DROPS Super Sale · 30% AFSLÁTTUR á 5 tegundum af ullargarni
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1474.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpaka, 23% Jedwab
frá 902.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Autumn & Winter 26/27

Deep Forest Jacket

Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Melody og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk eða 3 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl, trompetermum, i-cord og belti. Stærð XS - XXXL.

Velja stærð:


DROPS 271-33

#deepforestjacket

DROPS Design: Mynstur ml-152
Garnflokkur D + C eða C + C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
250-300-300-350-350-400-450 gr litur 32, Dökkur Skógur
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
125-150-150-175-175-200-225 gr litur 32, Mosagrænn

Eða notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-400-425-475-500-550-625 gr litur 32, Mosagrænn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði DROPS Melody saman með 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk eða með 3 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk með prjóna nr 8 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1474.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpaka, 23% Jedwab
frá 902.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

0
0

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1:
Öll útaukning er gerð frá réttu:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3:
Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat.

LEIÐBEININGAR PRJÓN:
Þegar stuttar umferðir eru prjónaðar, þá kemur oft lítið gat þegar stykkinu er snúið – það er hægt að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Setjið þráðinn yfir á hægri prjón og herðið á þræðinum vel að aftan (með þessu þá myndast tvær lykkjur á prjóni).
Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum.
Fyrst eru prjónaðir 2 kantlistar = aftan í hnakka. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp aftan í hnakka meðfram þessum kantlistum. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkin prjónuð.
Framstykkið er prjónað með því að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki og lykkjur frá kantlista eru settar inn í umferð.
Prjónið niður á við að handvegi JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir v-hálsmáli. Endurtakið á hinni öxlinni. Við handveg eru framstykkin og bakstykkið sett á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpuna og síðan er ermin prjónuð í hring. Í lokin er prjónað belti.
Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum.

HÆGRI KANTLISTI:
Fitjið upp 13-13-13-15-15-17-17 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði DROPS Melody saman með 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir) eða fitjið upp með 3 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk.
Prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur brugðið, prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
UMFERÐ 3 (= ranga): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, 5-5-5-7-7-9-9 lykkjur brugðið, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= rétta). Lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN, prjónið 5-5-5-7-7-9-9 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
Prjónið UMFERÐ 1 til 4 þar til kantlisti mælist 6½-6½-6½-7½-7½-7½-7½ cm innst þar sem hann er minnstur/grennstur (kantlistinn mælist ca 13-13-13-15-15-15-15 cm yst meðfram i-cord kanti), endið með umferð frá röngu yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um lykkju í garðaprjóni með því að prjóna síðustu 2 lykkjurnar í umferð brugðið saman = 12-12-12-14-14-16-16 lykkjur fyrir kant að framan – setjið lykkjurnar á þráð.

VINSTRI KANTLISTI:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja af 13-13-13-15-15-17-17 lykkjum frá uppfitjunarkanti í hægri kantlista – passið uppá að lykkjurnar séu prjónaðar upp þannig að lykkjurnar færast ekki til miðað við lykkjur á hægri kantlista.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 5-5-5-7-7-9-9 lykkjur slétt, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= ranga): Munið eftir LEIÐBEININGAR PRJÓN, prjónið 5-5-5-7-7-9-9 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
UMFERÐ 4 (= rétta): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni.
Prjónið UMFERÐ 1 til 4 þar til kantlisti mælist 6½-6½-6½-7½-7½-7½-7½ cm innst þar sem hann er minnstur / grennstur (kantlistinn mælist ca 13-13-13-15-15-15-15 cm yst meðfram i-cord kanti), endið með umferð frá röngu yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um lykkju í garðaprjóni með því að prjóna fyrstu 2 lykkjur í umferð snúnar brugðið saman = 12-12-12-14-14-16-16 lykkjur fyrir kantlista – setjið lykkjur á þráð. Kantlisti mælist alls 13-13-13-15-15-15-15 cm.
Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram annarri hliðinni á kantlista og bakstykkið er prjónað eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Notið hringprjón 8 og 1 þráð DROPS Melody saman með 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir) eða fitjið upp með 3 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk.
Prjónið upp 16-16-16-18-18-18-18 lykkjur meðfram annarri hliðinni á kantlista sem hefur lykkjur í garðaprjóni meðfram kanti (prjónið upp frá réttu innan við 1 lykkju í garðaprjóni) – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við miðju á kantlista (það á ekki að prjóna yfir 12-12-12-14-14-16-16 lykkjur sem eru á þræði í hvorri hlið).
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt.
UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 2 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 2 lykkjur brugðið.
Á EFTIR UMFERÐ 3:
Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 9-10-10-11-11-12-13 sinnum (= 18-20-20-22-22-24-26 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru 52-56-56-62-62-66-70 lykkjur í umferð.
Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt!
Prjónið síðan í sléttprjóni - Munið að fylgja prjónfestunni – þar til stykkið mælist 10-8-6-8-6-4-4 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg.

