Tea Time Lace Cardi#teatimelacecardi |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri, i-cord og stuttum ermum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-9 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 6½-7-7½-6½-6½-7-7 cm á milli hverra hnappagata. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Laskalykkjan er prjónuð í sléttprjóni. Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið frá röngu – svo það myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í sléttprjón á framstykkjum/bakstykki og inn í mynstur á ermum. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 109-115-117-123-131-133-139 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Muskat. Prjónið fyrstu umferðina þannig frá röngu: 7 kantlykkjur að framan MEÐ I-CORD – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðin / 1 lykkja slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja brugðið og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið áfram með stroff svona í 2-2-2½-2½-3-3-3 cm og endið eftir umferð frá röngu. Snúið stykkinu við. Setjið 1 merki innan í kantinn að framan í annarri hlið stykkisins (= miðja að framan), stykkið á að vera mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru settir 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í slétta lykkju frá stroffi (séð frá réttu), þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni (slétt frá réttu og brugðið frá röngu). Teljið 19-21-21-23-25-25-27 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 21 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 25-27-29-31-35-37-39 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 21 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Það eru 19-21-21-23-25-25-27 lykkjur eftir á prjóni (= hægra framstykki). Prjónið síðan á hringprjón 4 mm, prjónið fram og til baka með kanti að framan eins og áður, sléttprjón á framstykkjum/bakstykki og mynstur A.1, A.2 og A.3 á ermum jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – sjá útskýringu að ofan á hvernig á að auka út. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu), aukið út hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina er pláss fyrir 1 mynstureiningu í viðbót af A.2 á milli A.1 og A.3 á hvorri ermi. Munið að fylgja prjónfestunni. Haldið áfram að auka út fyrir laskalínu þar til aukið hefur verið út alls 16-20-20-24-28-28-32 sinnum (mynsturteikningin hefur verið prjónuð alls 4-5-5-6-7-7-8 sinnum á hæðina) = 237-275-277-315-355-357-395 lykkjur. Lykkjurnar skiptast þannig: 53-61-61-69-77-77-85 lykkjur fyrir hvora ermi, 36-42-42-48-54-54-60 lykkjur á hvoru framstykki og 59-69-71-81-93-95-105 lykkjur á bakstykki (laskalykkjurnar eru taldar með á framstykkjum/bakstykki). Útaukning fyrir ermar er nú lokið í öllum stærðum, útaukning á fram- og bakstykki heldur áfram og síðan er mynstrið á ermum prjónað þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, sléttprjón yfir framstykkið, aukið út fyrir laskalínu á undan laskalykkju og prjónið laskalykkju í sléttprjóni, A.4 yfir 7 lykkjur, A.2 yfir næstu 40-48-48-56-64-64-72 lykkjur (= 5-6-6-7-8-8-9 sinnum á breidd), A.5 yfir 6 lykkjur, prjónið laskalykkju í sléttprjóni, aukið út fyrir laskalínu eftir laskalykkju, prjónið sléttprjón yfir bakstykki, aukið út fyrir laskalínu á undan laskalykkju og prjónið laskalykkju í sléttprjóni, prjónið A.4 yfir 7 lykkjur, A.2 yfir næstu 40-48-48-56-64-64-72 lykkjur (= 5-6-6-7-8-8-9 sinnum á breidd), prjónið laskalykkju í sléttprjóni, aukið út fyrir laskalínu á eftir laskalykkju, prjónið sléttprjón yfir framstykki og prjónið kant að framan eins og áður (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Aukið svona út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út 7-6-8-6-5-9-9 sinnum til viðbótar (= alls 23-26-28-30-33-37-41 sinnum á framstykkjum/bakstykki). Það eru 265-299-309-339-375-393-431 lykkjur í umferð. Lykkjurnar skiptast niður þannig: 53-61-61-69-77-77-85 lykkjur fyrir hvora ermi, 43-48-50-54-59-63-69 lykkjur á hvoru framstykki og 73-81-87-93-103-113-123 lykkjur á bakstykki (laskalykkjurnar eru taldar með á framstykkjum/bakstykki). Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka á stykkið að mælast ca 16-18-20-21-23-26-29 cm. Prjónið síðan í sléttprjóni og mynstri án þess að auka út þar til stykkið mælist 19-19-20-21-24-26-29 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Athugið í hvaða umferð í mynsturteikningu sem var síðasta umferð á ermum, þá er auðveldara að prjóna ermin áfram síðar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að teygja sig aðeins yfir á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 36-41-43-47-52-56-62 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 53-61-61-69-77-77-85 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 73-81-87-93-103-113-123 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 53-61-61-69-77-77-85 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið 36-41-43-47-52-56-62 lykkjur sléttprjón og endið með kant að framan eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 175-193-207-225-249-271-297 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-10-12-14-16-18 lykkjurnar sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið fram og til baka frá miðju að framan þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merkiþræðinum, prjónið A.6, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði fyrir miðju undir hinni erminni, prjónið A.6, prjónið sléttprjón þar til 7 lykkjur eru eftir og prjónið kant að framan eins og áður. Haldið svona áfram fram og til baka, þegar stykkið mælist ca 3 cm frá skiptingunni, prjónið A.7 yfir A.6 (= 2 lykkjur fleiri í hvorri hlið). Haldið síðan áfram með A.6 og endurtakið A.7 (= útaukning) í ca 3-3-3-4-4-4-4-4 hvert skipti sem mynsturteikningin er prjónuð á hæðina þar til A.7 hefur verið prjónað alls 4 sinnum í hvorri hlið = 191-209-223-241-265-287-313 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón, A.6 og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 40-43-45-47-48-50-52 cm frá merki við miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu, byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 16-16-22-22-26-26-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 207-225-245-263-291-313-341 lykkjur, prjónið þannig: Skipið yfir í hringprjón 3 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið - munið eftir útaukningunni) þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 42-45-47-49-51-53-55 cm frá merki við miðju að framan og ca 47-50-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 53-61-61-69-77-77-85 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 61-69-71-81-91-93-103 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. ATH! Passið uppá að mynstrið byrji í réttri umferð þegar prjónað er áfram. Prjónið 4-4-5-6-7-8-9 lykkjur sléttprjón, A.4 yfir 7 lykkjur, A.2 yfir næstu 40-48-48-56-64-64-72 lykkjur (= 5-6-6-7-8-8-9 sinnum á breidd), A.5 yfir 6 lykkjur og prjónið 4-4-5-6-7-8-9 lykkjur í sléttprjóni – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 1-3-2-2-3-1-2 sinnum í annarri hverri umferð = 59-63-67-77-85-91-99 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 19-19-19-18-14-13-10 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 5-5-7-7-7-9-9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 64-68-74-84-92-100-108 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 21-21-21-20-17-16-13 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #teatimelacecardi eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.