30% AFSLÁTTUR á 5 tegundum af mjúku ullargarni
DROPS Safran
100% Bómull
frá 484.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2420.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Vanilla Twirl Cardigan

Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, v-hálsmáli, i-cord og pífu. Stærð XS - XXXL.

Velja stærð:


DROPS 268-19

#vanillatwirlcardigan

DROPS Design: Mynstur e-392
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-350-400-450 gr litur 71, Marsipan

TÖLUR:
DROPS TALA NR 521: 6 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni með prjóna nr 3,5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

DROPS Safran
100% Bómull
frá 484.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2420.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

0
0

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan:
Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri):
Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat.
Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri):
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat.

V-HÁLSMÁL:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn þannig: Prjónið vinstri kant að framan eins og áður (= 3 lykkjur), prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón, endið með hægri kant að framan eins og áður.
Í næstu umferð frá röngu, prjónið uppsláttinn eins og útskýrt er hér að neðan:
Í BYRJUN UMFERÐAR (= uppslátturinn snýt til hægri):
Færið uppsláttinn af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjón eigi brugðið, setjið uppsláttinn aftur á vinstri prjóninn með því að stinga vinstri prjóninum að aftan inn í uppsláttinn (uppslátturinn er nú snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat.
Í LOK UMFERÐAR (= uppslátturinn er snúinn til vinstri):
Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að aukið hefur verið út fyrir v-hálsmáli til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 4½-4½-5-5-5-5½-5½ cm á milli hverra hnappagata.
Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og A.1 (= pífu) á fram- og bakstykki.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.
Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

LEIÐBEININGAR ERMI:
Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Fyrst eru tveir kantar í hálsmáli prjónaðir, síðan eru lykkjur fitjaðar upp fyrir berustykki á milli kanta að framan. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður.
Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantar að framan eru saumaðir saman, saumur = miðja að aftan, síðan eru kantar að framan saumaðir niður meðfram berustykki aftan í hnakka.
Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
Fitjið upp 3 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan þannig:
RÉTTA:
Prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN - sjá útskýringu að ofan, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
RANGA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 1 lykkju garðaprjón.
Prjónið þar til kantur að framan mælist 13-14-14-14½-15-16-16½ cm – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Klippið þráðinn.
Geymið kantinn að framan á meðan vinstri kantur að framan er prjónaður eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
Fitjið upp 3 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan þannig:
RÉTTA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 1 lykkju garðaprjón.
RANGA:
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
Prjónið þar til kantur að framan mælist 13-14-14-14½-15-16-16½ cm – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Ekki klippa þráðinn, í næstu umferð frá réttu eru lykkjur fitjaðar upp fyrir berustykki á milli 2 kanta að framan þannig:
Prjónið vinstri kant að framan eins og áður, fitjið upp 73-76-78-80-83-86-90 lykkjur í umferð, prjónið yfir hægri kant að framan eins og áður frá réttu = 79-82-84-86-89-92-96 lykkjur.
Umferðin byrjar og endar með 2 lykkjum í i-cord og síðan 1 lykkju í garðaprjóni. Setjið 1 merki innan á kant að framan í annarri hlið á stykki (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki.

BERUSTYKKI:
= 79-82-84-86-89-92-96 lykkjur.
Setjið nú 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, setjið merkin í lykkju, þessar lykkjur kallast laskalykkjur og aukið á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar.
Teljið 4 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merkið í næstu lykkju,
teljið 14 lykkjur (= ermi), setjið 2. amerkið í næstu lykkju,
teljið 39-42-44-46-49-52-56 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merkið í næstu lykkju,
teljið 14 lykkjur (= ermi), setjið 4. merkið í næstu lykkju. Það eru 4 lykkjur eftir á prjóninum fyrir hægra framstykki.

Prjónið sléttprjón fram og til baka með kanti að framan eins og áður og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjur í hverri umferð frá réttu – lesið leiðbeiningar að ofan hvernig á að auka út.
Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið út hvoru megin við laskalykkjurnar alls 28-30-33-36-38-39-42 sinnum (= 8 lykkjur fleiri fyrir laskalínu í hverri útaukningsumferð).
Jafnframt í umferð 4 byrjar útaukning fyrir V-HÁLSMÁL – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir v-hálsmál í 4. hverri umferð 2 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 15-16-17-18-20-21-23 sinnum og að lokum í 4. hverri umferð 2 sinnum (= 2 lykkjur fleiri fyrir v-hálsmál í hverri útaukningsumferð).

