Inge-Lise Hvid skrifaði:
Der er fejl i diagrammet. Der står at der er 12 masker i diagram A2, men der er kun 10, og i diagram A4 står der at der er 24 masker, men der er kun 22, så maskeantallet i opskriften passer ikke med antal masker i disse diagrammer.
21.09.2026 - 23:04DROPS Design svaraði:
Hei Inger-Lise, Jeg har sjekket diagrammene og A.2 er over 12 masker og A.4 24 masker i både den norske og danske versjonen. Hilsen Drops Team
22.09.2026 - 07:15
Inger Svensson skrifaði:
Undrar om det inte är fel i diagrammet? A2 är 10 maskor (rutor) men 12 maskor enl beskrivningen och A4 är 22 maskor men beskrivningen säger 24??? Och visar diagrammet bara räta varv eller visar det även aviga varv? T ex A2 är det 16 eller 32 varv?
07.09.2026 - 09:10DROPS Design svaraði:
Hei Inger. Oppskriften er oversendt til Design avd. for en dobbeltsjekk. mvh DROPS Design
10.09.2026 - 14:19
Muskan skrifaði:
Love the pattern❤
02.09.2026 - 08:38
Willow Breeze Sweater#willowbreezesweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Flora eða DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, perluprjóni og köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 272-16 |
||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi með því að prjóna 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri) – stillið af að úrtaka passi með mynstri og að hún fylgi merkiþræði ca fyrir miðju undir ermi. ATH: Þegar perluprjón er prjónað í hring, er algengt að uppbyggingin snúist örlítið þegar hún er prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Kaðlarnir eru einungis prjónaðir á framstykki. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið sett á bið á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónið mynstur samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermarnar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 41-43-43-45-45-45-47 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Flora eða DROPS Nord. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1 (= tvöfalt perluprjón) þar til 1 lykkja er eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 1 lykkju brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið tvöfalt perluprjón eins og áður þar til 1 lykkja er eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 1 lykkju brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 15-15-16-17-18-19-20 sinnum (= 30-30-32-34-36-38-40 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru = 101-103-107-113-117-121-127 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt frá! Prjónið síðan tvöfalt perluprjón og 1 kantlykkju í sléttprjóni í hvorri hlið - Munið að fylgja prjónfestunni - þar til stykkið mælist 10-9-9-8-8-7-6 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er lykkjum aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið tvöfalt perluprjón eins og áður þar til 1 lykkja er eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið tvöfalt perluprjón eins og áður – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-8-10-11-13-16-19 sinnum (= 10-16-20-22-26-32-38 umferðir prjónaðar) = 111-119-127-135-143-153-165 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 13-14-15-15-16-17-18 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 30-30-32-34-36-38-40 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið fyrstu umferð brugðið frá röngu JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-5-5-6-6-6-7 lykkjur jafnt yfir með því að slá uppá prjóninn = 34-35-37-40-42-44-47 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt/brugðið svo ekki myndist gat JAFNFRAMT sem mynstrið er síðan prjónað þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.2 (= 12 lykkjur), prjónið A.3 (= 16 lykkjur), prjónið 5-6-8-11-13-15-18 lykkjur A.1 (= tvöfalt perluprjón), prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður, þ.e.a.s. prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til framstykkið mælist 7-8-8-9-10-11-12 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu og athugið hvaða umferð var prjónuð síðast í A.3, þannig að útaukningin fyrir hálsmáli á hægra framstykki geti byrjað í sömu umferð síðar. Prjónið síðan jafnframt því sem aukið er út fyrir hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.2, A.3, prjónið 5-6-8-11-13-15-18 lykkjur tvöfalt perluprjón eins og áður, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 lykkju brugðið, A.2, A.3, prjónið 5-6-8-11-13-15-18 lykkjur tvöfalt perluprjón eins og áður, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið slétt yfir sléttar lykkjur og brugðið yfir brugðnar lykkjur, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið, A.2, A.3, prjónið 5-6-8-11-13-15-18 lykkjur tvöfalt perluprjón eins og áður, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, A.2, A.3, prjónið 5-6-8-11-13-15-18 lykkjur tvöfalt perluprjón eins og áður, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, fitjið upp 4 nýjar lykkjur í lok umferðar. UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, A.2, A.3, prjónið 5-6-8-11-13-15-18 lykkjur tvöfalt perluprjón eins og áður, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 10 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, fitjið upp 6 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 50-51-53-56-58-60-63 lykkjur. