Miekebaras skrifaði:
Kan je deze trui breien zonder kid silk en enkel sky?
22.04.2026 - 15:27
Elvira skrifaði:
Ich habe eine Frage,ich habe das Bündchen gestrickt, 4 Maschen abgenommen. Ich habe ein Problem mit Vorder-und Rückenteil. Bei 12 Arme 36 Vorder und Rückenteil +12 komme ich auf 96 Maschen.Ich habe aber 100 Maschen. Manche ich etwas falsch?
19.04.2026 - 16:03DROPS Design svaraði:
Liebe Elvira, beachten Sie, daß die Markierungen für Raglan je in einer Masche (und nicht zwischen Maschen) angebracht sind, so haben Sie: 1+12+1+36+1+12+1+36=100 Maschen. Viel Spaß beim Stricken!
20.04.2026 - 10:38
Ivy skrifaði:
I think you got the wrong order of cast on stitches under arm ất diving for sleeve and body part.
11.04.2026 - 19:23DROPS Design svaraði:
Dear Ivy, the first size is missing when dividing, you should cast on 4-16-4-10-16-16-22 stitches under each sleeve, thanks for noticing, a correction will be made. Happy knitting!
13.04.2026 - 09:13
Lorna Nairi skrifaði:
Does the pattern come in English?
17.03.2026 - 22:26DROPS Design svaraði:
Hi Lorna, Yes. If you click on the language box (where it says "Norsk", to the right of the main photo, you can choose your language in the drop-down menu. Regards, Drops Team.
18.03.2026 - 06:36
Bente skrifaði:
Ønsker å strikke denne med bomull/ lin kvalitet. Hva kan dere anbefale?
11.03.2026 - 14:47
Perfectly Bee Sweater#perfectlybeesweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og býkúpumynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-3 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Samtímis sem lykkjur eru auknar út fyrir laskalínu, prjónið nýjar lykkjur inn í mynstrið eins og útskýrt er í mynsturteikningu, þ.e.a.s. lykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga upp með 3 eða 6 lykkjum í mynstri. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri, prjónast í sléttprjóni. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur eins og útskýrt er í MYNSTUR. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur eins og útskýrt er í MYNSTUR. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-92-92-104-104-116-116 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði DROPS Sky og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir) – fitjið e.t.v. upp með ítalskri uppfitjun (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið stroff í hring (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-3½-3½-4-4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir, prjónið þannig: 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman, 11 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 29-29-29-35-35-41-41 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 11 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, prjónið slétt út umferðina = 88-88-88-100-100-112-112 lykkjur. Umferðin byrjar við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki á eftir fyrstu 29-29-29-32-32-35-35 lykkjum í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 5. Nú eru settir 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 12 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 30-30-30-36-36-42-42 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 30-30-30-36-36-42-42 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Nú er prjónað MYNSTUR hringinn og auka á út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan með útskýringu hvernig auka á út. ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir lykkju með 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan lykkju með 1. merki. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið þannig: Prjónið laskalykkjuna slétt, aukið út fyrir laskalínu eftir laskalykkju, prjónið A.1 og A.3 (= ermi), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkju, prjónið A.1, prjónið A.2 alls 3-3-3-4-4-5-5 sinnum, prjónið A.3 (= framstykki), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkju, prjónið A.1 og A.3 (= ermi), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkju, prjónið A.1, prjónið A.2 alls 3-3-3-4-4-5-5 sinnum, prjónið A.3 (= bakstykki) og aukið út fyrir laskalínu í lok umferðar (= 8 lykkjur fleiri). Mynstrið er hefur nú verið sett upp og aukið hefur verið 1 sinni fyrir laskalínu. Haldið svona áfram með mynstrið og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 19-19-19-19-25-22-16 sinnum (meðtalin útaukning í umferð 1) = 240-240-240-252-300-288-240 lykkjur. Haldið síðan áfram að auka út þannig: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykki og bakstykki, en á ermum er nú aðeins aukið út í 4. hverri umferð (= 4 og 8 lykkjur fleiri til skiptis), þ.e.a.s. aukið út Á EFTIR 2. og 4. merki og Á UNDAN 3. og 1. merki. Endurtakið þessa útaukningu alls 12-12-18-18-12-18-30 sinnum á framstykki og bakstykki og 6-6-9-9-6-9-15 sinnum á ermum. Aukið hefur verið út alls 31-31-37-37-37-40-46 sinnum fyrir laskalínu á framstykki/bakstykki og 25-25-28-28-31-31-31 sinnum á ermum. Eftir síðustu útaukningu eru 312-312-348-360-372-396-420 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 23-23-27-27-27-30-34 cm frá merki eftir kanti í hálsmáli. Ef stykkið mælist minna en þetta, haldið áfram að prjóna að réttu máli án þess að auka út - jafnframt er fækkað um 4 lykkjur í síðustu umferð með því að prjóna lykkjurnar með merki slétt þannig: 2. og 4. merki: Prjónið lykkju með merki snúna slétt saman við næstu lykkju. 1. og 3. merki: Byrjið 1 lykkju á undan lykkju með merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman = 308-308-344-356-368-392-416 lykkjur. ATH: Lykkjan sem var prjónuð slétt saman við lykkjuna með 1. merki tilheyrir nú bakstykkinu. Nú skiptist berustykkið í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 62-62-68-68-74-74-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-16-4-10-16-16-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 92-92-104-110-110-122-134 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 62-62-68-68-74-74-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-16-4-10-16-16-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 92-92-104-110-110-122-134 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig – héðan er nú stykkið mælt frá. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 192-216-216-240-252-276-312 lykkjur. Prjónið A.2 hringinn yfir allar lykkjur (passið uppá að mynstrið haldi rétt áfram yfir lykkjur frá berustykki). Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 44-46-48-50-51-53-55 cm frá merki fyrir miðju að framan – endið eftir umferð sem jafngildir 4. eða 10. umferð í A.3. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur eða fellið af með ítalskri affellingu. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 62-62-68-68-74-74-74 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-16-4-10-16-16-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 66-78-72-78-90-90-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 4-16-4-10-16-16-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón A.2 hringinn yfir allar lykkjur (passið uppá að mynstrið haldi rétt áfram yfir lykkjur frá berustykki). JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 2-3-2-2-4-2-4 sinnum, fækkið síðan um 2 lykkjur í hverjum 3-2-3-2-1-1-0 cm alls 2-4-2-3-5-3-0 sinnum = 58-64-64-68-72-80-88 lykkjur – lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað, prjónast í sléttprjóni. Prjónið síðan þar til ermin mælist ca 12-13-10-10-10-6-4 cm frá skiptingunni – endið eftir umferð sem samsvarar 4. eða 10. umferð í A.3. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur eða fellið af með ítalskri affellingu. Ermin mælist ca 15-16-13-13-14-10-8 cm frá skiptingunni. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #perfectlybeesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 40 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.