Marjan Van Nieuwkoop skrifaði:
Mt 12-18mnd. Ik begrijp niets van de mindering. Begin ik met mindering van 1st links van kabel en dan 8nld verder 1 st rechts van kabel minderen? En dan na 4 nld weer 1 links, 4nld 1 rechts enz?
23.05.2026 - 08:37DROPS Design svaraði:
Dag Marjan,
Ja dat klopt precies zoals je het zegt. Je meerdert de ene keer steeds links van de kabel en de andere keer steeds rechts van de kabel. Dus om en om. (Als je het steeds aan dezelfde kant zou doen dan zou de kabel scheef gaan lopen.
23.05.2026 - 20:31
Marjan Van Nieuwkoop skrifaði:
Ik brei mt 74/80. Bij de mindering voor de pas, minder ik in de nld waarin TEGELIJKERTIJD gemeld wordt, 1st links van de kabels en dan na 8 naalden 1st rechts van de kabels? Hetzelfde met de andere minderingen? 6nld 1st links, na 6nld 1 st rechts, 2x. Dus de pas bestaat dan uit 48 naalden? Help aub, ik kom er niet uit.
22.05.2026 - 20:41
Marjan Van Nieuwkoop skrifaði:
Ik brei mt 74/80. Bij de mindering voor de pas, minder ik in de nld waarin TEGELIJKERTIJD gemeld wordt, 1st links van de kabels en dan na 8 naalden 1st rechts van de kabels? Hetzelfde met de andere minderingen? 6nld 1st links, na 6nld 1 st rechts, 2x. Dus de pas bestaat dan uit 48 naalden? Help aub, ik kom er niet uit.
22.05.2026 - 20:41
Linda Timmons skrifaði:
I’m confused about when I do the first buttonhole and decrease. Are they done at 4 cm together with the cable or on the next row
28.03.2026 - 20:46DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Timmons, measure these 4 cm from the cast on edge. Happy knitting!
07.04.2026 - 10:17
Monika skrifaði:
Hallo, bei der Haube steht: "Jetzt von der linken Seite wie folgt stricken: ...." "Weiter von der rechten Seite wie folgt:..." Was bedeutet bitte von der linken bzw. von der rechten Seite? Danke.
27.11.2025 - 02:16DROPS Design svaraði:
Liebe Monika, hier bedeutet "rechte Seite" die Hin-Reihen und "linke Seite" die Rück-Reihen. Viel Spaß beim Stricken!
27.11.2025 - 09:52
Gisele Worley skrifaði:
I am wondering if this pattern could be done for a size 6 and size 9.
08.09.2025 - 04:22DROPS Design svaraði:
Hi Gisele, this pattern is designed for 5 sizes: 1/3 months - 6/9 months - 12/18 months, 2 years - 3/4 years. Choose the size that suits you best. Happy knitting!
20.09.2025 - 22:14
Lucy skrifaði:
DROPS Baby 17-1 #cableprincessjacket DROPS design: Modell Nr. ME-004-by - Jacke Ich bim am Sticken der Babyjacke. Meine Frage bei den Ärmeln: Nach den 2 Krausrippen, Markierungsfaden anbringen. Nach 4 cm glatt links (bis dahin alles klar), dann „beidseitig des Markierungsfadens je 1 M zunehmen“ - wie soll das gehen mit linken Maschen? Aus dem Querfaden kann ich wohl nicht 2 Maschen aufnehmen??? Gibt ein Loch und sieht nicht schön aus. Danke für Ihre Hilfe. LG
27.05.2025 - 20:49DROPS Design svaraði:
Dear Lucy, die Zunahmen Mitte unter die Ärmel können Sie stricken, wie Sie es am liebsten haben; hier finden Sie verschiedene Technik zum Zunehmen. Viel Spaß beim Stricken!
28.05.2025 - 08:35
Kasia skrifaði:
A czy robiąc jerseyem prawym wystarczy dodać z każdej strony warkocza 1 oczko lewe czy więcej
29.10.2024 - 12:41DROPS Design svaraði:
Witaj Kasiu, dodałabym więcej, np. 2. Możesz zrobić próbkę i zobaczyć jak Ci się będzie podobać. Pozdrawiamy!
29.10.2024 - 15:39
Kasia skrifaði:
Dzień dobry Czy można ten sweterek zrobić jerseyem prawym zamiast lewym?
29.10.2024 - 12:29DROPS Design svaraði:
Witaj Kasiu, oczywiście że można :) Miłej pracy!
