Hulda Pálsd skrifaði:
Þennan ætla ég að prjóna handa MÉR... svartan
01.03.2009 - 23:33Juliana skrifaði:
Eu amei esse vestido. Ainda mais que a receitas estãoem português. As tricoteiras de TODO o Brasil agradecem.
26.02.2009 - 03:32
Anja skrifaði:
Kan denne fine kjole fås i pigestørrelse, ca. 6-8 år?
23.02.2009 - 12:43
Monica Johansson skrifaði:
Har stickat denna klänning med svart färg som bas. Är så super nöjd. Och fått mycket beröm av vänner och arbets kompisar som tycker den är så snygg. Rekommenderar den mycket. Tog bara 1½ vecka att göra kunde inte sluta när jag börjat.
11.02.2009 - 16:36
Marie skrifaði:
Veldig søt kjole, men kan vi få den i XS?
10.02.2009 - 19:40
Suse skrifaði:
Toll!!!!! Extravagant und ein echter Hingucker!
03.02.2009 - 12:39
Pia skrifaði:
Nu är jag igång med tunikan! Gör den i vitt, brunt,beige och turkost! Halva klar =O) =O) =O)
01.02.2009 - 19:13
Heléne skrifaði:
Vad glad jag blev när jag såg att mitt absoluta favoritmönstret har blivit publicerat! Nu hinner jag nog få den färdig till våren :)
27.01.2009 - 20:24
Petra skrifaði:
....das ist ja toll, hoffentlich kommt das MUster ganz bald
27.01.2009 - 12:21
Irenesol skrifaði:
Har mailet garnstudio, og oppskriften kommer. Gleder meg og vil ha den NÅ! :)
26.01.2009 - 13:32
Crazy in Love#crazyinlovedress |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður kjóll úr DROPS Muskat með hekluðum ferningum. Stærð S-XXXL.
DROPS 113-1 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐARAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á UNDAN prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á EFTIR prjónamerki þannig: Takið 1 l eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Aukið er út með því að prjóna 2 l í 1 l. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp. Ferningarnir eru síðan heklaðir og saumaðir neðan á kjólinn og uppi við hálsmál. KJÓLL: Fitjið upp 216-216-252-252-288-288 l á hringprjóna nr 4,5 með litnum beige. Prjónið 1 umf br, 1 umf sl og 1 umf br. Skiptið yfir í litinn bleikur: Prjónið 1 umf sl og 1 umf br. Skiptið yfir í litinn rauður: Prjónið 1 umf sl og næstu umf eru prjónaðar þannig: * Prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* út umf. Skiptið yfir í litinn bleikur: Prjónið 1 umf sl og 1 umf br. Skiptið yfir í litinn beige: Prjónið 1 umf sl og 1 umf br, 5 cm sléttprjón og 1 umf br. Skiptið yfir í litinn rauður: Prjónið 1 umf sl og 1 umf br. Skiptið yfir í litinn gulur: Prjónið 1 umf sl og næstu umf eru prjónaðar þannig: * Prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* út umf. Skitið yfir í litinn rauður: Prjónið 1 umf sl og 1 umf br. Skiptið yfir í litinn beige: Prjónið 1 umf sl og 1 umf br. Prjónið nú 1 ums slétt – JAFNFRAMT er fækkað um 16-4-20-4-20-0 l jafnt yfir = 200-212-232-248-268-288 l. Haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18 cm eru sett 6 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 32-34-38-40-43-46 l, setjið PRJÓNAMERKI 1, prjónið 36-38-40-44-48-52 l setjið PRJÓNAMERKI 2, prjónið 32-34-38-40-43-46 l, setjið PRJÓNAMERKI 3 (= hlið), prjónið 32-34-38-40-43-46 l, setjið PRJÓNAMERKI 4, prjónið 36-38-40-44-48-52 l, setjið PRJÓNAMERKI 5, prjónið 32-34-38-40-43-46 l og setjið PRJÓANMERKI 6 (= hlið). Í næstu umf er fellt af 1 l hvoru megin við prjónamerki 3 og 6 (þ.e.a.a. þau sem eru í hliðum) – sjá ÚRTAKA. Endurtakið þessa úrtöku í 6. hverri umf alls 9 sinnum. JAFNFRAMT byrjar 5.-5.-5.-6.-6.-6. úrtaka og úrtaka við hinum 4 prjónamerkjum þannig: Fellið af á EFTIR prjónamerki 1 og 4 og á UNDAN prjónamerki 2 og 5 – sjá ÚRTAKA. Endurtakið þessar úrtökur í 6. hverri umf (þ.e.a.s. í sömu umf og fellt er af í hliðum) alls 5-5-5-4-4-4 sinnum. Eftir að úrtöku er lokið eru 144-156-176-196-216-236 l á prjóni. Takið frá prjónamerki 1, 2, 4 og 5. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið áfram í sléttprjón – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hliðum – sjá ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í 3. hverri umf alls 6 sinnum = 168-180-200-220-240-260 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm er prjónuð 1 umf br, 1 umf sl og 1 umf br. Skiptið yfir í litinn bleikur: Prjónið 1 umf sl og 1 umf br. Skiptið yfir í litinn rauður: Prjónið 1 umf sl og næstu umf þannig: * Prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* út umf. Skiptið yfir í litinn bleikur: Prjónið 1 umf sl og 1 umf br. Skiptið yfir í litinn beige: Prjónið 1 umf sl og 1 umf br. Í næstu umf er fellt af 36 miðju l að framan fyrir ferningum = 132-144-164-184-204-224 l. Prjónið nú fram og til baka. Haldið áfram í sléttprjóni og 3 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið við miðju að framan. