Morning Glow Cardigan#morningglowcardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og stroffprjóni. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-11 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (frá réttu): AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN LASKALYKKJUM: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt eða brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR LASKALYKKJUM: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt eða brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (frá röngu): AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á UNDAN LASKALYKKJUM: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á EFTIR LASKALYKKJUM: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 7-7-7-7-8-8-8 næstu hnappagötum með ca 6-6-6½-7-6-6½-6½ cm á milli hverra hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 114-114-114-114-126-126-126 lykkjur á hringprjón 2,5 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið frá réttu þannig: 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 umferð brugðið og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Prjónið þar til stroffið mælist 4 cm. Í síðustu umferð frá röngu, aukið út 1 lykkju í öllum brugðnum einingum (séð frá réttu) – þ.e.a.s. prjónið frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan, * 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 7 kantlykkjur að framan = 148-148-148-148-164-164-164 lykkjur. Setjið 1 merki innan við kant að framan í annarri hliðinni á stykki, stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 6 lykkja, þessar 6 lykkjur eru núna kallaðar laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru prjónaðar þannig: 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt. Teljið 25-25-25-25-29-29-29 lykkjur (= vinstra framstykki), teljið 6 lykkjur (= laskalykkjur) og setjið 1 merki fyrir miðju í þessar 6 lykkjur, teljið 18 lykkjur (= ermi), teljið 6 lykkjur (= laskalykkjur) og setjið 1 merki fyrir miðju í þessar 6 lykkjur, teljið 38-38-38-38-46-46-46 lykkjur (= bakstykki), teljið 6 lykkjur (= laskalykkjur) og setjið 1 merki fyrir miðju í þessar 6 lykkjur, teljið 18 lykkjur (= ermi), teljið 6 lykkjur (= laskalykkjur) og setjið 1 merki fyrir miðju í þessar 6 lykkjur, það eru 25-25-25-25-29-29-29 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægra framstykki. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð – frá réttu – ATH! Einnig er fellt af fyrir HNAPPAGAT í þessari umferð – lesið útskýringu að ofan og lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, 1 lykkja brugðið, A.1, 1 lykkja brugðið, 0-0-0-0-2-2-2 lykkjur slétt, 0-0-0-0-2-2-2 brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt (þessar 6 lykkjur = laskalykkjur), aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 16 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt (þessar 6 lykkjur = laskalykkjur), aukið út 1 lykkju til vinstri, 0-0-0-0-2-2-2 lykkjur brugðið, 0-0-0-0-2-2-2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.1, 1 lykkja brugðið, 0-0-0-0-2-2-2 lykkjur slétt, 0-0-0-0-2-2-2 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt (þessar 6 lykkjur = laskalykkjur), aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 16 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt (þessar 6 lykkjur = laskalykkjur), aukið út 1 lykkju til vinstri, 0-0-0-0-2-2-2 lykkjur brugðið, 0-0-0-0-2-2-2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 1 lykkja brugðið, 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Allar 2 lykkjur slétt eru nú yfir 2 lykkjur slétt frá stroffi. Prjónið 1 umferð mynstur til baka frá röngu, útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í stroffprjón (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan, stroffprjón og mynstur eins og áður og aukið út 1 lykkju slétt hvoru megin við laskalykkjurnar (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) (= 8 lykkjur fleiri) – lykkjan er aukin út til hægri á undan laskalykkjum og til vinstri á eftir laskalykkjum. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan, stroffprjón og mynstur eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið kant að framan, stroffprjón og mynstur eins og áður og aukið út 1 lykkju brugðið hvoru megin við laskalykkjurnar (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) (= 8 lykkjur fleiri) – lykkjan er aukin út til hægri á undan laskalykkjum og til vinstri á eftir laskalykkjum. UMFERÐ 4 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið kant að framan, stroffprjón og mynstur eins og áður og aukið út 1 lykkju slétt (= þessi lykkja verður brugðin frá réttu) hvoru megin við laskalykkjurnar (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) (= 8 lykkjur fleiri) – lykkjan er aukin út til vinstri á undan laskalykkjum og til hægri á eftir laskalykkjum. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið kant að framan, stroffprjón og mynstur eins og áður og aukið út 1 lykkju slétt hvoru megin við laskalykkjurnar (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) = 8 lykkjur fleiri – lykkjan snýr til hægri á undan laskalykkjum og til vinstri á eftir laskalykkjum. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið kant að framan, stroffprjón og mynstur eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 6 þar til aukið hefur verið út alls 28-28-28-32-32-36-40 sinnum (= 42-42-42-48-48-54-60 umferðir prjónaðar) = 372-372-372-404-420-452-484 lykkjur. Það eru 6 lykkjur í hverri laskalínu, 74-74-74-82-82-90-98 lykkjur á hvorri ermi, 94-94-94-102-110-118-126 lykkjur á bakstykki og 53-53-53-57-61-65-69 lykkjur á hvoru framstykki. Útauking á ermum er nú lokið. Nú er einungis aukið út á framstykkjum og bakstykki, aukið út 4-8-16-12-16-16-20 sinnum til viðbótar (= 6-12-24-18-24-24-30 umferðir prjónaðar) = 388-404-436-452-484-516-564 lykkjur. Það eru 6 lykkjur í hverri laskalínu, 74-74-74-82-82-90-98 lykkjur á hvorri ermi, 102-110-126-126-142-150-166 lykkjur á bakstykki og 57-61-69-69-77-81-89 lykkjur á hvoru framstykki. Öll útaukning hefur nú verið gerð til loka. Prjónið nú þar til stykkið mælist 20-22-27-27-29-32-36 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Samtímis sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 60-64-72-72-80-84-92 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 80-80-80-88-88-96-104 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-12-20-20-20-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 108-116-132-132-148-156-172 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 80-80-80-88-88-96-104 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-12-20-20-20-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 60-64-72-72-80-84-92 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 252-268-300-316-348-362-396 lykkjur. Prjónið mynstur, stroffprjón og kant að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan, köðlum er ekki snúið lengur í A.1 og A.2, allar lykkjur halda áfram í stroffprjóni. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59-61 cm frá merki fyrir miðju að framan. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 80-80-80-88-88-96-104 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 12-12-12-20-20-20-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni = 92-92-92-108-108-116-124 lykkjur. Prjónið stroffprjón eins og áður. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar ermin mælist 25-25-21-22-18-18-15 cm. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #morningglowcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 39 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.