Halie skrifaði:
I really want the pattern
09.11.2026 - 02:59
Naegelen Audrey skrifaði:
Bonjour, quand je tricote le dos et le devant j’ai d’un bout à l’autre 23cm en taille XS. Si je suis la chronologie du patron je dois raccorder le dos et le devant, mais ça n’est clairement pas assez grand. Ou alors pour une poupée.
23.10.2026 - 13:29DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Naegelen, si votre échantillon est bien conforme, vous aurez bien les bonnes mesures finales indiquées dans le schéma, rassurez-vous. Dans ce type de modèle, on tricote une petite partie du dos, une petite partie du devant puis on relève les mailles des manches et on continue l'empiècement jusqu'à la division - regardez sous l'onglet Vidéos en haut de page, vous découvrirez les différentes étapes de construction d'un pull avec empiècement européen. Bon tricot!
23.10.2026 - 16:16
Winter Unicorn Sweater#winterunicornsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópsku berustykki. Stærð XS - XXXL.
DROPS 273-33 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 – skipting yfir í stroff: Þegar lykkjum er aukið út jafnt yfir út í skiptinguna yfir í stroff er mikilvægt að auka út þar sem lykkjurnar verða síðar prjónaðar brugðið, sléttprjónið heldur þá fallega áfram inn í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 3 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1. BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2. FRAMSTYKKI: Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni, síðan eru nýjar lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmál við miðju að framan = axlirnar eru settar saman í eitt stykki (= framstykki). Framstykkið er prjónað fram og til baka að tilgreindu máli. 3. BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Prjónið lykkjur frá bakstykki, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hinni hliðinni á framstykki = síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur. 4. ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst eru lykkjur einungis auknar út fyrir ermar og síðan eru lykkjur auknar út bæði á fram- og bakstykki og ermum. 5. FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. ------------------------------------------------------- BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 18-19-20-21-22-23-24 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Snow. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 6 sinnum í öllum stærðum (= 12 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 42-43-44-45-46-47-48 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. VINSTRI ÖXL: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 12 lykkjur), endið með að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxl (= kantlykkja) = 13 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 6-7-8-9-8-9-9 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-3-3-4-4-4 sinnum (= 6-6-6-6-8-8-8 umferðir prjónaðar) = 16-16-16-16-17-17-17 lykkjur. Útaukningu fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 10-11-12-13-13½-14½-14½ cm frá merki. Ca 3 cm að dýpt af hálsmáli kemur til með að teygja sig yfir á bakstykkið. Klippið þráðinn. Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægri öxl prjónuð meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL: Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Byrjið með að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxl (= kantlykkja), prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 12 lykkjur) = 13 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 6-7-8-9-8-9-9 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur. EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-3-3-4-4-4 sinnum (= 6-6-6-6-8-8-8 umferðir prjónaðar) = 16-16-16-16-17-17-17 lykkjur. FRAMSTYKKI: Í næstu umferð (= rétta) eru axlirnar settar saman fyrir framstykki þannig: Prjónið slétt yfir 16-16-16-16-17-17-17 lykkjur frá hægri öxl, fitjið upp 10-11-12-13-12-13-14 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið slétt yfir 16-16-16-16-17-17-17 lykkjur frá vinstri öxl = 42-43-44-45-46-47-48 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir framstykki þar til stykkið mælist 15 cm frá merki – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Síðan er framstykkið og bakstykkið sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar, prjónið eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrstu lykkju frá framstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), setjið 1 merki í umferð (= byrjun umferðar), prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á framstykki, setjið 1 merki í umferð, prjónið síðustu lykkjuna frá framstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), prjónið upp 16 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), prjónið fyrstu lykkju frá bakstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), setjið 1 merki í umferð, prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á bakstykki, setjið 1 merki í umferð, prjónið síðustu lykkjuna frá bakstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), prjónið upp 16 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju) = 116-118-120-122-124-126-128 lykkjur. Prjónið fyrstu lykkjuna slétt, þannig að umferðin byrjar við merki í skiptingunni á milli framstykkis og ermi. Það eru 18 lykkjur á hvorri ermi og 40-41-42-43-44-45-46 lykkjur á framstykki/bakstykki. BERUSTYKKI: Síðan er stykkið prjónað í hring, prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út 1 lykkju í hvorri hlið á hvorri ermi – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 – aukið út 1 lykkju til vinstri í byrjun á ermi, aukið út 1 lykkju til hægri í lok á ermi, lykkjufjöldinn á hvorri ermi eykst, lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki verður óbreyttur. UMFERÐ 2: Prjónið slétt yfir allar lykkjur án útaukninga. Á EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til aukið hefur verið út 3-3-2-1-1-1-1 sinnum (= 6-6-4-2-2-2-2 umferðir prjónaðar. Það eru 24-24-22-20-20-20-20 lykkjur á hvorri ermi og 40-41-42-43-44-45-46 lykkjur á framstykki/bakstykki) = 128-130-128-126-128-130-132 lykkjur. Síðan á að auka út bæði á ermum og á fram- og bakstykki, aukið er út á fram- og bakstykki 2 lykkjur innan við merki þannig að það eru 2 lykkjur á milli útaukninga fyrir fram- og bakstykki og útaukningu fyrir ermi – prjónið þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið 2 lykkjur, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, * prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. það hefur verið aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og ermi). UMFERÐ 2: Prjónið slétt yfir allar lykkjur án útaukninga. EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til aukið hefur verið út alls 6-7-9-11-13-14-15 sinnum (= 12-14-18-22-26-28-30 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 9-10-11-12-14-15-16 sinnum á ermum og 6-7-9-11-13-14-15 sinnum á framstykki/bakstykki = 36-38-40-42-46-48-50 lykkjur á hvorri ermi og 52-55-60-65-70-73-76 lykkjur á framstykki/bakstykki = 176-186-200-214-232-242-252 lykkjur. Ermin mælist ca 13-14-16-17-20-21-23 cm – þegar peysan er brotin saman tvöföld við öxl, á stykkið að mælast ca 20-22-23-25-28-29-30 cm frá yst á öxl og niður meðfram handveg. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið að tilgreindu máli án þess að auka út. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 52-55-60-65-70-73-76 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 36-38-40-42-46-48-50 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 2-4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 52-55-60-65-70-73-76 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 36-38-40-42-46-48-50 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 2-4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 108-118-128-138-148-158-164 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 2-4-4-4-4-6-6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 51-53-55-57-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 6, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 32-34-36-42-44-46-48 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 = 140-152-164-180-192-204-212 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 55-57-59-61-63-65-67 cm frá miðju að aftan og ca 58-60-62-64-66-68-70 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 36-38-40-42-46-48-50 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 8 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 2-4-4-4-4-6-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 38-42-44-46-50-54-56 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 2-4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm mælt undir ermi er fækkað um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 1-1-2-2-2-3-3 sinnum – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, fækkið síðan um 2 lykkjur í hverjum 10-8-6-4-4-3-3 cm alls 2-3-3-3-4-4-4 sinnum = 32-34-34-36-38-40-42 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 28-28-27-27-25-24-23 cm frá skiptingunni á að auka út undir ermi þannig: Prjónið 4 lykkjur, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 4 lykkjur = 34-36-36-38-40-42-44 lykkjur. Aukið út 1 sinni til viðbótar á sama hátt þegar ermin mælist 33-33-32-32-29-28-27 cm frá skiptingunni = 36-38-38-40-42-44-46 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-39-37-37-33-32-31 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 12-10-10-12-10-12-14 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 = 48-48-48-52-52-56-60 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist 43-43-41-41-38-37-36 cm frá skiptingunni og ca 56-57-57-58-58-59-59 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 6, prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál frá réttu þannig: Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 52-52-56-60-64-68-72 lykkjur – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4-4-4-4-5-5-5 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterunicornsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.