Catherine skrifaði:
Hi! Thank you for the pattern. Is the smallest size a 48 inch chest?
15.10.2026 - 14:23DROPS Design svaraði:
Hi Catherine, The size chart is in cms. The 48 cm is the width of the garment, meaning the chest-size is double this; 96 cm = 37.8 inches. Regards, Drops Team
16.10.2026 - 06:00
Andrea skrifaði:
Liebes Drops Team , wie kann ich einer kleinen Person Größe S mit viel Oberweite (M) und schmaler Taille am günstigsten die Anleitung anpassen, so dass es oben nicht zu eng ist aber insgesamt nicht wie ein Sack wirkt. Mit freundlichen Grüßen Andrea Weigand
02.10.2026 - 11:55DROPS Design svaraði:
Liebe Andrea, am besten messen Sie einen ähnlichen Pullover - hier lesen Sie, wie man die Größe wählt. Viel Spaß beim Stricken!
02.10.2026 - 16:02
Mary skrifaði:
Nel modello non viene usato il collo anatomico..? Il collo davanti poi sale e non è comodo..potete dare spiegazioni di come farlo? Grazie
01.10.2026 - 18:34DROPS Design svaraði:
Buonasera Mary, purtroppo in questa sede non ci è possibile fornire un'assistenza così personalizzata, ma sul sito DROPS può trovare tantissimi modelli che utilizzano quella tecnica. Buon lavoro!
02.10.2026 - 22:09
Toffee Twist Sweater#toffeetwistsweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Melody eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og kaðli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 272-8 |
||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-80-80-84-88-92-96 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Melody eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið stroff í hring (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) í 4-4-4-4½-4½-5-5 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 26-27-27-28-29-30-31 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 13 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 23-25-25-27-29-31-33 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 13 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 23-25-25-27-29-31-33 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið fyrstu umferð með byrjun frá hægri öxl að aftan þannig: Prjónið 22-23-23-24-25-26-27 lykkjur slétt, setjið 1 merkiþráð hér, prjónið 1 lykkju brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, * prjónið frá *-* alls 7 sinnum (= alls 8 lykkjur fleiri), prjónið 1 lykkju brugðið, setjið 1 merkiþráð í umferð, prjónið slétt út umferðina – ATH: Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat = 84-88-88-92-96-100-104 lykkjur í umferð. Nú á að prjóna í hring í sléttprjóni og mynstur jafnframt því sem aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið LASKALÍNA og MYNSTUR í útskýringu að ofan. Á milli 2 merkiþráða fyrir miðju að framan er prjónaður kaðall. Prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 1 lykkju slétt (= laskalína), prjónið A.1, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta merki (= ermi), prjónið A.2, prjónið 1 lykkju slétt (= laskalykkja), prjónið A.1, prjónið slétt fram að fyrsta merkiþræði, prjónið A.3 (= 17 lykkjur), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta merki (= framstykki), prjónið A.2, prjónið 1 lykkju slétt (= laskalykkja), prjónið A.1, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta merki (= ermi), prjónið A.2, prjónið 1 lykkju slétt (= laskalykkja), prjónið A.1, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta merki (= bakstykki), prjónið A.2 (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður – munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA. UMFERÐ 3: Prjónið 1 lykkju slétt (= laskalykkja), prjónið A.1, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta merki (= ermi), prjónið A.2, prjónið 1 lykkju slétt (= laskalykkja), prjónið A.1, prjónið fram að fyrsta merkiþræði, prjónið A.3 (= 17 lykkjur), prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta merki (= framstykki), prjónið A.2, prjónið 1 lykkju slétt (= laskalykkja), prjónið A.1, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta merki (= ermi), prjónið A.2, prjónið 1 lykkju slétt (= laskalykkja), prjónið A.1, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta merki (= bakstykki), prjónið A.2 (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður – munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 8-9-10-10-11-12-13 sinnum (= 32-36-40-40-44-48-52 umferðir prjónaðar) = 212-232-248-252-272-292-312 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið. Stykkið mælist ca 19-21-24-24-26-28-31 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 3-3-3-4-4-5-5 lykkjur í sléttprjón (= þessar lykkjur tilheyra bakstykki), setjið næstu 41-45-49-47-51-53-57 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-10-10-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 69-75-79-83-89-97-103 lykkjur sléttprjón með A.3 á milli merkiþráða eins og áður (= framstykki), setjið næstu 41-45-49-47-51-53-57 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-10-10-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 58-64-68-71-77-84-90 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 142-154-166-178-190-206-218 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 6-6-8-10-10-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón með A.3 á milli merkiþráða eins og áður þar til stykkið mælist 41-43-45-47-48-50-52 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 4,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 22-22-24-30-32-36-38 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (ekki er aukið út yfir kaðal) = 164-176-190-208-222-242-256 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-6-7-7-7 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 47-49-51-53-55-57-59 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 41-45-49-47-51-53-57 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 6 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-10-10-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 47-51-57-57-61-63-67 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-10-10-10-10 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptingun, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2-2-3-3-3-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur 3-4-5-5-6-6-7 sinnum með 9-7-5½-5½-4-3½-3 cm millibili (= alls 5-7-8-8-9-9-10 úrtökur) = 37-39-41-41-43-45-47 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-38-36-36-34-32-29 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 46-48-50-50-52-54-56 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-6-7-7-7 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 46-44-42-42-41-39-36 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #toffeetwistsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 272-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.