Spring Rings Cardi#springringscardi |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri í röndum á berustykki. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-31 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 6 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 6 lykkjur): Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8-8½-9-7½-8-8 cm á milli hverra hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. UPPHÆKKUN: Til að gera peysuna aðeins hærri aftan í hnakkanum þegar prjónað er í kringum berustykkið, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er hér að neðan. Sleppið þessum kafla ef þið viljið ekki upphækkun. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (= miðja að aftan), lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN og prjónið næstu 6 umferðir fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til prjónaðar hafa verið 13-14-15-16-17-18-19 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði fyrir miðju að aftan, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga):Prjónið 26-28-30-32-34-36-38 lykkjur brugðið, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 39-42-45-48-51-54-57 lykkjur slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 52-56-60-64-68-72-76 lykkjur brugðið, snúið stykkinu. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 65-70-75-80-85-90-95 lykkjur slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið 78-84-90-96-102-108-114 lykkjur brugðið, snúið stykkinu. Prjónið slétt út umferðina (kantur að framan er prjónaður eins og áður), snúið stykkinu og prjónið 1 umferð brugðið (kantur að framan er prjónaður eins og áður). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er í mynstri. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 138 lykkjur), mínus 20 kantlykkjur í hvorri hlið (þar sem ekki er aukið út yfir ystu 20 lykkjur í hvorri hlið) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 9,8. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 10. hverja lykkju (lykkjum er ekki aukið út yfir ystu 20 lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan, þetta er mikilvægt til að halda miðju að framan sem ein bein lína þegar hringlaga berustykkið er prjónað). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 10 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun að aftan. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 138-142-146-154-158-166-174 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Nord. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 6 KANTLYKKJUR MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið), þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 6 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 2-2-2½-2½-3-3-3 cm. Setjið 1 merki að innanverðu í kant að framan í aðra hlið á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 3 og prjónið 1 umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 126-130-134-142-146-154-162 lykkjur sléttprjón samtímis sem aukið er út um 10-10-12-12-14-14-16 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið kant að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan = = 148-152-158-166-172-180-190 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með kant að framan eins og áður. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – lesið útskýringu að ofan, prjónið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, prjónið eins og útskýrt er að neðan. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. Munið að fylgja prjónfestunni. JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 á að auka út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (lykkjur eru ekki auknar út yfir ystu 20 lykkjurnar í hvorri hlið): Ör-1: Aukið út um 26-30-32-36-38-38-40 lykkjur jafnt yfir = 174-182-190-202-210-218-230 lykkjur. Ör-2: Aukið út um 36-40-44-50-54-52-56 lykkjur jafnt yfir = 210-222-234-252-264-270-286 lykkjur. Ör-3: Aukið út um 36-40-44-50-56-52-56 lykkjur jafnt yfir = 246-262-278-302-320-322-342 lykkjur. Ör-4: Aukið út um 36-40-44-50-56-52-56 lykkjur jafnt yfir = 282-302-322-352-376-374-398 lykkjur. Ör-5: Aukið út um 36-40-44-50-56-52-56 lykkjur jafnt út = 318-342-366-402-432-426-454 lykkjur. Ör-6: Aukið út um 0-0-0-0-0-52-56 lykkjur jafnt út = 318-342-366-402-432-478-510 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist berustykkið ca 13-13-13-16-16-19-19 cm frá merki. Prjónið síðan sléttprjón og kant að framan. Þegar berustykkið mælist 15-15-16-18-18-21-22 cm frá merki, aukið út um 38-42-42-50-56-54-54 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 = 356-384-408-452-488-532-564 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 18-18-19-20-21-23-25 cm frá merki við miðju að framan, skiptist stykkið í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 54-59-63-69-74-82-89 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 76-80-84-94-102-108-110 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 96-106-114-126-136-152-166 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 76-80-84-94-102-108-110 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 54-59-63-69-74-82-89 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 220-240-260-284-308-340-372 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, fyrir miðju í 8-8-10-10-12-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið fram og til baka frá miðju að framan yfir allar lykkjur í sléttprjóni og kanta að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist 6-6-6-6-8-8-8 cm frá skiptingunni, aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6-6-6-6-8-8-8 cm millibili alls 3-3-3-3-4-4-4 sinnum = 232-252-272-296-324-356-388 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 39-41-43-44-45-47-49 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 14-14-18-18-22-22-26 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 246-266-290-314-346-378-414 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist 41-43-45-46-48-50-52 cm frá merki við miðju að framan og ca 46-48-50-52-54-56-58 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 76-80-84-94-102-108-110 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 84-88-94-104-114-120-124 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-8-10-10-12-12-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2-2-2-2-2-1-0 sinnum með 3-3-3-3-3-2-0 cm millibili = 80-84-90-100-110-118-124 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 7-7-7-7-6-4-2 cm frá skiptingunn. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur í garðaprjóni) JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-4-6-4-6-6-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 84-88-96-104-116-124-132 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 9-9-9-9-9-7-5 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springringscardi eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.