Maija skrifaði:
Huomasin, että koossa 5-6v. on pieni virhe takakappaleen kädenteiden lisäyksissä. Ohjeessa lukee "Neulo kerrokset 1. ja 2. yhteensä 5 kertaa (= 12 neulottua kerrosta)". Pitäisi varmaan olla 10 kerrosta niin kuin pienemmissäkin koissa?
16.10.2026 - 11:59DROPS Design svaraði:
Hei, tämä pitää paikkansa. Ohje on nyt korjattu.
16.10.2026 - 18:08
Jero skrifaði:
Mau coba pattern ini menarik untuk pemula, terimakasih
09.10.2026 - 13:24
Luisa skrifaði:
Secondo me la lana che consigliate ed usando i ferri nr.4 come dite nelle indicazioni, non va bene. Il lavoro viene troppo fisso. Io ho deciso di usare almeno il 4,5...e così però le misure non sono più corrette
26.08.2026 - 14:02DROPS Design svaraði:
Buongiorno Luisa, ha verificato che il suo campione corrispondesse a quello indicato prima di iniziare? Buon lavoro!
31.10.2026 - 15:27
Lucy skrifaði:
I need clarification on the diagrams, the pattern references A. 1, but there is more options and when you knit the diagram, the pattern doesnt match the number of stitches and they do not match the photo of the vest
12.08.2026 - 08:56DROPS Design svaraði:
Dear Lucy, refresh the page you should have now the right diagram visible. Happy knitting!
12.08.2026 - 14:52
Melanie skrifaði:
Why does the diagram show sleeves? It‘s a vest.
11.08.2026 - 13:05DROPS Design svaraði:
Dear Melanie, thanks for noticing, diagram and chart have been fixed. Happy knitting!
11.08.2026 - 16:31
Rose Mist Vest#rosemistvest |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónað vesti fyrir börn úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í með evrópskri öxl / skáhallandi öxl og köðlum. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 50-28 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3: Þegar lykkjur eru auknar jafnt út í skiptinguna yfir í stroff er mikilvægt að auka út þar sem lykkjurnar verða síðar prjónaðar brugðið, sléttprjónuðu lykkjurnar koma þá til með að halda fallega áfram yfir í stroffið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Síðan er prjónað niður að handvegi. Bakstykkið er látið bíða og framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, jafnframt því sem er prjónað er aukið út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukning fyrir hálsmáli er lokið. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Mynstrið er einungis prjónað á framstykki. Framstykkið og bakstykkið er síðan sett á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 25-25-25-27-27-29-29 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Karisma. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 5-6-7-7-8-9-10 sinnum (= 10-12-14-14-16-18-20 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 45-49-53-55-59-65-69 lykkjur í umferð. . Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er stykkið mælt. Prjónið síðan í sléttprjóni með 4 lykkjur í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – lesið leiðbeiningar að ofan. Munið að fylgja prjónfestunni og prjónið þar til stykkið mælist 6-7-7-8-9-10-10 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING HANDVEGUR: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 5 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 5 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 5 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-5-6-6-6-6 sinnum (= 10-10-12-12-12-12-12 prjónaðar umferðir) = 55-59-63-67-71-77-81 lykkjur í umferð. Prjónið síðan eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 10-11-11-12-13-14-14 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi – endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði/hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 10-12-14-14-16-18-20 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 6-8-10-10-12-14-16 lykkjur brugðið. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist ca 6-6-7-7-8-8-9 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Nú á að auka út fyrir hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið brugðið út umferðina, endið með því að fitja upp 1-1-1-1-1-2-2 nýjar lykkjur í umferð. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1-1-1-0-0-0-0 lykkjur brugðið, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið brugðið þar til 1-1-1-0-0-0-0 lykkjur eru eftir, prjónið 1-1-1-0-0-0-0 lykkjur slétt, endið með því að fitja upp 1-1-1-2-2-2-2 nýjar lykkjur í umferð. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt, endið með því að fitja upp 3 nýjar lykkjur í umferð. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið brugðið þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur brugðið, endið með því að fitja upp 3 nýjar lykkjur í umferð = 18-20-22-23-25-28-30 lykkjur. Útaukningu fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 9-9-10-10-11-11-12 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Ca 2 cm af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 10-12-14-14-16-18-20 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið fyrstu umferðina frá röngu þannig: Prjónið 6-8-10-10-12-14-16 lykkjur brugðið, prjónið 4 lykkjur slétt. