Lemon Mist Cardigan#lemonmistcardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS BabyMerino og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópsku berustykki og litlum köðlum í hliðum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-15 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan A.1/A.2, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkju slétt. A.1/A.2 (merkiþráðurinn situr á milli A.1/A.2), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu – fellið af fyrir 1 hnappagati þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið stroff eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir 5 hnappagötum jafnt yfir þegar kantur að framan mælist 1½ cm. Efsta hnappagatið er staðsett ca 7-7-7-7½-7½-7½-8 cm frá kanti í hálsmáli, neðsta hnappagatið er staðsett ca 5-4-5-5½-6½-5½-6 cm frá neðri kanti. Þau 3 hnappagötin sem eru eftir eru staðsett jafnt yfir með ca 7½-8-8-8-8-8½-8½ cm millibili. Fellt er af fyrir 6 hnappagatinu í kanti í hálsmáli. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar fyrir lykkjufjölda og breyttu eftir þörfum. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1. BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2. FRAMSTYKKI: Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. 3. BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Prjónið annað framstykkið, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, prjónið lykkjur frá bakstykki, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á hinu framstykkinu og prjónið síðustu lykkjur frá framstykki = síðan er berustykkið prjónað yfir allar lykkjur fram og til baka frá miðju að framan. 4. ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, er einungis aukið út fyrir hálsmáli og ermum, síðan er aukið út bæði fyrir fram- og bakstykki og ermar. 5. FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Prjónað er sléttprjón á fram- og bakstykki og ermar, kaðlar í hliðum á fram- og bakstykki og fyrir miðju undir ermum og kantar að framan eins og áður. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir kanta að framan meðfram hvoru framstykki og kantar að framan eru prjónaðir fram og til baka. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 34-34-34-36-36-38-38 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði DROPS Baby Merino og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 11-11-12-12-13-13-14 sinnum (= 22-22-24-24-26-26-28 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 78-78-82-84-88-90-94 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. HÆGRA FRAMSTYKKI: Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 22-22-24-24-26-26-28 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn að hálsmáli. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-6-7-8-9-9-10 cm frá merki, aukið út lykkjur inn við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-6-6-6-6-7-7 sinnum (= 12-12-12-12-12-14-14 umferðir prjónaðar) = 28-28-30-30-32-33-35 lykkjur. Stykkið mælist ca 9-10-11-12-13-14-15 cm frá merki. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstri öxl prjónuð meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 22-22-24-24-26-26-28 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-6-7-8-9-9-10 cm, aukið út lykkjur fyrir hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-6-6-6-6-7-7 sinnum (= 12-12-12-12-12-14-14 umferðir prjónaðar) = 28-28-30-30-32-33-35 lykkjur. Stykkið mælist ca 9-10-11-12-13-14-15 cm frá merki. Nú eru framstykkin og bakstykkið sett saman, útaukning fyrir hálsmáli heldur áfram og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið frá réttu með lykkjur frá vinstra framstykki: Prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki hér, prjónið upp 18-20-22-24-26-28-30 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, prjónið fyrstu 2 lykkjur frá bakstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 18-20-22-24-26-28-30 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, setjið lykkjurnar frá hægra framstykki til baka á prjóninn, prjónið fyrstu 2 lykkjurnar slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið síðustu 3 lykkjurnar slétt = 168-172-184-190-202-210-222 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið út umferðina eins og áður = 172-176-188-194-206-214-226 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið út umferðina eins og áður og fitjið upp 11-11-11-12-12-12-12 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 187-191-203-210-222-230-242 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið brugðið fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið út umferðina og fitjið upp 11-11-11-12-12-12-12 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 202-206-218-226-238-246-258 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið slétt fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir í umferð, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni = 206-210-222-230-242-250-262 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Á EFTIR UMFERÐ 6: Prjónið UMFERÐ 5 og 6 alls 12-11-10-10-8-4-1 sinnum (= 24-22-20-20-16-8-2 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 15-14-13-13-11-7-4 sinnum fyrir ermar = 48-48-48-50-48-42-38 lykkjur á hvorri ermi, 39-39-41-42-44-45-47 lykkjur á hvoru framstykki og 76-76-80-82-86-88-92 lykkjur á bakstykki = 250-250-258-266-270-262-262 lykkjur. Síðan á að auka út bæði á ermum og á fram- og bakstykki, aukið er út á fram- og bakstykki 2 lykkjum á undan merki þannig að það eru 2 lykkjur á milli útaukninga fyrir fram- og bakstykki og útaukningu fyrir ermar – næsta umferð er prjónuð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til til 2 lykkjur eru eftir á framstykki á undan fyrsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið fram að næsta merki, aukið út til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður út umferðina (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. aukið hefur verið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 2-5-8-11-14-18-21 sinnum (= 4-10-16-22-28-36-42 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 17-19-21-24-25-25-25 sinnum (= 4-10-16-22-28-36-42 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 17-19-21-24-25-25-25 sinnum á ermum og 2-5-8-11-14-18-21 sinnum á fram- og bakstykki = 52-58-64-72-76-78-80 lykkjur á hvorri ermi, 41-44-49-53-58-63-68 lykkjur á hvoru framstykki og 80-86-96-104-114-124-134 lykkjur á bakstykki = 266-290-322-354-382-406-430 lykkjur. Síðan á að auka út á sama hátt, en auka á út í 4. hverri umferð í stað í annarri hverri umferð – næsta umferð er prjónuð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki á undan fyrsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður út umferðina (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. aukið hefur verið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður, án þess að auka út. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 3-3-2-1-1-1-1 sinnum (= 12-12-8-4-4-4-4 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 20-22-23-25-26-26-26 sinnum á ermum og 5-8-10-12-15-19-22 sinnum á fram- og bakstykki = 58-64-68-74-78-80-82 lykkjur á hvorri ermi, 44-47-51-54-59-64-69 lykkjur á hvoru framstykki og 86-92-100-106-116-126-136 lykkjur á bakstykki = 290-314-338-362-390-414-438 lykkjur. Ermin mælist ca 16-17-17-18-19-19-19 cm - þegar peysan er brotin tvöföld við öxl, á stykkið að mælast ca 21-22-23-24-26-26-27 cm frá yst á öxl og niður meðfram handveg. Ef stykkið mælist minna en þetta, þá prjónið síðan/áfram að tilgreindu máli án þess að auka út. Nú skiptist berstykkið í fram- og bakstykki og ermar - stillið af þannig að það skiptist í umferð frá röngu. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 44-47-51-54-59-64-69 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 58-64-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 86-92-100-106-116-126-136 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 58-64-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 44-47-51-54-59-64-69 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 186-202-218-234-254-278-302 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-8-8-10-10-12-14 lykkjurnar sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar mynstrið er prjónað í hvorri hlið á fram- og bakstykki. Prjónið þannig – frá réttu: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merkiþræði, prjónið A.1 (merkiþráðurinn situr fyrir miðju í A.1), prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta merkiþræði, prjónið A.2 (merkiþráðurinn situr fyrir miðju í A.2), prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 22-23-23-24-23-25-26 cm frá skiptingunni. Í næstu umferð frá réttu, byrjar stroff JAFNFRAMT og aukið er út um 21-21-23-25-27-27-29 lykkjur jafnt yfir í umferð (= aukið út um 5-5-5-5-6-6-6 lykkjur jafnt yfir hvoru framstykki, 9-9-11-13-13-13-15 lykkjur jafnt yfir bakstykki og 1 lykkju hvoru megin yfir A.1/A.2), prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið 1 lykkju garðaprjón, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – munið eftir útaukningunni – þar til 3 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merkiþræði, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.3 yfir A.1 (= 1 lykkja fleiri), prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta merkiþræði, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.3 yfir A.2 (= 1 lykkja fleiri), prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni = 207-223-241-259-281-305-331 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-5-6-6-6 cm, fellið af með ítalskri affellingu, eða fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 58-64-68-74-78-80-82 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 64-72-76-84-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið A.1/A.2 (haldið áfram með mynstrið rétt yfir lykkjurnar frá fram- og bakstykki, merkiþráðurinn situr fyrir miðju í A.1/A.2), prjónið sléttprjón út umferðina - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir erminni - lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 1-2-2-2-2-2-2 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkjur 0-0-0-2-2-2-2 sinnum í öðrum hverjum cm = 62-68-72-76-80-84-88 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 8-8-8-7-5-6-6 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff þannig: Prjónið A.3 yfir lykkjurnar í A.1/A.2, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 1 lykkja er eftir á undan A.3, endið með 1 slétt. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm, fellið af með ítalskri affellingu eða fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 11-11-11-10-9-10-10 cm frá skiptingunni. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp lykkjur meðfram vinstra framstykki á hringprjón 2,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir), prjónið upp lykkjur innan við 1 lykkju í garðaprjóni frá réttu þannig: Prjónið upp ca 113-115-119-121-125-127-129 lykkjur (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð meðfram kanti – fjöldi lykkja á að vera deilanlegur með 2 + 1). Prjónið fyrstu umferðina frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja brugðið og 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið áfram þar til kantur að framan mælist 2½ til 3 cm. Fellið af með ítalskri affellingu eða fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp lykkjur á sama hátt meðfram hægra framstykki og prjónið eins og vinstri kantur að framan, en þegar kanturinn að framan mælist ca 1 til 1½ cm, fellið af fyrir 5 hnappagötum jafnt yfir – lesið HNAPPAGAT í leiðbeiningum að ofan. Eftir hnappagötin heldur kantur að framan áfram á sama hátt og vinstri kantur að framan. Fellið af með ítalskri affellingu eða fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÁLSMÁL: Notið hringprjón 3,5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir). Byrjið frá réttu við miðju að framan og prjónið upp ca 121-123-125-133-135-143-145 lykkjur í kringum hálsmál (passið að prjóna upp 1 lykkju í hverja umferð frá framkanti). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem lykkjufjöldinn e.t.v. jafnaður út - lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með hálsmálið, en eftir ca 1-1½ cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin hnappagötin í hægri kanti að framan. Prjónið síðan þar til kantur í hálsmáli mælist ca 3-3-3-3½-3½-4-4 cm. Fellið af með ítalskri affellingu, eða fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lemonmistcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 58 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.