Ebba skrifaði:
Hej! Jag stickar tröjan i strl M och är nu på delen där jag stickar fram & bakstycke med A3 tills tröjan mäter 46cm. Har nu följt hela A3 från nedersta raden till den översta och tröjan mäter ca 35cm, ska jag börja om från nedersta raden igen då? Känns inte som det blir rätt avstånd på höjden mellan de yttersta flätorna då? Brukar vara 5 varv mellan men börjar jag om från botten blir det bara 3?
08.11.2026 - 20:58DROPS Design svaraði:
Hei Ebba. Jo, det burde være 5 varv mellom flettene. Oppskriften er oversendt til Design avd. slik at de kan ta en dobbeltsjekk og evnt komme med en rettelse. mvh DROPS Design
09.11.2026 - 11:30
Magdalena skrifaði:
Czy druty nr 6 i 8 to jest rozmiar w milimetrach (6mm i 8mm)? Czy jakis inny rozmiar podany na opakowaniu drutów? Używam KnitPro Symfonie.
04.10.2026 - 20:45DROPS Design svaraði:
Witaj Magdo, druty nr 6 i 8 mają średnicę odpowiednio 6 i 8 mm. Pozdrawiamy!
07.10.2026 - 11:09
Snow Cables Sweater#snowcablessweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Andes eða DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldu perluprjóni með laskalínu og köðlum. Stærð XS – XXXL.
DROPS 273-9 |
||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÍTÖLSK UPPFITJUN (Einföld aðferð): Með þessari uppfitjun er helmingur af lykkjunum fitjaður upp sem gefinn er upp í mynstri, síðan eykst lykkjufjöldinn í fyrstu umferð á eftir uppfitjuninni. Gerið upphafslykkju með DROPS Andes eða DROPS Snow. Haldið 2 stykkjum af hringprjónum 8 saman og setjið upphafslykkjuna utan um þessa tvo prjóna. Fitjið upp 29-29-29-31-35-35-37 lykkjur á hefðbundinn hátt utan um báða prjónana, dragið síðan út annan hringprjóninn. Nú er lykkjufjöldinn aukin út þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið 1 lykkju brugðið, aukið um 1 lykkju þannig: Leggið hægri prjóninn fyrir framan/að þér, síðan undir og aftan við stykkið, upp fyrir framan þráðinn og dragið prjóninn með þræðinum áfram og aftur fyrir framan stykkið (= 1 ný lykkja á hægri prjóni) *, prjónið frá *-* umferðina hringinn 58-58-58-62-70-70-74 lykkjur í umferð (lykkjufjöldinn hefur núna tvöfaldast. Skiptið yfir á hringprjón 6 og tengið stykkið saman þannig að prjónað er í hring. UMFERÐ 2: * Prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt (= þráðurinn sem tekinn var upp) *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 3: Prjónið brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið 3. umferð þar til kantur í hálsmáli mælist 3-3-4-4-4-5-5 cm. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2 og A.3). LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Færið uppsláttinn frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga vinstri prjóni inn aftan í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki þannig: Prjónið fram að lykkju með merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju brugðið (= lykkja með merki), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn þannig að útauknar lykkjur passi við A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Tvöfalt perluprjón er prjónað á fram- og bakstykki og ermar og kaðlar fyrir miðju að framan. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið e.t.v. ÍTÖLSK UPPFITJUN – lesið leiðbeiningar að ofan, eða fitjið upp aðeins laust 58-58-58-62-70-70-74 lykkjur á hringprjón 6 með DROPS Andes eða DROPS Snow. Fylgið útskýringu í stroffi með einfaldri ítalskri uppfitjun, eða prjónið stroff þannig: * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 3-3-4-4-4-5-5 cm. Setjið 1 merki eftir fyrstu 21-21-21-23-25-25-25 lykkjur (= fyrir miðju að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 8. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í brugðna lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Setjið 1. merki í 1. lykkju, teljið 11-11-11-13-13-13-11 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 17-17-17-17-21-21-25 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 11-11-11-13-13-13-11 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 15-15-15-15-19-19-23 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið MYNSTUR hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar í mynstri að ofan hvernig auka á út og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið A.1 yfir lykkjur á ermum og bakstykki, prjónið A.2 yfir lykkjur á framstykki (á milli 2. og 3. merkis), prjónið laskalykkjur brugðið