Icy Ballerina Wrap#icyballerinawrap |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk eða DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með vafningsstykki, laskalínu og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-3 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. 2 KANTLYKKJUR I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN MERKI (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR MERKI (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. VAFNINGSSTYKKI: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Í BYRJUN UMFERÐAR (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Í LOK UMFERÐAR (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Fyrst eru kantar að framan prjónaðir fram og til baka, síðan eru lykkjur prjónaðar upp fyrir berustykki á milli framkantsbanda. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu og vafningsstykki. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin er prjónað band/snúra fram og til baka í tvöföldu prjóni. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Fitjið upp 4 lykkjur á sokkaprjóna 4 með DROPS Kid-Silk og DROPS Flora eða DROPS Kid-Silk og DROPS Alpaca (= 2 þræðir). Prjónið þannig: RÉTTA: Prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 2 KANTLYKKJUR I-CORD – lesið útskýringu að ofan. RANGA: Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 1 lykkju brugðið og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Prjónið þar til kantur að framan mælist ca 10½-11-11½-11½-12-12-12 cm - prjónið síðustu umferð frá röngu. Klippið þráðinn og látið lykkjurnar vera á hjálparprjóni. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Prjónið upp 4 lykkjur í uppfitjunarkanti í hægri kanti að framan með sokkaprjónum 4 og 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) – gætið þess að umferðir með garðaprjóni komi að hvorri annarri hliðinni og i-cord lykkjurnar komi að hvorri annarri hinum megin. Síðar eru lykkjur prjónaðar upp meðfram kanti að framan innan við 1 lykkju í garðaprjóni. Prjónið þannig: RÉTTA: Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. RANGA: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið og prjónið 2 lykkjur i-cord. Prjónið þar til framkantur mælist ca 10½-11-11½-11½-12-12-12 cm – prjónið síðustu umferðina frá röngu. Framkantur mælist alls 21-22-23-23-24-24-24 cm (uppfitjunarkanturinn er fyrir miðju í framkanti). Prjónið nú upp lykkjur meðfram öllu framkantsbandinu innan við lykkju í garðaprjóni í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur i-cord, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 3 kantlykkjur að framan), prjónið upp 45-47-49-49-51-51-51 lykkjur meðfram framkanti – stillið af að prjónaðar séu upp ca jafnmargar lykkjur hvoru megin við miðju á framkantsbandi, í lokin eru lykkjurnar prjónaðar frá hægri framkanti þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur i-cord (= 3 kantlykkjur að framan) = 51-53-55-55-57-57-57 lykkjur. BERUSTYKKI: Setjið nú 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, setjið merkin í lykkju, þessar lykkjur kallast laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 3 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merkið í næstu lykkju, teljið 9 lykkjur (= ermi), setjið 2. merkið í næstu lykkju, teljið 23-25-27-27-29-29-29 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merkið í næstu lykkju, teljið 9 lykkjur (= ermi), setjið 4. merkið í næstu lykkju. Það eru 3 lykkjur eftir á prjóninum fyrir hægra framstykki. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 2 lykkjur i-cord eins og áður í hvorri hlið jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar í annarri hverri umferð og fyrir VAFNINGSSTYKKI innan við 3 lykkjur í hvorri hlið í 4. hverri umferð – lesið útskýringarnar að ofan hvernig á að auka út. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð jafnframt er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, endið með 2 lykkjur i-cord (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og 2 lykkjur i-cord eins og áður (munið að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í laskalykkju). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju fyrir vafningsstykki, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð jafnframt er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar, aukið út 1 lykkju fyrir vafningsstykki, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 2 lykkjur i-cord (= 10 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. 2 lykkjur fyrir vafningsstykki og 8 lykkjur fyrir laskalykkju). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón og 2 lykkjur i-cord eins og áður (munið að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í laskalínu og vafningsstykki). Prjónið umferð 1 til 4 alls 3 sinnum (= 12 umferðir prjónaðar) = 105-107-109-109-111-111-111 lykkjur í umferð. Alls hafa verið gerðar 3 aukningar fyrir vafningsstykki og 6 aukningar fyrir laskalínu. Munið að fylgja prjónfestunni. Aukið síðan út fyrir laskalínu og vafningsstykki í annarri hverri umferð, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju fyrir vafningsstykki, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð jafnframt sem aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar, aukið út 1 lykkju fyrir vafningsstykki, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 2 lykkjur i-cord (= 10 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. 2 lykkjur fyrir vafningsstykki og 8 lykkjur fyrir laskalínu). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og 2 lykkjur i-cord eins og áður (munið að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í laskalínu og vafningsstykki). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 18-20-22-24-25-25-26 sinnum (= 36-40-44-48-50-50-52 umferðir prjónaðar) = 285-307-329-349-361-361-371 lykkjur í umferð. Aukið hefur verið út samtals 21-23-25-27-28-28-29 sinnum fyrir vafningsstykki og 24-26-28-30-31-31-32 sinnum fyrir laskalínu. Síðan er aukið út fyrir laskalínu eingöngu á framstykkjum og bakstykki (þ.e.a.s. ekki er aukið lengur út á ermum) og vafningsstykki í annarri hverri umferð, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju fyrir vafningsstykki, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð jafnframt sem aukið er út fyrir laskalínu á undan 1. og 3. laskalykkju, og eftir 2. og 4. laskalykkju, aukið út 1 lykkju fyrir vafningsstykki, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 2 lykkjur i-cord (= 6 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. 2 lykkjur fyrir vafningsstykki og 4 lykkjur fyrir laskalínu). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og 2 lykkjur i-cord eins og áður (munið að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í laskalínu og vafningsstykki). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-1-1-1-2-5-8 sinnum (= 2-2-2-2-4-10-16 umferðir prjónaðar) = 291-313-335-355-373-391-419 lykkjur í umferð. Aukið hefur verið út alls 22-24-26-28-30-33-37 sinnum fyrir vafningsstykki, 24-26-28-30-31-31-32 sinnum fyrir laskalínu á ermum og 25-27-29-31-33-36-40 sinnum fyrir laskalínu á framstykkjum/bakstykki. Stykkið mælist ca 20-22-23-25-27-29-32 cm frá miðju að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð frá réttu, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar samtímis sem haldið er áfram að auka út fyrir vafningsstykki þannig: Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 1 lykkju sléttprjón, aukið út 1 lykkju fyrir vafningsstykki, prjónið 48-52-56-60-64-70-78 lykkjur sléttprjón til og með 1. lykkju með merki (= framstykki), setjið næstu 57-61-65-69-71-71-73 lykkjur á þráð fyrir ermar, fitjið upp 4-6-8-12-16-20-22 nýjar lykkjur á umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 75-81-87-91-97-103-111 lykkjur sléttprjón (þ.e.a.s. frá 2. lykkju með merki til og með 3. lykkju með merki = bakstykki), setjið næstu 57-61-65-69-71-71-73 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-8-12-16-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 48-52-56-60-64-70-78 lykkjur sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út 1 lykkju fyrir vafningsstykki, prjónið 1 lykkju sléttprjón og endið með 2 lykkjur i-cord eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hver fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 187-205-223-243-265-291-319 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt á milli 4-6-8-12-16-20-22 lykkja sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar lykkjum er fækkað í hliðum á fram- og bakstykki. Nú prjónið sléttprjón og i-cord í hvorri hlið eins og áður jafnframt sem haldið er áfram að auka út fyrir vafningsstykki í annarri hverri umferð eins og áður (= 2 lykkjur fleiri). Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingunni, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina fyrir miðju undir ermum – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 5 cm millibili alls 3 sinnum (= 12 lykkjur færri). Þegar öll úrtaka hefur verið gerð, prjónið sléttprjón og i-cord í hvorri hlið samtímis sem haldið er áfram að auka út fyrir vafningsstykki eins og áður. Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 38-40-42-44-46-48-50 cm frá miðju að aftan, það eru ca 221-239-259-279-301-327-353 lykkjur í umferð. Látið lykkjurnar vera á hringprjóninum, nú á að prjóna band/snúru til að hnýta stykkið saman og bandið er prjónað saman með þessum lykkjum. BAND / SNÚRA: Fitjið upp 17 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið tvöfalt prjón fram og til baka þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2: * Lyftið 1 lykkju af prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið. Endurtakið UMFERÐ 1 og 2. Prjónið þar til bandið mælist ca 55-60-65-70-75-80-85 cm – togið aðeins í bandið áður en það er mælt. Endið með umferð 2. Nú á að prjóna bandið saman með 1 og 1 af lykkjum frá fram- og bakstykki með því að prjóna síðustu lykkjuna á bandinu saman með næstu lykkju frá fram- og bakstykki, byrjið með vinstra framstykki og prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið síðustu lykkjuna snúna slétt saman við 1 lykkju frá fram- og bakstykki (= 1 lykkja frá fram- og bakstykki færri). Snúið við. UMFERÐ 2: * Lyftið 1 lykkju af prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið. Endurtakið UMFERÐ 1 og 2 þar til fækkað hefur verið um allar lykkjur á fram- og bakstykki. Prjónið síðan tvöfalt prjón fram og til baka eins og áður þar til bandið er orðið jafn langt og í gagnstæðri hlið, ca 55-60-65-70-75-80-85 cm. Fellið af. Bandið mælist ca 4 cm á breidd. Peysan mælist 42-44-46-48-50-52-54 cm frá miðju að aftan og ca 44-46-48-50-52-54-56 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 57-61-65-69-71-71-73 lykkjur af erminni frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-6-8-12-16-20-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 61-67-73-81-87-91-95 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 4-6-8-12-16-20-22 nýjar lykkjur undir erminni - umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón í hring - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi - munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 3-3-4-4-4-3-2 sinnum = 55-61-65-73-79-85-91 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 30-29-28-27-26-25-23 cm frá skiptingunni. Prjónið 3 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) jafnframt sem fækkað er um 1 lykkju í umferð 1 = 54-60-64-72-78-84-90 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #icyballerinawrap eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 40 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.