Murielle Soares skrifaði:
Bonjour Je ne comprends pas la façon de faire le raglan Pourriez vous me l'expliquer Merci
09.11.2026 - 09:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Soares, pour le raglan, on va augmenter 4 mailles en tricotant 5 fois chacune des 4 mailles des raglans avec un marqueur comme on le montre dans cette vidéo; quand vous avez vos 5 mailles sur l'aiguille droite, mettez votre marqueur dans la 3ème de ces mailles (= au milieu). Augmentez ainsi tous les 4 rangs comme indiqué sous le paragraphe EMPIÈCEMENT (vous augmenterez 16 m à chaque fois). Bon tricot!
09.11.2026 - 13:47
Nicole skrifaði:
Hallo, ich bin mir nicht sicher, welche Masche von den 5 Raglanmaschen nach der ersten Zunahme in der nächsten Zunahmerunde die Masche ist, aus der ich herausstricken muss? Aus der Mittleren oder der Ersten?
22.10.2026 - 07:00DROPS Design svaraði:
Liebe Nicole, es ist die mittlere Masche. Wenn Sie die Zunahme gearbeitet haben und 5 Maschen vorhanden sind, versetzen Sie den Markierer in die mittlere Masche der 5 Maschen und nehmen dann wieder in dieser Masche zu. Viel Spaß beim Stricken!
22.10.2026 - 10:17
Anna skrifaði:
Nie jest to napisane, ale rozumiem, że dekolt wywijamy do wewnątrz i przyszywamy?
10.10.2026 - 17:53DROPS Design svaraði:
Witaj Anno, wyjaśniam to właśnie. Wysokość wykończenia dekoltu w opisie jest jak przy zwykłym, pojedynczym wykończeniu dekoltu. Za to na zdjęciu ja również widzę podwójne wykończenie dekoltu. Wysłałam zapytanie i czekam na odpowiedź. Pozdrawiam!
14.10.2026 - 09:21
Quiet Haze Sweater#quiethazesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino og DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og kantlista í hálsmáli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 271-40 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Í laskalykkju er prjónað þannig: * Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan lykkju á vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn *. Prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, endið með að prjóna að auki 1 lykkju í lykkjuna fyrir neðan lykkju á vinstri prjóni (= 1 lykkja er orðin að 5 lykkjum). Nú hefur verið aukið út um 4 lykkjur. Færið merkin að miðju á þessum 5 lykkjum = laskalykkja. Lykkjurnar og uppslátturinn er prjónaður í sléttprjóni í næstu umferð – passið uppá að uppslátturinn sé ekki snúinn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þegar lykkjur eru auknar jafnt út í skiptingunni yfir í stroff, þá verður útaukningin jafnari ef aukið er út þar sem lykkjurnar verða síðan prjónaðar brugðið, sléttprjónuðu lykkjurnar koma þá til með að halda fallega áfram yfir í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-124-128-132-138-144-150 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Baby Merino eða DROPS Alpaca. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) í 6-6-6½-6½-6½-7-7 cm. Prjónið síðan kantlista í hálsmáli þannig: UMFERÐ 1: Fjöldi lykkja á að tvöfaldast í þessari umferð: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 240-248-256-264-276-288-300 lykkjur. UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn brugðið, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón án þess að prjóna hana, þegar lykkjunni er lyft er hægri prjóni stungið inn í lykkjuna eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn sem prjónað er með aftan við stykkið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 3: * Lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón án þess að prjóna hana, þegar lykkjunni er lyft er hægri prjóni stungið inn í lykkjuna eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn sem prjónað er með framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 4: * Prjónið 1 lykkju brugðið, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón án þess að prjóna hana, þegar lykkjunni er lyft er hægri prjóni stungið inn í lykkjuna eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn sem prjónað er með aftan við stykkið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 5: * Lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón án þess að prjóna hana, þegar lykkjunni er lyft er hægri prjóni stungið inn í lykkjuna eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn sem prjónað er með framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 6: * Prjónið 1 lykkju brugðið, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón án þess að prjóna hana, þegar lykkjunni er lyft er hægri prjóni stungið inn í lykkjuna eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn sem prjónað er með aftan við stykkið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 7: Lykkjufjöldinn á að helmingast: * 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 120-124-128-132-138-144-150 lykkjur. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki í byrjun umferðar, stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 20-21-22-23-24-26-27 lykkjur, setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 39-41-43-45-48-51-54 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru eftir 19-20-21-22-24-25-27 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Notið hringprjón 3. Prjónað er í hring í sléttprjóni jafnframt sem aukið er út fyrir LASKALÍNA í laskalykkjurnar – lesið útskýringu að ofan hvernig auka á út. Prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið slétt. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: Prjónið slétt. UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA í hverja af laskalykkjum (= 16 lykkjur fleiri). Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 15-16-17-19-20-22-23 sinnum (= 60-64-68-76-80-88-92 umferðir prjónaðar) = 360-380-400-436-458-496-518 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð til loka. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist ca 19-20-22-23-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á ermar í stærð XS og S og aðeins inn á framstykki/bakstykki í stærð XL, XXL og XXXL (í stærð M og L skiptist stykkið við laskalykkjurnar), þ.e.a.s. JAFNFRAMT því sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 50-53-57-62-67-74-79 lykkjur sléttprjón (= ca hálft bakstykki), setjið næstu 81-85-87-95-95-101-101 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-14-16-16-20-22-26 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 99-105-113-123-134-147-158 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 81-85-87-95-95-101-101 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-14-16-16-20-22-26 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 49-52-56-61-67-73-79 lykkjur í sléttprjóni (= ca hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 222-238-258-278-308-338-368 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 12-14-16-16-20-22-26 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón eins og áður þar til stykkið mælist 41-43-45-47-48-50-52 cm frá merki fyrir miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff í hring (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 54-58-64-64-72-80-88 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 276-296-322-342-380-418-456 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 45-47-49-51-53-55-57 cm frá merki fyrir miðju að aftan og ca 49-51-53-55-57-59-61 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 81-85-87-95-95-101-101 lykkjur af þræði frá ermi í annarri hliðinni á stykki á hringprjón/sokkaprjóna 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 12-14-16-16-20-22-26 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 93-99-103-111-115-123-127 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 12-14-16-16-20-22-26 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón í hring – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 5-5-5-5-3-4-4 sinnum, síðan er fækkað um 2 lykkjur 13-14-15-18-21-22-23 sinnum í hverjum 2½-2½-2-2-1½-1½-1 cm (= alls 18-19-20-23-24-26 úrtökur) = 57-61-63-65-67-71-73 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-41-39-39-37-36-34 cm frá skiptingunn. Skiptið fyrir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 13-13-13-15-15-15-17 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 70-74-76-80-82-86-90 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 45-45-43-43-42-41-39 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #quiethazesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 271-40
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.