Rose Blossom Cardi#roseblossomcardi |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og stuttum ermum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-20 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. PERLUPRJÓN: FRÁ RÉTTU: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. FRÁ RÖNGU: Prjónið brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið umferð 2. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJUM (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Á EFTIR LASKALYKKJUM (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 8-8-7½-8-7-7-7½ cm á milli hverra hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Berustykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka á hringprjóna. Mynstur er prjónað og aukið er út fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 128-128-132-132-144-144-144 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Muskat. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan með KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD og PERLUPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3-4-4-4-4 cm, endið með umferð frá réttu. Prjónið 1 umferð brugðið þar sem merki eru sett í stykkið og aukið er út jafnt yfir þannig: FRAMSTYKKI: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið yfir næstu 16-16-16-16-20-20-20 lykkjur og aukið út 1-2-3-3-0-0-1 lykkjur jafnt yfir (= 24-25-26-26-27-27-28 lykkjur á framstykki) prjónið 2 lykkjur brugðið og setjið 1 merki á milli þessa 2 lykkja (= laskalykkjur). ERMI: Prjónið brugðið yfir næstu 22 lykkjur og aukið út 1 lykkju = 23 lykkjur á ermi. BAKSTYKKI: Prjónið 2 lykkjur brugðið og setjið 1 merki á milli þessa 2 lykkja (= laskalykkjur), prjónið brugðið yfir næstu 30-30-34-34-38-38-38 lykkjur og aukið út 3-5-3-3-1-1-3 lykkjur jafnt yfir (= 33-35-37-37-39-39-41 lykkjur á bakstykki), prjónið 2 lykkjur brugðið og setjið 1 merki á milli þessa 2 lykkja (= laskalykkjur). ERMI: Prjónið brugðið yfir næstu 22 lykkjur og aukið út 1 lykkju = 23 lykkjur á ermi. FRAMSTYKKI: Prjónið 2 lykkjur brugðið og setjið 1 merki á milli þessa 2 lykkja (= laskalykkjur), prjónið brugðið yfir næstu 16-16-16-16-20-20-20 lykkjur og aukið út 1-2-3-3-0-0-1 lykkjur jafnt yfir, prjónið kant að framan (= 24-25-26-26-27-27-28 lykkjur á framstykki). Það eru alls 135-139-143-143-147-147-151 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki að innanverðu í kant að framan í aðra hliðina á stykki (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú er prjónað mynstur eins og útskýrt er að neðan og auka á út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan um hvernig auka á út. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið mynstur og aukið út fyrir laskalínu samtímis, lestu því næstu tvo kafla (MYNSTUR og LASKALÍNA) áður en þú prjónar áfram. MYNSTUR: VINSTRA FRAMSTYKKI: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, A.1, 2-3-4-4-2-2-3 lykkjur sléttprjón, A.2 er prjónað 0-0-0-0-1-1-1 sinnum, A.3, 2 lykkjur slétt (= laskalykkjur), ERMI: A.4, A.5, A.3 BAKSTYKKI: 2 lykkjur slétt (= laskalykkjur), A.4. A.6 er prjónað 0-0-0-0-1-1-1 sinnum, 2-3-4-4-2-2-3 lykkjur sléttprjón, A.7, 2-3-4-4-2-2-3 lykkjur sléttprjón, A.2 er prjónað 0-0-0-0-1-1-1 sinnum, A.3, 2 lykkjur slétt (= laskalykkjur). ERMI: A.4, A.5, A.3 HÆGRA FRAMSTYKKI: 2 lykkjur slétt (= laskalykkjur), A.4, A.6 er prjónað 0-0-0-0-1-1-1 sinnum, A.8, 2-3-4-4-2-2-3 lykkjur sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan eins og áður (= framstykki). ATH! A.3 og A.4 sýnir mynsturteikningu þegar aukið er út í annarri hverri umferð. Á ermum er aukið út á eftir 4. hverja umferð, nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. LASKALÍNA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið mynstur eins og útskýrt er að ofan, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur (munið að uppslátturinn í laskaútaukningunni er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-9-11-9-12-10-8 sinnum (= 10-18-22-18-24-20-16 umferðir prjónaðar) = 175-211-231-215-243-227-215 lykkjur í umferð og skiptingin er þannig: 29-34-37-35-39-37-36 lykkjur á hvoru framstykki, 33-41-45-41-47-43-39 lykkjur á hvorri ermi, 43-53-59-55-63-59-57 lykkjur á bakstykki og 8 laskalykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið mynstur og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur og kanta að framan eins og áður (munið að uppslátturinn í laskaútaukningunni er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið mynstur og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykkjum og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á undan 1. og 3. merki og eftir 2. og 4. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið mynstur og kanta að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 12-11-11-14-14-18-21 sinnum (= 48-44-44-56-56-72-84 umferðir prjónaðar = 12-11-11-14-14-18-21 sinnum aukið út á ermum og 24-22-22-28-28-36-42 sinnum aukið út á framstykkjum/bakstykki). Öll útaukning fyrir laskalínu eru nú lokið, aukið hefur verið út alls 29-31-33-37-40-46-50 sinnum á framstykkjum/bakstykki og alls 17-20-22-23-26-28-29 sinnum á ermum. Það eru 319-343-363-383-411-443-467 lykkjur í umferð og lykkjuskiptingin er sem hér segir: 53-56-59-63-67-73-78 lykkjur á hvoru framstykki, 57-63-67-69-75-79-81 lykkjur á hvorri ermi, 91-97-103-111-119-131-141 lykkjur á bakstykki og 8 laskalykkjur. Prjónið mynstur eins og áður án útaukningar þar til stykkið mælist 21-23-24-27-29-33-36 cm frá merki við miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið frá réttu þannig: Prjónið kant að framan og mynstur eins og áður yfir fyrstu 54-57-60-64-68-74-79 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið næstu 59-65-69-71-77-81-83 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 93-99-105-113-121-133-143 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 59-65-69-71-77-81-83 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið mynstur og kant að framan eins og áður yfir næstu 54-56-63-67-69-77-80 lykkjur (= hægra framstykki), endið með 7 kantlykkjur að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 217-233-249-269-289-313-337 lykkjur. Haldið áfram með kanta að framan og mynstur eins og áður. Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hlið undir ermum, en prjónið mynstrið þannig að það haldi áfram yfir mynstur frá berustykki og eins langt og hægt er inn að hlið við miðju undir ermar. Prjónið þar til stykkið mælist 41-43-45-47-48-50-52 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 15-19-23-19-23-27-31 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 232-252-272-288-312-340-368 lykkjur, prjónað er þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 45-47-49-51-53-55-57 cm frá merki við miðju að framan og ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 59-65-69-71-77-81-83 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-75-81-85-93-97-101 lykkjur. Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hliðum undir ermum, en prjónið mynstrið þannig að það haldi áfram yfir mynstur frá berustykki og eins langt og hægt er að hlið fyrir miðju undir ermi. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-10-12-14-16-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið mynstur sem þegar er byrjað, jafnframt í umferð 1 eftir skiptingu er lykkjum fækkað undir ermi, endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 3 cm – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 63-71-77-81-89-93-97 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 17-17-17-16-14-12-11 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 9-9-7-7-7-11-11 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 72-80-84-88-96-104-108 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #roseblossomcardi eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.