Julie skrifaði:
Bonjour, merci pour ce super patron que j’utilise pour mon premier pull. Je bloque sur les explications au niveau de la manche après \EN MÊME TEMPS\ Combien de fois doit on diminuer 2x2 mailles tous les 2rangs avant de passer (pour la taille S) à 1x2 mailles tous les 3cm ? Et est ce qu’on doit diminuer sur les 38cm de la manche ? Parce que je comprends pas à quel moment doit on utiliser l’information \1x2mailles tous les 3cm =57 mailles\. Je vous remercie par avance pour votre aide
12.03.2026 - 12:26DROPS Design svaraði:
Bonjour Julie, pensez à entourer la taille tricotée (en haut de page) pour bien retrouver les indications pour votre taille, en S vous allez diminuer pour les manches 2 x 2 m tous les 2 tours puis 1 x 2 m tous les 3 cm. Autrement dit procédez ainsi: (tricotez 1 tour en diminuant 2 m, 1 tour sans diminuer), tricotez ces 2 tours encore 1 fois (vous avez diminué 2 fois 2 m) puis tricotez 3 cm et diminuez encore 1 fois 2 m = 63 m -(2 m x 3 ) = il vous reste 57 Mailles. Bon tricot!
12.03.2026 - 15:52
Kinou skrifaði:
Bonjour, merci pour ce pull qui monte tout seul !! J’ai un pb avec la fin des augmentations du raglan, quand on différencie celles des dos/devant et celles des manches. Vous dites d’augmenter pour le dos/devant après marqueurs 1 et 3 et avant 2 et 4. Je pense que c’est l’inverse non ? J’ai tourné retourné mais après marqueur 1 c’est la manche. Je doute :) merci pour votre réponse
01.03.2026 - 09:53DROPS Design svaraði:
Bonjour Kinou, vous avez tout à fait raison, on va augmenter avant les marqueurs --1 et -4 et après les marqueurs -2 et -3, une correction va bientôt être faite, merci :) Bonne continuation!
02.03.2026 - 09:55
Sara Kittelsen skrifaði:
Hei, er det feil på antall masker på for og bakstykke her? Jeg legger opp 92 m. 9 m skal til skulder x2 og 35m skal til for og bakstykke. Det blir 88 masker totalt
28.02.2026 - 17:20
Persephone Sweater#persephonesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-5 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-92-92-96-100-104 lykkjur á hringprjón 3,5 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 3 umferðir slétt, prjónið síðan 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan, setjið 1 merki eftir fyrstu 26-27-28-28-29-30-31 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4,5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 9 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 31-33-35-35-37-39-41 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 9 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 31-33-35-35-37-39-41 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Nú er prjónað sléttprjón hringinn og auka á út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan með útskýringu hvernig auka á út og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir lykkju með 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan lykkju með 1. merki. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 16-19-22-22-24-23-22 sinnum (= 32-38-44-44-48-46-44 umferðir prjónaðar) = 212-240-268-268-288-284-280 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón, munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í laskalína. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón, munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í laskalína. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 5-5-4-6-6-9-11 sinnum (= 20-20-16-24-24-36-44 umferðir prjónaðar = 5-5-4-6-6-9-11 sinnum útaukning á ermum og 10-10-8-12-12-18-22 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 272-300-316-340-360-392-412 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út 26-29-30-34-36-41-44 sinnum á framstykki/bakstykki og 21-24-26-28-30-32-33 sinnum á ermum. Stykkið mælist ca 22-24-25-29-30-34-37 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið og haldið eftir fyrstu lykkjunni á prjóni (þessi lykkja tilheyrir bakstykkinu), setjið næstu 51-57-61-65-69-73-75 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 85-93-97-105-111-123-131 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 51-57-61-65-69-73-75 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 84-92-96-104-110-122-130 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 182-198-210-226-242-266-286 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 6-6-8-8-10-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 48-50-52-54-55-57-59 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-20-22-22-26-26-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 200-218-232-248-268-292-318 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af aðeins laust. Peysan mælist 51-53-55-57-59-61-63 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 51-57-61-65-69-73-75 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 57-63-69-73-79-83-87 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 0-1-3-4-7-8-9 sinnum með 0-3-3-3-2-2-2 cm millibili = 53-57-59-61-61-63-65 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-38-37-34-32-29-26 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 7-7-7-7-9-9-9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 60-64-66-68-70-72-74 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 42-41-40-37-36-33-30 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #persephonesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.