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 4 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 4 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-2-4-3-5-6-7 sinnum (= 2-4-8-6-10-12-14 umferðir prjónaðar) = 54-60-64-68-72-78-84 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan þar til stykkið mælist 11-11-12-12-13-13-14 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með umferð frá réttu. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl frá bakstykki – lesið leiðbeiningar að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt á borð með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði/hjálparprjóni snúi að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl.
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið með vinstri kantlista og prjónið frá réttu yfir 12-12-12-14-14-16-16 lykkjur:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur slétt, prjónið síðan upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 18-20-20-22-22-24-26 lykkjur) = 30-32-32-36-36-40-42 lykkjur.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið slétt út umferðina.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 10-11-12-12-13-14-14 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú byrjar útaukning fyrir V-hálsmáli, jafnframt því sem einnig er aukið út í hlið fyrir handveg.
Útaukning í hlið byrjar áður en útaukningu fyrir V-hálsmáli er lokið, lestu því báða næstu kafla að neðan áður en prjónað er áfram til að fá yfirsýn yfir þegar útaukning fyrir handveg byrjar.

ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 12-12-12-14-14-16-16 fyrstu lykkjur eins og áður, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður án þess að auka út – útaukna lykkjan er prjónuð í sléttprjóni.
Aukið svona út í hverjum 4-4-4-3½-3½-3½-3½ cm alls 8-8-8-9-9-9-9 sinnum.

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
Þegar stykkið mælist 26-26-24-28-26-26-26 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út í hlið við handveg þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 4 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður án þess að auka út.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-2-4-3-5-6-7 sinnum (= 2-4-8-6-10-12-14 umferðir prjónaðar).

Prjónið síðan þar til stykkið mælist 27-29-30-32-33-35-36 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp efst á framstykki, endið með umferð frá réttu (útaukning fyrir v-hálsmáli heldur áfram á fram- og bakstykki).
Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl frá bakstykki – lesið leiðbeiningar að neðan.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 18-20-20-22-22-24-26 lykkjur), síðan er prjónað frá réttu yfir 12-12-12-14-14-16-16 lykkjur frá hægri kantlista þannig: 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt = 30-32-32-36-36-40-42 lykkjur í umferð.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið brugðið út umferðina.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 10-11-12-12-13-14-14 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú byrjar útaukning fyrir V-hálsmáli, jafnframt því sem einnig er aukið út í hlið fyrir handveg.
Útaukning í hlið byrjar áður en útaukningu fyrir V-hálsmáli er lokið, lestu því báða næstu kafla að neðan áður en prjónað er áfram til að fá yfirsýn yfir þegar útaukning fyrir handveg byrjar.

ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 12-12-12-14-14-16-16 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið síðustu lykkjurnar eins og áður.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður án þess að auka út – útaukna lykkjan er prjónuð í sléttprjóni.
Aukið svona út í hverjum 4-4-4-3½-3½-3½-3½ cm alls 8-8-8-9-9-9-9 sinnum.

ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG:
Þegar stykkið mælist 26-26-24-28-26-26-26 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út í hlið við handveg þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið eins og áður út umferðina.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður án þess að auka út.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-2-4-3-5-6-7 sinnum (= 2-4-8-6-10-12-14 umferðir prjónaðar).

