Roberta skrifaði:
Thank you very much for this beautiful pattern! I am knitting a size M and I worked with 115 stitches on the neck part. When I follow the instructions in order to insert the markers for the raglan increases, the numbers don't fit. I inserted a marker after 22, then 19, the 29, then 19 and then I should have 22 stitches, but I have 26. Could you help me please? Thank you very much!
20.09.2026 - 19:58DROPS Design svaraði:
Dear Roberta, remember that the markers are inserted inside stitches, not in between stitches. So you should count the stitches with the markers as well. 22 stitches (= left front piece), 1 stitch with marker, 19 stitches (= sleeve), 1 stitch with marker, 29 stitches (= back piece), 1 stitch with marker, 19 stitches (= sleeve), 1 stitch with marker. There are 22 stitches left after the last marker (= right front piece). That is: 22+1+19+1+29+1+19+1 = 93 sts. 115 sts +93 sts = 22 remaining sts. Happy knitting!
21.09.2026 - 00:42
Journey Cardigan#journeycardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 272-6 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 6-6½-6½-7-6-6½-6½ cm á milli hverra hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 107-109-115-117-123-125-131 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Air. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan með i-cord – lesið KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 6 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið svona áfram með stroff í 4-4-4-4-5-5-5 cm. Setjið 1 merki að innanverðu í kant að framan í annarri hliðinni á stykkinu (= miðja að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í slétta lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 20-20-22-22-24-24-26 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 25-27-29-31-33-35-37 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju. Það eru 20-20-22-22-24-24-26 lykkjur eftir á prjóni á eftir síðasta merki (= hægra framstykki). Nú á að prjóna mynstur á ermum, sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru og kanta að framan í hvorri hlið eins og áður. Í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir laskalínu og mynstur á ermum, lestu því 2 næstu kafla áður en þú prjónar áfram. MYNSTUR: Mynstrið er prjónað yfir miðjulykkjurnar á hvorri ermi þannig: 5 lykkjur slétt, A.1, 5 lykkjur slétt. Í fyrstu umferð í A.1 er aukið út um 7 lykkjur á hvorri ermi. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni er prjónað með A.2 yfir lykkjurnar í A.1. LASKALÍNA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri) – lesið útskýringu að ofan um hvernig á að auka út. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður (munið að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er að ofan í leiðbeiningum undir LASKALÍNA). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 3-1-6-7-6-5-5 sinnum (= 6-2-12-14-12-10-10 umferðir prjónaðar) = 131-177-187-185-179-185 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður (munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykkjum og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki – engar lykkjur eru auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 10-12-10-11-13-15-16 sinnum (= 40-48-40-44-52-60-64 umferðir prjónaðar 10-12-10-11-13-15-16 sinnum útaukning á ermum og 20-24-20-22-26-30-32 sinnum útaukning á fram-/bakstykki) = 265-275-297-319-341-359-377 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 23-25-26-29-32-35-37 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 13-13-16-18-19-20-21 sinnum á ermum. Prjónið sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður, án þess að auka út, þar til stykkið mælist ca 21-23-24-27-29-32-34 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 44-46-49-52-57-60-64 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 52-52-58-62-64-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 73-79-83-91-99-107-113 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 52-52-58-62-64-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 44-46-49-52-57-60-64 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 181-195-209-227-249-267-281 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 41-43-45-47-48-50-52 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroffið JAFNFRAMT því sem aukið er út um 18-20-20-22-24-26-28 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 199-215-229-249-273-293-309 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 45-47-49-51-53-55-57 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 52-52-58-62-64-66-68 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-12-14-16-18-20-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 62-64-72-78-82-86-88 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í nýjar lykkjur undir ermi. Prjónið sléttprjón og mynstur hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkjur 2-2-5-7-8-9-9 sinnum með 4-4-4-3½-3-2½-2½ cm millibili = 54-56-58-60-62-64-66 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-39-39-36-34-31-29 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-8-8-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 62-64-66-70-72-74-76 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 45-43-43-40-39-36-34 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #journeycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 272-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.