29.10.2024 - 12:35
Gabriele Simon skrifaði:
Liebes Strickteam, ihre Anleitung ist grds. sehr verständlich. Wie wird jedoch die Abnahme in der Passe gearbeitet? In JEDER? 8. R., 6. R., und 4.R abn. ? - die Passe besteht aus ca. 31 R und was bedeutet in diesem Zusammenhang '2, 3 Mal' (Gr. 62/68) Über eine Antwort würde ich mich sehr freuen. Vielen Dank für Ihre Bemühungen. Mit freundlichen Grüßen G. Simon
09.03.2024 - 20:52DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Simon, nach der 1. Abnahmen wie beschrieben, nehmen Sie noch so ab: 2 Mal in jeder 6. Reihe dann -3 Mal in jeder 4. Reihe. Viel Spaß beim Stricken!
11.03.2024 - 08:17
Cable Princess#cableprincessjacket |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Sett með prjónaðri peysu og húfu fyrir börn með köðlum úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS Baby 17-1 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið aðra og þriðju l frá miðju slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 mán: 4, 8, 13, 17, 22 og 26 cm. STÆRÐ 6/9 mán: 4, 9, 14, 19, 24 og 29 cm. STÆRÐ 12/18 mán: 4, 10, 16, 22, 28 og 33 cm. STÆRÐ 2 ára: 5, 11, 18, 24, 31 og 37 cm. STÆRÐ 3/4 ára: 5, 12, 19, 26, 33 og 40 cm. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um peysu): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið l til skiptis vinstra og hægra megin við alla kaðla með því að prjóna 2 l br saman. Þ.e.a.s. í fyrsta skipti sem l er fækkað er það gert vinstra megin við alla kaðlana og í næsta skipti hægra megin við alla kaðlana o.s.frv. Einungis er lykkjum fækkað innan við ysta kaðal við kant að framan í hvorri hlið. PICOT: Heklið með heklunál nr 4: 1 fl í fyrstu l, * 4 ll, 1 st í fyrstu ll (= 1 picot), hoppið yfir 1 cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 128-144-158 (170-186) l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN (umf 1 = rétta) – sjá útskýringu að ofan! Næsta umf er prjónuð (frá réttu) þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 l br, prjónið 2 l sl í hvora af næstu 2 lykkjum (þ.e.a.s. 2 l eru auknar út til 4 l), prjónið br þar til 8 l eru eftir, prjónið 2 l sl í hvora af næstu 2 lykkjum, 1 l br og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 132-148-162 (174-190) l. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, þ.e.a.s. á eftir 36-40-44 (47-51) l inn frá hvorri hlið (= 60-68-74 (80-88) l á bakstykki á milli prjónamerkja). Næsta umf er prjónuð (frá röngu) þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 1 l sl, M.1, prjónið sl þar til 10 l eru eftir, M.1, 1 l sl og 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Næsta umf frá réttu: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 1 l br, M.1, prjónið br þar til 10 l eru eftir, M.1, 1 l br og 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram uppúr með kanti að framan í garðaprjóni, 1 l innan við kant að framan í sléttprjóni með rönguna út, síðan 1 kaðal (= M.1) í hvorri hlið og þær l sem eftir eru í sléttprjóni með rönguna út. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um eina l hvoru megin við hvert prjónamerki með því að prjóna 2 l br saman. Endurtakið úrtöku uppúr með 4 cm millibili alls 4-4-4 (5-5) sinnum = 116-132-146 (154-170) l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-4 (5-5) cm fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan – meðfram kanti að framan. Þegar stykkið mælist ca 19-21-24 (27-30) cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá röngu – fækkið um 6 l í hvorri hlið (þ.e.a.s. 3 l hvoru megin við prjónamerki) = 104-120-134 (142-158) l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 28-30-32 (34-38) l á sokkaprjóna nr 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Haldið áfram í sléttprjóni með rönguna út – setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um eina l hvoru megin við prjónamerkið. Endurtakið útaukningu í 6.-5.-6. (6.