Prjónið síðan þar til stykkið mælist 27-29-30-32-33-35-36 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp efst á framstykki, endið með umferð frá réttu (útaukning fyrir v-hálsmáli heldur áfram á fram- og bakstykki).
Nú eru framstykkin og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.
Héðan er stykkið mælt frá!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu – byrjið með lykkjur frá hægra framstykki og prjónið umferðina þannig:
Prjónið eins og áður yfir lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 2-2-2-2-4-4-4 nýjar lykkjur í lok umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 54-60-64-68-72-78-84 lykkjur frá bakstykki í sléttprjóni, fitjið upp 2-2-2-2-4-4-4 nýjar lykkjur (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið eins og áður yfir lykkjur frá vinstra framstykki.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 4 kantlykkjum í hvorri hlið eins og áður og haldið áfram með útaukningu fyrir v-hálsmáli eins og áður. Þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli hefur verið gerð til loka, eru 136-148-156-168-180-196-208 lykkjur í umferð.
Prjónið þar til stykkið mælist ca 56-58-60-62-63-65-67 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir miðju að aftan – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu og aukið jafnframt út 1 lykkju í síðustu umferð = 137-149-157-169-181-197-209 lykkjur.
Í næstu umferð byrjar stroff, skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 4 kantlykkjur eins og áður, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 4 kantlykkjur eins og áður.
UMFERÐ 2 (= rétta). Prjónið 4 kantlykkjur eins og áður, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 4 kantlykkjur eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stroffið mælist 3½-3½-3½-3½-4½-4½-4½ cm – endið með umferð frá réttu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu yfir allar lykkjur og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum frá réttu.
Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70-72 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir miðju að aftan og 62-64-66-68-70-72-74 cm frá öxl.

ERMAR:
Ermin er prjónuð frá handveg og niður.
Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = miðja ofan á öxl – ATH: Miðja ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur nokkra cm niður á framstykki.
Notið hringprjón 8 og prjónið upp lykkjur fasta (notið e.t.v. fínni prjón).
PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR ÞANNIG:
Byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 42-44-46-48-52-54-56 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki.
ERMAKÚPA:
Til að flíkin passi betur og fái betra for er prjónað sléttprjón með stuttum umferðum fram og til baka yfir ermakúpuna, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi og prjónað er þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 5-5-5-5-4-4-4 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 5-5-5-5-4-4-4 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4.
Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 12-14-16-16-20-22-24 sinnum (= 6-7-8-8-10-11-12 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin er frá röngu).

Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ:
Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð, endar umferðin með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (= miðja undir ermi).
Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu.
ERMIN ÁFRAM NIÐUR:
Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig:
Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð, fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 2-2-2-3-4-4-4 sinnum, fækkið síðan um 2 lykkjur í 3. hverjum cm 3-3-3-2-2-2-2 sinnum = 32-34-36-38-40-42-44 lykkjur í umferð.
Þegar ermin mælist 23-23-23-23-25-27-28 cm frá merki fyrir miðju ofan á öxl (passið uppá að það séu prjónaðir minnst 2 cm sléttprjón á eftir síðustu útaukningu), aukið út 4-4-4-5-5-5-5 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3. Aukið svona út í hverjum 5-5-5-5-4-4-3½ cm alls 4 sinnum, prjónið 5-5-5-5-4-4-3½ cm og aukið út 2-2-4-2-2-4-4 lykkjur jafnt yfir = 50-52-56-60-62-66-68 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 48-47-48-46-46-46-45 cm frá miðju ofan á öxl.
Í næstu umferð byrjar stroff, skiptið yfir á sokkaprjóna 6 og prjónið þannig:
UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stroffið mælist 3½-3½-3½-3½-4½-4½-4½ cm – endið eftir 2. umferð. Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum.
Ermin mælist ca 52-51-52-50-51-51-50 cm frá miðju ofan á öxl.

BELTI:
Fitjið upp 10 lykkjur á prjón 8 með 1 þræði DROPS Melody og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir) eða fitjið upp með 3 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk.
Prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): * Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* út umferðina, snúið.
UMFERÐ 2 (= ranga): * Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* út umferðina, snúið.
Endurtakið UMFERÐ 1 og 2 þar til beltið mælist ca 160-170-185-200-215-230-255 cm – togið aðeins í stykkið á meðan prjónað er til að lykkjurnar leggist fallega. Þegar réttri lengd er náð, prjónið allar lykkjur snúnar slétt saman 2 og 2 = 5 lykkjur eftir. Fellið af með brugðnum lykkjum.
Beltið er hnýtt um mitti.

Mynstur

Diagram for DROPS 271-33

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #deepforestjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 271-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.