Barley Twist Sweater#barleytwistsweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópsku berustykki og köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-9 |
|||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kaðlar eru prjónaðar á framstykki og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1. BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2. FRAMSTYKKI: Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. 3. BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Lykkjur eru prjónaðar frá framstykki, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram annarri hlið á framstykki, bakstykkið er prjónað, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hinni hliðinni á framstykki = síðan er berustykkið prjónað fram og til baka yfir allar lykkjur frá miðju að framan. 4. ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, eru lykkjur einungis auknar út fyrir hálsmáli og ermum og síðan er aukið út bæði á fyrir fram- og bakstykki og ermar. Jafnframt eftir síðustu útaukningu fyrir hálsmáli eru framstykkin sett saman við miðju að framan, síðan er stykkið prjónað í hring. 5. FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 24-24-24-26-26-28-28 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Alpaca Bouclé og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 7-7-8-8-8-8-9 sinnum (= 14-14-16-16-16-16-18 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 52-52-56-58-58-60-64 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. HÆGRI ÖXL: Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 14-14-16-16-16-16-18 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-5-6-5-6-8-8 cm frá merki, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-3-4-4-4-4 sinnum (= 6-6-6-8-8-8-8 umferðir prjónaðar) = 17-17-19-20-20-20-22 lykkjur. Stykkið mælist ca 9-9-10-10-11-13-13 cm frá merki. Setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 14-14-16-16-16-16-18 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-5-6-5-6-8-8 cm frá merki, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-3-4-4-4-4 sinnum (= 6-6-6-8-8-8-8 umferðir prjónaðar) = 17-17-19-20-20-20-22 lykkjur. Stykkið mælist ca 9-9-10-10-11-13-13 cm frá merki. Síðan eru framstykkin og bakstykkið sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar jafnframt því sem útaukning fyrir hálsmáli heldur áfram og auka á út fyrir ermar, prjónið eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið frá réttu með lykkjur frá vinstra framstykki: Prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki hér, prjónið upp 12-12-14-14-16-18-18 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjur eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, setjið til baka lykkjur frá bakstykki á prjóninn, prjónið fyrstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 12-12-14-14-16-18-18 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, setjið til baka lykkjur frá hægra framstykki á prjóninn, prjónið fyrstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið síðustu 3 lykkjur slétt = 108-108-120-124-128-134-142 lykkjur. Útaukningu fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 10-10-11-11-12-14-14 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 9-9-10-10-11-12-12 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 1-1-1-1-1-2-2 cm. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið út umferðina = 112-112-124-128-132-138-146 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt út umferðina, fitjið síðan upp 15-15-15-15-15-17-17 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar = 131-131-143-147-151-159-167 lykkjur. Síðan á að prjóna stykkið í hring yfir allar lykkjur. BERUSTYKKI: Prjónið fram að fyrsta merki (þ.e.a.s. að lokum á framstykki), umferðin byrjar hér, þ.e.a.s. í skiptingunni á milli framstykkis og vinstri ermi og prjónað er í hring þannig: UMFERÐ 1: Færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki (= bakstykki), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= hægri ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 12-12-14-13-13-12-14 lykkjur slétt, prjónið A.1 yfir næstu 25-25-25-29-29-33-33 lykkjur, prjónið 12-12-14-13-13-12-14 lykkjur slétt (= framstykki) = 135-135-147-151-155-163-171 lykkjur. UMFERÐ 2: Færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, haldið áfram í sléttprjóni og A.1 yfir lykkjur á framstykki = 151-151-163-167-171-183-191 lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, lykkjufjöldinn á hvorri ermi eykst, lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki verður sá sami. UMFERÐ 3: Prjónið slétt og A.1 án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 7-5-6-6-5-2-2 sinnum (= 14-10-12-12-10-4-4 