Midnight Dream Cardigan#midnightdreamcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Melody eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu. Stærð XS - XXXL.
DROPS 273-14 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga vinstri prjóni inn aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir 6-6-7-7-7-7-8 hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist hnappagat. Efsta hnappagatið á að vera staðsett ca 1 cm frá efri kanti, neðsta hnappagatið á að vera í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og stroffs. Þau 5-5-5-5-6-6-6 hnappagöt sem eru eftir eru staðsett með jöfnu millibili með ca 7½-8-8-8½-7½-8-8 cm á milli hnappagata. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Fyrst er prjónað hálsmál fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar sem lykkjur eru fitjaðar upp í hvorri hlið til að forma hálsmálið. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp fyrir kantlista að framan í hvorri hlið. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka. HÁLSMÁL: Fitjið upp 54-54-56-58-60-62-64 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Melody eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Nú eru 4 merki sett í stykkið jafnframt því sem næsta umferð er prjónuð, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 merki í þessa lykkju (= laskalykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 15 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 merki í þessa lykkju (= laskalykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 18-18-20-22-24-26-28 lykkjur slétt (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 merki í þessa lykkju (= laskalykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 15 lykkjur (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 merki í þessa lykkju (= laskalykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 64-64-66-68-70-72-74 maskor. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (munið að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 66-66-68-70-72-74-76 lykkjur. UMFERÐ 3 (= frá réttu): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 76-76-78-80-82-84-86 lykkjur. UMFERÐ 4 (= frá röngu): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 78-78-80-82-84-86-88 lykkjur. UMFERÐ 5 (= frá réttu): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = = 87-87-89-91-93-95-97 lykkjur. UMFERÐ 6 (= frá röngu): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 88-88-90-92-94-96-98 lykkjur. Aukið hefur verið út 3 sinnum fyrir laskalínu og það hafa verið fitjaðar upp 5 nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir hálsmáli. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að ofan, fitjið upp 4-4-5-6-7-8-9 nýjar lykkjur í lok umferðar = 100-100-103-106-109-112-115 lykkjur. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið brugðið út umferðina, fitjið upp 4-4-5-6-7-8-9 nýjar lykkjur í lok umferðar = 104-104-108-112-116-120-124 lykkjur. Það eru nú 26-26-28-30-32-34-36 lykkjur á bakstykki, 23 lykkjur á hvorri ermi, 14-14-15-16-17-18-19 lykkjur á hvoru framstykki og 1 lykkja í hverri laskalínu. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið fyrir miðju að framan. Munið að fylgja prjónfestunni. Útaukning fyrir laskalínu heldur áfram þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kantlykkjur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kantlykkjur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 1-4-7-7-7-5-3 sinnum (= 2-8-14-14-14-10-6 umferðir prjónaðar) = 112-136-164-168-172-160-148 lykkjur í umferð. Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kantlykkjur og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kantlykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kantlykkjur og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki – ekki er aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kantlykkjur, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 9-9-8-8-9-11-13 sinnum (= 18-18-16-16-18-22-26 sinnum útaukning á framstykkjum/bakstykki og 9-9-8-8-9-11-13 sinnum útaukning á ermum) = 220-244-260-264-280-292-304 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 23-26-27-27-29-31-33 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 14-17-19-19-20-20-20 sinnum á ermum (ásamt útaukningu þegar hálsmál var formað). Stykkið mælist 24-27-28-28-31-33-35 cm frá miðju að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 34-37-39-40-43-46-49 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 43-49-53-53-55-55-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 66-72-76-78-84-90-96 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 43-49-53-53-55-55-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu lykkjur 34-37-39-40-43-46-49 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 146-158-170-182-198-214-230 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið þar til stykkið mælist 45-47-49-51-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 15-15-17-19-19-21-23 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (lykkjur eru ekki auknar út yfir kantlykkjur) = = 161-173-187-201-217-235-253 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 kantlykkju, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 49-51-53-55-57-59-61 cm frá miðju að aftan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 43-49-53-53-55-55-55 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 49-55-61-65-69-71-73 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-8-12-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT í fyrstu umferð á eftir skiptingunni, er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi - lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur með 0-4-3½-3-3-3-3 cm millibili alls 1-3-5-6-7-7-7 sinnum = 47-49-51-53-55-57-59 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 38-36-35-36-33-31-29 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 5-5-5-5-5-7-7 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 52-54-56-58-60-64-66 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm er fellt af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-40-39-40-38-36-34 cm frá skiptingunni. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Notið hringprjón 4, byrjið frá réttu efst á vinstra framstykki og prjónið upp lykkjur meðfram vinstra framstykki innan við 1 lykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið upp ca 81-85-89-91-93-97-101 lykkjur (þetta jafngildir ca 18 lykkjum á hverjum 10 cm meðfram kanti – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1). Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið og 1 lykkja slétt) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til kantur að framan mælist ca 3-3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN. Prjónið upp lykkjur á sama hátt meðfram hægra framstykki (en byrjið neðst á framstykki og prjónið upp lykkjur upp við hálsmál) og prjónið hægri kant á sama hátt og vinstri kant að framan þar til kanturinn mælist 1½-1½-1½-1½-2-2-2 cm. Nú er fellt af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið síðan þar til kantur að framan mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 4, byrjið frá réttu við miðju að framan, prjónið upp ca 89 til 101 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju (prjónið upp nokkrar auka lykkjur yfir kant að framan svo að stroffið dragist ekki inn yfir kanta að framan – lykkjufjöldinn á að vera með oddatölu). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið og 1 lykkja slétt) þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8-8-8-8-9-9-9 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #midnightdreamcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.