Þegar útaukning fyrir v-hálsmáli hefur verið gerð til loka, haldið áfram að auka út fyrir laskalínu eins og áður. Fellið af fyrir HNAPPAGAT- sjá útskýringu að ofan.
Þegar öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð til loka eru 341-362-390-418-441-454-486 lykkjur í umferð. Útaukning fyrir ermar er lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð 1-1-1-1-3-5-6 sinnum til viðbótar = 345-366-394-422-453-474-510 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni.
Prjónið síðan án útaukningar þar til stykkið mælist 20-21-22-24-26-28-30 cm frá merki við miðju að framan. Skiptið nú berstykkinu í fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 52-55-59-63-69-73-79 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 72-76-82-88-92-94-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 97-104-112-120-131-140-152 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 72-76-82-88-92-94-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 52-55-59-63-69-73-79 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 217-234-254-274-301-326-354 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, fyrir miðju í 8-10-12-14-16-20-22 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki.
Prjónið fram og til baka frá miðju að framan yfir allar lykkjur í sléttprjóni og kanta að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8 cm frá skiptingunni = 209-226-246-266-293-318-346

Prjónið þar til stykkið mælist 36-38-40-41-43-45-47 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá röngu er fækkað um 3-0-0-2-5-4-4 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 206-226-246-264-288-314-342 lykkjur.
Nú á að prjóna A.1 (= pífu), prjónið þannig:
Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.1 alls 40-44-40-43-47-44-48 sinnum, prjónið kant að framan eins og áður = 326-358-366-393-429-446-486 lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónað fram og til baka í sléttprjóni með kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55-57 cm frá merki fyrir miðju að framan.
Fellið af með aðra hverja lykkju slétt og brugðið.
Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl.

ERMAR:
Setjið 72-76-82-88-92-94-100 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-20-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 80-86-94-102-108-114-122 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-10-12-14-16-20-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn.
Prjónið sléttprjón hringinn JAFNFRAMT í næstu umferð er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig:
Fækkið um 2 lykkjur með 5-3-1½-1½-1½-0-0 cm millibili, alls 2-3-5-4-3-1-1 sinnum = 76-80-84-94-102-112-120 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 8-8-8-6-5-3-2 cm frá skiptingunni.
Prjónið 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 1 umferð slétt. Fellið af með sléttum lykkjum.
Ermin mælist ca 9-9-9-7-6-4-3 cm frá skiptingunni.

FRÁGANGUR:
Saumið kanta að framan frá hvoru framstykki saman – saumur = miðja að aftan, saumið síðan kantana við lykkjur aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
Á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat = Á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat
Diagram for DROPS 268-19
Diagram for DROPS 268-19

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #vanillatwirlcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (3)

country flag Marie-Noëlle skrifaði:

Bonjour, Je viens de commencer à tricoter ce modèle. Mais je m'aperçois que les 2 bordures en I cord (droite et gauche) du col ne seront jamais assez longues pour faire le tour du col. Je suis la taille M. Y a-t-il une erreur dans le patron ?

20.04.2026 - 17:20

DROPS Design svaraði:

Bonjour Marie-Noëlle, les bordures des devants doivent légèrement être étirées avant d'être assemblées au milieu dos, retrouvez ce moment au time code 12:57 environ dans cette vidéo. Bon tricot!

21.04.2026 - 08:37

country flag Gio skrifaði:

Una volta finito lo schema A 1 si continua a maglia rasata per 9 cm o si ripete lo schema A1 per 9 cm

18.04.2026 - 19:45

DROPS Design svaraði:

Buongiorno Gio, dopo aver lavorato A.1 deve lavorare a maglia rasata fino alla fine del lavoro. Buon lavoro!

19.04.2026 - 13:41

country flag Gio skrifaði:

Nel diagramma A.1 sono riportati solo i ferri al dritto?

17.04.2026 - 22:18

DROPS Design svaraði:

Buongiorno Gio, il motivo riporta tutti i ferri del lavoro. Buon lavoro!

19.04.2026 - 13:41