umferðir prjónaðar, EN þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 yfir þessar lykkjur á framstykki. A.2 er endurtekið á hæðina og aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). Aukið hefur verið út alls 10-8-9-9-8-5-5 sinnum á ermum = 32-28-32-32-32-28-28 lykkjur á hvorri ermi, 50-50-54-56-56-58-62 lykkjur á bakstykki og 61-61-65-67-67-73-77 lykkjur á framstykki) = 175-167-183-187-187-187-195 lykkjur. Síðan á að auka út bæði á ermum og fram- og bakstykki – aukið er út fyrir fram- og bakstykki innan við 2 lykkjur í sléttprjóni í hvorri hlið á framstykki/bakstykki – prjónið þannig: UMFERÐ 1: Færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt og A.2 eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. aukið hefur verið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í hvorri skiptingu á milli fram- og bakstykki og erma). UMFERÐ 2: Prjónið slétt og A.2 án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-5-5-6-9-12-12 sinnum (= 6-10-10-12-18-24-24 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 13-13-14-15-17-17-17 sinnum á ermum og 3-5-5-6-9-12-12 sinnum á fram- og bakstykki = 38-38-42-44-50-52-52 lykkjur á hvorri ermi, 56-60-64-68-74-82-86 lykkjur á bakstykki og 67-71-75-79-85-97-101 lykkjur á framstykki = 199-207-223-235-259-283-291 lykkjur. Ermin mælist ca 14-14-15-16-18-18-18 cm – þegar peysan er brotin saman tvöföld við öxl, á stykkið að mælast ca 19-19-20-21-24-25-25 cm frá yst á öxl og niður meðfram handveg. Ef stykkið mælist styttra en þetta, prjónið að tilgreindu máli án þess að auka út. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 38-38-42-44-50-52-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 56-60-64-68-74-82-86 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki), setjið næstu 38-38-42-44-50-52-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið síðustu 67-71-75-79-85-97-101 lykkjur í sléttprjóni og kaðlaprjóni eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 135-147-155-167-179-203-215 lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni með mynstri á framstykki eins og áður þar til stykkið mælist 21-23-23-25-22-23-24 cm frá skiptingunni – stillið af að prjónaðar séu 3 til 5 umferðir á eftir umferð með snúning í kaðli. Skiptið yfir á hringprjón 4,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 13-13-15-17-19-21-23 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (4 af þessum lykkjum eru auknar út með því að auka út 1 lykkju í hverri einingu merktri með ör í A.2, þær 9-9-11-13-15-17-19 lykkjur sem eru eftir eru auknar út jafnt yfir = 148-160-170-184-198-224-238 lykkjur – stroffið á að ganga fallega upp miðað við mynstur að framan þannig að brugðnu lykkjurnar í mynstri halda áfram niður í stroffi. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 38-38-42-44-50-52-52 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 6 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 44-46-50-54-60-64-66 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2-2-3-3-5-5-5 sinnum í annarri hverri umferð = 40-42-44-48-50-54-56 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist ca 10-11-9-9-7-7-7 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 2-4-4-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 42-46-48-52-54-58-60 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 14-15-13-13-12-12-12 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI (stroff með i-cord affellingu): Notið hringprjón 4,5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir). Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 72-72-74-76-78-88-88 lykkjur innan við 1 lykkju, prjónið 1 umferð slétt þar til lykkjufjöldinn er e.t.v. jafnaður út – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-3½-3½-4-4 cm. Þegar síðasta umferðin hefur verið prjónuð byrjar affellingin þannig: BYRJUN (= rétta): Fitjið upp 2 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu. Lyftið 2 nýju lykkjunum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjónað er með sitji 2 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn sem prjónað er með á stykkinu, þannig að það myndast snúruprjón). UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið næstu 2 lykkjur snúnar slétt saman. Lyftið til baka 2 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Ekki snúa stykkinu. Endurtakið UMFERÐ 1 þar til 2 lykkjur eru eftir. Lyftið til baka 2 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið lítið spor sem bindur byrjun og lok á i-cordinum saman. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #barleytwistsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 47 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.