Bente skrifaði:
Hej Når i skriver i forklaringen under raglan : ALLE udtagninger foretages på forstykket og bagstykket....hvordan kan det så være at når man skal dele op efter bærestykket så er ærme masketallet pludselig blevet 20 masker større? Vh Bente Michaelsen
04.08.2026 - 19:33DROPS Design svaraði:
Hej Bente, ja du tager fra de udtagne masker fra for og bagstykke til hvert ærme :)
13.08.2026 - 07:24
Bente skrifaði:
Hej I skal skrive hvor bred halskanten skal være Vh Bente Michaelsen
02.08.2026 - 12:24
Bente skrifaði:
Hej I skal skrive efter maske opslag at man skal strikke rib med 2 ret og 1 vrang . Det er forvirrende at man skal lede i opskriften efter den oplysning Vh Bente Michaelsen
02.08.2026 - 12:02
Nienke skrifaði:
Moet je de opgehaalde steken midden onder de mouw steeds recht gebreid worden ipv boordsteek? Dus over de hele lengte van de mouw?
13.07.2026 - 20:02DROPS Design svaraði:
Dag Nienke,
Op de mouwe brei je deze in boordsteek net als de rest van de mouw en op het pand brei je deze in tricotsteek.
14.07.2026 - 20:51
Ulla Jørgensen skrifaði:
Flot sommerbluse i størrelse medium
06.07.2026 - 09:58
Iris skrifaði:
Hello, when I’m increasing for the rib at the end of the body, what increase technique should be used?
28.06.2026 - 06:10DROPS Design svaraði:
Dear Iris, you can increase with yarn overs, which are worked twisted in the next round to avoid getting a hole. Happy knitting!
29.06.2026 - 01:01
JEANNE skrifaði:
Merci pour votre réponse mais comme je vous ai dit j'ai fini le pull et le col est 3 fois trop large J'ai tricoté avec les aiguilles 3 et 4 comme indiqué mais avec une laine 50% coton à tricoter en 4 ou 5 . Pensez vous que je puisse diminuer le nombre de mailles de départ ?
26.06.2026 - 18:29DROPS Design svaraði:
Bonjour Jeanne, si vous n'avez pas l'échantillon de base de 21 m x 28 rangs, il est possible alors que vos mesures ne soient pas justes, vous pouvez effectivement tout recalculer en fonction de votre propre échantillon ou bien rechercher un autre modèle qui correspondra davantage à votre tension. Bon tricot!
29.06.2026 - 07:10
JEANNE skrifaði:
Bonjour, je viens de finir le pull en taille S, l’encolure est gigantesque et pourtant j'ai respecté les données. Comment est ce possible. Vous êtes sûre qu'il faut 132 mailles pour l’encolure? Merci pour votre réponse
26.06.2026 - 15:33DROPS Design svaraði:
Bonjour Jeanne, tout à fait, avez vous bien la bonne tension, soit 21 m = 10 cm avec les aiguilles 4? Quand on tricote le col en côtes 2 m end, 1 m env (manches) ou en côtes 2/2 (dos et devant) les côtes vont resserrer l'ouvrage et vous devriez ensuite avoir les bonnes mesures, juste comme indiqué dans le schéma. Bon tricot!
26.06.2026 - 16:20
Sharon Hunt-Edwards skrifaði:
Quick 🙋🏾♀️ when working raglan increases do I work increases right after slipping markers or do I knit across previous increase sts then work successive increases. Thanks s always.
05.06.2026 - 21:05DROPS Design svaraði:
Dear Sharon, in the raglan increases you only increase on the back piece and front piece, so they are worked: after marker-2, before marker-3, after marker-4, before marker-1. The increases will always be worked right next to the markers, so you will work normally over the previously increased stitches. Happy knitting!
08.06.2026 - 02:18
Sharon Hunt-Edwards skrifaði:
Another 🙋🏻♀️ where the pattern says: Work 1 round with knit above knit and purl above purl. Do I work this just on the sleeves and knit all sts on the front including the two PS on either side of the front. Never worked inc in PS in the row below. Does not look nice to me. Tinking back until I get a response. Thank uou
31.05.2026 - 14:50DROPS Design svaraði:
Hi Sharon, Yes, the rib is only on the sleeves. The front and back pieces are stocking stitch. If you click on "Videos" at the top of the page, there is a video showing you how to increase purled stitches. Regards, Drops Team.
