Harbour Stripes Sweater#harbourstripessweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl, gatamynstri, röndum, og rúllukanti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-27 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Þegar gatamynstrið er prjónað fram og til baka á framstykkjum og bakstykki, kemur mynstrið til með að stillast af þannig að ekki eru gerð göt yfir ystu 2 lykkjur í hvorri hlið – rendur eru prjónaðar yfir allar lykkjur. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (á við um hálsmál og handveg): AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU) (= ný lykkja snýr til vinstri): Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU (= ný lykkja snýr til hægri): Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónið mynstur samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki eru sett saman þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 24-24-24-28-28-32-32 lykkjur á hringprjón 5,5 með DROPS Melody í litnum Marsipan. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. Nú er prjónað áfram eftir mynsturteikningu A.1 samtímis sem aukið eru út fyrir axlir – lesið MYNSTUR í útskýringu að ofan. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt í fyrstu lykkju, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 2 lykkjur slétt í síðustu lykkju. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur slétt í fyrstu lykkju, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 2 lykkjur slétt í síðustu lykkju. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið umferð 2 og 3 – munið eftir að það eru ekki gerð göt yfir ystu 2 lykkjur í hvorri hlið. Prjónið umferð 2 og 3 alls 11-12-12-12-13-13-14 sinnum (= 22-24-24-24-26-26-28 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru 68-72-72-76-80-84-88 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan með mynstri A.1 - Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið þar til stykkið mælist 11-11-10-10-11-12-11 cm mælt frá merki yst meðfram handveg – stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Athugið hvaða umferð er næsta umferð í mynstri, það er mikilvægt að útaukning fyrir handveg á framstykki byrji í sömu umferð, þannig að mynstrið haldi áfram frá sömu umferð þegar stykkin eru sett saman. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-1-3-4-4-4-6 sinnum = 70-74-78-84-88-92-100 lykkjur í umferð. Stykkið mælist 12-12-13-14-15-16-17 cm , mælt frá merki yst meðfram handveg, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, prjónið nú vinstra framstykkið meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er hér að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykkinu þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar frá þræði / hjálparprjóni snúi að þér, vinstri hlið stykkisins = vinstri öxl. Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl - byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Notið prjón 5,5 og litinn Marsipan og prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við útaukningslykkjurnar þannig að útaukningslykkjurnar sjáist ekki – það á að líta út eins og lykkjurnar skarast fallega yfir hverja aðra (sléttprjón) = 22-24-24-24-26-26-28 lykkjur. Allar lengdarmælingar á framstykkinu eru gerðar frá þessum uppprjónaða kant. Nú er prjónuð 1 umferð frá röngu í litnum Marsipan þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið. Það eru 2 umferðir með garðaprjóni sýnilegar frá réttu (en ekki yfir ystu 2 lykkjurnar í hvorri hlið sem eru í sléttprjóni). Prjónið nú sléttprjón og A.1 (fyrsta umferðin er prjónuð með litnum Dökk gallabuxnablár frá réttu). Þegar stykkið mælist 6-7-8-8-9-10-11 cm, aukið út lykkjur við hálsmál – skrifið niður í hvaða umferð í mynstrinu útaukningin byrjar (notað þegar aukið er út fyrir hálsmáli á hægra framstykki) og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina í mynstri eins og áður. Stillið mynstrið af þannig að ekkert gatamynstur komi yfir 3 lykkjurnar að hálsmáli. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið og prjónið mynstur eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-4-5-5-5-5 sinnum (= 8-8-8-10-10-10-10 umferðir prjónaðar) = 26-28-28-29-31-31-33 lykkjur (næsta umferð á að vera frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, prjónið nú hægra framstykki meðfram hægri öxl eins og útskýrt er hér að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl - byrjið frá réttu við öxlina og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Notið prjón 5,5 og litinn Marsipan og prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við útaukningslykkjurnar þannig að útaukningslykkjurnar sjáist ekki – það á að líta út eins og lykkjurnar skarast fallega yfir hverja aðra (sléttprjón) = 22-24-24-24-26-26-28 lykkjur. Allar lengdarmælingar á framstykkinu eru gerðar frá þessum uppprjónaða kant. Nú er prjónuð 1 umferð frá röngu í litnum Marsipan þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið. Það eru 2 umferðir með garðaprjóni sýnilegar frá réttu (en ekki yfir ystu 2 lykkjurnar í hvorri hlið sem eru í sléttprjóni). Prjónið nú sléttprjón og A.1 (fyrsta umferðin er prjónuð með litnum Dökk gallabuxnablár frá réttu). Þegar stykkið mælist 6-7-8-8-9-10-11 cm – stillið af eftir vinstra framstykki og aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Stillið mynstrið af þannig að ekkert gatamynstur komi yfir 3 lykkjurnar að hálsmáli. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið og prjónið mynstur eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-4-5-5-5-5 sinnum (= 8-8-8-10-10-10-10 umferðir prjónaðar) = 26-28-28-29-31-31-33 lykkjur (næsta umferð á að vera frá réttu). Síðan eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Prjónið fyrstu umferðina frá réttu þannig: Prjónið 26-28-28-28-31-31-33 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 16-16-16-18-18-22-22 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið 26-28-28-28-31-31-33 lykkjur frá vinstra framstykki = 68-72-72-76-80-84-88 lykkjur í umferð. Þegar prjónað er áfram stillið af að gatamynstur sé ekki prjónað yfir lykkjurnar sem fitjaðar voru upp fyrir miðju að framan þar til prjónaðar hafa verið minnst 2 umferðir yfir nýjar lykkjur fyrir miðju að framan. Prjónið fram og til baka í mynstri eins og áður þar til stykkið mælist 23-25-24-24-25-26-25 cm – stillið af að næsta umferð sé frá réttu og að það sé sama umferð í mynstri eins og á bakstykki. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-1-3-4-4-4-6 sinnum (= 2-2-6-8-8-8-12 umferðir prjónaðar) = 70-74-78-84-88-92-100 lykkjur í umferð. Stykkið mælist 24-26-27-28-29-30-31 cm, endið með umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Mynstrið þarf ekki endilega að ganga jafnt upp í hliðum undir ermum, heldur prjónið mynstrið þannig að það haldi áfram yfir mynstur frá berustykki og eins langt og hægt er í hlið fyrir miðju undir ermum. Prjónið 70-74-78-84-88-92-100 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 2-2-4-4-8-12-12 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 70-74-78-84-88-92-100 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 2-2-4-4-8-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) = 144-152-164-176-192-208-224 lykkjur í umferð. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í nýjar lykkjur í hlið og prjónið fram að merki, núna byrjar umferðin hér. Prjónið hringinn með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist ca 44-47-48-50-51-53-55 cm – stillið af að endað sé með nokkra cm með litnum Marsipan neðst. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 20-20-20-24-28-28-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 164-172-184-200-220-236-256 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-7-7-8-8-8 cm, prjónið 3 umferðir slétt og fellið laust af með sléttum lykkjum (= rúllukantur). Peysan mælist ca 50-53-55-57-59-61-63 cm frá miðju að aftan og ca 44-46-48-52-54-56 cm frá öxl. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handvegi og niður. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveginn = miðjan efst á öxl (ATH! Miðjan efst á öxlinni er ekki á sama stað og lykkjurnar voru prjónaðar upp fyrir framstykkið heldur ca. 4 til 5 cm niður á framstykkinu). Prjónið upp lykkjur í kringum handveginn á hringprjón 4,5 og litinn Marsipan - byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni - prjónið upp 52-56-60-64-70-78-80 lykkjur - stillið af að jafnmargar lykkjur séu prjónaðar upp hvoru megin við merkið. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna til að ermin passi betur, umferðin byrjar fyrir miðju undir erminni og er prjónuð í litnum Marsipan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6-6-8-8-8-8-10 lykkjur fram hjá merki efst á öxlinni, snúið stykkinu við – sjá LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 6-6-8-8-8-8-8-10 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 3-3-4-4-4-4-4-4 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við síðast, snúið stykkinu við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 3-3-4-4-4-4-4-4 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við síðast, snúið stykkinu við. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 10-12-12-12-14-14-14 sinnum (= 5-6-6-6-7-7-7 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferðin er prjónuð frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð endar umferðin með að snúa stykkinu við, síðan er prjónað frá réttu að byrjun umferðar (miðja undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, hann verður notaður þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið nú í hring í sléttprjóni og mynstri A.1 (mynstrið nær ekki endilega að ganga jafnt upp fyrir miðju undir erminni) JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir erminni, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð er fækkað um 2 lykkjur fyrir miðju undir erminni 2-2-2-3-3-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur með 9-9-9-8-6-4-4 cm millibili alls 3-4-4-4-5-7-7 sinnum = 42-44-48-50-54-58-60 lykkjur í umferð. Prjónið síðan mynstur eins og áður þar til stykkið mælist ca 44-45-45-45-43-43-43 cm frá miðju ofan á öxl – stillið af að endað sé með nokkra cm með litnum Marispan neðst. Nú er prjónað stroff. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-8-8-6-6-6-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 48-52-56-56-60-64-68 lykkjur. Prjónið stroff hringinn í 6-6-7-7-8-8-8 cm. Prjónið 3 umferðir slétt og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum (= rúllukantur). Ermin mælist ca 50-51-52-52-51-51-51 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 4,5 og litinn Marispan. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 68-72-72-80-84-92-96 lykkjur innan við 1 lykkju, prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er e.t.v. jafnaður út – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 2-2-2-3-3-3-3 cm. Prjónið 3 umferðir slétt og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum (= rúllukantur). |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #harbourstripessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 48 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.