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 60-61-62-63-64-65 cm eru prjónaðar 4 umf garðaprjón yfir 10-10-12-14-16-18 l í hvorri hlið (þ.e.a.s. 5-5-6-7-8-9 l hvoru megin við bæði prjónamerkin). Þær l sem eftir eru, eru prjónaðar eins og áður. Fellið nú af miðju 4-4-6-8-10-12 við þessar l fyrir handveg í hvorri hlið. Hvert stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 22-25-29-33-37-41 l. Haldið áfram að prjóna sléttprjón með 3 l garðaprjón í hvorri hlið. JAFNFRAMT 3 cm eftir skiptinguna fyrir handveg er aukið út fyrir öxl – aukið út 1 l innan við 3 l garðaprjón – sjá ÚTAUKNING. Útauknu l eru prjónaðar með sléttprjóni. Endurtakið útaukningu í 4.-4.-6.-6.-6.-6. hverri umf alls 6-5-3-3-3-3 = 28-30-32-36-40-44 l. Þegar stykkið mælist 75-77-79-81-83-85 cm er fellt af fyrir skáhallandi öxl þannig: Fellið af í byrjun hverrar umf sem prjónuð er frá öxl: Fellið af 7-7-8-9-10-11 l 3 sinnum, síðan þær 7-9-8-9-10-11 l sem eftir eru. Stykkið mælist nú ca 78-80-82-84-86-88 cm þar sem það er lengst. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 22-25-29-33-37-41 l. Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt. BAKSTYKKI: = 80-86-94-102-110-118 l. Aukið út fyrir öxl í hvorri hlið eins og á framstykki = 96-96-100-108-116-124 l. Þegar stykkið mælist 73-75-77-79-81-83 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir 42 l við miðju að aftan (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Fellið nú af miðju 36 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig með 3 l garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 75-77-79-81-83-85 cm er fellt af fyrir skáhallandi öxl á sama hátt og á framstykki. Eftir alla úrtöku mælist stykkið ca 78-80-82-84-86-88 cm þar sem það er lengst. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- FERNINGAR: HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta st í umf er skipt út fyrir 3 ll og hver umf endar á 1 kl í fyrstu l. LITARÖÐ Á FERNINGUM: Ferningarnir eru heklaðir í tveimur mismunandi litasamsetningum: FERNINGUR A: Uppfitjun + umf 1 og 2 = rauður. Umferð 3 = gulur. Umferð 4, 5 og 6 = bleikur. FERNINGUR B: Uppfitjun + umf 1 og 2 = gulur. Umferð 3 = bleikur. Umferð 4, 5 og 6 = rauður. KÚLA: Heklið 3 st sem eru heklaðir saman, þ.e.a.s. bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin á hverjum st þar til 3 st hafa verið heklaðir, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 4 lykkjurnar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- FERNINGUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. FERNINGUR: Heklið 4 ll með heklunál nr 4 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 6 fl í hringinn – sjá HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl. UMFERÐ 3: Heklið 2 st í hverja fl = 24 sl. UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í st, 3 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* = 12 ll-bogar. UMFERÐ 5: Í fyrsta ll-bogann er heklað frá [-]: * [ Heklið 1 KÚLA – sjá útskýringu að ofan, 2 ll, 1 kúla, 4 ll (= horn), 1 kúla, 2 ll, 1 kúla], 3 ll, hoppið yfir næsta ll-boga, 1 hálfur stuðull í fl, 3 ll, hoppið yfir næsta ll-boga *. Endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en í síðasta skiptið er endað eftir 3 ll með 1 kl efst á fyrstu kúlunni. UMFERÐ 6: * Heklið 2 fl í fyrsta 2-ll-boga, 6 fl í næsta 4-ll-boga (= horn), 2 fl í næsta 2- ll-boga, 3 fl í næsta 3-ll-boga, 3 fl í næsta l-ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Ferningurinn mælist ca 9 x 9 cm. Heklið 8-8-9-9-10-10 ferninga með hvorri litasamsetningunni = alls 16-16-18-18-20-20 ferningar. Saumið saman 12-12-14-14-16-16 ferninga saman í eina langa lengju með annan hvern ferning með hvorri litasamsetningu. Saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið saman lengjuna í einn hring. Saumið lengjuna neðst á kjólinn kant í kant með smáu spori. Síðustu fjóra ferningana á að staðsetja framan á kjólnum við hálsmál. Saumið þá saman í einn stórann ferning þar sem sömu litasamsetningarnar liggi ekki við hliðina á hvor annarri en skiljið eftir op á milli 2 efstu ferninga (= klauf/op við háls). Saumið saman ferninga við hálsmál. Saumið kant í kant með smáu spori. KANTUR MEÐ PICOT: Heklið kant með picot í litnum beige með heklunál nr 4 neðst niðri á kjólnum þannig: * Heklið 1 fl, 3 ll, 1 fl í fyrstu ll (= 1 picot), hoppið yfir 1 fl *, endurtakið frá *-*, endið á 1 kl í fyrstu fl. Heklið kant með picot á sama hátt með litnum bleikur í kringum op á handvegi. Heklið kant með picot með litnum bleikur í kringum hálsmál þannig: Byrjið við miðju að framan í vinstri hlið við klauf (séð þegar stykkið liggur fyrir framan þig) með 1 fl, heklið síðan 25 cm lausar ll, snúið við og heklið 1 kl til baka í hverja ll (= snúra). Heklið kant með picot í kringum allt hálsmálið á sama hátt og neðan á kjól. Endið á að hekla snúru alveg eins og áður. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #crazyinlovedress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 113-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.