-8.) hverri umf alls 5-6-7 (8-8) sinnum = 38-42-46 (50-54) l. Þegar stykkið mælist 14-15-18 (22-26) cm fellið af 6 l mitt undir ermi = 32-36-40 (44-48) l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 168-192-214 (230-254) l. Prjónið 1 umf (frá réttu) með kant að framan og köðlum eins og áður og sléttprjón með rönguna út yfir þær l sem eftir eru – JAFNFRAMT er fækkað um 0-4-6 (2-6) l jafnt yfir (ekki fækka lykkjum yfir kant að framan og yfir kaðla) = 168-188-208 (228-248) l. Næsta umf er prjónuð (frá röngu) þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 l sl, M.1, * 8 l sl, prjónið 2 l br í hverja og eina af 2 næstu l (þ.e.a.s 2 l eru auknar í 4 l) *, endurtakið frá *-* þar til 8 l eru eftir, 8 l sl, M.1, 1 l sl og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 196-220-244 (268-292) l. Næsta umf er prjónuð (frá réttu) þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 l br, M.1, * 8 l br, M.1 (passið uppá að byrja í sömu umf í M.1 eins og áður þegar kantur að framan var prjónaður) *, endurtakið frá *-* 15-17-19 (21-23) sinnum, 1 l br og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur – JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar úrtaka fyrir berustykki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA í útskýringu að ofan! Haldið áfram með úrtöku í 8. hverri umf: 0-0-1 (2-3) sinnum til viðbótar, í 6. hverri umf: alls 1-2-2 (1-1) sinnum og síðan í 4. hverri umf: alls 4-3-2 (2-1) sinnum (nú eru 2 lykkjur br á milli kaðla). JAFNFRAMT þegar berustykkið mælist 8-9-10 (11-12) cm eru sett 8 l í byrjun umf á þráð fyrir hálsmáli. Í byrjun næstu umf eru sett 8 l á þráð í hinni hliðinni fyrir hálsmáli. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á hverri umferð, í hvorri hlið: 1 lykkja 2 sinnum. Þegar berustykkið mælist 10-11-12 (13-14) cm fækkið allar 2 l br á milli kaðla yfir í 1 l br og þær 4 l sl á hverjum kaðli eru prjónaðar saman 2 og 2. Nú eru ca 43-49-55 (61-67) l eftir á prjóni. KRAGI: Takið upp 10 l í kanti að framan í báðum hliðum – meðtaldar l af þráðum. Prjónið 1 umf slétt á röngunni jafnframt er l fækkað jafnt yfir til 50-54-58 (62-66) l. Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til kraginn mælist 3-3-4 (4-5) cm. Fækkið síðan um 1 l í byrjun á hverri umf 4 sinnum í hvorri hlið, fellið síðan af þær l sem eftir eru. Kraginn mælist ca 5-5-6 (6-7) cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Heklið PICOT – sjá útskýringu að ofan - í kringum kraga, ermar og neðst í kringum fram- og bakstykki. Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna! HÚFA: Fitjið laust upp 64-70-76 (82-88) l á hringprjóna nr 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Prjónið frá réttu þannig: 1 l sl, * prjónið 2 l sl í hvora af næstu 2 lykkjum, 4 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, prjónið 2 l sl í hvvora af næstu 2 lykkjum, 1 l sl = 86-94-102 (110-118) l. Prjónið frá röngu þannig: 1 l sl, * M.1, 4 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 5 l eru eftir, þær eru prjónaðar í M.1 og 1 l sl. Prjónið frá réttu þannig: 1 l sl, * M.1, 4 l br *, endurtakið frá *-* þar til 5 l eru eftir, þær eru prjónaðar í M.1 og 1 l sl. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist ca 10-11-12 (13-14) cm – passið að næsta umf sé prjónuð frá réttu – prjónið saman 4 l sl yfir hvern kaðal tvær og tvær l saman = 64-70-76 (82-88) l. Í næstu umf frá röngu eru felldar af fyrstu 23-25-27 (29-31) l, prjónið út umf. Í næstu umf frá réttu eru felldar af fyrstu 23-25-27 (29-31) l í hinni hliðinni = 18-20-22 (24-26) l eftir á prjóni. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar l í 11-12-13 (14-15) cm og fellið síðan af. FRÁGANGUR: Saumið saman miðjustykki við hliðarstykki – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Takið upp ca 60 til 84 l (deilanlegt með 4) neðst í kringum húfuna á hringprjóna nr 4. Prjónið eina umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: 2 l sl, * 2 l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir. Prjónið þær slétt. Prjónið síðan 2 umf slétt áður en fellt er af. Heklið með heklunál nr 4 eina snúru með ll ca 70 cm og þræðið inn í kant með gataumferð. Heklið PICOT – sjá útskýringu að ofan – í kringum kant framan á húfunni. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cableprincessjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 17-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.