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar upp innan við lykkju í sléttprjóni) = 30-30-32-34-36-38-40 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: Prjónið brugðið jafnframt því sem aukið er út um 4-5-5-6-6-6-7 lykkjur jafnt yfir með því að slá uppá prjóninn = 34-35-37-40-42-44-47 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt/brugðið svo ekki myndist gat JAFNFRAMT mynstrið er prjónað þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 5-6-8-11-13-15-18 lykkjur A.1 (= tvöfalt perluprjón), prjónið A.3 (= 16 lykkjur), A.2 (= 12 lykkjur). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður, þ.e.a.s. sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til framstykkið mælist 7-8-8-9-10-11-12 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp - síðasta umferð er prjónuð frá röngu, passið uppá að mynstrið sé prjónað jafn langt og A.3 sem var prjónað áður en útaukning fyrir hálsmáli byrjaði á vinstra framstykki. Prjónið síðan jafnframt því sem aukið er út fyrir hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, 5-6-8-11-13-15-18 lykkjur tvöfalt perluprjón eins og áður, A.3, A.2, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, 5-6-8-11-13-15-18 lykkjur tvöfalt perluprjón eins og áður, A.3, A.2, 1 lykkja brugðið, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 1 lykkju brugðið, 2 lykkjur slétt, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, 5-6-8-11-13-15-18 lykkjur tvöfalt perluprjón eins og áður, A.3, A.2, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, 5-6-8-11-13-15-18 lykkjur tvöfalt perluprjón eins og áður, A.3, A.2, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, fitjið upp 4 nýjar lykkjur í lok umferðar. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, 5-6-8-11-13-15-18 lykkjur tvöfalt perluprjón eins og áður, A.3, A.2, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, fitjið upp 6 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar. UMFERÐ 10 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur = 50-51-53-56-58-60-63 lykkjur. Síðan eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er hér að neðan. FRAMSTYKKI (hægri og vinstri hluti saman): Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig – ATH: Passið upp á að A.2. og A.3 haldi áfram eins og áður og að mynstureiningarnar frá báðum framstykkjum séu síðan prjónaðar frá sömu umferð í mynsturteikningunni: Prjónið 50-51-53-56-58-60-63 lykkjur frá hægra framstykki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, 5-6-8-11-13-15-18 lykkjur tvöfalt perluprjón eins og áður, A.3, A.2, A.3, fitjið upp 24 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið 50-51-53-56-58-60-63 lykkjur frá vinstra framstykki þannig: Prjónið A.3, A.2, A.3, 5-6-8-11-13-15-18 lykkjur tvöfalt perluprjón eins og áður, prjónið 1 lykkju slétt = 124-126-130-136-140-144-150 lykkjur í umferð. Þær 24 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli samsvara mynsturteikningu A.4 – Athugið að mynsturteikningar A.3 og A.4 eru jafnháar, byrjið því A.4 í sömu umferð og næsta umferð í A.3 svo snúningurinn í kaðli sé í sömu umferð. Prjónið þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, 5-6-8-11-13-15-18 lykkjur tvöfalt perluprjón eins og áður, A.3, A.2, A.3, A.4, A.3, A.2, A.3, 5-6-8-11-13-15-18 lykkjur tvöfalt perluprjón eins og áður, 1 lykkju slétt. Frá röngu, prjónið mynstrið með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið mynstur og perluprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 26-25-25-26-26-25-24 cm. Aukið nú út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður þar til 1 lykkja er eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í tvöfalt perluprjón. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-8-10-11-13-16-19 sinnum (= 10-16-20-22-26-32-38 umferðir prjónaðar) = 134-142-150-158-166-176-188 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 29-30-31-33-34-35-36 cm, endið á umferð frá röngu. Klippið þráðinn. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Framstykkið er lengra en bakstykkið, ca 3 cm af dýpt frá hálsmáli kemur til með að teygja sig yfir á bakhlið á stykkinu. FRAM- OG BAKSTYKKI: Til að mynstrið komi til með að halda áfram rétt og samhverft, setjið framstykkið og bakstykkið saman í fram- og bakstykki þannig: Byrjið á framstykkinu frá réttu og færið fyrstu 11-15-19-23-27-32-38 lykkjurnar á framstykkinu frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón án þess að prjóna lykkjurnar (þ.e. lykkjurnar fyrir kaðalmynstrið sjálft), setjið 1 merki í umferðina hér (= byrjun umferðar), prjónið síðan þannig: Prjónið restina frá framstykkinu eins og áður, fitjið upp 4-6-8-10-14-18-20 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið mitt undir erminni), prjónið 111-119-127-135-143-153-165 lykkjur frá bakstykkinu eins og áður, fitjið upp 4-6-8-10-14-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir erminni), prjónið eins og áður fram að byrjun umferðar = 253-273-293-313-337-365-393 lykkjur í umferð. Prjónið nú í hring með mynstri og tvöföldu perluprjóni eins og áður – nýjar lykkjur undir ermum og kantlykkjur eiga að vera prjónaðar með tvöföldu perluprjóni (= A.1) – stillið af þannig að mynstrið gangi jafnt upp undir erminni – ef mynstrið (= A.1) gengur ekki jafnt upp í hliðum er hægt að fækka um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman þannig að mynstrið haldi fallega áfram í kringum allt fram- og bakstykkið. Prjónið í hring þar til stykkið mælist ca 45-47-49-51-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan – stillið af þannig að síðasta umferðin sé prjónuð án þess að snúið sé í kaðli. Skiptið yfir á hringprjón 2, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 79-85-93-101-111-125-137 lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 332-358-386-414-448-490-530 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 49-51-53-55-57-59-61 cm frá miðju að aftan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl - ATH! Miðja ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur nokkra cm niður á framstykki. Notið hringprjón 3,5 og prjónið upp lykkjur aðeins fast (notið e.t.v. fínni prjón). PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR ÞANNIG: Byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 100-106-112-120-128-136-142 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki. ERMAKÚPA: Til að flíkin passi betur er prjónað A.1 (= tvöfalt perluprjón) með stuttum umferðum fram og til baka yfir ermakúpuna, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi og prjónað er þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 5 lykkjur fram hjá merki fyrir miðju ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 5 lykkjur fram hjá merki fyrir miðju ofan á öxl (þ.e.a.s. prjónaðar eru 10 lykkjur), snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 3-3-3-2-2-2-2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skiptið, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 3-3-3-2-2-2-2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skiptið, snúið stykkinu. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 þar til snúið hefur verið við alls 22-26-28-32-38-44-52 sinnum (= 11-13-14-16-19-22-26 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferð er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er endurtekin, endið umferð með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun á umferð (fyrir miðju undir ermi). Setjið 1 merkiþráð ca fyrir miðju undir ermi, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. ERMIN NIÐUR Á VIÐ: Nú er prjónað í hring í A.1 (= tvöfalt perluprjón) yfir allar lykkjur JAFNFRAMT því sem fækka á lykkjum undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð er fækkað um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 4-5-6-7-8-9-10 sinnum, fækkið síðan um 2 lykkjur með 3-2½-2-2-1½-1-1 cm millibili 12-13-14-16-18-20-21 sinnum = 68-70-72-74-76-78-80 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 49-49-49-49-48-48-48 cm frá miðju ofan á öxl, ermin mælist ca 42-41-40-39-36-34-32 cm frá miðju undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið), JAFNFRAMT sem aukið er út um 28-30-32-32-34-36-36 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 96-100-104-106-110-114-116 maskor. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 53 cm frá miðju ofan á öxl í öllum stærðum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 2. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 138-148-148-158-162-166-176 lykkjur innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið 1 umferð brugðið, prjónið síðan 1 umferð slétt. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) í 3½-3½-4-4-4-4½-4½ cm. Fellið af með picot þannig: * Lyftið næstu lykkju (= slétt lykkja) af vinstri prjóni yfir á hægri prjón án þess að snúa lykkjunni. Leggið þráðinn á milli prjónanna og framan við stykkið, lyftið síðustu 2 lykkjunum á hægri prjóni til baka yfir á vinstri prjón án þess að snúa lykkjunum. Leggið þráðinn framan við og utan um þessar 2 lykkjur og aftur aftan við stykkið. Prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið 1 lykkju (prjónið þessa lykkju slétt eða brugðið = sama og lykkjan sem prjónuð var fyrir neðan). Á hægri prjóni er nú 2. lykkju steypt yfir 1. lykkju * = 1 lykkja færri. Endurtakið frá *-* þar til allar lykkjur hafa verið felldar af. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #willowbreezesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 272-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.