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 6-6-7-7-8-8-9 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Aukið nú út fyrir hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina, endið með því að fitja upp 1-1-1-1-1-2-2 nýjar lykkjur í umferð. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1-1-1-0-0-0-0 slétt, prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 4 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt þar til 1-1-1-0-0-0-0 lykkjur eru eftir, prjónið 1-1-1-0-0-0-0 lykkjur brugðið, endið með því að fitja upp 1-1-1-2-2-2-2 nýjar lykkjur í umferð. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 4 lykkjur slétt. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, endið með því að fitja upp 3 nýjar lykkjur í umferð. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 4 lykkjur slétt. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið 3 lykkjur slétt, endið með því að fitja upp 3 nýjar lykkjur í umferð. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið 6 lykkjur brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 4 lykkjur slétt = 18-20-22-23-25-28-30 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Klippið ekki þráðinn. Síðan eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er hér að neðan. FRAMSTYKKI (hægri og vinstri hluti sett saman): Prjónið fyrstu umferðina frá réttu þannig: Prjónið 18-20-22-23-25-28-30 lykkjur af hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 13 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið 18-20-22-23-25-28-30 lykkjur af vinstra framstykki eins og áður = 49-53-57-59-63-69-73 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, 6-8-10-11-13-16-18 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 6 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 9 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 6 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 6-8-10-11-13-16-18 lykkjur brugðið og 4 lykkjur í garðaprjóni. Prjónið nú sléttprjón og 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið JAFNFRAMT er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið A.1 yfir miðju 29 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 14-15-17-18-19-20-22 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Aukið nú út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING HANDVEGUR: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 5 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 5 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 5 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 samtals 5-5-5-6-6-6-6 sinnum (= 10-10-10-12-12-12-12 umferðir prjónaðar) = 59-63-67-71-75-81-85 lykkjur í umferð. Prjónið síðan eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 18-19-21-22-23-24-26 cm - endið með umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er hér að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 59-63-67-71-75-81-85 lykkjur af framstykki eins og áður, fitjið upp 12-12-13-13-13-13-13 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið mitt undir ermi), prjónið fyrstu 51-55-59-63-67-73-77 lykkjur af bakstykki eins og áður, setjið 1 merki í umferðina hér (= byrjun umferðar), prjónið síðustu 4 lykkjur af bakstykki slétt, fitjið upp 12-12-13-13-13-13-13 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) = 138-146-156-164-172-184-192 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn og byrjið við merkið sem var sett á undan síðustu sléttu lykkjum á bakstykki (þetta er gert til þess að lykkjur í garðaprjóni haldi fallega áfram á fram- og bakstykki í hliðinni undir handvegi). Prjónið síðan í hring í 2 cm þannig: Prjónið 20-20-21-21-21-21-21 lykkjur í GARÐAPRJÓN - sjá útskýringu að ofan, prjónið 51-55-59-63-67-73-77 lykkjur eins og áður (= framstykki), prjónið 20-20-21-21-21-21-21 lykkjur garðaprjón, prjónið 47-51-55-59-63-69-73 lykkjur slétt (= bakstykki). Prjónið síðan sléttprjón og A.1 eins og áður (þ.e.a.s. það er ekki lengur garðaprjón í hliðum). Prjónið þar til stykkið mælist 29-30-33-36-36-40-46 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út 24-26-26-26-28-34-36 lykkjur jafnt yfir í 1. umferð (ekki auka út yfir A.1) – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 = 162-172-182-190-200-218-228 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Vestið mælist 32-33-36-39-40-44-50 cm frá miðju að aftan og ca 34-35-38-41-42-46-52 cm frá efst á öxl. HÁLSMÁL: Notið hringprjón 3. Byrjið frá réttu við aðra af skásettu axlalínunum á bakstykkinu og prjónið upp ca 74-74-76-80-84-88-92 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju - fjöldi lykkja verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff í hring (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) í 2½-2½-2½-3-3-3-3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rosemistvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 50-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.