Marie skrifaði:
Er første pind i diagrammet strikket fra vrangsiden?
26.04.2026 - 01:06DROPS Design svaraði:
Hei Marie. Oppskriften er oversendt til Design avd for en dobbeltsjekk, men ville kanskje ha strikket en pinne fra vrangen der man strikker som 1. pinne på diagrammet (men som ikke er tegnet inn i diagrammet). Og når det skal strikkes fra retten igjen, da strikker man 1. pinne i diagrammet. Man vil da når 3. pinne i diagrammet strikke fra retten. mvh DROPS Design
27.04.2026 - 12:18
Sara skrifaði:
Jeg er i gang med højre skulder bagstykke, og jeg ved ikke, hvor masken på slutningen af vrang-pinden skal slås op? Er det efter I-cord maskerne?
20.04.2026 - 15:52DROPS Design svaraði:
Hej Sara, de 7 kantmasker strikkes ud mod ærmekanten, den masker du slår op efter 3 cm, slår du op når du har strikket alle masker fra vrangen, så bliver den nye maske ind mod halsen :)
21.04.2026 - 11:54
Summer Fan Top#summerfantop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með öldumynstri og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-14 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. 7 KANTLYKKJUR MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Aukið er út hvoru megin við merki í hvorir hlið (= alls 4 lykkjur fleiri) þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkið situr fyrir miðju í þessum 4 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna ofan frá og niður. Framstykkið og bakstykkið er prjónað hvort fyrir sig niður að handvegi, síðan eru stykkin sett saman fyrir fram- og bakstykki. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka í hring á hringprjóna. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli í hring. HÆGRI ÖXL BAKSTYKKI: Fitjið upp 20-22-23-23-25-25-26 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Belle. Prjónið þannig – frá réttu: 13-15-16-16-18-18-19 lykkjur sléttprjón, 7 KANTLYKKJUR MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 3 cm, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar frá röngu, prjónið 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu eins og áður, leggið stykkið til hliðar = 21-23-24-24-26-26-27 lykkjur. VINSTRI ÖXL BAKSTYKKI: Fitjið upp 20-22-23-23-25-25-26 lykkjur á hringprjón 4. Prjónið þannig – frá réttu: 7 kantlykkjur með i-cord, prjónið 13-15-16-16-18-18-19 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 3 cm, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar frá réttu, prjónið 1 umferð brugðið til baka. Nú á að prjóna axlirnar saman eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Nú eru stykkin sett saman frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir 21-23-24-24-26-26-27 lykkjur frá vinstri öxl, fitjið upp 31-31-31-33-33-35-35 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið eins og áður yfir 21-23-24-24-26-26-27 lykkjur frá hægri öxl = 73-77-79-81-85-87-89 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni og 7 kantlykkjur með i-cord í hvorri hlið. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar stykkið mælist 15-15-15-13-13-12-10 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, aukið út fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu, lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 9 lykkjurnar, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður þar til 9 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið eins og áður yfir síðustu 9 lykkjurnar (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð alls 4-5-7-9-12-16-20 sinnum (= 8-10-14-18-24-32-40 umferðir prjónaðar) = 81-87-93-99-109-119-129 lykkjur. Síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Stykkið mælist ca 18-19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Leggið stykkið til hliðar og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL FRAMSTYKKI: Fitjið upp 20-22-23-23-25-25-26 lykkjur á hringprjón 4. Prjónið þannig – frá réttu: 13-15-16-16-18-18-19 lykkjur sléttprjón, 7 kantlykkjur með i-cord. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 5-5-6-6-6-6-6 cm, byrjar útaukning fyrir hálsmáli. Fitjið upp 3 lykkjur í byrjun umferðar þannig: Prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina eins og áður. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5 sinnum (= 10 umferðir prjónaðar) = 25-27-28-28-30-30-31 lykkjur. Endið með umferð frá röngu og leggið stykkið til hliðar. HÆGRI ÖXL FRAMSTYKKI: Fitjið upp 20-22-23-23-25-25-26 lykkjur á hringprjón 4. Prjónið þannig – frá réttu: 7 kantlykkjur með i-cord, prjónið 13-15-16-16-18-18-19 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 5-5-6-6-6-6-6 cm, byrjar útaukning fyrir hálsmáli. Fitjið upp 3 lykkjur í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5 sinnum (= 10 umferðir prjónaðar) = 25-27-28-28-30-30-31 lykkjur. Endið með umferð frá röngu. Nú á að prjóna axlirnar saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Nú eru stykkin sett saman frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir 25-27-28-28-30-30-31 lykkjur frá hægri öxl, fitjið upp 23-23-23-25-25-27-27 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið eins og áður yfir 25-27-28-28-30-30-31 lykkjur frá vinstri öxl = 73-77-79-81-85-87-89 lykkjur. Prjónið síðan mynstur þannig: 7 kantlykkjur eins og áður, 19-21-22-23-25-26-27 lykkjur sléttprjón, A.1 (byrjið í 2. umferð í mynsturteikningu), 19-21-22-23-25-26-27 lykkjur sléttprjón, 7 kantlykkjur eins og áður. Þegar stykkið mælist 15-15-15-13-13-12-10 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, aukið út fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu, lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 9 lykkjurnar, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður þar til 9 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið eins og áður yfir síðustu 9 lykkjurnar (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð alls 4-5-7-9-12-16-20 sinnum (= 8-10-14-18-24-32-40 umferðir prjónaðar) = 81-87-93-99-109-119-129 lykkjur. Síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Stykkið mælist ca 18-19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Framstykkið og bakstykkið er nú sett saman. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið yfir framstykki eins og áður, fitjið upp 6-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið yfir bakstykkið frá réttu eins og áður, fitjið upp 6-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi) = 174-190-206-222-246-270-294 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið síðan sléttprjón og mynstur, en yfir miðju 20-22-24-26-28-30-32 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar 4 umferðir GARÐAPRJÓN (prjónað í hring) – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið síðan sléttprjón yfir þessar lykkjur. A.1 heldur áfram eins og áður við miðju að framan. Setjið 1 merki í hvora hlið, fyrir miðju í nýjar 6-8-10-12-14-16-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp. Þegar stykkið mælist 10 cm frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp, aukið út í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 2½a cm millibili alls 5 sinnum = 194-210-226-242-266-290-314 lykkjur. Prjónið þar til fram- og bakstykkið mælist 23-24-25-26-26-27-28 cm frá miðju undir ermi, síðasta umferðin á að vera síðasta umferðin í A.1. Nú á að prjóna stroff, skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) – í fyrstu umferð í stroffi er aukið út um 18-22-22-22-26-30-30 lykkjur jafnt yfir = 212-232-248-264-292-320-344 lykkjur. Fellið af þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm. Toppurinn mælist ca 44-46-48-50-52-54-56 cm frá öxl. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við annan axlasauminn og prjónið upp ca 96 til 108 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 2 cm, prjónið 3 umferðir slétt (= rúllukantur). Fellið af með sléttum lykkjum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerfantop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.