comparez ces mesures à celles du schéma, vous trouverez ainsi la taille à suivre (voir aussi ici) - essayez de laver/laisser sécher votre échantillon pour vérifier si vous avez une différence avant/après; si vous n'avez pas la bonne tension, vous devrez recalculer entièrement le modèle en largeur mais aussi en hauteur peut-être - cette leçon pourra vous aider. Bon tricot!

01.12.2022 - 11:33