og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri fyrir laskalínu og 3 lykkjur fleiri við miðju að framan) = 69-69-69-73-81-81-85 lykkjur – ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir lykkju með 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan lykkju með 1. merki. UMFERÐ 2: Haldið áfram með A.1 yfir lykkjur á ermum og á bakstykki, A.2 á framstykki og prjónið laskalykkjur brugðið (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-5-7-7-7-5-7 sinnum (= 6-10-14-14-14-10-14 umferðir prjónaðar) = 85-103-121-125-133-115-137 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina heldur mynstrið áfram með A.3 yfir miðju 32-32-32-32-36-36-40 lykkjur og A.1 yfir þær lykkjur sem eftir eru í hvorri hlið á framstykki (laskalykkjur eru prjónaðar brugðið eins og áður). UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). UMFERÐ 3: Prjónið mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – ekki er aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið mynstur eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 6-6-6-6-6-8-8 sinnum (= 24-24-24-24-24-32-32 umferðir prjónaðar = 6-6-6-6-6-8-8 sinnum útaukning á ermum og 12-12-12-12-12-16-16 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 161-177-193-197-205-213-233 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 15-17-19-19-19-21-23 sinnum á framstykki/bakstykki og 9-11-13-13-13-13-15 sinnum á ermum. Stykkið mælist ca 21-24-27-27-27-30-33 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju brugðið (= þessi lykkja tilheyrir bakstykki), setjið næstu 29-33-37-39-39-39-41 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-10-10-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 56-60-64-64-68-72-80 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 29-33-37-39-39-39-41 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-10-10-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 46-50-54-54-58-62-70 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 115-123-131-139-147-163-179 lykkjur. Prjónið síðan mynstur eins og áður, þ.e.a.s. prjónið A.3 yfir miðju 32-32-32-32-36-36-40 lykkjur á framstykki og A.1 yfir þær lykkjur sem eftir eru – ATH: Ef mynstrið passar ekki í hliðinni undir hvorri ermi er hægt að jafna lykkjufjöldann út með því að fækka eða auka út 1 lykkju fyrir miðju undir hvorri ermi, þannig að mynstrið verði rétt. Prjónið þar til stykkið mælist ca 42-44-46-47-48-50-53 cm frá merki fyrir miðju að framan – endið umferð eftir 2 umferðir perluprjón á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 6, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 3 lykkjur yfir A.3 í umferð 1, þ.e.a.s. aukið út 1 lykkju yfir ysta kaðal í hvorri hlið, aukið út 1 lykkju yfir miðju 16 lykkjur fyrir miðju að framan og stillið af að stroffið sé prjónað með brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur frá perluprjóni = 118-126-134-142-150-166-182 lykkjur. Þegar prjónaðar hafa verið 3-3-3-3-5-5-5 umferðir í stroffi, prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Peysan mælist 45-47-49-50-52-54-57 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 29-33-37-39-39-39-41 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 8 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-10-10-14-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 35-39-43-49-49-53-55 lykkjur. Setjið 1 merki í fyrstu lykkju í umferð, umferðin byrjar við merkið. Prjónið A.1hringinn, en lykkjan með merki er prjónuð brugðið í hverri umferð - stillið af að mynstrið haldi rétt áfram yfir lykkjur frá berustykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingunni, aukið út 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverjum 8-7-7-7-5-4-3 cm alls 5-5-5-5-6-7-8 sinnum = 45-49-53-59-61-67-71 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 42-40-38-39-37-35-31 cm frá skiptingunni – endið eftir 2 umferðir í perluprjóni á hæðina. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) – JAFNFRAMT í umferð 1 eru fyrstu 2 lykkjurnar prjónaðar saman = 44-48-52-58-60-66-70 lykkjur. Stillið af að stroffið sé prjónað með brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur frá perluprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 3-3-3-3-5-5-5 umferðir í stroffi, prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 45-43-41-42-41-39-35 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowcablessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.