Christiane Diekmann skrifaði:
Hallo Ist es richtig am Rumpfteil für das Bündchen zuzunehmen? Ich stricke Gr. XS und soll 32 Maschen zunehmen? Wird das Bündchen dann weiter als das Rumpfteil? Normal wird es doch enger. Noch eine Frage zu den Ärmeln. Warum werden die mit Nadelstärke 4 gestrickt? Müssen die nicht in der gleichen Nadelstärke wie der Rest gestrickt werden?
09.03.2026 - 06:10DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Diekmann, man braucht mehr Maschen für das Bündchen mit den kleineren Nadeln als fürs glattrechts mit den grösseren Nadeln, deshalb wird man vor dem Bündchen zunehmen. Die Ärmel sollen ja mit Nadel Nr 6 gestrickt werden, eine Korrektur erfolgt, danke für den Hinweis. Viel Spaß beim Stricken!
09.03.2026 - 10:38
Dominique skrifaði:
Ce modèle existe-t-il pour enfant?
28.02.2026 - 08:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Dominique, ce modèle existe seulement en version adulte, mais retrouvez ici tous nos gilets enfant tricotés de haut en bas avec raglan, vous pourrez fort probablement vous en inspirer pour une version enfant. Bon tricot!
02.03.2026 - 08:22
Sweet Sprinkles Cardigan#sweetsprinklescardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð stór / oversize peysa úr DROPS Fiesta og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, röndum og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-8 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Kantlykkjur að framan eru alltaf prjónaðar með litnum Natur (þ.e.a.s. 1 þráður DROPS Fiesta og 1 þráður DROPS Brushed Alpaca Silk = 2 þræði Natur). Ef liturinn Natur er ekki notaður í umferð sem er prjónuð, snúið / vefjið þá þræðinum á milli kantlykkju að framan og lykkju frá rönd til að koma í veg fyrir gat, til að þurfa ekki að draga þráðinn yfir allar lykkjur í umferðinni, er hægt að nota stakar litla dokkur/hnykla fyrir kantlykkjur að framan í hvorri hlið. Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 6 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 6 lykkjur): Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. RENDUR: Rendur eru prjónaðar yfir 8 umferðir þannig: UMFERÐ 1-6: Prjónið sléttprjón með 1 þræði DROPS Fiesta í litnum Natur og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir í litnum Natur). UMFERÐ 7: 1 umferð slétt frá réttu með 2 þráðum DROPS Fiesta í litnum Regnbogaskraut. UMFERÐ 8: 1 umferð slétt frá röngu (eða brugðið frá réttu þegar prjónað er í hring á ermi) með 2 þráðum DROPS Fiesta í litnum Regnbogaskraut. Endurtakið þessar 8 umferðir með randarmynstri niður að stroffi bæði á fram- og bakstykki og ermum. ATH! Kantar að framan eru alltaf prjónaðir í litnum Natur. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn frá réttu. Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Ef umferðin er prjónuð með litnum Regnbogaskraut, prjónið alla uppslætti snúna slétt frá röngu. Ef umferðin er prjónuð með litnum Natur, prjónið uppsláttinn eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 7½-8-8-7-7-7½-8 cm á milli hverra hnappagata. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 86-86-86-94-94-106-106 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Fiesta í litnum Natur og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan með I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og 6 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið svona áfram með stroff í 4-4-4-4-5-5-5 cm. Setjið 1 merki að innanverðu í kant að framan í annarri hliðinni á stykkinu (= miðja að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 6. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja, þessar 2 lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 19-19-19-19-19-23-23 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki á undan næstu lykkju, teljið 12-12-12-16-16-16-16 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 24-24-24-24-24-28-28 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 12-12-12-16-16-16-16 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki á undan næstu lykkju. Það eru 19-19-19-19-19-23-23 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægra framstykki. Nú er prjónað fram og til baka með kanlykkjum að framan eins og áður og aukið er út fyrir LASKALÍNU hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan – jafnframt á að prjóna randarmynstur – lesið RENDUR í útskýringu að ofan. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið er út hvoru megin við laskalykkjurnar alls 17-19-21-22-24-25-27 sinnum = 222-238-254-270-286-306-322 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan áfram án þess að auka út þar til stykkið mælist ca 20-22-25-26-28-29-32 cm frá merki við miðju að framan, síðasta umferðin er prjónuð frá röngu – stillið af að næsta umferð sé í litnum Natur. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykkjum/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð frá réttu með litnum Natur, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 39-41-43-46-48-54-58 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 40-44-48-50-54-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-10-12-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 64-68-72-78-82-90-98 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 40-44-48-50-54-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-10-12-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 39-41-43-46-48-54-58 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 154-166-178-190-202-226-242 lykkjur. Prjónið rendur og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist ca 45-48-50-51-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan – stillið af að það séu prjónaðar minnst 2 umferðir í litnum Natur fyrir stroff. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 32-36-40-40-44-48-52 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 186-202-218-230-246-274-294 lykkjur, prjónað er þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Haldið áfram með litinn Natur og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af frá réttu með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 49-52-54-55-57-59-61 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 53-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 40-44-48-50-54-54-54 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-10-12-14-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 46-52-58-60-66-68-68 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-8-10-10-12-14-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið hringinn í röndum eins og áður – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 1-2-4-3-5-4-3 sinnum með 0-12-6-9-4-8-8 cm millibili (lykkjum er einungis fækkað 1 sinni í stærð XS) = 44-48-50-54-56-60-62 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist ca 39-39-37-37-35-34-32 cm frá skiptingunni – stillið af að prjónaðar séu minnst 2 umferðir í litnum Natur fyrir stroff. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og haldið áfram með litinn Natur og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 12-12-10-10-12-12-14 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-60-60-64-68-72-76 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkju. Ermin mælist ca 43-43-41-41-40-39-37 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetsprinklescardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 47 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.