Red Autumn Sweater#redautumnsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Big Merino eða DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 272-14 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn – öll útaukning er útskýrð í mynsturteikningu A.1 og A.2. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka á vinstri prjón með því að stinga vinstri prjóni inn aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna, frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-92-96-100-104-108-112 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Big Merino eða DROPS Alaska. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) hringinn þar til stykkið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm. Setjið 1 merki við byrjun umferðar (= miðja að aftan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 14-15-16-17-18-19-20 lykkjur (= ca hálft bakstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 15 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 27-29-31-33-35-37-39 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 15 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru eftir 13-14-15-16-17-18-19 lykkjur á eftir síðasta merki (= ca hálft bakstykki). Prjónið sléttprjón og MYNSTUR hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar eins og útskýrt er í A.1 og A.2 – lesið leiðbeiningar að ofan með útskýringu hvernig auka á út. Prjónið þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.1, prjónið laskalykkju í sléttprjóni, prjónið A.2 *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum, prjónið sléttprjón út umferðina (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA. UMFERÐ 3: * Prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.1, prjónið laskalykkju í sléttprjóni, prjónið A.2 *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum, prjónið sléttprjón út umferðina (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 8-9-10-11-12-12-12 sinnum (= 32-36-40-44-48-48-48 umferðir prjónaðar) = 216-236-256-276-296-300-304 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Aukið síðan einungis út fyrir framstykki/bakstykki, prjónið þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.1, prjónið laskalykkju í sléttprjóni, prjónið sléttprjón fram að næsta merki, prjónið laskalykkju í sléttprjóni, prjónið A.2 *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið sléttprjón út umferðina (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA. UMFERÐ 3: * Prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.1, prjónið laskalykkju í sléttprjóni, prjónið sléttprjón fram að næsta merki, prjónið laskalykkju í sléttprjóni, prjónið A.2 *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið sléttprjón út umferðina (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 3-3-3-3-3-4-5 sinnum (= 12-12-12-12-12-16-20 umferðir prjónaðar) = 240-260-280-300-320-332-344 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út 22-24-26-28-30-32-34 sinnum á framstykki/bakstykki og 16-18-20-22-24-24-24 sinnum á ermum. Stykkið mælist ca 20-22-24-25-27-29-31 cm frá merki fyrir miðju að aftan, prjónið e.t.v. sléttprjón án þess að auka út að réttu máli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 37-40-43-46-49-52-55 lykkjur í sléttprjóni (= ca hálft bakstykki), setjið næstu 47-51-55-59-63-63-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-12-14-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 73-79-85-91-97-103-109 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 47-51-55-59-63-63-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-12-14-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 36-39-42-45-48-51-54 lykkjur í sléttprjón (= ca hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-178-190-206-222-242-258 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 8-10-10-12-14-18-20 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 44-46-48-50-51-53-55 cm frá merki fyrir miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 20-22-24-26-28-30-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 182-200-214-232-250-272-290 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 48-50-52-54-56-58-60 cm frá merki fyrir miðju að aftan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 47-51-55-59-63-63-63 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-10-12-14-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 55-61-65-71-77-81-83 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-10-10-12-14-18-20 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi - lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 2-2-2-2-3-3-3 sinnum, fækkið síðan 2 lykkjur með 10-8-6-4-3-2½-2½ cm millibili 2-4-5-7-8-9-9 sinnum = 47-49-51-53-55-57-59 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-38-36-36-33-32-30 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-58-60-62-64-66-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-42-40-40-38-37-35 cm frá skiptingunni. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #redautumnsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 272-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.