01.06.2026 - 06:22
Almond Petal Top#almondpetaltop |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður toppur / stuttermabolur / t-shirt úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og stuttum ermum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-8 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð á framstykki og bakstykki, fjöldi lykkja á ermum verður óbreyttur. ATH: Í byrjun á umferð er aukið út á eftir 2. merki og í lok umferðar er aukið út á undan 1. merki. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir að merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur (merkiþráðurinn situr fyrir miðju í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um ermi): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir að merki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 132-132-138-138-150-150-162 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Cotton Light. Prjónið 1 umferð slétt. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Í næstu umferð er prjónað stroff jafnframt því sem merki eru sett í stykkið sem eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu síðar – látið þessi merki fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið þannig: ERMI: Setjið 1. merki í byrjun umferðar, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið og 2 lykkjur slétt) yfir næstu 39-39-42-42-48-48-54 lykkjur og prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 2. merki hér. FRAMSTYKKI: Prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt) yfir næstu 20 lykkjur og prjónið 2 lykkjur brugðið. ERMI: Setjið 3. merki hér, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið og 2 lykkjur slétt) yfir næstu 39-39-42-42-48-48-54 lykkjur og prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 4. merki hér. BAKSTYKKI: Prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt) yfir síðustu 20 lykkjur og prjónið 2 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram í stroffprjóni þar til kantur í hálsmáli mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm. BERUSTYKKI: Setjið 1 merki á eftir fyrstu 55-55-58-58-64-64-70 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur fram að 2. merki og aukið jafnframt út um 1 lykkju í hverri brugðnu einingu – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (= ermi), prjónið sléttprjón upp að 3. merki (= framstykki), sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur fram að 4. merki og aukið jafnframt út um 1 lykkju í hverri brugðnu einingu (= ermi) og prjónið sléttprjón út umferðina (= bakstykki) = 160-160-168-168-184-184-200 lykkjur. Það eru 58-58-62-62-70-70-78 lykkjur á milli merkja á hvorri ermi og 22 lykkjur á framstykki/bakstykki. Prjónið 1 umferð með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Haldið nú áfram í sléttprjóni á framstykki/bakstykki og stroff (= 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt) yfir ermar eins og áður, jafnframt því að auka út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið stroff að 2. merki, AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI, prjónið sléttprjón fram að 3. merki, AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI, prjónið stroff fram að 4. merki, AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI, prjónið sléttprjón að 1. merki, AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI. 4 lykkjur hafa verið auknar út. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið eins og UMFERÐ 1 alls 19-25-29-26-36-40-48 sinnum = 236-260-284-272-328-344-392 lykkjur. Aukið nú út í annarri hverri umferð þannig: UMFERÐ 1: Prjónið stroff og sléttprjón eins og áður – engar lykkjur eru auknar út. UMFERÐ 2: Prjónið stroff að 2. merki, AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI, prjónið sléttprjón að 3. merki, AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI, prjónið stroff að 4. merki, AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI, prjónið sléttprjón að 1. merki, AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI. 4 lykkjur hafa verið auknar út. Prjónið eins og UMFERÐ 1 og 2 alls 9-6-5-9-4-4-1 sinnum = 272-284-304-308-344-360-396 lykkjur. Aukið hefur verið út alls 28-31-34-35-40-44-49 sinnum fyrir laskalínu við hvert merki, stykkið mælist ca 14-14-14-16-16-18-18 cm frá merki við miðju að framan. Skiptið nú berustykkinu í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= tilheyrir bakstykki), setjið næstu 54-54-58-58-66-66-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-16-18-22-24 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 82-88-94-96-106-114-124 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 54-54-58-58-66-66-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-16-18-22-24 nýjar lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 80-86-92-94-104-112-122 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 176-192-208-224-248-272-296 lykkjur. Setjið einn merkiþráð fyrir miðju í 6-8-10-16-18-22-24 nýjar lykkjur sem voru fitjaðar upp í hvorri hlið – notið merkiþræðina þegar lykkjum er fækkað/aukið út síðar – látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu. Prjónið í hring í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvorn merkiþráð – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 í útskýringu að ofan. Endurtakið úrtöku með ca. 2½-3-3-3-3-3-3 cm millibili alls 4 sinnum = 160-176-192-208-232-256-280 lykkjur. Þegar stykkið mælist 12-14-14-14-14-14-14 cm frá skiptingunni, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvorn merkiþráð – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukninguna með ca. 2½-3-3-3-3-3-3 cm millibili alls 4 sinnum = 176-192-208-224-248-272-296 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 22-25-27-27-26-26-27 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) jafnframt sem aukið er út um 36-40-44-44-48-56-60 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 212-232-252-268-296-328-356 lykkjur. Prjónið þar til stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 40-43-44-46-47-49-49 cm frá merki við miðju að framan og ca 49-52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMAR: Setjið 54-54-58-58-66-66-74 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á hringprjón 4, prjónið einnig upp 6-8-10-16-18-22-24 lykkjur í lykkjurnar sem fitjaðar voru upp í hliðinni undir erminni = 60-62-68-74-84-88-98 lykkjur. Setjið eitt merki mitt í nýjar lykkjur, merkið er notað þegar fækka á lykkjum síðar. Nú er prjónað stroff eins og áður, en skiljið eftir 6-8-10-8-10-6-8 lykkjur í sléttprjóni mitt undir erminni. Byrjið umferðina við merkið. Prjónið þar til ermin mælist ca 1 cm frá skiptingunni. Nú er fækkað um 2 lykkjur fyrir miðju undir erminni í hvorri hlið - sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með ca 1-3-3-3-3-0-0 cm millibili alls 3-2-3-2-2-1-1 sinnum = 54-58-62-70-80-86-96 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 6-7-9-9-9-9-10 cm frá skiptingunni. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #almondpetaltop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.